SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Qupperneq 40

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Qupperneq 40
40 25. desember 2011 Lífsstíll Kannski bara hugsanlega er ég búin að jóla yfir mig. Í það minnsta að borða yfir mig. Ég er ekki viss um að ég þori að skrifa mikið meira hér um mat. Móðir mín er í það minnsta farin að hafa dálitlar áhyggjur af þessu. En jæja. Í dag er aðfangadagur og væri ég sex ára þá yrði þessi dagur ógurlega lengi að líða. Nú líður dagurinn frekar aðeins of hratt. Eftir að hafa sofið út fram að möndlugraut þarf að skreppa með nokkra pakka. Svo þarf að fara í jólabaðið og gera sig fínan. Enda á helst að vera sest að borðum þegar klukkan slær sex. Mér finnst jólin enn jafn notaleg og skemmti- leg. Þó svo að barnatilhlökkunin komi líklegast ekki aftur. Jólin eru bara svo fallegur tími. Tími til að vera þakklátur fyrir fólkið í kringum sig og hafa það notalegt við skímu kertaljósins. Aðfangadagur er hátíðlegur og alveg sérstakur. Eftir því sem líður á kvöldið færist sífellt meiri ró yfir. Fáir eru á ferli úti enda flestir inni að lesa jólabókina eða spila og borða konfekt. Já, ég vissi að ég gæti ekki algjörlega sleppt því að tala um mat. Á aðfangadag er lífsnauðsynlegt að gúffa í sig góðum slatta af konfekti og kökum í kvöldkaffinu. Það er ótrúlegt hversu miklu maður kemur niður eftir allar kræsingarnar fyrr um kvöldið. Held að einmitt á þeim tímapunkti geti maður verið ánægður með gott aðventu- át. Það er jú búið að víkka magann og teygja þannig að ofan í honum rúmast mun meira en áður. Dálítið eins og í kvikmyndinni Santa Claus þar sem jólasveinninn fær stóra bumbu og skegg. Einhvers staðar verður hann jú að koma fyrir smákökunum. Svo eftir jólin mætti maginn bara alveg minnka aftur. En það gerist víst ekki af sjálfu sér. Þangað til tekist er á við það vanda- mál óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og vona að þið eigið notalega stund í faðmi fjölskyldunnar. Munið að allt er gott í hófi nema á jólunum. Þá er langbest að kýla vömbina eins og maður getur. Hóhóhó og gleðileg jól elskurnar mínar ! Látið ykkur ekki bregða, greinarhöfundur má aftur ná eðlilegu útliti eftir jólin. ’ Held að einmitt á þeim tímapunkti geti maður verið ánægður með gott aðventu- át. Það er jú búið að víkka magann og teygja. Ó, þið jól með konfekti Lífið og tilveran María Ólafsdóttir maria@mbl.is Þið hélduð kannski að ég ætlaði ekkert að skrifa um mat hér í dag? Þar höfðuð þið rangt fyrir ykkur. Nú fyrst byrjar ballið af alvöru. Gleðileg jól! Ef þú ert alveg búin/n að ofkeyra þig á jólastressi og heldur að þú eigir eftir að sofna ofan í jólamat- inn er kannski kominn tími til að hugsa sinn gang. Þú hefur enn daginn í dag til að slappa af og snúa dæminu við. Hér koma góð ráð við þreytu í augum annars vegar og hins vegar streitulos- andi eldamennsku, tekin úr bók- inni 1001 Leið til að slaka á, eftir Susannah Marriott, gefinni út af Sölku. Ef þú þjáist af augnþreytu eftir vinnu er gott að leggja fingur- góma baugfingurs við augun, rétt við nefið og þrýsta léttilega. Færðu síðan fingurinn jafnt og þétt til hliðar og þrýstu laust stöku sinnum þar til þú kemur að gagnaugunum og gerðu þá hring- laga hreyfingar stutta stund. Dansandi kokkur Það er ómissandi að hlusta á tón- list við eldamennskuna og enn betra að dansa með. Veldu ástríðufulla tónlist eins og t.d. með Ninu Simone eða Mary J. Blige eða með sjóðheitu gleði- sveitinni Jagúar. (Nú eða bara þitt uppáhald úr geisladiskarekk- anum til að hrista þig við yfir jóla- matnum. Það er algjörlega endur- nærandi að hrista kroppinn sinn við og við í trylltum dansi.) Eftir þetta allt saman ætti afslöppunin nú að fara að gera vart við sig. Annars má líka fá sér eitt rauð- vínsglas og smá konfekt með. Það dugar ágætlega á stressið í hófi. Það er fínt að skekja sig og hrista við eldamennskuna, þannig losar maður um mikla streytu. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hressandi eldamennska á jólum Framundan er jólanóttin þegar allt er kyrrt og hljótt. Eftir at aðventu og aðfangadagskvöld verður oft dálítið spennufall. Ekki bara hjá börnunum sem nú eru búin að opna alla pakkana. Heldur líka hjá þeim fullorðnu sem fá nú smátíma til að teygja úr sér og setja tærnar upp í loft eftir undirbúning fyrir jólahátíðina. Það er um að gera að njóta jóla- næturinnar. Ef veðrið er gott getur jafnvel verið notalegt að fá sér smágöngutúr fyrir svefninn. Þá fær maður frískt loft í lungun og sefur enn betur. Jólanóttin er líka tilvalin bóka- nótt. Þá er kominn tími til að vaka fram eftir og njóta þess að lesa jólabækurnar. Kannski með smá- konfekt við höndina eða annað gotterí. Allir eru komnir í jólanátt- fötin, kannski einhverjir í nýjan slopp, og nú er bara að slappa af og hafa það gott. Síðastliðin ár hef ég reyndar tekið eftir því að þolið hefur minnk- að. Nú get ég ekki vakað alveg til þrjú eða fjögur við lestur eins og ég gerði. Ég mun þó reyna hvað ég get til að komast alla vega í þriðja kafla. Best samt kannski að snúa ekki sólarhringnum algjörlega við. Það gæti tekið fram í febrúar að snúa honum við aftur. Hjóð jólanótt

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.