Morgunblaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011
Lykilstjórnendur Haga, sem meðal annars eiga Bónus
og Hagkaup, fá 1,4% hlut í félaginu samkvæmt sam-
komulagi sem þeir gerðu við Arion banka í febrúar á
síðasta ári, segir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðu-
maður samskiptasviðs Arion banka, í samtali við
Morgunblaðið.
Samkomulagið fól í sér forkaupsrétt á allt að 5%
hlut í Högum með afslætti. Í stað þess að efna for-
kaupsréttinn afhenti Eignarbjarg stjórnendunum
1,4% hlut í Högum sem nam þeim afslætti sem samið
hafði verið um. Verðmæti hlutarins nemur um 170
milljónum króna en heildargreiðsla til þeirra nemur
um 340 milljónum króna. Skattur er hins vegar
greiddur af samkomulaginu og standa stjórnendur
Haga því eftir með 170 milljón króna hlut í félaginu.
Að sögn Haraldar er það Eignarbjarg, dótturfélag
Arion banka, sem ber allan kostnaðinn af sam-
komulaginu.
Í stjórnarháttayfirlýsingu Haga, sem var und-
irrituð 18. nóvember sl. og birt hefur verið á vefsíðu
félagsins, má sjá við hvaða stjórnendur Arion banki
gerði fyrrnefnt samkomulag. Þeir eru Finnur Árna-
son, forstjóri Haga, Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, Gunnar Ingi Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Hagkaupa, Lárus Óskarsson,
framkvæmdastjóri Aðfanga, og Kjartan Már Frið-
steinsson, framkvæmdastjóri Banana. Hlutur Finns er
mestur, eða ríflega fjórar milljónir hluta, Guðmundur
2,8 milljónir hluta, Kjartan rúmlega milljón hluti en
Gunnar Ingi og Lárus eiga 547 þúsund hluti hvor.
Almennt útboð á hlutabréfum í Högum verður
kynnt á næstu dögum. Í útboðinu mun almenningi og
fagfjárfestum bjóðast að kaupa 20-30% af útgefnum
hlut í smásölurisanum. Óskað verður eftir áskriftum
á verðbilinu 11-13,5 krónur á hlut. Fyrr á þessu ári
seldi Eignarbjarg 34% hlut til Búvalla slhf., félags í
eigu lífeyrissjóða og annarra fagfjárfesta, á genginu
10 krónur á hlut. Að auki samdi félagið um kauprétt
á 10% útgefinna hlutabréfa til viðbótar á genginu 11
sem þegar hefur verið nýttur. hordur@mbl.is
Lykilstjórnendur Haga hafa
eignast 1,4% hlut í félaginu
STUTTAR FRÉTTIR ...
● Mikill meirihluti stjórnenda fyrirtækja
telur aðstæður í atvinnulífinu vera
slæmar og flestir telja líklegt að þær
breytist ekki. Þetta kemur fram í nýrri
könnun Capacent á viðhorfum stjórn-
enda stærstu fyrirtækja landsins. Sam-
kvæmt könnuninni telja 72% stjórn-
enda aðstæður slæmar, 26% að þær
séu hvorki góðar né slæmar en aðeins
2% að þær séu góðar. Meiri svartsýni
ríkir á meðal stjórnenda á landsbyggð-
inni en höfuðborgarsvæðinu.
Svartsýni í atvinnulífinu
Framtakssjóður Íslands áformar að tæplega 90%
núverandi eignasafns sjóðsins verði skráð á hluta-
bréfamarkað innan þriggja ára. Þau fyrirtæki sem
til stendur að skrá á markað eru SKÝRR, N1, Ice-
landic Group og Promens.
Fram kemur í tilkynningu að nú sé hlutur sjóðs-
ins í Icelandair eina skráða eign sjóðsins. Þessi
umbreyting sé í samræmi við stefnu Framtaks-
sjóðsins um að taka þátt í endurreisn hlutabréfa-
markaðar á Íslandi.
Þetta sé á meðal þess sem hafi komið fram í er-
indi Finnboga Jónssonar, framkvæmdastjóra
Framtakssjóðsins, á málþingi Deloitte, Kauphall-
arinnar og Viðskiptaráðs um virkan hlutabréfa-
markað á Íslandi í gær. Í tilkynningu sjóðsins seg-
ir að SKÝRR sé í dag níunda stærsta
upplýsingatæknifyrirtæki á Norðurlöndum, með
starfsemi á Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Áætluð
velta félagsins á yfirstandandi ári sé um 24 millj-
arðar króna og hjá félaginu starfi um 1.100 manns,
þar af um 600 á Íslandi.
Með 35-40% markaðshlutdeild
Icelandic Group sé alþjóðlegt sjávarútvegsfyr-
irtæki. Í lok árs 2011, eftir að eignir félagsins í
Bandaríkjunum og tengd starfsemi hafi verið
seldar, sé gert ráð fyrir að Icelandic Group reki
starfsemi á Íslandi, í Evrópu og Asíu, áætluð
heildarvelta verði rúmlega 80 milljarðar króna og
starfsmenn verði um 1.200 talsins.
„N1 er leiðandi fyrirtæki á íslenskum eldsneyt-
ismarkaði með um 35-40% hlutdeild. Velta félags-
ins á árinu 2010 var um 46 milljarðar króna og er
helmingur sölu annað en eldsneyti. Hjá félaginu
starfa um 650 manns. Félagið hefur nýlega lokið
við fjárhagslega endurskipulagningu og er rekstr-
argrundvöllur félagsins orðinn sterkur á ný.
Promens er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu
plastafurða og rekur 47 verksmiðjur Í Evrópu,
Norður-Ameríku, Asíu og Afríku. Lykilverksmiðj-
ur eru á Dalvík og í Bretlandi, Þýskalandi, Hol-
landi og Póllandi. Tekjur félagsins námu 560 millj-
ónum evra á síðasta ári og EBITDA var um 50
milljónir evra. Um 4.200 manns starfa hjá fyr-
irtækinu,“ segir í tilkynningunni. agnes@mbl.is
Um 90% eigna brátt á markað
Framtakssjóður Íslands ætlar m.a. að skrá innan þriggja ára SKÝRR og N1
Í samræmi við stefnu sjóðsins um að taka þátt í endurreisn hlutabréfamarkaðar
● Alþjóðlega
matsfyrirtækið
Fitch hefur lækkað
lánshæfiseinkunn
Portúgals í BB+,
sem þýðir að
portúgölsk rík-
isskuldabréf eru
flokkuð í svokall-
aðan ruslflokk.
Fitch segir að horf-
ur í efnahagsmálum séu neikvæðar og
að landið sér gríðarlega skuldsett og
þar sem horfur séu neikvæðar þá sé
mögulegt að lánshæfiseinkunnin verði
lækkuð enn frekar. Portúgal hefur feng-
ið 78 millarða evra neyðarlán frá ESB
og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Fitch lækkar Portúgal í
ruslflokk – BB+
Portúgal
● Áhættuálagið á tíu ára ítölsk rík-
isskuldabréf fór í gær aftur upp fyrir
7% eftir að í ljós kom að leiðtogar
Þýskalands og Frakklands næðu ekki
samkomulagi um að heimila Evrópska
seðlabankanum að gegna hlutverki lán-
veitanda til þrautavara á skuldabréfa-
markaði. Það er mat sérfræðinga að
skuldastaða ítalska ríkisins, sem nemur
ríflega 120% af landsframleiðslu, sé
ósjálfbær miðað við 5,5% fjármagns-
kostnað.
Vextir á ítölsk ríkis-
skuldabréf yfir 7%
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Hagvöxtur á næsta ári mun mælast
2,4% og verður fyrst og fremst knú-
inn áfram af einkaneyslu og atvinnu-
vegafjárfestingu. Í uppfærðri þjóð-
hagsspá Hagstofunnar er áætlað að
hagvöxtur á þessu ári verði 2,6% eft-
ir um 11% samdráttarskeið frá árinu
2008. Þrátt fyrir að efnahagshorfur
helstu viðskiptalanda Íslands – þá
sérstaklega á evrusvæðinu – hafi
versnað til muna að undanförnu, tel-
ur Hagstofan ekki að viðskiptakjör
Íslands rýrni mikið vegna þess.
Ekki kemur á óvart að Hagstofan
lækki hagvaxtarspá sína frá júlímán-
uði úr 3,1% í 2,4% en flestir greining-
araðilar töldu þá spá óraunhæfa.
Mikill samhljómur er í spá Hagstof-
unnar og nýlegrar hagspár Seðla-
bankans, en hann spáir 2,3% hag-
vexti á næsta ári.
Sem fyrr segir telur Hagstofan að
vaxandi einkaneysla samhliða auk-
inni fjárfestingu standi undir hag-
vextinum á næsta ári. Gert er ráð
fyrir að einkaneysla aukist um 3% á
árinu 2012 og fjárfesting um 16,3%.
Einkaneysla verður meðal annars
drifin áfram af kjarasamnings-
bundnum launahækkunum, úttekt-
um á séreignarsparnaði og vaxta-
endurgreiðslum Landsbankans.
Atvinnuvegafjárfesting mun aukast
um 19% á næsta ári og vega þar
þyngst framkvæmdir vegna álvers-
ins í Straumsvík ásamt fjárfesting-
um við kísilverksmiðjuna í Helguvík.
Verðbólguhorfur versnað
Verðbólguhorfur hafa heldur
versnað yfir spátímabilið miðað við
júlíspána vegna veikingar á gengi
krónunnar á fyrri hluta ársins,
hækkana á hrávörumörkuðum og
launahækkana sem samið var um í
kjarasamningum. Talið er að verð-
bólgan nái hámarki á fyrsta fjórð-
ungi 2012 og fari síðan minnkandi en
spáð er 4,2% verðbólgu á næsta ári.
Verðbólgumarkmið Seðlabankans
mun ekki nást fyrr en í árslok 2013
samkvæmt spá Hagstofunnar og
reiknað er með að stýrivextir fari
hækkandi þegar líður á spátímabilið.
Hagstofan bendir á að fjölgun al-
varlegra vanskila bendi til þess að
mörg heimili séu enn í miklum
skuldavanda. Þau gögn sem liggja
fyrir gefa til kynna að 2011 sé annað
árið í röð sem afborganir af lánum
heimilanna eru umtalsvert minni en
2009. Leiddar eru líkur að því að eft-
ir að skuldaaðlögun heimilanna lýk-
ur muni einkaneyslan dragast sam-
an.
Þjóðhagsspá Hagstofunnar er háð
ýmsum óvissuþáttum – ekki síst því
hvort stóriðjuframkvæmdir verði
minni á næsta ári en spáin gerir ráð
fyrir. Slíkt myndi óhjákvæmilega
leiða til umtalsvert minni hagvaxtar.
Rétt eins og Hagstofan bendir á gæti
þróunin á erlendum mörkuðum leitt
til verri viðskiptakjara fyrir íslensk
útflutningsfyrirtæki. Að sama skapi
gæti skuldavandi heimila og fyrir-
tækja haldið aftur af innlendri eft-
irspurn á komandi misserum.
Hægur bati í kortunum
Minni hagvexti og meiri verðbólgu spáð í uppfærðri þjóðhagsspá Hagstofunnar
Hætta á að einkaneysla dragist saman eftir að skuldaaðlögun heimila lýkur
Þjóðhagsspá Hagstofunnar
(Nóv 2011)
2010 2011 2012 2013
Hagvöxtur -4 2,6 2,4 2,5
Atvinnuleysi 8,1 7,4 6,4 4,9
Verðbólga 5,4 4,1 4,2 2,9
Einkaneysla -0,4 3,1 3 2,9
Fjárfesting -8 8,5 16,3 7,2
Hagspá Seðlabanka Íslands
(Okt 2011)
2010 2011 2012 2013
Hagvöxtur -4 3,1 2,3 2,3
Atvinnuleysi 8,1 7,4 6,2 5,8
Verðbólga 5,4 4,1 4,1 3
Einkaneysla -0,4 2,9 3,1 3,2
Fjárfesting -8 6,7 16,5 4,4
Heimild: Seðlabanki Íslands og Hagstofan
Krafa Lands-
bankans um töku
bús Kex ehf., fé-
lags í eigu Egg-
erts Magn-
ússonar, til
gjaldþrotaskipta,
verður tekin fyrir
á dómþingi hér-
aðsdóms Reykja-
víkur, miðviku-
daginn 11. janúar 2012, kl. 9.15.
Þetta kemur fram í nýjasta hefti
Lögbirtingablaðsins sem kom út í
gær.
Þar segir orðrétt: „Hér með er
lagt fyrir fyrirsvarsmann gerð-
arþola, Eggert Magnússon, með lög-
heimili í Bretlandi, að mæta þá fyrir
dómi (11. janúar 2012) og halda uppi
vörnum ef einhverjar eru, en ella má
búast við að krafan verði tekin til
greina með úrskurði um gjald-
þrotaskipti.“
Það var Jón Finnbjörnsson hér-
aðsdómari sem ákvað fyrirkallið
vegna gjaldþrotaskiptabeiðni
Landsbankans, í Héraðsdómi
Reykjavíkur síðastliðinn þriðjudag,
hinn 22. nóvember.
Eggert Magnússon
Krafa um
gjaldþrota-
skipti
Félag Eggerts
Magnússonar
Íslandsbanki
mun kaupa
11,8% hlut ís-
lenska rík-
isins og 88,2%
hlut Byrs á
6,6 milljarða
króna. Al-
þingi hefur
samþykkt
sölu á hlut
ríkisins og því er allri samn-
ingagerð lokið. Fram kemur í til-
kynningu að efnahagsreikningur
sameinaðs banka verði um 814
milljarðar króna og eiginfjárhlut-
fall bankans, miðað við samruna-
reikning, vel yfir 20%.
Kaupir Byr á
6,6 milljarða
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+,0-10
++2-/,
3+-2//
34-201
+/-34.
+3.-2.
+-50+1
+,0-,5
+5,-..
++.-35
+,5-4.
++0-++
3+-00
34-041
+/-35.
+3.-/5
+-501+
+,5-0
+5.-02
3+5-2355
++.-52
+,5-50
++0-00
3+-542
34-011
+/-24.
+24-++
+-5541
+,5-.5
+5.-,/
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á