Morgunblaðið - 31.12.2011, Page 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarÍSLENSKTTAL
-THE HOLLYWOOD
REPORTER
HHHH
THE SITTER Sýnd kl. 8 - 10
GIRLWITHTHEDRAGONTATTOO Sýnd kl. 6:45 - 10
MISSION IMPOSSIBLE 4 Sýnd kl. 7 - 10
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 Sýnd kl. 2 (700kr.) - 4 - 6
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN 3D Sýnd kl. 2 (950kr.) - 4
ARTÚRBJARGARJÓLUNUM 3D Sýnd kl. 2 (950kr.) - 4
TOM CRUISE, SIMON PEGG,
PAULA PATTON OG JEREMY RENNER
Í BESTU HASARMYND ÁRSINS!
ÍSLENSKT
TAL
88/100
-CHICAGO SUN TIMESH.S.S. - MBL
HHH
HHH
AK. DV
- MAGNÚS MICHELSEN,
BÍÓFILMAN.IS
HHHH
ÍSLENSKT
TAL
Miðasala og nánari upplýsingar
-bara lúxus sími 553 2075
Gleðilegt nýtt ár
www.laugarasbio.is
Lokað 31. desember
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
TÍMAR OG TILBOÐ
GILDA FYRIR 1. OG 2. JANÚAR
OPIÐ NÝÁRSDAG
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
THE SITTER KL. 3.20 - 6 - 8 – 10 14
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 5.45 - 8 - 9 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 1 (TILBOÐ) - 3 - 5.50 L
MI-GHOST PROTOCOL KL. 5 - 8 - 10.50 16
MI-GHOST PROTOCOL LÚXUS KL. 2 - 5 - 8 - 10.50 16
STÍGVÉLAÐIKÖTTURINN 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 2D KL. 1 (TILBOÐ) L
H.V.A., FBL.
TOM CRUISE Í BESTU
HASARMYND ÁRSINS!
“STÆRRI, BETRI OG FYNDNARI.” - EMPIRE
SÝNINGARTÍMARNIR GILDA FYRIR 1. JANÚAR 2012
HNOTUBRJÓTURINN - BALLET KL. 5:30 L
SHERLOCK HOLMES KL. 6 - 8 - 10.40 12
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 3.30 (TILBOÐ) - 6.45 - 9 - 10 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.30 (TILBOÐ) L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 3.40 (TILBOÐ) L
JACK AND JILL KL. 10.10 L
ÆVINTÝRI TINNA KL. 3.30 (TILBOÐ) - 5.40 - 8 7
THE SITTER KL. 6- 8 - 10 14
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 6 - 9 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 2 - 4 L
ELÍAS KL. 2 L MIDNIGHT IN PARIS KL. 4 L
LOKAÐ Í DAG!
Franska rívíeran verður sögusvið
væntanlegrar kvikmyndar sem
unnin er upp úr bresku grínþátt-
unum Absolutely Fabulous. Ein af
aðalleikkonum þáttanna, Jennifer
Saunders, greinir frá þessu í sam-
tali við New York tímaritið. Saund-
ers segist ætla að leika í kvikmynd-
inni og að hún kunni vel við sig á
suðurströnd Frakklands að vori til.
Í þáttunum og kvikmyndinni segir
af almannatenglinum Edinu Monso-
on (Saunders) og vinkonu hennar
keðjureykjandi, Patsy Stone (Jo-
anna Lumley) og herma sögur að í
byrjun myndar vakni þær á snekkju
ólígarka úti á miðju Miðjarðarhafi
eftir mikla teiti kvöldið áður.
Þættirnir Absolutely Fabulous
voru sýndir í Sjónvarpinu fyrir
nokkrum árum og nutu þónokkurra
vinsælda.
Frábærar í
Frakklandi
Tildurrófur Saunders og Lumley.
Börkur Gunnarsson og
Helgi Snær Sigurðsson
1 Drive
„Drive er vandaður tryllir sem er stýrt af
miklum styrkleika leikstjórans Nicolas Wind-
ing Refn. Taktur myndarinnar er mun hægari
en maður á að venjast í þeim nútímaspennu-
myndum sem eru hvað algengastar í Holly-
wood í dag, en aldrei það hægur að maður
missi athyglina.“ – BG
2 Hetjur Valhallar – Þór
„Hetjur Valhallar – Þór
er vel úr garði gerð að öllu
leyti. Handrit Friðriks Erl-
ingssonar er bráð-
skemmtilegt, fyndið og
sniðugt og hugvitssamlega
unnið út frá sögum nor-
rænnar goðafræði.“ – HSS
3 The King’s Speech
„Myndin er í alla staði stórbrotin og stendur
fyllilega undir lofinu sem á hana hefur verið
borið.“ – HS
4 Eldfjall
„Eldfjall er einstaklega falleg saga þótt
harmleikur sé. Eins og
Hannes komst að skyggir
hversdagsleikinn oft á feg-
urð lífsins og ástæður til að
lifa því koma oft ekki í ljós
fyrr en of seint. Marg-
tuggin tugga er ekki marg-
tuggin að ástæðulausu;
enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur.“ – DMS
5 Klovn: The Movie
„Það er pínlegt að horfa á þessa mynd en,
nota bene, skemmtilega pínlegt. Ítrekað gripu
bíógestir um höfuð sér og
stundu í hljóði „nei, nei …
ekki, nei“ þegar eitthvert
stórslysið var í uppsiglingu.
Það fylgir því hálfgert sam-
viskubit að hlæja að gríni á
borð við það sem boðið er
upp á í Klovn en maður
hlær samt sem áður.“ –
HSS
6 The Adventures of Tintin
„Með gagnrýnandanum í för var tíu ára
snáði sem fannst myndin æðisleg. Það má
mæla með henni fyrir alla aldurshópa. Húm-
orinn og hasarinn kætti mig jafnmikið og litla
snáðann. Það var gaman að verða tíu ára aftur,
þótt ekki væri nema í 90
mínútur.“ – BG
7 We Need to Talk About
Kevin
„Myndin er ekki upplífg-
andi og ekki er það gleði
sem situr eftir í hjörtum
manna að loknu áhorfi.
Hún skilur þó eftir sig eitt-
hvað enn sterkara, eitt-
hvað sem fær mann til að rísa upp en koðna
jafnóðum niður í vonleysi.“ – DMS
8 Melancholia
„Myndatakan og sjónrænn hluti mynd-
arinnar er frábær og umfram allt ákaflega
melankólískur. Hægt og hægt þyngdi yfir
manni á meðan maður fylgdist með hægfara
tortímingu jarðarinnar. Mjög áhrifarík mynd
og sannfærandi.“ – BG
9 Hodejegerne
„Hausaveiðararnir er vel heppnuð og stíl-
hrein blanda svartrar kómedíu og glæpatryllis.
Vonandi verði fleiri myndir gerðar eftir bókum
Nesbø.“ – HSS
10 Svinalängorna
„Leikurinn er afburðagóður, bæði fullorðna
fólkið og krakkarnir skila sínu. Það er gaman
að sjá frumraun leikstjóra heppnast svona
vel.“ – BG
Kvikmyndir ársins
Drive „Myndin er afbragð og skemmtileg nýbreytni frá Hollywood,“ segir m.a. í gagnrýni.
Við gerð listans var litið til þeirra kvikmynda
sem frumsýndar voru á Íslandi á árinu og eru
þær því ekki allar framleiddar árið 2011. Til-
vitnanir eru sóttar í kvikmyndadóma sem
birtust í Morgunblaðinu á árinu og merktar
upphafsstöfum gagnrýnenda: BG (Börkur
Gunnarsson), DMS (Davíð Már Stefánsson),
HS (Hjördís Stefánsdóttir), HSS (Helgi Snær
Sigurðsson).