SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 12

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 12
12 25. desember 2011 Hún er nokkru þykkari og þyngri en sumir keppi- nautarnir, en annars er snúið að tala um keppi- nauta því hún er til að mynda talsvert frábrugðin iPad frá Apple eða Galaxy Tab frá Samsung. Mik- ið er lagt upp úr öryggi hvað varðar tölvupóst og einnig er hægt að kveikja á dulritun á gögnum á vélinni og læsa henni rækilega. Koma má því svo fyrir að hún verður ónothæf ef henni er stolið. Hún er með hefðbundna tengimöguleika, gerð fyr- ir 3G-kort, 802.11 b/ g/n þráðlaust netkort og Bluetooth og með innbyggt gps. Rafhlaðan dugir í rúma átta tíma að sögn, en fer vitanlega eftir því hvað maður er að gera og þannig er til að mynda skynsamlegt að slökkva á sem mestu til að kreista svo mikinn tíma út úr henni. Lenovo ThinkPad 1838 er með áþekkan vélbúnað um margt og aðrar spjaldtölvur, til að mynda er í henni 1 GHz tveggja kjarna NVIDIA Tegra-örgjörvi, vinnslu- minnið er 1 GB og geymsluminni 32 eða 64 GB. Það er líka rauf fyrir minniskort ef vill. Skjárinn er mjög góður, 10,1" IPS TFT skjár með 1280 x 800 díla upp- lausn. Á henni er HDMI-tengi. Nýstárlegt, þegar spjaldtölvur eru annars vegar, er að með henni fylgir sérstakur penni sem nota má til að skrifa beint á skjáinn og tölvan snýr því svo í tölvutækan texta. Þetta gefur eðlilega ýmsa möguleika í skráningu og eins ef maður þarf að hripa eitthvað niður á fundum. Pennanum er svo smellt í viðeigandi rauf aftan á tölvunni. Slagurinn er harður á spjaldtölvu- markaði og á eftir að harðna enn. Far- tölvan er þó ekki búin að syngja sitt síðasta, en stefnir í að verða þynnri og léttari en nokkru sinni, annars veg- ar fyrir áhrif af spjaldtölvuþróuninni – fólk vill fartölvur sem eru fartölvur (meðfærilegar og léttar) – og svo hafa menn magnaða fyrirmynd þar sem er MacBook Air. Ytra nota menn merkimiðann Ultra- book yfir slíkar tölvur og keppast við að hafa þær sem þynnstar og létt- astar en líka verða þær að vera spar- neytnar á rafmagn, fljótar að ræsa sig og hraðvirkar. Þær eru ekki með geisladrif, sem flestir eru hættir að nota hvort eð er, yfirleitt með SSD- diska sem þurfa minna rafmagn, eru hljóðlátari og hitna ekkert (ekkert sem snýst í þeim) en líka dýrari og rúma ekki eins mikið. Apple hefur for- skot á markaðnum sem stendur, er með flottustu vélina, en aðrir eru ekki langt undan og nýkomnar á markað eða væntanlegar örþunnar fartölvur frá Acer, Samsung, Lenovo, LG, Tosh- iba, Asus og HP. Slagurinn stendur um að vera með flottustu vélina, en ekki síst að bjóða þá ódýrustu, því þar er líka hart barist. Örþunnar fartölvur Þynnri, léttari og öflugri fartölvur Mánudagur Ása Lind Finnbogadóttir Kenning: Framan af barneignaraldri velur fólk sér maka sem er ólíkur þeim bæði í út- liti og skapgerð … en ef fólk eignast maka í seinni tíð þá velur það maka sem er líkari sér. Ræðið. Þriðjudagur Kári Sturluson Jeminn eini hvað ég er búinn að fá nóg af þessu eilífa væli hins skapandi geira um að hann skapi nú störf, gjaldeyri, sé landkynning, hver króna sem sett er í skapandi greinar komi þrisvar sinnum til baka o.s.frv. Er sjálfsvirðing lista- fólks á Íslandi í dag virkilega bund- in við hagfræðivísa og fjárhagslegt viðurkenningarklapp á bakið frá stjórnmálafólki? Gerður Kristný Í dag er auglýsing frá bókaútgefanda/ rithöfundi í Frétta- blaðinu sem virðist ekki kunna að beygja nafnið sitt. Hann segir bækurnar vera eftir „Huginn Þór“. Fésbók vikunnar flett Fyrirtækjaspjaldtölva Það er ekki síður munur á milli spjaldtölva en fartölva hvað varðar búnað og frágang. Þannig virðist ný spjaldtölva frá Lenovo, Lenovo ThinkPad Tablet 1838, frekar sniðin fyrir fyrirtæki en almenning. Græjur Árni Matthíasson arnim@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.