SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 30
30 25. desember 2011 Í fyrradag birtist athyglisverð frétt á forsíðu Morgunblaðsins. Hún var svohljóðandi: „Grágæsir dvelja lengur á Íslandi en þær gerðu og telur dr. Arnór Þórir Sig- fússon, dýravistfræðingur og gæsafræð- ingur, að mildari vetur undanfarin ár og stóraukin kornrækt eigi mikinn þátt í lengri dvöl. Gæsirnar fljúga einnig styttra suður á bóginn en þær gerðu. Þær láta sér frekar duga að fljúga til Orkneyja en áður fóru þær sunnar á Bretlandseyjar. Þess vegna er minna veitt úr stofninum að vetri.“ Fréttin byggist á grein, sem birtist í Morgunblaðinu þann dag eftir Guðna Einarsson blaðamann. Þar kemur fram, að kornakrar á Íslandi hafi á árinu 1991 verið 200 hektarar en á því ári, sem nú er að líða, hafi verið skorið upp af um 4.800 hekturum. Fyrir skömmu hafði ég orð á því á þess- um vettvangi, að þorskurinn væri að færa sig norðar í kaldari sjó. Það hefði leitt til þess í einhverjum tilvikum, að bátar, sem gerðir hafa verið út frá Snæfellsnesi, hefðu flutt sig um set til Bolungarvíkur og róið þaðan, sem að sjálfsögðu leiddi til aukinna athafna og viðskipta þar fyrir vestan. Breytingar á hegðun gæsarinnar og þorsksins eru lítill þáttur í miklu stærri mynd. Sumir telja, að hlýnun jarðar og vaxandi þurrkar sunnar á hnettinum eigi eftir að leiða til þess að vaxandi þrýstingur verði á fólksflutninga norður á bóginn og þá m.a. yfir Miðjarðarhafið til suðurhluta Evrópu, sem aftur ýti á að fólk þar færi sig norðar. Með sama hætti og leit þorsksins að kaldari sjó hefur leitt til aukinna viðskipta í Bolungarvík má velta því fyrir sér, hvort áframhaldandi þróun af þessu tagi leiði til þess að byggðaþróunin á Íslandi snúist við á næstu árum og áratugum og fólk fari að flytjast vestur og norður og austur á ný. Það er ekki bara þorskurinn, sem er á hreyfingu og getur dregið mannfólkið með sér. Mikil uppbygging á Grænlandi á næstu áratugum getur leitt til mikillar uppsveiflu á Vestfjörðum, sem liggja næst Grænlandi. Þaðan er stytzt að veita Græn- lendingum margvíslega þjónustu. Þar er stytzta leiðin fyrir sæstreng milli Íslands og Grænlands til flutnings á raforku frá nýjum vatnsvirkjunum á Grænlandi og flutning þess áfram til Evrópu um sæ- streng á milli Íslands og Skotlands. Þaðan og frá höfnum á Norðurlandi er styttra á ný fiskimið sem opnast eftir því, sem haf- ísinn hopar lengra í norður. Norðausturhorn Íslands liggur vel við hinum nýju siglingaleiðum til Kyrrahafs, sem kalla á umskipunarhafnir bæði á Ís- landi og í Noregi vegna þess að of dýrt er að flytja vörurnar á áfangastað í Evrópu og Bandaríkjunum með þeim skipum, sem sérstaklega verða smíðuð fyrir siglingar á norðurslóðum. Atferli gæsarinnar og þorsksins er því vísbending til okkar mannfólksins um að hefja undirbúning að breyttum tímum. Við þurfum að hefja skipulega skoðun á þeim tækifærum, sem eru að opnast. Breytt byggðaþróun kann að kalla á nýjar fjárfestingar í samgöngukerfum. Lítið sveitarfélag á norðausturhorninu hefur verið að kanna aðstæður til hafnargerðar. Þarf samfélagið í heild ekki að koma að því verkefni? Samgönguleiðir á Vestfjörðum eru enn erfiðar, þrátt fyrir mikla uppbyggingu á síðustu hálfri öld. Er ekki nauðsynlegt að horfa á þær í stærra samhengi í ljósi fyrir- sjáanlegra breytinga? Svo er enn önnur hlið á þessu máli, sem atferli gæsanna beinir athygli okkar að. Guðni Einarsson segir að þær vilji vera hér lengur vegna þess, að þær búi við betra at- læti en áður. Er hugsanlegt að af sömu ástæðum vilji fleiri mannverur búa hér en áður? Um leið og flutningur fólks yfir Miðjarðarhafið eykur á fólksflutninga norður á bóginn er ekki ólíklegt að ein- hverjir af þeim leiti hingað. Erum við tilbúin til að taka við fleira fólki í veruleg- um mæli? Erum við tilfinningalega tilbúin til þess og ef svo með hvaða hætti þurfum við að búa okkur undir slíka þróun? Huang Nubo hefur minnt okkur á að landsvæði á Íslandi getur verið eftirsókn- arvert fyrir aðra og að óbreyttu hafa þegn- ar 27 annarra ríkja býsna greiðan aðgang að því. Værum við sátt við stórvaxandi eftirspurn eftir landi okkar úr þeirri átt? Það má draga í efa. Þetta eru stórar spurningar en þær eru raunhæfar. Það eru miklar breytingar framundan í veröldinni. Einn meginþáttur þeirra eru hugsanlegir miklir fólksflutn- ingar vegna loftslagsbreytinga, jafnvel ígildi þjóðflutninga, sem leiði til þess að fólk flytji sig almennt norðar. Hinn meginþátturinn snýr að þeim breytingum, sem eru að verða á afkomu fólks á heimsbyggðinni. Hinar fátækari þjóðir eru að sækja fram og kalla eftir betri lífskjörum. En kakan verður ekki stækkuð endalaust. Þess vegna mun hlutur þeirra ekki batna nema ríkar þjóðir Vesturlanda sætti sig a.m.k. við að afkoma þeirra batni ekki frá því, sem nú er, og jafnvel að þær láti eitthvað af hendi. Sum hinna rísandi efnahagsvelda eru í aðstöðu til að auð- velda okkur að skilja þennan veruleika eins og arabaþjóðirnar gerðu, þegar þær ýttu vestrænum olíufélögum til hliðar og hækkuðu verulega orkukostnað Vestur- landaþjóða á áttunda áratug síðustu aldar. Það getur gerzt aftur. Hvað þýðir það fyrir okkur? Minnka fiskiskipin á ný? Verður of dýrt að sækja fiskinn á gífurlega dýrum skipum, sem kosta mikið bæði í fjárfest- ingu og rekstri? Þessi nýju og breyttu viðhorf eru ekki til umræðu að nokkru ráði á Íslandi vegna þess að við erum svo upptekin af vanda- málum líðandi stundar. En það er nauð- synlegt að ræða þessi mál og hvernig við eigum að búa okkur undir breytta tíma. Atferli gæsanna vísbending um breytta tíma hjá mannfólkinu? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Þau merku pólitísku tíðindi urðu á jóladag fyrirtuttugu árum að Mikhaíl Gorbatsjov sagði afsér embætti sem forseti Sovétríkjanna og dag-inn eftir leið Sovétsambandið formlega undir lok. Hann hafði gegnt embættinu í tæp sjö ár og á þeim tíma valdið gerbyltingu jafnt heima fyrir sem á al- þjóðavettvangi. Afsagnarræða Gorbatsjovs, sem var sjónvarpað um öll Sovétríkin, var stutt, aðeins tólf mín- útur, og virkaði leiðtoginn lúinn. Næstu mánuðir á undan höfðu verið Gorbatsjov erf- iðir. Tilraun var gerð til að steypa honum af stóli í ágúst og var honum meðal annars haldið í stofufangelsi í þrjá sólarhringa. Hann komst þó aftur til valda en fann fljótt að ekkert var eins og áður. Lokatilraun hans til að berja í brestina fór út um þúfur rétt fyrir jól og leiðtoginn sá sæng sína uppreidda. Gorbatsjov framseldi völd sín í Kreml til Borís Jeltsíns, forseta Rússlands, sem um tíma hafði sótt hart að honum. „Hálfvolgar umbætur – og það hefur verið nóg af þeim – fóru út um þúfur hverjar á fætur annarri,“ sagði Gor- batsjov meðal annars í afsagnarræðu sinni. „Landið var staðnað og við gátum alls ekki lifað eins og við gerðum. Við urðum að bylta frá grunni. Af þessum sökum hef ég aldrei iðrast þess – iðrast þess aldrei – að ég notfærði mér ekki aðstöðu mína sem að- alritari til þess eins að halda völdum í nokkur ár. Ég hefði litið á slíkt sem óábyrga og siðlausa ákvörðun. Ég gerði mér ennfremur grein fyrir því að það var geysilega erfitt og áhættusamt verkefni að hleypa af stokkunum svo umfangsmiklum umbótum á þjóðfélagi eins og okk- ar. En jafnvel nú er ég sannfærður um að sagan úrskurði lýðræðisumbæturnar, sem við hófum vorið 1985, réttar. Endurnýjun landsins og róttækar breytingar á sam- félagi þjóðanna hafa reynst miklu flóknari en nokkurn óraði fyrir. Eigi að síður skulum við meta að verðleikum það sem áunnist hefur. Þjóðfélagið hefur verið leyst úr fjötrum. Stjórn- málalegt og andlegt frelsi er nú við lýði. Þetta er mik- ilverðasti árangurinn en við höfum ekki enn náð tökum á honum. Það höfum við ekki gert vegna þess að við kunnum ekki enn með frelsið að fara.“ Ekki stóð á viðbrögðum við hinum miklu tíðindum og leiðtogar heims voru almennt jákvæðir í garð Gorbat- sjovs. Langflestir töldu hann hafa unnið gagnlegt starf sem verða myndi til að halda nafni hans á lofti í framtíð- inni, ekki síst í þágu heimsfriðar og lýðræðisframfara. „Gorbatsjov forseti ber ábyrgð á einhverri merkustu þróun sem orðið hefur á þessari öld – byltingarkennd- um umskiptum alræðisskipulagsins og lausn þjóðar sinnar við kæfandi faðmlög þess,“ sagði George Bush, eldri, þáverandi Bandaríkjaforseti. „Hans eigið framlag til lýðræðislegra og efnahagslegra umbóta í nafni perest- rojku og glasnosts – starf sem krafðist geysilegrar hug- kvæmni og hugrekkis, persónulegs jafnt sem pólitísks, gerði þjóðum Rússlands og annarra lýðvelda kleift að varpa af sér þungu oki margra áratuga og leggja í staðinn grundvöll að frelsi.“ Leiðarahöfundur Morgunblaðsins horfði meðal annars til framtíðar 28. desember 1991: „Athygli heimsbyggð- arinnar beinist nú að Borís N. Jeltsín, forseta Rússlands. Líkt og aðrir leiðtogar fyrrum lýðvelda Sovétríkjanna er Jeltsín fyrst og fremst þjóðernissinni. Hann hefur þegar sýnt einræðislega tilburði og umskiptunum í Sovétríkj- unum hefur verið líkt við hallarbyltingu undir forystu Jeltsíns. Hættan er sú, að hann og aðrir leiðtogar fyrrum Sovétlýðvelda höfði til þjóðernishyggju er í ljós kemur, að frelsið nýfengna felur ekki sjálfkrafa í sér velferð og hagsæld. Þá kann að skapast pólitísk þörf fyrir tilbúna óvini.“ Borís Jeltsín var við völd til ársins 1999. Hann lést árið 2007. Mikhaíl Gorbatsjov er enn á lífi, áttræður að aldri. orri@mbl.is Gorbatsjov segir af sér Mikhaíl Gorbatsjov síðasti leiðtogi Sovétríkjanna. ’ Þjóðfélagið hefur verið leyst úr fjötrum. Stjórnmálalegt og and- legt frelsi er nú við lýði. Borís heitinn Jeltsín, hinn litríki forseti Rússlands. Á þessum degi Jóladagur 1991

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.