Morgunblaðið - 05.12.2011, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2011
...gjöriði
svo vel
www.ms.is
Sumir líta á Hrísmjólkina sem sparimorgunmat,
aðrir sem gómsætt millimál. En það er vel þekkt
leyndarmál að Hrísmjólkin er líka glæsilegur
eftirréttur í skál sem þú getur reitt fram hraðar
en gestirnir ná að segja: „Takk fyrir mig.“
...hvert er
þitt eftirlæti?
11
-0
56
8
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
Ísraelskir ráðherrar brugðust illa
við fréttum þarlendra fjölmiðla í
gær þess efnis að utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, Hillary
Clinton, væri uggandi um framtíð
lýðræðis og réttindi kvenna í land-
inu, að því er fram kemur á vef
fréttaveitunnar AFP. Ummæli þess
efnis mun Clinton hafa látið falla í
fyrradag á umræðufundi Saban,
miðstöðvar um málefni Mið-
Austurlanda, í Washington. Dag-
blaðið Yediot Aharonot greindi
m.a. frá því að Clinton hefði lýst yf-
ir áhyggjum sínum af andlýðræð-
islegum lagafrumvörpum sem lögð
hefðu verið fram á ísraelska
þinginu og að það hefði fengið á
hana að komast að því að konur
væru aðskildar frá körlum í stræt-
isvögnum í Jerúsalem. Ráðherrar í
Ísrael segja Clinton fara með ýkjur
og þeirra á meðal fjármálaráðherra
landsins, Yuval Steinitz, sem segir
lýðræði bæði frjálst og virkt í Ísr-
ael. Þó verði að gæta réttar kvenna.
Uggandi
um lýðræði
í Ísrael
Ráðherrar ósáttir
við ummæli Clintons
Reuters
Eldfimt Ummæli Hillary Clinton
lögðust illa í ísraelska ráðamenn.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sýrlensk stjórnvöld hafa hunsað
þær kröfur Arababandalagsins að
hleypa alþjóðlegum eftirlitsmönnum
inn í landið til að fylgjast með mót-
mælum í landinu og hvernig stjórn-
völd taka á þeim þar sem þau óttast
að eftirlitið geti falið í sér erlent
hernaðarinngrip í landinu. Blasir
því við að refsiaðgerðum verði beitt
af hálfu Arababandalagsins gegn
Sýrlandi, náist ekki samkomulag, en
þær fela m.a. í sér frystingu sýr-
lenskra eigna, viðskiptabann og
ferðabann á háttsetta sýrlenska
embættismenn. Aðgerðirnar voru
kynntar 27. nóvember sl. af forsæt-
is- og utanríkisráðherra Katars,
Jassim al-Thani. Bandalagið gaf
Sýrlandsstjórn frest til að sam-
þykkja kröfur um eftirlit sem rann
út í gær, án svars frá stjórninni, en
bandalagið bauð Sýrlendingum að
koma til borgarinnar Doha í Katar
og veita samþykki sitt.
Sameinuðu þjóðirnar halda því
fram að yfir 4.000 manns hafi látið
lífið í mótmælum í Sýrlandi á árinu
gegn forseta landsins, Bashar al-As-
sad, og 44 nú yfir helgina, auk þess
sem tugir þúsunda hafi verið fang-
elsaðir. Litlar líkur eru taldar á því
að Sýrlandsstjórn leyfi alþjóðlegt
eftirlit í landinu.
Refsiaðgerðir blasa við
Reuters
Mannfall Frá mótmælum í sýrlensku borginni Adlb á föstudaginn var.
Sýrlandsstjórn hefur ekki veitt samþykki sitt fyrir alþjóð-
legu eftirliti í landinu Frestur til samþykkis rann út í gær
Faðir norska
fjöldamorðingj-
ans Anders Be-
hrings Breiviks,
Jens David Brei-
vik, verður yfir-
heyrður af
norsku lögregl-
unni á næstu dög-
um. Verjendur
fjöldamorðingj-
ans vilja að frekara ljósi verði varp-
að á æsku Breiviks og uppeldi en
móðir hans, Wenche Behring, hefur
verið yfirheyrð margoft sem og hálf-
systir hans sem býr í Bandaríkj-
unum, að því er fram kemur á vef
norska dagblaðsins Aftenposten og
mun framburður hennar hafa varp-
að frekara ljósi á persónuleika Brei-
viks. Þá býr fyrrverandi stjúpfaðir
Breiviks í Taílandi en norska lög-
reglan hefur ekki veitt upplýsingar
um hvort til standi að yfirheyra
hann einnig.
Faðir Breiviks
verður yfir-
heyrður
Anders Breivik