SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Qupperneq 6
6 25. desember 2011
Kim Jong-Il, leiðtogi Norður-
Kóreu, lést á laugardegi. Lát
hans var ekki tilkynnt fyrr en á
mánudegi. Hann var því látinn í
tvo daga án þess að nokkuð
spyrðist. Ekki einu sinni orðróm-
ur komst á kreik.
Sennilega ríkir hvergi meiri
leyndarhyggja en í Norður-Kóreu.
Íbúar landsins mega ekki ferðast
úr landi og vel er fylgst með
gestum og passað upp á að þeir
fari ekki út fyrir höfuðborgina.
Þess er vandlega gætt að íbú-
ar landsins hafi ekki aðgang að
alnetinu, en einhvers konar innra
net mun á boðstólum fyrir þá
fáu, sem hafa aðgang að tölvum.
Erlend ríki geta aðeins notast
við gervihnetti til að fylgjast
með gangi mála í Norður-Kóreu
og það hefur sína annmarka.
Yfirmaður suðurkóresku leyni-
þjónustunnar, Won Sei-Hoon,
notaði þó gervihnattamyndir til
að bera brigður á frásögn norð-
urkóreskra stjórnvalda af andláti
Kims Jong-ils. Sagt var að hann
hefði dáið úr hjartaslagi í lest á
landsbyggðinni. Sagði hann að
myndir sýndu hins vegar að lest-
in hefði verið kyrrstæð í Pyon-
gyang þegar andlátið bar að.
Won hefur verið harðlega gagn-
rýndur fyrir að hafa ekki vitað af
andlátinu.
Ekkert spyrst í landi leyndarhyggjunnar
Gervihnattamynd sýnir ljósahafið í Suður-Kóreu og Japan. Lýsingin er
minni í Kína, en í Norður-Kóreu er hún nánast engin.
Reuters
Þegar Kim Jong-Il fæddist fagnaði náttúr-an og spruttu fram regnbogar. Þegarhann féll frá rak náttúran upp harma-kvein. Óvenju háir brestir heyrðust í
ísnum á Chon-vatni á Paektu-fjalli, sem á sér-
stakan sess í Norður-Kóreu vegna þess að þar
barðist Kim Il-Sung með skæruliðum sínum gegn
Japönum. Síðan brast á blindbylur. Þegar veðrinu
slotaði sáust skilaboð í fjallshlíðinni í bjarma
morgunsólarinnar: „Paektu, heilagt fjall byltingar.
Kim Jong-Il.“
Í bænum Hamhung sást mansjúríutrana hnita
þrjá hringi umhverfis styttu af Kim Jong-IL og
setjast síðan á trjágrein „þar sem hún sat langa
stund og drúpti höfði … jafnvel tranan virtist
syrgja fráfall Kims Jong-Ils, fædds af himnum,
eftir að hafa flogið þangað mitt um kalda nótt, og
ekki geta gleymt honum“.
Þannig frásagnir heyrast í norðurkóreskum rík-
isfjölmiðlum vegna fráfalls Kims Jong-Ils, sem að
líkindum lést á laugardag fyrir viku.
Ótrúlegar myndir hafa verið sýndar af harmi
slegnum Norður-Kóreumönnum. Fólk sést skjálfa
og titra, kasta sér niður og lemja jörðina með
hnefunum. Ríkisfjölmiðlar í Norður-Kóreu sögðu
að himinn og jörðu skylfu undan harmagrátnum.
Fólk, sem hefur flúið frá Norður-Kóreu, segir að
ekki sé allt sem sýnist. „Sá, sem grætur ekki fyrir
framan sjónvarpsmyndavélarnar, á á hættu að
verða stimplaður afturhaldssinnað úrhrak,“ sagði
Hong Sun, sem flúði til Suður-Kóreu frá Norður-
Kóreu árið 2000. „En heima fyrir munu færri
gráta og kveina út af andláti leiðtogans.“
Í Norður-Kóreu er allt gert til að ýta undir leið-
togadýrkun. Hin hugmyndafræðilega innræting
hefst við fæðingu. Kim Seung-Eun, prestur í Suð-
ur-Kóreu, hefur hjálpað mörgum flóttamönnum
frá norðri.
„Það er skylda Norður-Kóreumanna að taka
þátt í mikilvægum þjóðarviðburðum á borð við
minningarathafnir vegna Kims,“ segir hann. „Ef
þeir hlýða ekki eiga þeir á hættu að verða sendir í
hugmyndafræðilega innrætingu eða jafnvel fang-
elsi.“ Hann segir að sorg háttsettra embættis-
manna í stjórnkerfinu, flokknum og hernum
kunni að vera raunveruleg, sem og forréttinda-
stéttarinnar í höfuðborginni Pyongyang, sem
makað hefur krókinn á samböndum sínum við
stjórnina, en meðal almennings sé hollustan lítil.
Svipað ástand ríkti í Norður-Kóreu þegar Kim
Il-Sung lést árið 1994. Þá var almenningi sagt að
hver og einn þyrfti að sýna sorg sína á stöðum þar
sem hans væri minnst í það minnsta einu sinni á
dag. Nú hafa stjórnvöld sagt fólki að það þurfi að
sýna sorg sína þrisvar á dag. Ber þetta að sögn sér-
fræðinga óvissu stjórnvalda um ítök sín vitni.
Kim Young-Soo, sérfræðingur við Sogang-
háskóla í Seúl í Suður-Kóreu, segir að íbúum
Norður-Kóreu hafi verið innrætt að þeir þurfi að
sýna mikla sorg þegar leiðtogi falli frá til þess að
ekki vakni grunsemdir um óhollustu. „Þeir hafa
lært af reynslunni að þeim mun meiri sorgar-
viðbrögð, því betra,“ sagði hann og bætti við að
þegar myndavélar væru annars vegar kepptust
menn um að vera hver öðrum dramatískari.
Nú er norðurkóreska áróðursvélin tekin til við
að hlaða undir persónudýrkun arftakans, Kims
Jong-uns, yngsta sonar Kims Jong-Ils.
Harmagráturinn
ræðst af ótta
Segja náttúruna syrgja Kim
Jong-Il jafnt sem almenningur
Syrgjendur minnast Kims Jong-Ils í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu.
Reuters
Feðgarnir Kim Jong-un (2. f.v.) og Kim Jong-Il
(lengst t.h.) á hersýningu í Pyongyang í september.
Reuters
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
„Í örbirgðar- og kúgunarríki
framtíðarinnar, sem George
Orwell lýsti í bók sinni 1984,
sagði hann að eini liturinn yrði
á áróðursspjöldum,“ skrifar
Barbara Demick í bók sinni
Engan þarf að öfunda um dag-
legt líf í Norður-Kóreu. „Þann-
ig er veruleikinn í Norður-
Kóreu. … [Kim Il-Sung] er sól-
in.“
Kim Il-Sung
er sólin
Matarsendingar
til útlanda
Láttu okkur sjá um
alla fyrirhöfnina –
útvega vottorð,
pakka og senda.
Evrópa: 19. desember
USA og Kanada: 19. desember
Önnur lönd: 19. desember
Síðustu dagar til að senda
jólamat til útlanda fyrir jól
KL
AS
SÍS
KT Á JÓLUNUM
B
R
E
G
ST
A L D R E I M E Ð
N Ó
AT
Ú
N
I
www.noatun.is