Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 12
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Sumum norðan Glerár fannst bein-
línis notalegt þegar rafmagnið fór af
í hálftíma í fyrrakvöld. Kveiktu á
kertum og töluðu við börnin sín við
flöktandi kertaljós. Ekkert sjón-
varp, engin tölva; dásamlegt.
Á árum áður var rafmagnsleysið
gjarnan að kenna krapa í Laxá, en
nú var það 11 þúsund volta kapall í
spennistöð Norðurorku við Urðargil
sem brann og skapaði þessa róm-
antísku stemningu í stutta stund.
Tíu snjóbyssur voru ræstar í
Hlíðarfjalli í gærmorgun. Frosti er
spáð allra næstu daga og einhverri
úrkomu. Skothríðin nægir vonandi í
gott undirlag svo hægt verði að
opna brekkurnar fljótlega.
Áhugafólki um góða leiklist skal
bent á verkið Saknað, sem Silf-
urtunglið býður upp á í Rýminu.
Áhrifaríkt verk eftir Jón Gunnar
Þórðarson, sem leikstýrir sjálfur.
Sýningar verða aðeins sex, þær síð-
ustu í kvöld og á morgun.
Ekki er hægt að segja Saknað sé
beinlínis falleg sýning, en hún er það
þó einhvern veginn samt. Áhorfand-
inn sveiflast dálítið og það er ekki
fyrr en í blálokin að hann áttar sig.
mjög áhrifamikil sýning.
Þetta nýja verk Jóns Gunnars
gerist í samtímanum og hefur
óþægilegar skírskotanir til atburða
sem fólk kannast við. Leikararnir
eru góðir en ég verð að nefna sér-
staklega Kára Viðarsson, sem var
afar sannfærandi. Hreinlega frá-
bær.
Aðventuævintýri á Akureyri
hefst á morgun, laugardag, en þá
verða ljósin tendruð á jólatrénu á
Ráðhústorgi. Tréð er gjöf frá Rand-
ers, vinabæ Akureyrar í Danmörku.
Dagskráin hefst klukkan 14.50 og
lýkur rétt fyrir kl. 16.00.
Boðið verður upp á fjölbreytta
jónatónlist á torginu, fyrir börn og
fullorðna, og von er á jólasveinum. Á
morgun verður á nýjan leik kveikt á
hjartanu í Vaðlaheiðinni.
Aðventuævintýrið heldur svo
áfram fram að jólum og verður ým-
islegt á dagskrá. Sjá nánar á vefnum
visitakureyri.is
KEA úthlutaði í vikunni styrkjum
úr Menningar- og viðurkenn-
ingasjóði. Þetta er í 78. sinn sem
KEA veitir styrki úr sjóðnum, nú
alls 6,1 milljón króna. Nánar á
www.kea.is
Hljómsveitin Dikta verður með
útgáfutónleika á Græna hattinum í
kvöld kl. 22. Tilefnið er útkoma
breiðskífunnar Trust me, þeirrar
fjórðu sem sveitin gefur út.
Rómantík í boði Norðurorku
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Saknað Ívar Helgason og Kári Viðarsson í verki Jóns Gunnars í Rýminu.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011
NÝR ÞÁTTUR
Á FÖSTUDÖGUM
Í MBL SJÓNVARPI!
Ljósin verða tendruð á vinabæjarjólatré Kópa-
vogsbúa á Hálsatorgi laugardaginn 26. nóv-
ember kl. 16:00. Jólatréð er gjöf bæjarbúa í
Norrköping í Svíþjóð til Kópavogsbúa. Sendi-
herra Svíþjóðar, Anders Ljunggren, afhendir
tréð og Hjálmar Hjálmarsson, forseti bæjar-
stjórnar, tekur á móti því fyrir hönd bæjarins.
Skólahljómsveit Kópavogs og Samkór Kópa-
vogs spila og syngja jólalög og nokkrir jóla-
sveinar taka forskot á sæluna og kíkja í heim-
sókn. Að venju verður fjölbreytt dagskrá í
næsta nágrenni í tilefni dagsins. Jólakötturinn
verður m.a. á kreiki í Bókasafni Kópavogs og
dýrin í Náttúrufræðistofu Kópavogs skrýðast
jólabúningi. Laufabrauðsgerð fer fram í Gjá-
bakka og listamenn í miðbæ Kópavogs opna
vinnustofur sínar upp á gátt. Nánar á vefnum
www.kopavogur.is.
Kveikt á vinabæjarjólatré í Kópavogi
Ljósin á Hamborgartrénu verða tendruð kl. 17:00
laugardaginn 26. nóvember en tréð stendur á Mið-
bakka Reykjavíkurhafnar. Þetta er í 47. skiptið sem
góðir vinir í Hamborg senda jólatré hingað. Við at-
höfnina munu fulltrúar frá Hamborg flytja stutt
ávarp um leið og þeir afhenda gjöfina og Hjálmar
Sveinsson, stjórnarformaður Faxaflóahafna sf.,
þakkar fyrir. Sendiherra Þýskalands á Íslandi, Her-
mann Sausen, ávarpar gesti við tréð. Að athöfn lok-
inni verður gestum boðið í heitt súkkulaði og viðeig-
andi bakkelsi í Hafnarbúðum. Skólakór Kársnes-
skóla syngur jólalög undir stjórn Þórunnar Björns-
dóttur. Þessi siður, að senda jólatré til Reykjavíkur-
hafnar, er tileinkaður íslenskum togarasjómönnum sem sigldu á Hamborg
með fisk strax eftir seinni heimsstyrjöldina og þess er sérstaklega minnst
að þeir gáfu svöngu og ráðlausu fólki á hafnarsvæðinu mat.
Ljósin tendruð á Hamborgartrénu
Hjartaheill, landssamtök hjarta-
sjúklinga, afhentu nýlega Vild-
arbörnum Icelandair átta fullar föt-
ur af erlendri smámynt úr söfn-
unarbaukum sínum. Sjóðurinn
Vildarbörn er m.a. fjármagnaður
með söfnun myntar um borð í vél-
um Icelandair. Markmið hans er að
gefa langveikum börnum, for-
eldrum þeirra og systkinum tæki-
færi til þess að fara í draumaferð. Á
mynd eru frá vinstri frá Hjarta-
heillum Guðmundur Bjarnason for-
maður, Dóra Elín Atladóttir, for-
stöðumaður Vildarbarna Iceland-
air, Guðrún Franzdóttir, Ásgeir
Þór Árnason framkvæmdastjóri,
Kristján Smith, Sveinn Guðmunds-
son varaformaður og Rúrik Krist-
jánsson.
Gáfu Vildarbörnum
fullar fötur af mynt
Skákdeild Fjölnis heldur hið árlega
TORG-skákmót laugardaginn 26.
nóvember í Hlöðunni við Gufu-
nesbæ, rétt við Skemmtigarðinn í
Grafarvogi. Mótið hefst kl. 11:00.
Skákdeild Fjölnis hefur veg og
vanda af framkvæmdinni og nýtur
stuðnings fyrirtækja í Grafarvogi
sem gefa um 30 vinninga og veit-
ingar í skákhléi.
Skákstjórar verða þeir Stefán
Bergsson frá Skákakademíunni og
Helgi Árnason frá Skákdeild Fjöln-
is.
Tefldar verða sex umferðir með
sjö mínútna umhugsunarfresti.
Mótinu lýkur kl. 13:00. Skráning á
mótsstað og eru þátttakendur
beðnir að mæta tímanlega.
Torgmót Fjölnis í
hlöðunni í Gufunesi
Su Ge, sendiherra Alþýðulýðveld-
isins Kína á Íslandi, flytur erindið
„Samskipti Íslands og Kína í al-
þjóðlegu samhengi“ á Háskólatorgi
föstudaginn 25. nóvember kl. 13:20-
14:20. Hann mun ræða samskipti Ís-
lands og Kína og framtíðarhorfur á
þessu fertugasta ári stjórnmála-
sambands ríkjanna.
Aðgangur er ókeypis.
Ræðir samskipti Ís-
lands og Kína
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Skoðun keppnishrossa á Landsmóti
hestamanna í sumar leiddi í ljós
áverka á neðri kjálka margra hrossa.
Eru þeir einkum taldir stafa af notk-
un ákveðinnar gerðar beislisméla
sem aukist hefur á undanförnum ár-
um. Landssamband hestamanna-
félaga hefur brugðist við með skipun
velferðarhóps sem á að taka á mál-
unum.
Dýralæknar hafa á undanförnum
landsmótum skoðað keppnishross
samkvæmt fyrirkomulagi sem Sigríð-
ur Björnsdóttir, dýralæknir hrossa-
sjúkdóma hjá Matvælastofnun, hefur
þróað í samvinnu við LH. Við skoðun
á landsmótinu á Vindheimamelum í
sumar fundust áverkar í munni um
fjórðungs hrossanna sem kepptu,
sem er svipað og á fyrri mótum, en
minna bar á bólgum í fótum en oft áð-
ur. Tveir hestar fengu ekki að hefja
keppni vegna helti. Þá voru svokölluð
ágrip, þegar fætur hests rekast sam-
an, ekki algeng nema eftir keppni í A-
flokki gæðinga. Sigríður Björnsdóttir
segir það ákveðin vonbrigði að
ástandið í heild hafi ekki batnað.
Getur haft varanleg áhrif
Áverkar í munni voru kannaðir
betur en á fyrri mótum. Þannig var
kjálkabein í neðri kjálka skoðað eins
og mögulegt var og þreifað á tann-
lausa bilinu. Kom í ljós að þar voru
bólgur og sár hjá 51 hrossi, eða um
15% hrossanna.
Áverkar þessir eru hrein viðbót við
áverka á mjúkvef í munni sem kann-
aðir hafa verið á fyrri mótum.
Sigríður segir að meiðsli á kjálka-
beini séu metin alvarleg út frá velferð
dýra. Hún segir að þetta sé viðkvæmt
svæði þar sem enginn mjúkvefur sé
til að dempa þrýsting. Hann geti því
fljótt valdið sársauka. Dæmi voru um
að komin væri beinhimnubólga og op-
in sár og því hætta á varanlegum
skaða.
Áverkarnir eru raktir til óvarlegr-
ar notkunar stangarméla með tungu-
boga. Sigríður tekur fram að knap-
arnir hafi almennt ekki vitað um
áverkana.
Þessi tegund méla er algeng í
hestamennsku um allan heim og hef-
ur notkun á þeim verið að færast í
aukana hér á landi. Sigríður segir
mikilvægt að knapar séu meðvitaðir
um áhrif þessa búnaðar og gæti þess
að ofnota hann ekki.
LH ræðir aðgerðir
Stjórn Landssambands hesta-
mannafélaga ákvað að stofna velferð-
arhóp til að taka á þessum málum,
strax og Sigríður kynnti niðurstöður
sínar. „Hópurinn mun fjalla um það
hvort hægt er að bregðast við með
aukinni fræðslu eða hvort lagt verður
til að notkun ákveðins búnaður verð-
ur bönnuð í keppni. Það verður að
gera á upplýstan hátt og án allra öfga,
en með velferð hestsins að leiðar-
ljósi,“ segir Haraldur Þórarinsson,
formaður LH.
Alvarlegir áverkar á
kjálka keppnishrossa
Morgunblaðið/Ómar
Frá landsmóti hestamanna Kröfur um afköst keppnishrossa aukast sífellt.
LH skipar nefnd til að bregðast við ábendingu dýralæknis
Mél Stangarmél með bogatungu.