SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Page 22

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Page 22
22 25. desember 2011 Mörgum var mjög brugðið sem lásuúttekt í Sunnudagsmogganum umhvernig félagsskapurinn Vantrúhafði beitt sér gegn kennara í Há- skóla Íslands. Svo ógeðfellt sem það var bættist annað við. Það sást inn í heim harðsnúins hóps, sem einskis sveifst og hældist um á lokuðum vef sínum yfir því hvernig tekist hefði með þrýstingi og ógnunum að hræða vafrandi og veikluð stjórn- völd til að fara að vilja þeirra. Meirihluti borg- arstjórnar, skipaður Samfylkingu og svo kölluðum „Besta flokki“, er sláandi vitnisburður um að hinn harðsnúni hópur er ekki að hreykja sér að ástæðu- lausu. Þjóðkirkja og trúfrelsi Það er á hinn bóginn ekki hægt að finna að því að borgarar landsins hafi á því ólíkar skoðanir hvort það standist að í landinu skuli í senn vera trúfrelsi og ríkiskirkja, og hvort tveggja sé varið í stjórn- arskrá landsins. Reynslan sýnir að á meðan farið er að með gát getur slíkt farið saman. Sem betur fer er litið svo á að einstaklingurinn einn geti, hátt eða í hljóði, kveðið upp úr um það hvort hann að- hyllist guðstrú af einhverjum toga. Þetta hefur þó ekki alltaf verið sjálfgefið hér á landi. Öfga- kenndur angi af þeim augljósa skorti á umburð- arlyndi eru galdrabrennur á liðnum tímum, raun- ar skemmra undan í sögunni en margur ætlar. En þótt slík dæmi séu hér lukin myrkri sögu eru enn þá til handhafar valds. sem í skjóli laga og réttar framfylgja slíku „réttlæti“ út í æsar. Reglulega berast fréttir af því frá einu ríkasta olíuríkinu, að fólk hafi verið hálshöggvið fyrir að afneita Trúnni, og raunar nú nýlega fyrir að hafa stundað galdra og kukl. Úr öðru ríki, aðeins austar, berast reglu- lega myndir þar sem menn hanga í snörum niður úr gálgum kranabíla, öðrum til viðvörunar. Slíkar fréttir vekja furðulítil viðbrögð á Vesturlöndum, af einhverjum ástæðum. Vestrænir stjórn- málaleiðtogar úr röðum kvenna, þ.m.t. íslenskir, vefja sig inn í slæður, ef þeir þiggja opinber heim- boð til höfuðríkis slíkrar hegðunar, í þeim göfuga tilgangi að særa ekki blygðunarkennd viðkvæms tilfinningalífs gestgjafana. Þeirra sömu sem hýða konur opinberlega fyrir meint framhjáhald, eða að þær hafi reynt að fara í ferðalag til útlanda án sam- þykkis, föður, eiginmanns eða bróður, eftir því sem við á, svo ekki sé minnst á þær sem sýnt hafa óvenjulega staðfastan brotavilja gegn landsins lögum, með því að setjast undir stýri á bifreið. Eft- ir „vorið“ í nokkrum ríkjum araba virðist sem þróunin sé fremur í þessa átt en frá henni. Á Vest- urlöndum er umburðarlyndi gagnvart trúarskoð- unum aðflutts fólks mikið, eins og það á að vera. En það fer yfir mörk þegar stjórnmálamenn og jafnvel lögvísindamenn leitast við að stuðla að því að slíkir hópar geti stuðst við trúarbókar-lög í einkaréttarlegum deilum og jafnvel þeim sem telj- ast til annarra sviða lögfræðinnar. Og það er eft- irtektarvert að sífellt ber meira á því í hinum sömu löndum að þrengt sé að starfsemi sem tengist kristinni trú og amast við iðkendum hennar. Og það er ekki bara hér á landi sem fyrirsvarsmenn kristinnar kirkju hafa gefist upp og treysta sér ekki lengur til að snúast til varnar. Það vakti mikla athygli í Bretlandi nýlega þegar breski forsætis- ráðherrann fann að því opinberlega að höfuð bisk- upakirkjunnar bresku, erkibiskupinn af Kant- araborg, bæri vart lengur við að bera blak af kirkju sinni á forsendum hennar sjálfrar, í öllum þeim ágangi sem á henni dynur. Seint hefði Hinrik 2. gert athugasemdir í þessa átt við Becket, enda urðu vinslit þegar sá dásamlegi drykkjubróðir varð eftir biskupsútnefninguna sem umskiptingur og fylgdi fremur kirkju sinni en kóngi. Tvær kirkjur lagðar af í viku hverri Hið virðulega þýska vikurit segir frá því í að- ventulok með nokkurri velþóknun að nú séu tvær kirkjur lagðar af í viku hverri í því blauta landi Hollandi. Og það er eftirtektarvert hvað um þau húsakynni verður. Greinarhöfundur upplýsir að hinar niðurlögðu kirkjur séu rifnar, breytt í moskur, verslanir eða vöruhús og þar fram eftir götunum. Einni hafi þannig verið breytt í skauta- höll. Fólk úr samanskroppnum söfnuðum, sem ekki hafi lengur risið undir kirkjurekstri, en hafi taugar til þess sem var, fær að bjóða í innvolsið úr kirkjunum, og gefur höfundur upp verð og lengd á kirkjubekkjum og þess háttar. Jafnframt segir hann frá því hver fækkunin sé í mótmælenda- kirkjunni í Hollandi og reiknar út að þar verði enginn eftir, haldi áfram sem horfir, árið 2050. Ekki er þetta beint uppörvandi á aðventunni. En samt er ekki endilega víst að teiknin vísi á endalok kirkju Krists í heimi. Þar hefur að jafnaði ekki ver- ið mikið dansað og síst á rósum. Fyrstu áratugina og raunar aldirnar eftir hin fyrstu jól merkti kirkja ekki hús í öðrum skilningi en þeim að þar sem söfnuður trúaðra kom saman undir merki Krists, þar var þá stundina kirkja. Gilti einu þótt þakið yfir því fólki væri himinhvolfið. Stundum var vald kirkjuhöfðingja á hinn bóginn mikið, helgidóm- urinn stóð í veraldlegum upphæðum og Kirkjan, sem stofnun, safnaði jarðneskum auði, svo fáir ef nokkur átti slíka. Það þýddi þó ekki endilega að þá stæði kirkjan á hátindi og rækti hlutverk sitt vel eftir því eina umboði sem hún hefur fengið til þess. En með sama hætti standa dæmin mörg til þess að þegar að reynt var með afli og þunga að Reykjavíkurbréf 23.12.11 Það er fátt nýtt undir sólinni n

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.