SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 8
8 25. desember 2011
Kynþáttafordómar á knattspyrnuvöllum eru íbrennidepli þessa dagana eftir tvö atvik íEnglandi þar sem heimsfrægar stjörnur (ogfyrirmyndir) komu við sögu. Annars vegar
sakaði franski varnarmaðurinn Patrice Evra hjá Man-
chester United framherjann Luis Suárez frá Uruguay,
sem leikur með Liverpool, um gróft níð í sinn garð í
miðjum leik. Hins vegar á í hlut sjálfur fyrirliði enska
landsliðsins, John Terry, varnarmaður hjá Chelsea, sem
fór afar ófögrum orðum um landa sinn, Anton Ferdin-
and hjá Sunderland. Eða svo virtist.
Þeldökkir leikmenn hafa haldið því fram í mörg ár að
þeir hafi þurft að þola ýmislegt misjafnt frá andstæð-
ingum sínum. Þá eru ónefndir stuðningsmenn á áhorf-
endapöllum; þeir hafa ekki sparað níðið í gegnum tíð-
ina, hvorki í orði né verki. Á síðustu áratugum
aldarinnar sem leið var algengt að banönum væri hent
inn á völlinn þegar þeldökkur leikmaður tók á sprett
upp kantinn. Áhorfendur gáfu síðan oft frá sér apahljóð
í kjölfarið.
Í orði hefur verið átak í gangi í Englandi og víðar
ar hefur verið tilkynnt að Suárez muni áfrýja úrskurði
knattspyrnusambandsins. Hann viðurkennir að hafa
notað orðið „negrito“ í samskiptum sínum við Evra, en
í heimalandi hans sé það ekki talið niðrandi og hann
hafi því ekki meint neitt illt. Aðrir benda á að hann hafi
leikið í fjögur ár í Norður-Evrópu og eigi að gera sér
grein fyrir menningarlegum aðstæðum í þeim heims-
hluta.
Í vikunni var tilkynnt að breski saksóknarinn hefði
kært John Terry fyrir ummæli hans. Hann segist sak-
laus; á sjónvarpsupptökunni sjáist þegar hann kallaði
til Ferdinands að hann hefði ekki látið þau orð falla sem
mótherjinn sakaði hann um. Chelsea hefur lýst yfir
fullum stuðningi við fyrirliða sinn.
Málið er hið vandræðalegasta; Englendingar eru við-
kvæmir fyrir því að landsliðsfyrirliðinn skuli vera í
þessum sporum. Dómsmál gæti dregist á langinn og
hvískrað er um að það gæti haft áhrif á undirbúning
landsliðsins fyrir Evrópukeppnina næsta sumar. Svo er
spurning hvað knattspyrnuhreyfingin sjálf gerir; hvort
Terry verður settur í leikbann eins og Suárez.
Rautt
spjald á
rasisma
Aðalatriðið að
breyta hugarfari
með fræðslu
Ekki við hæfi? Leikmenn Liverpool klæddust allir treyjum með mynd af Suárez í upphitun fyrir leikinn gegn Wigan í vikunni.
Reuters
Vikuspegill
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
John Terry tekur í hönd þjálfarans, Villas-Boas, eftir leik Chelsea og Tottenham í vikunni.
Luis Suarez, t.v. og Patrice Evra í leik Liver-
pool og Manchester United 15. október.
Reuters
gegn kynþáttafordómum. Rauða spjaldið á rasismann
er það kallað á Bretlandseyjum en virðist ekki hafa
skilað miklum árangri enn sem komið er.
Undanfarið hafa ýmsar gamlar kempur stigið fram í
sviðsljósið og bent á að hér sé ekki einungis um að ræða
vanda knattspyrnuhreyfingarinnar heldur þjóðfélagsins
alls. Ef árangur eigi að nást í baráttu gegn kynþátta-
hatri verði það að gerast með fræðslu í skólum og víð-
ar, ekki bara á vellinum.
Áðurnefndur Suárez var í vikunni úrskurðaður í átta
leikja bann af enska knattspyrnusambandinu eftir ít-
arlega rannsókn á því hvort ásakanir Evra ættu við rök
að styðjast. Að auki er honum gert að greiða 40.000
punda sekt, nærri átta milljónir króna.
Eins og búast mátti við brást félag leikmannsins
harkalega við, lýsti yfir skilyrðislausum stuðningi við
hann og eins og til að undirstrika það hituðu allir leik-
menn Liverpool upp fyrir leik gegn Wigan í vikunni,
klæddir hvítum treyjum með mynd af Suárez, nafni
hans og númeri. Þykir ýmsum í Englandi það misráðið
en öðrum finnst ekkert athugavert við uppátækið. Þeg-
Máslvarar Luis Suárez, ekki síst landar
hans, segja orðið „negrito“ sauðmeinlaust
og alls ekki niðrandi í Úrúgvæ. Sú meining
sé þar lögð í orðið að helst mætti líkja við
félagi, gæskur, jafnvel vinur hér uppi á Ís-
landi. Komið hefur fram erlendis að orðið sé
meira að segja, a.m.k. stundum, notað á
rómantískum augnablikum; að negrito geti
þá þýtt minn kæri eða elskan.
Alejandro Balbi, umboðsmaður og lög-
fræðingur Suárez, varði hann með kjafti og
klóm í vikunni. Dró m.a. upp á blaðamanna-
fundi mynd af leikmanninum og þeldökku
barni í Suður-Afríku því til stuðnings að leik-
maðurinn væri alls ekki kynþáttahatari.
Svartur sauður eða
sauðmeinlaust?
Lögmaðurinn Alejandro Balbi með mynd af
Luis Suárez og svörtu barni í Suður-Afríku.
Reuters
Orðbragð leikmanna á knatt-
spyrnuvelli er ekki alltaf eftir
hafandi og hefur lengi verið
vitað. Sjónvarpsáhorfendur
sjá oft að dómarar fá orð í
eyra frá leikmönnum sem eru
ósáttir við úrskurð þeirra, en
flestir láta það sem vind um
eyru þjóta. Leyfa mönnum að
blása. Öðru máli gegnir um
kynþáttaníð. Eftir að sást á
sjónvarpsupptöku að John
Terry kallaði Anton Ferdinand
„helvítis svarta skíthæl“ og
Luis Suárez níddist á Patrice
Evra þykir mörgum vera nóg
komið. Útrýma verði kynþátta-
fordómum í íþróttinni.
Er þetta bara
toppur á ísjaka?