SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 34
34 25. desember 2011
Börnin í fyrsta bekk Glerárskóla áAkureyri voru kát og glöð íbyrjun vikunnar þegar litlu jólinfóru fram í skólanum. Morg-
unblaðið fékk að vera fluga á vegg.
Allir mættu í sínu fínasta pússi. Kveikt
var á kertum í stofunni, kennarar lásu fal-
legar sögur, sum börnin laumuðust til
þess að kíkja á jólakortin, aðrir sögðu
sessunautnum af einhverju skemmtilegu
sem gerst hafði heima, einn greindi kenn-
aranum frá því að mamma hefði klemmt
sig á dyrinni þegar hún var lítil. Hálfur
puttinn hefði dottið af.
Þetta var árla morguns. Yngsta stigið
reið á vaðið, fyrsti, annar og þriðji bekkur
en nemendur fjórða bekkjar reyndust ekki
langt undan þegar á reyndi og skemmtu
„litlu“ krökkunum. Mættu til leiks sem
gömlu, íslensku jólasveinarnir, lesin voru
kvæði Jóhannesar skálds úr Kötlum um þá
sérstöku sveina og þeir birtust þá hver af
öðrum ljóslifandi í salnum.
Svo var sungið og dansað í kringum
jólatréð. Öllum á óvart mættu allt í einu til
leiks tveir nútíma jólasveinar, klæddir
rauðu og hvítu; ótrúlegt hvað þeir bræður
ramba alltaf á réttan stað á réttum tíma.
Stúfur og Hurðaskellir sungu hraustlega
með börnunum, fljótlega hélt síðan hver
nemandi til sinnar stofu, skoðaði jóla-
kortin aðeins betur, þáði nammimola og
fór síðan heima í faðm fjölskyldunnar að
hlakka til jólanna.Hver þeirra ætli þetta sé? Stúlkan mænir á jólasveininn sem birtist skyndilega í salnum.
Strákarnir voru spenntir að vita hversu mörg jólakort leyndust í bunkanum þeirra.
Börnin sátu stillt og prúð í kennslustofunni áður en skundað var á fund jólasveinanna.
Börnin hlýddu á kennarann sinn lesa fallega jólasögu áður en
haldið var á sal til þess að dansa, syngja og hitta jólasveinana.
Litlu jólin eru að
sjálfsögðu stórmál
Litlu jólin eru haldin hátíðleg í grunnskólum
víða um land, áður en börnin halda í frí í tilefni
„stóru“ jólanna. Gleðin er við völd á þeim degi.
Myndir og texti: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Svona gerum við þegar
við hengjum okkar
þvott, hengjum okkar
þvott, hengjum...