Morgunblaðið - 31.12.2011, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Bandaríkjamenn reyna nú ákaft að
efla varnir gegn Írönum í Miðaust-
urlöndum eftir að hafa dregið her sinn
frá Írak. Skýrt var á fimmtudag frá
samningi um að selja Sádi-Aröbum
uppfærðar útgáfur af F-15 orrustu-
þotum fyrir nær 30 milljarða dollara,
um 36 þúsund milljarða króna. Einnig
íhuga ráðamenn í Washington að
selja Írak margvísleg vopn, þ. á. m.
þotur, fyrir um 11 milljarða dollara,
þrátt fyrir mikla óvissu og stríðs-
hættu þar í landi, að sögn The New
York Times.
Ríkisstjórn Baracks Obama forseta
hefur að sögn Wall Street Journal
einnig rökstutt vopnasöluna með því
að hún muni efla hag landsins og
draga úr þrálátu atvinnuleysi. Við-
skiptin við Sádi-Araba eru sögð geta
skapað um 50 þúsund störf í alls 44
sambandsríkjum. Orrustuþoturnar
eru framleiddar hjá verksmiðju Bo-
eing í St. Louis. Einnig mun salan
skapa störf í Sádi-Arabíu.
Miklar væringar í Írak
Viðskiptin við stjórn Nuri al-Mal-
ikis, forsætisráðherra Íraks, eru um-
deildari. Ráðherrann, sem er úr röð-
um sjíta, virðist hafa ákveðið að ganga
milli bols og höfuðs á andstæðingum
sínum meðal súnníta. Annar varafor-
seta landsins, súnní-arabi, er nú flúinn
til héraða Kúrda í Norður-Írak vegna
ákæru um að hafa skipulagt morð.
Íraskir sjítar hafa margir náið sam-
band við Írana og bent er á að í versta
falli gætu bandarísku vopnin þannig
lent óbeinlínis í höndum Írana ef land-
ið klofnaði og sjítar stofnuðu sitt eigið
ríki. Róttækir sjítar undir forystu
klerksins Moqtada al-Sadrs krefjast
nú nýrra kosninga og því óvíst að
stjórn Malikis hjari en hún nýtur
stuðnings Sadrs.
Hátæknivopn
til Sádi-Araba
Stjórn Obama íhugar einnig að selja
Írak þotur til að efla varnir gegn Íran
Áhyggjur Ísraela
» Ísraelar hafa lengi haft
áhyggjur af því að háþróuð,
bandarísk vopn lendi í höndum
ráðamanna í arabalöndum. Yf-
irburðum Ísraela á hern-
aðarsviðinu geti verið ógnað.
» Bandarískir embættismenn
hafa reynt að slá á þann ótta.
Þeir segja að öryggi Ísraels
verði meira ef hófsamir banda-
menn Vesturveldanna efli her-
varnir sínar.
Leiðtogi lýðræðissinna í Búrma, Aung San Suu Kyi,
heimsótti í gær klaustur í milljónaborginni Yangon þar
sem um þúsund manns sem misstu heimili sín í mikilli
sprengingu í fyrradag hafa fengið skjól. Tuttugu létu
lífið í sprengingunni sem varð í vöruskemmu í íbúðar-
hverfi og nær 100 slösuðust. Ekki er vitað hvað olli
henni en talsmenn lögreglunnar segja að ekki hafi ver-
ið um tilræði að ræða.
Suu Kyi huggar heimilislausa
Reuters
Munið að
slökkva á
kertunum
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Hafið ekki mishá
kerti of nálægt
hverju öðru. Hiti
frá lægra kerti
getur brætt
hærri kertið.
Erlent
Danir taka við
sex mánaða for-
ystu í Evrópu-
sambandinu um
áramótin.
Breska tímaritið
The Economist
efast um að hlut-
verkið verði til
að bæta stöðu
Helle Thorning-
Schmidt for-
sætisráðherra. Ný samsteypustjórn
hennar hefur átt erfitt uppdráttar
og fær afleita útkomu í könnunum.
Og um 60% Dana segjast aðspurðir
ekki hafa trú á að ESB leysi skulda-
vandann og aðeins 24% vilja taka
upp evru. kjon@mbl.is
EVRÓPUSAMBANDIÐ
Thorning-Scmidt
stýrir frá áramótum
Helle Thorning-
Schmidt
Hlátur á sér minnst 30-60 milljóna
ára forsögu, að sögn vísindamanns-
ins Marinu Davila-Ross við Ports-
mouth-háskóla sem hefur að sögn
BBC rannsakað hvaða áhrif kitlur
hafa á 19 ára górillu, Emmie. Við-
brögð hennar við kitlum minni
mjög á viðbrögð manna. Umsjón-
armaður Emmie, Phil Ridges, seg-
ist oft hafa séð górillur kitla hver
aðra, það sé notalegt þegar þær
leyfi honum líka að kitla sig. Rann-
sóknir á rottum sýna einnig að þær
gefa frá sér eins konar „hlátur“
þegar þær eru kitlaðar. kjon@mbl.is
BRETLAND
Górillur „hlæja“
þegar þær kitlar