Morgunblaðið - 31.12.2011, Síða 30

Morgunblaðið - 31.12.2011, Síða 30
Í febrúar á nýju ári verða liðin þrjú ár frá því að ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna með stuðningi Fram- sóknarflokksins var mynduð. Með þeim tímamótum lauk nær 18 ára óslitinni valdatíð Sjálfstæðisflokksins í lands- málum. Líkt og allir þekkja endaði sú valdatíð við dramatískar aðstæður eftir að eitt um- fangsmesta efnahagshrun í þróuðu hagkerfi varð staðreynd í október 2008. Stærð hrunsins á Íslandi orsakaðist af mörgum þáttum en ein meginskýring á um- fangi þess voru stórkostleg mistök í efnahags- stjórn. Þrátt fyrir sterk aðvörunarorð um að hemja þenslu hagkerfisins gerði þáverandi ríkisstjórn hið þveröfuga og jók á þenslubálið með m.a. skattalækkunum, stórfram- kvæmdum sem knúnar voru áfram með póli- tísku handafli og aukningu húsnæðislána. Og þetta allt skilaði sér í bólu sem sprakk. Á árinu 2008 var ríkissjóður gerður upp með 216 milljarða króna halla, aðallega vegna 192 mia. kr. taps Seðlabanka Íslands sem hafði fram að hruni reynt með veikum mætti að bjarga út- rásinni með fyrirgreiðslu sinni. Gengi krón- unnar var í frjálsu falli, 18% óðaverðbólga, at- vinnuleysi fór úr 1% í nálægt 9%, 18% stýrivextir, samdráttur landsframleiðslu stefndi í 10%, skuldir ríkissjóðs snarjukust, at- vinnulífið var í lamasessi, bankakerfið í rúst og samfélagið í upplausn. Til marks um þetta var að málsmetandi fólk úti í heimi gerði al- mennt ráð fyrir að á Íslandi stefndi í þjóð- argjaldþrot og efnahagslegt sjálfstæði þjóð- arinnar var glatað. Nú þremur árum seinna eftir að Samfylking og Vinstri græn tóku við stjórn landsmála blasir við allt önnur og betri mynd. Sjálfstæði landsins í efnahagsmálum hefur verið end- urheimt. Áætlaður halli ríkissjóðs verður til að mynda liðlega 20 mia. kr. á næsta ári og nær horfinn árið 2013, sem setur Ísland í sérflokk í Evrópu þegar kemur að halla ríkissjóða. Verð- bólgan hefur hjaðnað niður í 5,3%, atvinnu- leysið er komið niður í 7,1% og vextir eru 4,5%. Efnahagsbatinn á fyrstu níu mánuðum þessa árs var sterkari en bjartsýnustu grein- ingaraðilar þorðu að spá en nýjustu tölur Hag- stofunnar benda til að hann hafi orðið 3,7% á fyrstu níu mánuðum ársins. Kaupmáttur launa hefur vaxið um 3,7% undanfarna tólf mánuði. Skuldasöfnun ríkissjóðs hefur verið því sem næst stöðvuð og sett hafa verið fram metn- aðarfull markmið um hvernig megi lækka þær skuldir á komandi árum. Vegna þessa árang- urs náði ríkissjóður í fyrsta sinn frá árinu 2006 að fjármagna sig á þessu ári á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Hugtakið þjóðargjaldþrot heyrist ekki lengur þegar rætt er um Ísland heldur þvert á móti hampa margir landinu fyr- ir árangurinn við að koma sér út úr kreppunni. Ríkisstjórn 1991 og 2009 Þó að rík ástæða sé til að varast samanburð á árangri mismunandi ríkisstjórna er þó freistandi að leyfa sér það stundum. Það er til að mynda ekki úr vegi að rifja upp í þessu blaði fyrstu ár ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks frá 1991 og bera þau saman við svipað tímabil núverandi ríkisstjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn hóf sína tæplega 18 ára valdatíð 1991 með myndun svokallaðrar Viðeyjarstjórnar ásamt Alþýðuflokknum. Þessi ríkisstjórn varð til þrátt fyrir að þeir flokkar sem sátu í ríkisstjórn fram til kosning- anna 1991, Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur, héldu meirihluta í þeim kosningum. Fyrir marga voru það talsverð vonbrigði enda hafði sú ríkisstjórn undir for- ystu Steingríms Hermanssonar náð árangri á mörgum sviðum efnahagslífsins eftir að hún tók við af ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar. Rík- isstjórn Þorsteins lifði í rúmt ár eftir kosning- arnar 1987 en sprakk í beinni útsendingu í sjónvarpi eftir að hafa heykst á því að ná sam- an um aðgerðir í efnahagsmálum. Á þremur árum, 1988-1991, tókst hins vegar að snúa þróuninni við og ná fram stöðugleika í efnahagsmálum. Ríkisstjórn Steingríms Her- manssonar tókst með tilstyrk hinnar rómuðu þjóðarsáttar aðila vinnumarkaðarins og bændasamtakanna að koma á ró á vinnumark- aði og skapa góð skilyrði til frekari uppbygg- ingar. Hrun atvinnulífsins blasti við 1988 en stjórninni tókst að afstýra því m.a. með víð- tækum aðgerðum til að endurfjármagna út- flutningsstarfsemina. Við brotthvarf ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar var atvinnuleysi aðeins um 1,2%, hagvöxtur var yfir eitt prósent og kaup- máttur launa hafði aukist um 2,1% tólf mán- uðina á undan. Og kannski var það einna markverðast að verðbólgan var komin niður í 5,8% úr meira en 20%, sem var í fyrsta skipti frá árum viðreisnarstjórnarinnar sem verð- bólgan fór niður fyrir tveggja stafa tölu. Enn minnast menn þeirra tímamóta sem fólust í þjóðarsáttarsamningunum. Við áramótin 1993 var staðan breytt en þá hafði Viðeyjarstjórnin setið svipaðan tíma og núverandi ríkisstjórn. Atvinnuleysi hafði auk- ist úr 1,2% í maí 1991 í 6,3% í desember 1993 sem er meira en fjórföld aukning. Enginn frekari árangur náðist í að kveða niður verð- bólgu og stóð hún í stað. Þetta var þrátt fyrir að hagvöxtur hafði mælst neikvæður tvö ár í röð m.a. vegna þess að fjárfesting í atvinnulíf- inu var lítil og allt botnfrosið. Kaupmáttur launa dróst jafnframt saman um vel yfir 3% á þessum tíma. Miðað við þau viðmið og mælikvarða sem núverandi ritstjóri Morgunblaðsins tileinkar sér við árangursmat á störfum ríkisstjórn- arinnar Samfylkingar og Vinstri grænna má því spyrja hvaða einkunn hæfði Viðeyj- arstjórninni og fyrstu 30 mánuðum hennar við völd. Yrði það ekki örugglega að Viðeyj- arstjórnin hefði verið sú versta sem setið hef- ur frá lýðveldisstofnun? Þrátt fyrir að taka við góðu búi árið 1991 mistókst henni að byggja á þeim árangri. Núverandi ríkisstjórn tók hins vegar við nær gjaldþrota þjóðarbúi en hefur náð fram algjörum viðsnúningi svo eftir er tekið. Fram- undan er betri tíð eftir mikla erfiðleika síðustu ára og Ísland er á réttri leið þótt vissulega sé glíman enn hörð við skulda- og atvinnuleys- isvandann. Eitt og aðeins eitt má ekki gerast: að sá árangur sem þegar hefur náðst og vissu- lega hefur kostað miklar fórnir glatist. Á grunni þess árangurs og með þeim fórnum sem hann hefur kostað erum við að leggja grunn að betra og heilbrigðara samfélagi og mistök áranna fyrir hrun ætlum við aldrei að endurtaka. Ég óska landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs Áramót nú og þá! Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Steingrímur J. Sigfússon „Framundan er betri tíð eftir mikla erfiðleika síðustu ára og Ísland er á réttri leið þótt vissulega sé glíman enn hörð við skulda- og atvinnuleysisvandann.“ 30 STJÓRNMÁL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.