Morgunblaðið - 03.01.2012, Page 9

Morgunblaðið - 03.01.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 ÚTSALAN ER HAFIN 50% afsláttur af allri útsöluvöru 10% afsláttur af annarri vöru Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Jakkaföt Stakir jakkar Stakar buxur Kakí- og flauelsbuxur Frakkar Vetrarúlpur 30% afsláttur ÚTSALA Stórhöfða 21 • 110 Reykjavík • Sími 545 55 00 • flisabudin.is • flis@flis.is STÓRRÝMINGARSALA DOMTI.IS SMÁRATORGI STÓRRÝMINGARSALA 50-80% AFSLÁTTUR OPNAR ÞRIÐJUDAGINN 3. JANÚAR KL. 11 Tveir karlar voru handteknir í austurborginni í fyrrinótt eftir að þeir höfðu sjálfir hringt í lögreglu og tilkynnt um innbrot samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Þegar rætt var við þá á vett- vangi voru mennirnir margsaga en einnig var ýmislegt í fari þeirra sem gaf sterklega til kynna að þeir hefðu komið við sögu í öðru innbroti, sem lögreglan hafði nýhafið rannsókn á. Það var fram- ið skömmu áður á svipuðum slóð- um. Ekki bætti heldur úr skák fyrir mennina að í fórum þeirra fundust munir sem þeir gátu ekki gert grein fyrir. Mennirnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. Innbrotsþjófar til- kynntu um innbrot Jóna Valgerður formaður Jóna Valgerður Kristjánsdóttir er formaður Landssambands eldri borgara. Í Morgunblaðinu á gaml- ársdag var ranglega sagt að Helgi K. Hjálmsson væri formaður. Hann lét af formennsku sambandsins í maí á síðasta ári. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Kristrún Heimis- dóttir, lögfræð- ingur og fyrrver- andi aðstoðar- maður Árna Páls Árnasonar, efna- hags- og við- skiptaráðherra, og Árni Snæ- björnsson, ráðu- nautur og fyrr- verandi aðstoðar- maður Jóns Bjarnasonar, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, misstu bæði vinnuna þegar ráðherr- arnir tveir létu af embættum sínum á gamlársdagsmorgun. Kristrún kvaðst ætla að njóta þess til að byrja með að geta tekið sér eitthvað frí, enda ekki getað tekið frí lengi og ekki farið í sumarfrí á ný- liðnu ári. Hún gerði ráð fyrir að fara svo að vinna lögfræðistörf, bæði á vettvangi háskóla og annars staðar. „Það er svo ljómandi gott að kom- ast út úr pólitíska umhverfinu, sér- staklega eins og það er núna. Vinda ofan af sér alla þá togstreitu sem þar ríkir og hugsa um aðra hluti,“ sagði Kristrún. Hún sagðist hafa hugsað sér að nota næstu mánuði til þess að skrifa. En um hvað á að skrifa? „Það er margt sem maður hefur frá að segja um stjórnmálin frá árinu 2007 sem maður hefur tek- ið þátt í,“ sagði Kristrún. Hún var spurð hvort hún ætlaði að keppa við metsöluhöfundana Arnald og Yrsu í bókaflóðinu um næstu jól. „Ég segi það ekki – ég held að ég geti ekki verið með óvænt endalok, en það verður örugglega frá ýmsu að segja,“ sagði Kristrún. Aftur til Bændasamtakanna „Ég sný aftur til fyrri starfa hjá Bændasamtökunum,“ sagði Árni Snæbjörnsson ráðunautur. Árni kvaðst eiga eftir að ræða við sína menn hjá Bændasamtökunum. Hann var í launalausu leyfi þaðan þann tíma sem hann var aðstoðar- maður ráðherra. „Ég var ráðinn til Jóns og fór sjálfkrafa út þegar hann hætti,“ sagði Árni. gudni@mbl.is Ætlar að skrifa um stjórnmálin  Misstu vinnuna á gamlársdag Kristrún Heimisdóttir Árni Snæbjörnsson Samningur var undirritaður 30. desember síðastliðinn á milli Sveitarfélagsins Skagastrandar og RARIK um lagningu hitaveitu til sveitarfélagsins. Verður hitaveitan tengd við Hita- veitu Blönduóss og mun RARIK sjá um að leggja stofnæð til Skaga- strandar auk dreifiveitu um byggð- ina. Gert er ráð fyrir að fyrstu hús- in á Skagaströnd geti tengst hitaveitunni haustið 2013 og að öll hús á staðnum hafi möguleika á tengingu við hana ári síðar. Fram kemur í fréttatilkynningu sveitar- stjórnar Skagastrandar að verkleg- ar framkvæmdir verði boðnar út á þessu ári. Skagstrendingar semja um hitaveitu - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.