SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Page 39

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Page 39
25. desember 2011 39 bara jákvætt. „Þær gera oft allt rétt en stundum ekki. Það er gott því það sýnir að þetta eru þær sjálfar sem eru að róta í fataskápnum. Þær eru ekki með einhvern sem segir þeim fyrir verkum og lætur þær vita hvað sé í tísku þá stundina. Þetta kemur frá þeim, þetta er í eðlinu. Sjáðu bara hvað þeim hefur tekist að gera með [fata- merki sín] The Row og Elizabeth and James. Þær eru áhrifamikið tískuveldi.“ Ennfremur er varpað ljósi á systur með ólíkan stíl eins og Rooney og Kate Mara. Blaðið segir Rooney, sem leik- ur Lisbeth Salander í bandarísku endurgerðinni, líta stundum út fyrir að vera „goth Lína langsokkur“ og á meðan Kate er sögð „endurspegla glæsileika Holly- wood-stjarna fyrri ára“. Leikarasysturnar Elle og Dakota Fanning eru líka sér- staklega stællegar systur. Þær prýða ennfremur desem- berforsíðu tímaritsins W þannig að systur tröllríða öllu um þessar mundir. Ólíkar en báðar töff „Það var spennandi að skoða hversu ólíkur stíll systra getur verið. Við fórum þá að velta fyrir okkur stællegum systrum sem líta vel út saman en líka hver í sínu lagi.“ Hin litríka Solange Knowles, litla systir poppstjörn- unnar, hefur tekið áhættu í tískunni en hún hefur meðal annars rakað af sér hárið og verið dugleg við að klæðast litríkum fötum og blanda saman munstrum. Hún sagði í viðtali við Vogue að stíll þeirra beggja væri að þróast og færast sífellt nær hvor öðrum. „Ég fékk aldrei lánuð föt frá henni þegar við vorum að vaxa úr grasi,“ sagði hún. „En núna er minn stíll orðinn aðeins hófstilltari og hún er orðin ævintýragjarnari.“ Fanning-systurnar á forsíðu W. ’ Vogue tekur fyrir stællegar systur sem líta vel út saman en taka sig líka vel út í hver í sínu lagi. Hinar konunglegu Pippa Middleton og Katrín hertogaynja af Cambridge. Aldrei skal láta tækifæri til tilfinningasemi sér úrgreipum ganga. Aldrei skal spara knús og kossa.Aldrei skal halda í sér löngun til að segja eitthvaðfallegt. Þeir sem hafa af einhverjum ástæðum á samviskunni að hafa snertisvelt sína nánustu á árinu sem er að líða, eða allt of sjaldan vikið að þeim hlýjum orðum, skulu bæta úr því hið snarasta. Leyfið blíðunnar orðum að vakna til lífsins á tungunni og hleypið þeim út. Undan þeim spretta blómin. Opnið faðminn hlýja, strjúkið, klappið, kyssið. Gefið. Af ykkar eigin mannakjöti og sálarsól. Jólin eru sannarlega rétti tíminn til að bæta upp fyrir snertisvelti, en þeir sem lifa við slíkt hungur vesl- ast upp að innan og verða sem slútandi urt á mel. Þó að við höldum að við þolum hvað sem er og getum verið svöl er staðreyndin sú að við þríf- umst ekki án snertingar við aðrar manneskjur og þess að sýna tilfinningar okkar. Hún Elísabet Jökulsdóttir orðaði þetta svo ágætlega um daginn þegar hún sagði: „Við verðum að fá að sýna tilfinn- ingar til að þurfa ekki að drekka, þurfa ekki að vera geðveik, fá kvíðaröskun.“ Gunnar Dal hitti líka naglann á höfuðið þegar hann sagði einhverju sinni: Sá sem ekki þorir að vera væminn, hann missir af miklu í lífinu. Þetta er aldrei of oft áréttað. Lífið er stutt, ekki geyma það góða til morguns. Lífið er líka svo brothætt. Styrkjum það með blíðskap. Kyndum undir ástarinnar logum, á jólunum sem og á öllum hversdagsins stundum. Syngjum: Ást, ást, ást snemma að morgni. Ást, ást, ást, seint að kvöldi. Ást, ást, ást dag og nótt. Ástin er eins og hitasótt. Tralllalalllalalllalla … GLEÐILEG JÓL! Ást á jólum ’ Kyndum undir ástar- innar logum, á jólunum sem og á öllum hversdagsins stundum. Stigið í vænginn Kristín Heiða khk@mbl.is ar Bjarnason hrossaræktarráðunautur en sá síðarnefndi áritaði Ættbók og sögu íslenska hestsins. Fyrir jólin 1982 mætti Albert Guðmundsson, alþingismaður og ráð- herra, í veitingahúsið Fell í Fellagörðum í Breiðholti í Reykjavík og las þar upp úr ævibók sinni, sem Gunnar Gunnarsson, fréttamaður á Út- varpinu, skráði. Þá má finna auglýsingu í Morgunblaðinu 1986 en fyrir þau jól kom út bókin Bjargið klifið – minningar bjargveiðimannsins Hlöðvers Johnsen, Súlli á Saltabergi eins og hann var jafnan kallaður lét sig þá síga niður af þaki stórhýsisins Austurstrætis 18 og niður á gangstétt. „Þegar eftir lendingu byrjar hann svo að árita bók sína,“ sagði í kynningu Eymundsson. Í sögulegu ljósi eru bækur alveg ágætur aldarspegill. Sú var tíðin að íslenskar spennusögur sáust ekki enda voru glæpir næsta fjarlægir í lognstillu þess þjóðfélags sem eldra fólk minnist. Glæpasögurnar voru innfluttar og ekkert skoraði hærra en sögur eftir Alistair McLean. Ið- unn gaf þessar bækur út og þær seldust eins og heitar lummur, svo al- þekkt orðalag sé notað. Rithöfundurinn. Það er engin goðgá að nefna Halldór Laxness svo; hann var fremstur meðal jafningja sinna og skal því skrifaður með ákveðnum greini. Hann var ræstur út fyrir jólin 1984 og sat dagstund og áritaði bók sína Og árin líða. Fékk bókin góðar viðtökur en hún var safn greina, erinda og bréfa höfundarins frá liðnum árum, þar sem fjallað var um t.d. bókmenntir, þjóðernismál og kirkjusögu. Bókin Af menníngarástandi sem var af svipuðum meiði kom út tveimur árum síðar – en eftir það varð hljóðara um höfundinn sem setti svo sterkan svip á samtíma sinn. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ Sú var tíðin að íslenskar spennusögur sáust ekki. Ásgeir Sigurvinsson Jon Bon Jovi vill að allir viti að fregnir af dauða hans séu stórlega ýktar. Blogg- færsla sem greindi frá því að hann hefði látist úr hjartaáfalli þyrl- aði upp miklu slúðurveðri á samskiptasíðunni Twitter í vikunni. Til að stöðva orðróminn birti söngvarinn meðfylgjandi mynd af sér á Facebook en á spjaldinu stendur: „Himnaríki lítur frekar mikið út eins og New Jersey.“ Guði sé lof! Jon Bon Jovi er ekki allur! 25 ára gamall penni fannst í maga 76 ára gamallar konu þegar hún leitaði læknis vegna magavandamála. Penninn var þó ekki or- sök heilsufarsvandamála konunnar en var engu að síður fjarlægður. Penninn var í not- hæfu ástandi eftir allan þennan tíma. Kon- an hafði óvart gleypt pennann þegar hún datt á meðan hún var að skoða ofan í kokið á sér en þá fannst penninn ekki í röntgen- myndatöku. Með penna í maganum

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.