Morgunblaðið - 31.12.2011, Qupperneq 56
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 365. DAGUR ÁRSINS 2011
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Megrunartöflur Jennifer Aniston
2. „Ekki sami maður“
3. Tók á móti eigin barni
4. Toyota flytur í Kauptún
Opnað hefur verið fyrir skráningar í
Íslandsriðillinn í Wacken Metal
Battle. Umsóknarfrestur er til 22.
janúar og keppnin verður haldin í
Nasa 3. mars. Sigurvegari mun leika
á virtustu þungarokkshátíð heims og
verða erlendir blaðamenn á staðnum.
Fólk skrái sig í
Wacken Metal Battle
Stikla úr Svart-
ur á leik er nú
komin á netið en
þar fer Jóhannes
Haukur mikinn
sem bandingi.
Myndin er byggð á
bók Stefáns Mána
og verður frum-
sýnd hér í mars.
Leikstjóri er Óskar Þór Axelsson og
er myndin fyrsta kvikmynd hans í
fullri lengd. Framleiðendur eru Zik
Zak, Filmus og þeir Nicholas Winding
Refn og Chris Briggs (Hostel).
Stikla úr kvikmynd-
inni Svartur á leik
Skagfirskar skemmtisögur, sem
Björn Jóhann Björnsson safnaði og
Hólar gáfu út, voru langsöluhæstar í
Skagfirðingabúð á Sauðárkróki fyrir
jólin. Bókin seldist í 638 eintökum en
af bókum metsöluhöfundanna Arn-
aldar og Yrsu seldist 71 eintak af
hvorri bók. Bók Skagfirð-
ingsins Hannesar
Péturssonar, Jarð-
lag í tímanum, var
þriðja mest selda
bókin en af henni
seldust 115 ein-
tök.
Skagfirðingar lásu
skagfirskt
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 2-11 m/s og él en úrkomulítið norðaustantil. Norð-
austlæg átt og snjókoma eða slydda norðvestantil í kvöld og él sunnantil en áfram úr-
komulítið norðaustanlands. Hiti víða 0 til 5 stig en kólnar í kvöld.
Á sunnudag (nýársdag) Norðaustan 8-13 m/s og snjókoma með köflum á Vestfjörðum,
annars hægari suðlæg átt og él, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Frost 0 til 10 stig,
kaldast í innsveitum norðaustanlands.
Sundkonan efnilega Bryndís Rún
Hansen frá Akureyri gerði það gott í
sundlauginni á árinu en hún var iðin
við að slá Íslandsmet og það verður
gaman að fylgjast með henni í
framtíðinni. Bryndís býr í Noregi
ásamt móður sinni. Hún er með
rússneskan þjálfara og keppir bæði
við norskt félag og fyrir lið Óðins á
Akureyri. »2
Bryndís Rún á miklu
flugi í sundlauginni
Íslendingaliðið AG Kaup-
mannahöfn styrkti stöðu
sína í danska handboltanum
í gærkvöldi með sigri á Kold-
ing, 28:20, í toppslag efstu
deildar. AG er með fimm
stiga forystu á toppnum en
deildin fer nú í frí fram í
febrúar vegna EM landsliða í
Serbíu. Guðjón Valur Sig-
urðsson var á meðal at-
kvæðamestu manna á vell-
inum eins og oft áður. »1
AG með fimm
stiga forskot
Afmælisveisla
á Old Trafford í dag
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
„Það fór nú ekki svo að Nubo kæmi
ekki,“ segir Sigríður Hallgrímsdóttir
á Grímsstöðum.
Þannig var að Bragi Benediktsson
var á leið heim á Grímsstaði með hrút
þegar dóttir hans hringdi með þær
fregnir að Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra hefði hafnað
beiðni Huangs Nubos um undanþágu
til kaupa á Grímsstöðum á Fjöllum.
„Þannig að hrúturinn var bara nefnd-
ur Nubo,“ segir Bragi. „Það fór ekki
svo að hann kæmi ekki til okkar –
hann var bara ferfættur.“
Bragi og Sigríður eru gagnrýnin á
ákvörðun stjórnvalda, segja hana
vonbrigði og að algjört áhugaleysi
hafi ríkt um byggðina á Grímsstöðum
þar til núna. Þetta kemur fram í
myndríkri frásögn í Áramótablaði
Sunnudagsmoggans. Þau segjast
ekki hafa ætlað að flytja, heldur búa
áfram í húsi sínu á Grímsstöðum og
taka þátt í uppbyggingunni sem ráð-
gerð hafi verið á staðnum. Og þau
hefðu gjarnan viljað fá Nubo sem ná-
granna.
„Það hefði lífgað upp á,“ segir
Bragi og sýpur á kaffinu – brosandi.
„En kannski hefði hann verið svolítið
ónæðissamur. Maður veit það ekki.“
„Það er hætt við því,“ segir hún,
„að það hefði eitthvað raskast
hádegislúrinn.“
„Síestan,“ segir hann. „Maður veit
það ekki.“
Þó að þau ræði Nubo á léttum nót-
um, þá segjast þau mjög vonsvikin
með ákvörðun stjórnvalda. Það búa
átta manns á tveimur bæjum á
Grímsstöðum. En þegar mest lét um
aldamótin 1900 bjuggu þar 100
manns og Bragi segir að staðurinn
hafi ekki orðið einangraður fyrr en
undir lok síðustu aldar.
„Frá því ég man eftir mér lá
straumurinn hérna í gegn, hér var
bæði gisting og veitingasala. Þannig
að ef eitthvað er, þá var fólk í miklum
tengslum við sveitirnar í kring og
byggðarlögin, þrátt fyrir fjarlægðir.“
– Hvers vegna þessi mikla fækkun?
„Stærstu mistökin voru gerð árið
1991 þegar fólki var gert að hætta
með sauðfé. Þá fluttu fjölskyldur í
burtu,“ segir Bragi.
Og þeim líst vel á ráðagerðir Nubos
um uppbyggingu á staðnum, ekki síst
að reist yrði hótel, flugvöllur og að
borað yrði eftir heitu vatni. En hvar
myndi Bragi setja 18 holu golfvöllinn?
„Golfvöllinn,“ svarar Bragi. „Ég
bara þekki ekkert til golfs og veit
ekkert hvernig golfvellir eiga að
vera.“
– Þarf ekki landrými?
„Það er nóg af því,“ svarar hann.
„Og þetta er ekki vitlausari áning-
arstaður ferðamanna en var um síð-
ustu öld.“
Nubo kominn á Grímsstaði
Hrútur nefndur
Nubo Vonuðust
eftir uppbyggingu
Morgunblaðið/RAX
Í fjárhúsinu Hrúturinn Nubo til vinstri í fjárhúsinu á Grímsstöðum og Bragi Benediktsson í bakgrunni.
Morgunblaðið/RAX
Frost Sigríður á Grímsstöðum með fallega jólaskreytingu úr grýlukertum.
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjór-
inn sigursæli hjá Manchester United,
fagnar tímamótum í dag en hann
heldur upp á 70 ára afmæli sitt. Af-
mælisveisluna ætlar Ferguson að
halda á Old Trafford en hans menn fá
þá botnlið Blackburn í heimsókn í
ensku úrvalsdeildinni. »1