Morgunblaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
Umræðan á árinu
5. september | Gísli Sigurðsson
Virkjun útrýmir
göngufiskum í Þjórsá
Óskhyggja Landsvirkj-
unar um að við Urriðafoss
séu kjöraðstæður til að
láta seiðafleytur bjarga
seiðunum á ekki við nein
rök eða rannsóknir að styðjast.
6. september | Ari Trausti
Guðmundsson
400 PPM
Magn koltvísýrings eykst
hratt og mælist nú í fyrsta
sinn um 400 milljónustu
hlutar yfir Íslandi. Hlýnunin
hefur ekki stöðvast.
7. september | Eiður Guðnason
Óþurftarverk í Skálholti
Það er óskiljanlegt að
yfirvöld í Skálholti skuli
hafa leyft mönnum að
böðlast áfram með þessa
óþurftarframkvæmd á
helgum stað.
8. september | Gísli Páll Pálsson og
Pétur Magnússon
Velferðarráðuneyti
steinsteypunnar
… og
kannski er vel-
ferð stein-
steypunnar
mikilvægari en
velferð þeirra landsmanna sem þurfa á
þjónustu velferðar- og heilbrigðisstofn-
ana að halda?
9. september | Sturla Friðriksson
Ekki selja Kínverja Grímsstaði
Alþingi á að taka
ákvörðun um að selja ekki
Kínverja Grímsstaði.
10. september | Ingibjörg H.
Baldursdóttir
Það gerir þetta
enginn að gamni sínu
Með hugleiðingum mín-
um langar mig að vekja at-
hygli á Alþjóðadegi sjálfs-
vígsforvarna í dag ...
10. september | Una María
Óskarsdóttir
Bakslag hjá Jafnréttisráði
Ákvörðunin er mér mikil
vonbrigði og er bakslag í
baráttunni fyrir auknu
jafnrétti í landinu.
12. september | Birgir
Tjörvi Pétursson
Réttarbrot við með
ferð gjaldeyrismála
Þar sem engar gildar
refsiheimildir eru til staðar
er enginn tilgangur með
þessum rannsókn-
arathöfnum.
14. september | Ólafur Hauksson
Takk, Arion banki
Ég og allir hinir launa-
greiðendurnir erum fullir
þakklætis yfir að fá að taka
þátt í hagsæld Arion
banka.
15. september | Hjörleifur
Sveinbjörnsson
Huang á Grímsstöðum
Umræðan um þessi
jarðakaup ber íslenskri
umræðuhefð ófagurt vitni.
Ófáir stungu sér á auga-
bragði í skotgrafir og hafa
síðan kallast á með stóryrðum.
16. september | Jón Helgi Björnsson
Álver á Bakka slegið af
Enginn friður verður um
virkjun orkunnar í Þingeyj-
arsýslu nema hún nýtist til
þess að byggja upp störf
og umsvif í Þingeyj-
arsýslum.
17. september | Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Afar síðbúið frumkvæði – eft-
irásöguskýring Jóns Baldvins
Staðreynd málsins
er sú að Sjálfstæð-
isflokkurinn átti frá
upphafi frumkvæði að
viðurkenningu Íslands
á sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna.
17. september | Jón Bjarnason
Um skilyrði ESB og
valdmörk ráðherra
Hafi ríkisstjórnin lagt
fyrir ESB áætlun hefur
hún sjálfstætt laga-
bindandi gildi og getur
þá beinlínis skert sjálf-
ræði þess þings sem ókjörið er.
17. september | Karl
Sigurbjörnsson
Um Þorláksbúð í Skálholti
Skálholt skipar dýr-
mætan sess í vitund
þjóðarinnar. Mikilvægt
er að sátt og friður ríki
um uppbyggingu stað-
arins og það starf sem þar fer fram.
17. september | Helgi Laxdal
Ein lög, einn siður
Af hverju var LÍÚ á
móti skýru ákvæði um
eignarrétt þjóðarinnar
á sjávarauðlindinni í
stjórnarskrána?
19. september | Stefán
Svavarsson
Uppgjör bankanna
Við viljum framfarir,
ekki aðeins í rekstri og
viðskiptaháttum bank-
anna, heldur líka í gerð
reikningsskila þeirra.
19. september | Árni Johnsen
Ósannindi Eiðs
Guðnasonar um
Þorláksbúð í Skálholti
Stjórn Skálholts,
Fornminjavernd rík-
isins, Kirkjuráð og
byggingarnefnd Blá-
skógabyggðar, allir
réttbærir aðilar samþykkja verk-
efnið.
21. september | Snorri Magnússon
Súpugerð
Lögreglumenn eru
fyrir löngu orðnir hund-
leiðir á innantómum
lofsyrðum stjórnvalda
um ágæti okkar á ögur-
stundu.
22. september | Garðar
Halldórsson
Skálholt – Athugasemd
vegna ónákvæmni í grein-
arskrifum um Þorláksbúð
Í mínum huga er
ljóst að ég hef ekki far-
ið með höfundarrétt
Skálholtskirkju, þótt ég
hafi annast ráðgjöf að
beiðni afkomenda Harðar Bjarna-
sonar, fyrrv. húsameistara ríkisins.
24. september | Einar Bollason
Heilsustofnun á
heimsmælikvarða
Nú er svo að stofn-
uninni þrengt að ekki
verður lengur við þetta
unað og reyndar óger-
legt að reka þennan stærsta vinnu-
stað bæjarfélagsins við þessar
kringumstæður.
26. september | Jón Steindór
Valdimarsson
Val er vald
Enginn veit hver
staðan verður þegar að
kjördegi kemur. Þannig
er það bara. Sviptum
samt ekki þjóðina vald-
inu til að velja eigin framtíð.
27. september | Helga Ingólfsdóttir
Nauðsynlegt að endursemja um
skuldir Hafnarfjarðar
Hætta er á að þessi háu
vaxtakjör muni sliga bæj-
arsjóð næstu árin og jafn-
vel áratugina.
29. september | Vigdís Hauksdóttir
Alþýðusamband Íslands og
Samfylkingin
Hvar eru útifundirnir,
hvar eru kröfugerðirnar,
hvar er gagnrýnin á rík-
isstjórnina, hvar er krafan
um eflingu atvinnulífsins
frá verkalýðshreyfingunni?
30. september | Gylfi Arnbjörnsson
Vegna þrálátra rangfærslna
Vigdísar Hauksdóttur um
starfslok sín hjá ASÍ
Ég verð að viðurkenna
að ég hef ekki áður lent í
jafn óheiðarlegum og
ósanngjörnum rógburði af
hálfu nokkurs manns.
1. október | Þór Magnússon
Um Grímsstaði
Varla hefur verið ætlun
lagasmiða að undanskilja
jarðakaup einstaklinga, en
hér virðist samt vera glufa
í lögunum.
3. október | Róbert Guðfinnsson
„Heillandi þorp“
Það er til mikils að vinna
fyrir siglfirskar fjölskyldur
að íbúðarverð í byggð-
arlaginu nálgist það sem
það er í Stykkishólmi. 3,6
milljarðar væru ágæt viðbót við eigna-
safn Siglfirðinga.
5. október | Sólmundur Tr. Einarsson
Rjúpnaveiðar á Íslandi
heyra brátt sögunni til
Í ár eru þessir höfð-
ingjar frá Náttúru-
fræðistofnun enn á ferð-
inni með sína bölspár og
vilja takmarka eða banna
alfarið veiðar á rjúpu.
5. október | Margrét
Kristmannsdóttir
Eru störf í verslun
ómerkilegri en önnur störf?
Verslunin telur að
standa eigi vörð um hinn
hefðbundna landbúnað í
sveitum landsins – en að
ekki eigi að setja iðn-
aðarframleitt kjúklinga- og svínakjöt,
þar sem framleiðslan fer að mestu fram
í verksmiðjum í útjaðri höfuðborg-
arsvæðisins, undir sama hatt.
5. október | Gunnar Smári Egilsson
Berjumst gegn fordómum
Það eru líka fordómar
þegar stjórnvöld bregðast
ekki sérstaklega við til að
verja áfengis- og vímu-
efnasjúklinga í kreppunni.
6. október | Hallbjörn Karlsson og
Árni Hauksson
„Delete samdægurs“
Engir op-
inberir sjóðir,
eða nokkrir
aðrir, hafa tap-
að fé vegna
viðskipta okkar.
7. október | Ólafur Helgi Marteinsson
Órökstuddar dylgjur um
Fjallabyggð og fasteignaverð
Samkvæmt sömu upp-
lýsingum hefur fast-
eignaverð á Siglufirði
hækkað um 45% eða úr 62
þús. á hvern fermetra í 90
þús. á fermetra.
8. október | Guðlaug Kristjánsdóttir
Mannauðsmál
ríkisins í kreppu
Enn er óskrifað blað hvernig ríkið
ætlar að laða til sín og umbuna framtíð-
arstarfsfólki fyrir vel unnin
störf og brýnt að bætt
verði úr þeirri óvissu.
10. október | Atli Harðarson
Á að hætta með alvöru
framhaldsskóla?
Samkvæmt frumvarpi
til fjárlaga á enn að
minnka kennsluna sem
nemendur fá í framhalds-
skólum – eins og eyðilegg-
ingin sé ekki meiri en nóg nú þegar.
12. október | Elsa B. Friðfinnsdóttir
Hver er stefna stjórnvalda
í heilbrigðismálum?
Enn eitt árið birtist
óskýr skammtímastefna
stjórnvalda í heilbrigð-
ismálum í frumvarpi til
fjárlaga.
12. október | Margrét K. Sverrisdóttir
Samstarf skóla og trúfélaga
Námsskrá grunnskóla í
kristnum fræðum er og
verður óbreytt og vandséð
að kristni sé úthýst meðan
svo er.
13. október | Ísólfur Gylfi Pálmason
Landeyjahöfn fyrir þjóðina alla
Í mínu sveitarfélagi opn-
ar höfnin nýja möguleika
og er spennandi kostur,
hvað varðar atvinnumál,
samstarf sveitarfélaga og
fjölbreyttara mannlíf.
14. október | Ragnar Önundarson
Viltu vinna milljarð?
Þeir félagar Árni og Hall-
björn veittu gríðarháu
fölsku söluverði Húsa-
smiðjunnar viðtöku.
14. október | Stefan Füle
Samvinna í átt að
gagnkvæmum ávinningi
Ég er fullviss um að við
getum tekið tillit til sér-
stöðu Íslands og væntinga
innan núverandi ramma
samningaviðræðna…
17. október | Bolli Héðinsson
Hvað er málið með LÍÚ,
hvers vegna sættast þeir
ekki á tilboðsleiðina?
… 95% kvótans yrðu
strax afhent, án sérstakrar
gjaldtöku, núverandi
kvótahöfum til afnota
næstu 20 árin.
19. október | Símon Þór Jónsson og
Jakob Björgvin Jakobsson
Almenn hækkun tekjuskatts
einstaklinga boðuð í
fjárlagafrumvarpinu
Einnig er
ljóst að efast
má um gildi
yfirlýsingar
fjár-
málaráðherra þegar hann segir að
frumvarpið geri ekki ráð fyrir neinum
almennum skattahækkunum.
20. október | Guðlaug Gísladóttir
Enn einn sigurinn gegn atvinnu-
uppbyggingu á Íslandi
Það er af framsýni en
ekki skammsýni sem sveit-
arfélögin í Þingeyj-
arsýslum töldu skyn-
samlegt að vinna að
uppbyggingu álvers á Bakka.
22. október | Skúli Skúlason
Ísland á alls ekki að
styðja Palestínuaraba
Össur vill endilega að
við verðum fyrsta Evr-
ópuríkið til að viðurkenna
goðsagnaríkið Palestínu.
Ég segi nei takk – aldrei.
24. október | Þorbjörn Hlynur
Árnason
Biskupsmál og kirkjan
Mér þykir það ekki
sanngjörn krafa að biskup
segi af sér vegna þessa
máls, og reyndar fráleit,
þrátt fyrir þau mistök sem
urðu í málsmeðferð.
27. október | Glúmur Jón Björnsson
Bestuvinavæðing í Vesturbæ
Eigandinn, sem hagnast
á þessari eftirgjöf borg-
arinnar, er nefnd-
arformaður hjá núverandi
meirihluta borgarstjórnar,
Samfylkingar og Besta flokks.
28. október | Kristín Einarsdóttir
Kaldur heimsendur matur –
Aukin lífsgæði?
Margir sem nýttu sér
þessa þjónustu, munu
hreinlega hætta að nærast
á þann hátt sem eðlilegt
telst.
28. október | Kristinn Ingi Jónsson
Skuldaklafi ríkisins
Á það var bent marg-
sinnis, að lausnin á skulda-
vanda ríkissjóðs væri ekki
sú að kæfa hagkerfið,
heldur að opna það upp á
gátt.
29. október | Daníel Sigurðsson
Útrýmingarfýsn borgarstjóra
Það eru ekki aspirnar
sem eru skemmdarvargar í
borginni heldur borg-
arstjórnin sjálf með borg-
arstjórann í fararbroddi…
Morgunblaðið/RAX
Landsdómsmál Skömmu
fyrir jól var lagt til að mál-
ið gegn Geir H. Haarde
yrði fellt niður.