SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 35

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 35
25. desember 2011 35 Kennararnir buðu hverjum nemanda einn sælgæt- ismola í tilefni dagsins áður en farið var heim. Þetta var einn glæsilegasti jólasveinn- inn í samkvæminu. Hann er nemandi... Fjórðu bekkingar skemmtu yngri krökkunum; mættu í gervi gömlu, íslensku jólasveinanna. Flott kort hjá þér! Stúlkurnar greinilega ánægðir með jóla- kortið frá bekkjarsystrum sínum hinum megin í stofunni. Skapti Hallgrímsson „Ég sá mömmu kyssa jólasvein...“ Sungið var af mikilli innlifum á meðan gengið var í kringum jólatréð. ’ Andi jólanna sveif yfir vötnum í Glerárskóla á Akureyri í vikunni Fjórir skákmenn urðu efstir á skákmóti öðlinga sem lauk í síðustu viku. Eins og vænta mátti börðust nokkrir af „strákunum úr taflfélaginu“ um efstu sætin þ.e.a.s. nokkrir af þeirri kynslóð sem lét rækilega til sín taka upp úr 1970 þegar Taflfélag Reykjavíkur var nýflutt á Grensásveginn: Kristján Guðmundsson, Ögmundur Kristinsson, Sævar Bjarnason, Benedikt Jónasson, Þorsteinn Þorsteinsson og Bjarni Hjartarson. Og þá voru mættir ýmsir sigursæl- ustu skákmenn þess tíma, Íslandsmeistarinn frá 1967 og 1975, Björn Þorsteinsson, Bragi Halldórsson, Harvey Georgsson og Þór Valtýsson. 47 skákmenn voru skráðir til leiks og aðeins tefld ein skák í viku hverri. Fyrir síðustu umferð voru Kristján Guðmundsson og Björn Freyr Björnsson efstir með fimm vinninga hvor og innbyrðis viðureign þeirra lauk með jafntefli. Það kvöld var höfð til sýnis skák sem Halldór G. Einarsson og Benedikt Jónasson höfðu teflt tveim dög- um fyrr og Benedikt hafði fengið flýtt. Úrslitum var haldið leyndum en leikjunum komið á framfæri á eðli- legum hraða meðan á lokaumferðinni stóð. Þetta var tvímælalaust skák mótsins sem báðir geta verið stoltir af. Með sigri náði Benedikt efsta sæti og telst eftir sig- urútreikning sigurvegari mótsins: 1.-3.Benedikt Jónasson, Kristján Guðmundsson og Björn Freyr Björnsson 5½ v. (af 7) 4.-5. Þorsteinn Þor- steinsson og Halldór Pálsson 5 v. Skákmót öðlinga 2011; 7. umferð: Halldór G. Einarsson – Benedikt Jónasson Benóní-vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 c5 4. d5 exd5 5. cxd5 d6 6. Rc3 a6 7. a4 g6 8. e4 Bg4 9. Be2 Bg7 10. 0-0 0-0 11. h3 Bxf3 12. Bxf3 Rbd7 13. Bf4 De7 14. Dd2 Hab8 15. Hfe1 Re8 16. Be2 Rc7 17. Bf1 Hfc8 18. Kh1 b5 19. Bg3 g5 20. axb5 axb5 21. Rd1! Svartur má vel við una eftir byrjunina en Halldór benti á 19. … g5 veikti um of f5-reitinn. Þessi riddari er á leiðinni þangað! 21. … Ha8 22. Re3 Be5 23. Rf5 Df6 24. f4 Bxf4 25. Bxf4 gxf4 26. Dxf4 Hxa1 27. Hxa1 Re5 28. Be2 Kf8 29. g4 Re8 30. Bxb5 Rg6 31. Dh6+ Kg8 32. Hf1 Dxb2 33. Bxe8 Hxe8 34. Rxd6 Ha8 35. De3 Ha2 36. Dg3 Rh4? Báðir keppendur voru í miklu tímahraki. Hér var betra að leika 36. … Re5. (Sjá stöðumynd) 37. Rf5? 37. Rc4 vinnur – fullyrðir Halldór en skýrir það ekki frek- ar. Eftir 37. … De2 38. Db8+ Kg7 á hvítur til- þrifamikla mát- sókn:39. Hxf7+! Að- alleiðin er þessi: 39. … Kxf7 40. Re5+! Kg7 41. Dc7+ Kh6 42. Rf7+! Kh6 (eða 42. … Kg7 43. Rd8+! Kg6 44. Df7+ Kg5 45. Re6+ Kh6 46. g5 mát) 42. Rh8+! Kh6 43. Df4+! Kg7 44. Df7+! Kh6 (eða 45. … Kxh8 46. Df8 mát) 45. Df6+ Rg6 46. Rf7 mát. 37. … Rf3! Krókur á móti bragði, svartur hótar „arabísku máti“ á h2. 38. Hf2! Db1+ Alls ekki 38. … Dxf2 39. Db8 mát! 39. Kg2 Dg1+ 40. Kxf3 Ha3+ 41. Kf4 Hxg3 42. Ha2! Frábært svar, hvítur hótar máti á a8. 42. … Ha3 43. Hxa3 Dc1+! 44. He3 c4 45. d6? Betra er 45. e5! og hvítur á að vinna að mati Houdinis. Tímahrakið tekur alltaf sinn toll. 45. … Dd2 46. Re7+ Kg7 47. Rd5 Dh2+ 48. Hg3 Db2 49. d7 Db8+ 50. e5 f6 51. Rxf6 Kf7 52. Hc3 Ke6 53. d8R+?? Þetta ógnandi peð mátti hann alls ekki gefa. Með 53. Kf3! heldur hvítur í horfinu. 53. … Dxd8 54. Hxc4 Dd2+ 55. Ke4 De2+! – og Halldór gafst upp. Eftir 56. Kd4 Dxe5+ fellur riddarinn á f6. Benedikt Jónasson vann skákmót öðlinga Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.