Morgunblaðið - 03.01.2012, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, gaf í nýársræðu sinni til
kynna svo varla verður um villst að
hann hygðist ekki sækjast eftir
endurkjöri í sumar. Hann sagði jafn-
framt að ákvörðun hans fæli ekki í
sér kveðjustund heldur upphaf að
annarri vegferð og að hann yrði
óbundinn af þeim skorðum sem
embætti forsetans setti jafnan orð-
um og athöfnum.
Ólafur Ragnar ræddi á hinn bóg-
inn ekki um eftir hvaða farvegi hann
myndi beina kröftum sínum og í gær
gaf hann ekki kost á viðtali til að
skýra betur orð sín.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, sagði í viðtali við RÚV að
þrátt fyrir býsna afdráttarlausa yfir-
lýsingu hefði Ólafur Ragnar haldið
ofurlítilli glufu opinni þannig að
hann gæti boðið sig fram aftur ef
Þegar skyldur þjóðhöfðingjans
hvíldu ekki lengur á hans herðum
fengi hann meira frelsi til að sinna
hugsjónum og málefnum sem honum
væru kær; efla framfarir og hag-
sæld, vísindi, rannsóknir og atvinnu-
líf, styðja baráttuna gegn loftslags-
breytingum og kynningu á hreinni
orku, þróa samvinnu á Norðurslóð-
um og tengsl Íslands við forysturíki í
öðrum álfum, auka tækifæri unga
fólksins og lýðræði í landinu.
„Ákvörðun mín felur því ekki í sér
kveðjustund heldur upphaf að ann-
arri vegferð, nýrri þjónustu við
hugsjónir sem hafa
löngum verið mér leiðar-
ljós; frjálsari til
athafna en áður
og ríkari af
reynslunni sem
forsetaembættið
færir hverjum
þeim sem þjóðin
kýs,“ sagði Ólafur
Ragnar.
Óbundinn af embætti
Ólafur Ragnar Grímsson ætlar í nýja vegferð, reynslunni ríkari af störfum
forseta Gaf ekki kost á viðtali til að útskýra betur orð sín í nýársávarpinu
Öll olíufélögin hafa hækkað hjá sér
bensínverðið eftir gærdaginn. N1
reið á vaðið á nýársdag og önnur
félög fylgdu á eftir í gær, fyrst Olís
og Shell og síðar um daginn Orkan,
Atlantsolía og ÓB.
Nú kostar bensínlítrinn hjá
Orkunni 232 kr. og 232,10 kr. hjá
Atlantsolíu og 232,10 hjá ÓB.
Hjá N1 og Olís kostar bensínið
232,30 kr. Hjá Shell er algengasta
verðið í sjálfsafgreiðslu 233,40 kr.
Hjá Orkunni kostar dísilolían
245,50 kr. og er hún 10 aurum dýr-
ari hjá Atlantsolíu og ÓB. Hjá N1
og Olís er hún á 245,80 kr. og hjá
Shell á 245,90 kr.
Þetta verð miðast við sjálfs-
afgreiðslu án vildarafsláttar og er
fengið af vefsíðunni gsmbensín.is
sem er verðkönnunarþjónusta fyrir
bensín- og olíuverð.
Bensín- og dísil-
olíuverð hækkað
Morgunblaðið/Kristinn
Dælt Olíufélögin hafa öll hækkað
bensínverðið á nýju ári.
Héraðsdómur
Norðurlands
eystra hefur
dæmt 31 árs
gamlan karl-
mann í 21 mán-
aðar fangelsi,
þar af 19 mánuði
skilorðsbundið,
fyrir umferðar-
lagabrot og fíkniefnabrot. Maður-
inn ók m.a. á 148 km hraða gegnum
Múlagöngin milli Dalvíkur og
Ólafsfjarðar og á 160 km hraða
gegnum Héðinsfjarðargöng.
Maðurinn, sem var ökurétt-
indalaus, varð var við lögreglu á
Dalvík og jók þá hraðann og reyndi
að flýja undan lögreglunni. Þá kom
í ljós að hann var með 2,2 grömm af
marijúana í bíl sínum þegar lög-
reglan stöðvaði hann. Maðurinn á
langan sakaferil að baki. Fram
kemur í dómnum að hann hafi gert
raunhæfa tilraun til að vinna bug á
fíkniefnamisnotkun sinni, sé nú í
fastri vinnu og hafi ásamt sambýlis-
konu tvö börn á sínu framfæri.
Ákvað dómurinn því að skilorðs-
binda mestan hluta dómsins.
Dæmdur í 21 mán-
aðar fangelsi
Forsetakjör skal fara fram fjórða
hvert ár, síðasta laugardag í júní-
mánuði, sem í ár ber upp á þann
þrítugasta. Framboðum þarf að
skila inn í það minnsta fimm vik-
um fyrir kjördag. Kjörgengir eru
hverjir þeir sem er 35 ára gamlir
og fullnægja skilyrðum
kosningaréttar til Alþing-
is, að frátöldu skilyrði um
búsetu á Íslandi.
Nokkru áður en kosið
verður til forseta verður
ljóst hver verður nýr bisk-
up Íslands en hann verður
vígður í kringum Jóns-
messu, skv. upplýsingum frá
Biskupsstofu.
Kosið 30. júní
FORSETI OG BISKUP
Morgunblaðið/Ómar
Þáttaskil Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sjást hér við messu í Dómkirkjunni á nýársdag. Ólafur Ragnar
tók við embættinu 1996 og Karl varð biskup 1998. Þeir fá væntanlega bráðum enn meiri tíma til bóklesturs. Nýr biskup verður settur í embætti í júní nk.
skorað yrði á hann með öflugum
hætti.
Óvissa um stöðu Íslands
Ólafur Ragnar sagði í ávarpi sínu
að margir væru þeirrar skoðunar að
tímarnir væru markaðir verulegri
óvissu, um stöðu stofnana og sam-
taka á vettvangi þjóðmálanna, um
breytingar á stjórnarskránni, við-
ræður við ESB og að áríðandi væri
að málstaður þjóðarinnar birtist
skýrt í alþjóðlegri umfjöllun.
Á grundvelli þessa hefði verið
höfðað til skyldurækni forsetans og
trúnaðar sem hann nyti. Þessi
sjónarmið hefði hann íhugað.
„Niðurstaðan kann að hljóma sem
þversögn en er engu að síður sú að
aðstæður þjóðarinnar séu þess eðlis
að ég geti fremur orðið að liði ef val á
verkefnum verður eingöngu háð
mínum eigin vilja, óbundið af þeim
skorðum sem embætti forsetans set-
ur jafnan orðum og athöfnum,“ sagði
Ólafur Ragnar.
Skiptum á þrotabúi Þotuflugs ehf.
lauk 6. desember síðastliðinn en fyr-
irtækið stóð að baki rekstri leigu-
flugfélagsins Icejet, sem sérhæfði
sig í einkaþotuflugi og þjónustaði
m.a. hljómsveitir og íþróttalið.
Námu kröfur í félagið tæpum 137
milljónum króna en þar af námu for-
gangskröfur, þ.á m. launakröfur,
rúmum 29 milljónum króna. Óveru-
legar eignir fundust í búinu og feng-
ust því engar greiðslur upp í kröf-
urnar.
Eimskip, Arionbanki og Tollstjóri
voru meðal kröfuhafa félagsins en
stærstan hluta krafna átti Lands-
bankinn, sem leysti til sín eignir
móðurfélags Þotuflugs, Nordic Part-
ners, í mars 2010. Neyddist Icejet í
ágúst sama ár til þess að draga veru-
lega úr starfsemi sinni, þar sem ekki
samdist um leigu á fjórum Dornier
328 flugvélum, sem voru meðal
þeirra eigna sem skilanefnd bankans
tók yfir.
Icejet var stofnað árið 2005 og rak
þegar best lét fimm Dornier 328 þot-
ur hérlendis. Í kjölfar bankahruns-
ins minnkaði hins vegar eftirspurnin
eftir þjónustu félagsins verulega og
voru fjórar þotnanna fluttar erlendis
og reknar frá t.d. Englandi, Frakk-
landi og Lettlandi. Flugfélagið gerði
auk þess samstarfssamning við
svissneska félagið JetCom Aviation í
apríl 2010, um rekstur Dornier-þotu
svissneska félagsins, sem aðallega
var notuð til að fljúgja með kaup-
sýslumenn milli Bretlands og Ítalíu.
Fyrirtækið var tekið til gjald-
þrotaskipta í apríl 2011.
Brotlending einkaflugsins
Morgunblaðið/Golli
Breyttir tímar Vorið 2007 mátti telja ellefu einkaþotur á Reykjavíkur-
flugvelli á sama tíma en nú er tíðin önnur og þoturnar sjaldséðar.
Skiptum lokið á
þrotabúi Icejet
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Sendum frítt úr vefverslun
www.lindesign.is
barnavörur
rúmföt
púðar
lök
dúkar
ÚTSALAN
hefst í dag
allt að
50%
afsláttur