SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 23

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 23
25. desember 2011 23 De ulykkeliges ven“ eða vinur hinna ógæfusömu er skrifað á stöpulinn ástyttu Ólafíu Jóhannsdóttur í Kristjaníu í miðri Óslóarborg. Ólafía fæddist árið 1863 á Mosfelli og dvaldi í Noregi á árunum 1903 til1920, þar sem hún beitti sér í þágu hinna aumustu í fátækrahverfi Óslóar- borgar. Það er ekki úr vegi fyrir Íslendinga að leggja leið sína að minnisvarðanum ef þeir eiga leið um borgina, því verðugri fulltrúa á þjóðin ekki á erlendri grund. Leikkonan ástsæla Guðrún Ásmundsdóttir heillaðist af sögu Ólafíu og skrifaði um hana leikverk sem sýnt var fyrir fullu húsi í Iðnó og Fríkirkjunni haustið 2003. Hún sagði í við- tali í Morgunblaðinu árið eftir: „Saga hennar á svo mikið erindi við okkur í dag, því Ólafía vann sitt hljóðlega en mikilvæga starf þegar hún sinnti þeim aumustu og minnstu í þjóð- félaginu.“ Og það er fróðlegt að lesa frásögn Guðjóns Friðrikssonar af heimsókn Einars Benedikts- sonar til frænku sinnar í janúar árið 1914, en þá var Ólafía forstöðukona heimilis fyrir af- vegaleiddar stúlkur sem rekið var af Hvíta bandinu: „Einar Benediktsson situr hljóður hjá frænku sinni og hlustar á hana … Ólafía segist ætíð sýna þeim traust, sem hún hittir, en beri þó alltaf tortryggni í brjósti sínu. „Ég skal kenna þér eitt ráð,“ segir hún við Einar, frænda sinn: „Reyndu jafnan að sjá manninn í mann- inum – jafnvel í þeim sem dýpst er sokkinn. Þá lærir þú líka að meðhöndla þá með virð- ingu.““ Tildrög þess að Ólafía hafði frumkvæði að stofnun heimilis fyrir afvegaleiddar stúlkur má rekja til vetrarins 1912 sem var óvenjulega harður. Eins og segir í fyrrgreindri ævisögu: „Einn kaldan morgun þann vetur leituðu þrjár kornungar stúlkur, allar óléttar og nánast helfrosnar, á náðir Ólafíu í Salgangen eftir að hafa ráfað úti alla nóttina. Þetta varð til þess að Ólafía hafði samband við formann Hvíta bandsins í Kristjaníu og sagði að brýnt væri að koma upp heimili þar fyrir umkomulaust fólk.“ Það gekk eftir og fyrsta heila starfsárið fengu 140 stúlkur húsaskjól hjá henni. Mikil gæfa var það fyrir stúlkurnar að geta bankað upp á hjá Ólafíu. Síðan eru hundrað ár liðin og enn þarf að huga að fólki sem verður undir í samfélaginu, af hvaða völdum sem það gerist. Nú er það okkar að taka við keflinu frá Ólafíu. Ótal hjálp- arstofnanir og góðgerðarsamtök koma að því starfi og ekki má gleyma þeim fjölmörgu sem leggja góðum málstað lið, ýmist með sjálfboðavinnu eða fjárframlagi. Það er sjálfsagt að geta þess sem vel er gert og vera stolt af því. Í Sunnudagsmogganum í dag er talað við fólk sem efnir til jólaveislu á aðfangadag og jóladag hjá Hjálpræðishernum fyrir fólk sem á enga að eða getur ekki haldið jól heima af einhverjum ástæðum. Tugir sjálfboðaliða sjá um veislurnar og lifa þannig eftir boðskap jólanna. Þeir eiga þakkir skilið, en gleymum því ekki að engir finna til meiri gleði í hjarta sínu en þeir sem vinna góðverk og leggja sitt af mörkum til betra samfélags. Á jólum gefst tækifæri til að leiða hugann að þeim sem minnst mega sín í samfélaginu, hvaða trúarbrögð eða trúleysi sem fólk aðhyllist. Kærleiksboðskapurinn á erindi við alla. Það er enginn yfir það hafinn að leitast við að verða góð manneskja. Vinur hinna ógæfusömu „Við hittum til dæmis sjávarútvegs- ráðherrann sem kom mér fyrir sjónir sem þvermóðskufyllsta afturhald frá fimmta áratugnum, nokkurn veginn frá Stalínstímanum, sem ég hef nokkurn tímann rekist á í lýðræð- isríki.“ Robert Atkins, þing- maður breska Íhalds- flokksins, um Jón Bjarnason. „Himnaríki er hreint ekki ósvipað New Jersey.“ Rokkarinn Jon Bon Jovi en fregnir af andláti hans í vikunni reyndust stórlega ýktar. „Ég myndi glaður vilja vera laus við hryllinginn, en þetta er það sem kemur upp úr mér þegar ég skrifa.“ Steinar Bragi rithöfundur um nýj- ustu skáldsögu sína Hálendið. „Heyrðu er þetta ekki Árni Sæ- berg?“ Jólasveinninn Hurðaskellir, sem bar kennsl á ljós- myndara Morgunblaðsins á förnum vegi. „Ég er hreinlega alveg tómur.“ Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalands- liðsins í handbolta, en spennufallið var mikið eftir að heimsmeistaratitillinn var í höfn. „Sunnudagsmorgnar eru fyr- irbrigði sem ég kannast ekki við.“ Málmgyðjan Gyða Hrund Þorvaldsdóttir í Ang- ist spurð hvað ylji henni á sunnudags- morgnum. „Þetta er eins og með kynlíf yfirleitt. Fólk grunar að ég stundi kynlíf, enda hef ég verið gift í tuttugu ár og á þrjú börn, en það kemur ekki til greina að ég geri það á almanna- færi.“ Sigríður Jónsdóttir samdi ljóðabók um kynlíf en les ekki úr henni opinberlega af siðferðisástæðum. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal beina kirkjunni frá fólkinu og fólkinu frá henni, stóð hagur þess einna verst og í fá hús átti það fólk að venda. Fögur kirkja og sönn er sannarlega lið- veisla leitandi fólki, því sem trúir og því sem efast, þeim sem fagna þar eða fara með sorgina sína í slíkt hús. Mjög mörg okkar vildu ekki án slíks húss vera. En við vitum það líka að þótt umgjörðin sé í senn hjálpleg og heillandi nær hún ekki lengra nema annað og meira fylgi. „Góðkunningjar“ kristninnar En þótt lýsingin sem vitnað var til í upphafi hafi verið ógeðfelld er ekkert nýtt undir sólinni í þess- um efnum. Fyrir tæpum 130 árum skrifast góðir vinir á og láta gamminn geisa í sínum einkabréfum og er fátt utan seilingar þeirra. Annar þeirra hrífst af heimspekingnum Brandes, „en snilli hans í framsetningu og flugvit hans, fróðleikur og fjör er makalaust. Hins vegar (er) hans hærra gáfnafar ólíkt og hjá þeim Davíð, Esajasi, Jesú Kristi og Páli; þar er hann api, þar sem þeir eru ljón og ernir. Þeir eru lifandi fiskar í vatni, hann kryddaður fiskur upp úr pækli“. En í sama bréfi er einnig að finna kafla sem sýnir að þeir vinirnir hafa einnig huga við áþekk efni og fréttaskýring vikuritsins, sem nefnt var, fjallar um. Nefnd er saga sem birst hafði í tímaritinu Heimdalli: „… karikatur af lífinu og augnamiðið: að drepa kristindóminn. Þessi anti- kirkjulega stefna er annars í eðli sínu illvíg og fylgin sér og verður enn verri. Kirkjur eru hum- bug og eiga ekki lengur við í þessu miðaldarmóti. Fólk, sem hefur lífsnautn og elskar fagrar listir vill ekki lengur líta við í kirkjunum“. Um þessi jól, eins og jafnan, heyra þeir sem vilja margan fal- legan jólasálminn úr pennum pennavinanna sr. Matthíasar og sr. Valdimars Briem og eiga enn betri stund fyrir vikið. Morgunblaðið/RAX ema ljósið Í jólasnjó.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.