SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 24

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 24
24 25. desember 2011 Takk fyrir að bjóða okkur!“ er hrópað aft-arlega í Eldborgarsal Hörpu og salurinntekur undir með klappi og blístri. „Takkfyrir að koma,“ svarar Mugison, Örn Elías Guðmundsson, og brosir. Hann býður svo einn gest hljómsveitarinnar til velkominn á svið á þessum fyrstu tónleikum kvöldsins, Pétur Ben. gítarleikara, og Addi trommari telur í næsta lag. Það var gríðarlega fín stemning á þrennum tón- leikum Mugisons í Hörpu að kvöldi 22. desember; á þessari þjóðargjöf tónlistarmannsins – hann bauð og um 5.000 gestir fylltu salinn í þremur hollum; á tónleikum sem hófust klukkan 19.30, 22.00 og 24.15. Þjóðin fékk reyndar öll að fylgjast með, því fyrstu tónleikunum var útvarpað og öðrum sjón- varpað. Enda var þetta eftirminnileg stund sem enginn hefði átt að missa af. Hver öðrum þéttari og betri Mugison var mættur á svið í Hörpu um sexleytið á fimmtudag og með honum ofurþétt hljómsveit hans; Guðni Finnsson bassaleikari, Arnar Þór Gísla- son trymbill og Þorbjörn Sigurðsson hljómborðs- og gítarleikari. Það var auðheyrt að hljómurinn yrði góður; Eldborgarsalurinn hefur sannað sig sem snilldarhljóðfæri. Boðsgestir Mugisons tíndust á svið á lokaæfingunni; Pétur Ben., annað gítargoð, Björgvin Gíslason, og Fjallabræður ásamt stjórn- anda kórsins, Halldóri Gunnari Pálssyni. Svart- klæddir kórbræðurnir áttu eftir að heilla í lokalög- um allra tónleikanna, þar sem þeir gengu á svið syngjandi „Ljósvíkinginn“, hugljúft lag af hinni nýju metsöluplötu Mugisions, Hagléli, og rödduðu einnig í lokalaginu, smellinum ljúfa „Stingum af“. Klukkustundu fyrir tónleika var salurinn orðinn hljóður, fyrir utan stöku gítarriff rótara sem stilltu hljóðfærin. Síðan tóku eftirvæntingarfullir gestir að streyma í salinn og spenna líka að byggjast upp baksviðs. Þegar Eyþór Árnason sviðsstjóri ákvað að tími væri kominn til að byrja föðmuðust félagarnir í hljómsveitinni og hvöttu hver annan til dáða – og veitti ekki af, því þetta yrði sannkölluð törn og mikil áskorun. Að halda dampi á þrennum tón- leikum. En það tókst, svo sannarlega, og voru tón- leikarnir hver öðrum þéttari og betri. Sigurstund Mugisons Hljómsveitin lék sextán lög á hverjum tónleikum, stillt sem tryllt; eitthvað af öllum diskum lista- mannsins en flest lög af þeim nýjasta. Í því fyrsta, „Moogie Boogie“, kallaði Mugison karl föður sinn á svið, Guðmund M. Kristjánsson, hafnarstjóra á Ísa- Geðveikt! „Ég hefði verið til í fjórðu tónleikana, núna strax!“ sagði Mugison að loknum þriðju tónleikum sínum í Hörpu. Fimm þúsund gestir nutu gestrisni hans. Ljósmyndir og texti: Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Áfram Papamug! Sonurinn hvetur föður sinn áfram. Hljómsveitarfélagarnir Tobbi, Mugison og Guðni féllust í faðma áður en þeir gengu á svið. Kjaftfullur Eldborgarsalur í þrígang. Mugison og Rúna við míkrafónana. Fyrir fyrstu tónleikana hitaði Björgvin Gíslason upp fingurnar hjá bassatöskum Sinfóníunnar baksviðs.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.