Morgunblaðið - 25.11.2011, Side 44
Á sunnudag Suðvestangola með éljum suðvestantil, en björtu veðri
norðaustantil. Á mánudag Suðvestlæg átt með slyddu eða
snjókomu og hlýnandi veðri um tíma sunnan- og austanlands.
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 329. DAGUR ÁRSINS 2011
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Ég verð að komast til Íslands
2. Fá ekki desemberuppbót
3. Ekki starfi sínu vaxinn
4. Nýtt met í Boston-ferðum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Frostrósir hefja jólatónleikaferð
sína í dag og er fyrsti viðkomustaður
Færeyjar. Þar verða haldnir fernir
tónleikar í Norðurlandahúsinu í Þórs-
höfn. Frostrósir koma í kjölfarið fram
á 15 stöðum hér á landi.
Frostrósir hefja tón-
leikaferð í Færeyjum
Ingólfur Steins-
son og félagar
munu standa fyrir
útgáfutónleikum
á Rósenberg
næsta mánudag
en tilefnið er plat-
an Segið það
móður minni, þar
sem finna má lög
við kvæði Davíðs Stefánssonar. Með í
för verða dætur hans, þær Sunna og
Adda, og verða m.a. flutt lög af vænt-
anlegri plötu Öddu.
Ingólfur Steinsson
með útgáfutónleika
Gylfi Ægisson, hinn eini og
sanni, hrærði í afmælistónleika í
Salnum 12. nóvember síðastliðinn
og komust færri að en vildu. Hann
ætlar því að endurtaka leikinn í
kvöld á sama stað. „Þetta verður
annar hringur - með
gjöfum og öllu!“
sagði Gylfi við
Morgunblaðið
og hló sín-
um bráð-
smitandi
hlátri.
Gylfi Ægisson slær í
gegn í Salnum
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg norðaustlæg eða breytileg átt og
sums staðar dálítil él, en norðan 18-23 m/s austanlands með snjó-
komu eða slyddu.
VEÐUR
Haukar eru einir í efsta sæti
úrvalsdeildar karla í hand-
knattleik, N1-deildinni, eftir
að 9. umferð lauk í gær-
kvöldi. Hafnfirðingar unnu
uppgjör toppliðanna þegar
þeir lögðu Fram í Safamýri,
27:25, í skemmtilegum leik.
Lítil spenna var í hinum
leikjunum tveimur þar sem
HK burstaði neðsta liðið,
Gróttu, og Valur vann stór-
sigur á Aftureldingu í Mos-
fellsbæ. »2-3
Haukar eru einir
í efsta sæti
Grindvíkingar fóru illa með Íslands-
meistara KR í úrvalsdeildinni í körfu-
bolta í gærkvöld og unnu þá með 26
stiga mun í Vesturbænum. KR-ingar
voru eins og höfuðlaus her á vellinum í
40 mínútur á meðan Grindvíkingar
spiluðu frábæran körfu-
bolta. Yfirburðalið í
dag, skrifar Kristinn
Friðriksson í um-
sögn sinni um
leikinn. »4
Grindvíkingar frábærir
en KR höfuðlaus her
„Þegar maður fer út á brautina getur
maður einfaldlega ekki sett sér mark-
mið eins og þetta því til að ná þessu
þarf eiginlega allt að smella saman.
Ef ég hefði sagt fyrir leikinn að ég
ætlaði að skora svona hátt hefði bara
verið hlegið að mér. Þetta er eigin-
lega stjarnfræðilega hátt skor,“ sagði
keilumaðurinn Hafþór Harðarson um
glæsilegt Íslandsmet sitt. »2-3
Ekki hægt að setja sér
markmið eins og þetta
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Svava Torfadóttir er farin að huga
að sendingu árlegs jólapakka til
Lilly Otting, norskrar penna-
vinkonu sinnar. Þær hafa verið í
sambandi í nær 70 ár eða allt frá
því börn í barnaskólanum í Vest-
mannaeyjum tóku þátt í að senda
pakka til norskra barna, sem áttu
erfitt uppdráttar á árunum 1943-
1945.
„Það var mikil fátækt í Noregi á
þessum árum,“ rifjar Svava upp, en
talið er að Íslendingar hafi sent um
16.000 fata- og matarpakka til Nor-
egs á þessum tíma. Hún segir að í
þakkarbréfi sem skólanum í Vest-
mannaeyjum hafi borist hafi verið
nafnalisti þiggjenda gjafanna ásamt
heimilisföngum og hún hafi skrifað
einni stúlkunni, Lilly Otting í Norð-
ur-Noregi. Þær hafi tengst sterkum
böndum og haldi stöðugt sambandi.
Bréf, pakkar og heimsóknir
„Við skrifuðumst talsvert á þegar
við vorum unglingar,“ segir Svava.
Hún hafi skrifað á íslensku en Lilly
á norsku. Þannig hafi það verið all-
an tímann og ekki komið að sök.
Samskiptin hafi dottið svolítið niður
eftir að þær fóru að búa og eignast
börn en þráðurinn hafi aldrei slitn-
að. „Við héldum alltaf þeim sið að
senda pakka og kveðju um jólin,“
heldur hún áfram og bætir við að
samskiptin hafi aukist á ný eftir að
Lilly hafi orðið sjötug 1999. Þá hafi
norskt blað sagt frá þessu sam-
bandi og boðið henni með blaða-
manni í kjölfarið til Íslands. „Hún
bjó hjá mér í viku og það var rosa
gaman að kynnast henni,“ segir
Svava. Fyrir nokkrum árum fóru
Svava og dóttir hennar í heimsókn
til Lilly og treystu enn böndin. Þær
hafa talað saman í síma á afmælum
og öðrum merkisdögum og fylgst
með gangi mála hjá fjölskyldunum.
„Mér þykir afskaplega vænt um
þetta fólk. það er svolítið nálægt
manni þó að það sé langt í burtu,“
segir Svava. „Við höfum verið í
sambandi í hátt í 70 ár. Hún talar
og skrifar norsku og ég tala og
skrifa íslensku. Það hefur gengið
vel.“
Háhælaðir skór
Tengsl hafa líka myndast milli
dætra kvennanna og segir Svava að
það hafi enn styrkt sambandið. Hún
segir að í söfnunarpakkanum á
stríðsárunum hafi Lilly fyrst fengið
kjól og háhælaða skó. „Hún bjó í
sveit og sagði að mamma sín hefði
þusað yfir því að ekki gæti hún
gengið á þessum skóm í fjósinu, en
sendingin var engu að síður kær-
komin.“ Svava hefur ekki ákveðið
hvað verði í pakkanum að þessu
sinni, en það verða ekki háhælaðir
skór. „Ég er hrædd um að hún réði
ekki við að ganga í þeim núna,
blessunin.“
Háhælaðir skór gera sitt gagn
Pennavinir á
Íslandi og í Noregi
í tæplega 70 ár
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Fyrsta gjöfin Svava Torfadóttir með fyrstu gjöfina sem hún fékk frá Lilly Otting. Þær eru saman á neðri myndinni.
VEÐUR » 8 www.mbl.is