Morgunblaðið - 03.01.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍFhreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012
Vilt þú létta á líkamanum
Birkisafinn frá Weleda er vatnslosandi og
virkar vel á eðlilega hreinsun líkamans.
Útsölustaðir:
Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum, Lifandi markaður, Blómaval, Lyfja og Apótekið, Lyf
og heilsa og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík, Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækningabúðin,
Lyfjaval, Heilsuver, Apótek vesturlands, Reykjavíkur apótek, Yggdrasill, Árbæjarapótek,
Lyfjaborg, Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Garðabæjar, Akureyrarapótek, Barnaverslanir
og sjálfstætt starfandi apótek um allt land
Velkomin að skoða www.weleda.is
Lífrænt ræktaður, án aukaefna
Losar bjúg
Léttir á liðamótum
Losar óæskileg efni úr líkamanum
Góður fyrir húð, hár og neglur
Blanda má safann með vatni
Má einnig drekka óblandað
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta verður rosalegaskemmtileg ferð og margtsem við ætlum að skoða oggera annað en hlaupa,“
segir Jóhanna Eiríksdóttir hjúkr-
unarfræðingur en hún og maður
hennar Ívar Adolfsson ætla að
hlaupa maraþon næstu fjóra sunnu-
daga úti í Bandaríkjunum. „Við
lendum í Orlando og keyrum svo
meðfram Mexíkóflóanum og byrjum
á að fara til Alabama og hlaupum
fyrsta maraþonið þar. Síðan höldum
við til Houston í Texas og hlaupum
þar maraþon númer tvö. Eftir það
fljúgum við til baka til Orlando og
förum niður til Flórída og hlaupum
þriðja maraþonið í Ocala. Við endum
svo í sól og sumaryl á Miami Beach
og hlaupum fjórða og síðasta mara-
þonið þar.“
Verðum á handbremsunni
Jóhanna segir að vissulega sé
það þó nokkur áskorun að hlaupa
svona mikið á svo skömmum tíma.
„Við erum aðeins að ögra okkur með
því að gera þetta og það er auðvitað
ekki hægt að hlaupa fjögur maraþon
á jafnmörgum vikum nema vera í
góðu formi, vera búin að æfa sig vel
og halda sér við. Við erum vön að
hlaupa langt en við megum samt
ekki spenna okkur í hverju og einu
maraþoni af þessum fjórum, við
megum ekki reyna rosalega á okkur
til að ná góðum tíma, við þurfum að
vera svolítið á handbremsunni til að
finna hvað við þolum. Við viljum
náttúrlega fyrst og fremst koma
betri heim að lokum. Við gerum
þetta fyrir ánægjuna og til að bæta
heilsu og líðan.“
Hefur hlaupið 20 maraþon
Jóhanna og Ívar hafa gert þó
nokkuð af því að hlaupa maraþon í
útlöndum, fyrst og fremst vegna
vinnu Ívars en hann getur ekki farið
í frí á sumrin. „Við höfum farið í
okkar sumarfrí á vetrartíma á
hverju ári undanfarinn áratug, nælt
okkur í sumar og sól og oftast
hlaupið hálft maraþon eða heilt í
leiðinni, það er margt í boði í al-
menningshlaupum á þessum slóð-
um,“ segir Jóhanna sem hefur
hlaupið hátt í tuttugu maraþon á
þessum tíma en Ívar hefur hlaupið
um fjörutíu slík. „Ég byrjaði í
hlaupahópi um aldamótin 2000 en
hafði þá í tíu ár verið að hlaupa ein
og var orðin leið á að vera í dæmi-
gerðri frúarleikfimi. Við Ívar vorum
hvorugt í íþróttum sem krakkar en
hjá Námsflokkum Reykjavíkur náð-
um við að gera hlaup að okkar
íþrótt. Fólk sem hefur ekki verið í
íþróttum sem krakkar, á oft svolítið
púður inni þegar það uppgötvar
þennan heim. Ég er heilsugæslu-
hjúkrunarfræðingur og mér finnst
mjög gott að hafa kynnst af eigin
raun þessum íþróttaheimi og reyna
á eigin skinni hvað það er mikils
virði að hreyfa sig. Það bætir líðan
fólks mjög mikið að stunda mark-
vissa hreyfingu.“
Félagslegi þátturinn stór
Jóhanna segist hafa farið til-
tölulega meiðslalaus í gegnum öll
sín hlaupaár. „Fólk meiðist alltaf
Hlaupa fjögur mara-
þon á fjórum vikum
Þau flugu út í heim í gær og ætla næstkomandi fjóra sunnudaga að hlaupa jafn-
mörg maraþon í útlöndum. Þau taka sumarfríið yfir vetrartímann og nýta fríið
til að taka þátt í almenningshlaupum. Þau hlaupa fyrir ánægjuna og til að bæta
heilsu og líðan. Þau voru ekki í íþróttum sem krakkar en eiga púður inni.
Garpur Hér hleypur Jóhanna maraþon á Miami árið 2006, alsæl.
Hvíld Jóhanna og Ívar eftir Chicago-maraþon 10.10.2010 í sumri og sól.
Hjólreiðafélög hafa sprottið upp víða
um landið. Eitt þeirra er hjólreiða-
félagið Bjartur sem var stofnað árið
2008 þegar Ólafur Baldursson ákvað
að hjóla frá Reykjavík til Akureyrar. Í
dag heldur félagið út vefsíðunni
bjartur.org þar sem nálgast má allar
nýjustu fréttir af félagsstarfinu og
taka þátt í hjólreiðaumræðum. En all-
ir sem geta hjólað eru velkomnir í fé-
lagið.
Félagar í Bjarti hafa verið sýnilegir
í öllum helstu hjólreiðakeppnum
landsins, þeirra á meðal Bláalóns-
þrautinni og Heiðmerkuráskoruninni.
Á síðunni eru líka margar skemmti-
legar myndir úr starfi félagsins svo
og upplýsingar um æfingar og mót.
Áhugaverð síða fyrir hjólareiðafólk
sem vill taka þátt í virku félagsstarfi,
hjóla í góðum hóp og keppa. Allar
nánari upplýsingar er að finna á
bjartur.org.
Vefsíðan www.bjartur.org/
Ljósmynd/norden.org
Hjólreiðar Skemmtilegt er að hjóla um fallega staði og njóta útsýnisins.
Hjólreiðafélagið Bjartur
Fyrsta Powerade Vetrarhlaupið af
þremur á þessu ári verður haldið
fimmtudaginn 12. janúar. Alls eru
hlaupin sex en þrjú voru hlaupin síð-
astliðið haust. Hlaupið byrjar klukkan
20:00 við Árbæjarlaugina. Vega-
lengdin er 10 km og hefst við gervi-
grasvöll Fylkis. Hlaupið er í suðurátt
eftir göngustíg sem liggur upp með
Elliðaánum fyrir neðan skeiðvöll
Fáks, beygt af yfir göngubrú við
Heyvað, þaðan á malbikuðum göngu-
stíg í átt að Suðurfelli, fyrir neðan
Hóla- og Fellakirkju og áfram niður
Elliðárdalinn framhjá Vatns-
veitubrúnni, framhjá Árbæjarstíflu,
undir Höfðabakkabrú, áfram niður
dalinn, framhjá undirgöngum við
Blesugróf og áfram á malarstíg,
framhjá undirgöngum við Sprengi-
sand og yfir Elliðár á hitaveitustokk,
þá er beygt til hægri og hlaupið eftir
Rafstöðvarvegi upp að Árbæjarstíflu,
þaðan eftir nýmalbikuðum stíg sem
liggur fyrir neðan einbýlishúsabyggð-
ina meðfram ánni beina leið í markið.
Markið er við göngustíginn fyrir neð-
an gervigrasvöllinn. Allar nánari upp-
lýsingar um skráningu og annað sem
tengist hlaupinu má nálgast á vefsíð-
unni hlaup.is.
Endilega…
…skelltu þér í
vetrarhlaup
Ljósmynd/norden.org
Vetur Margir hlaupa úti allt árið.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Þá eru flestir búnir að borða mikið af
góðum mat yfir jólin og getur nú ver-
ið ágætt að létta dálítið á lík-
amanum. Grænmetis- og ávaxtasafar
eru kjörin leið til að fá fullt af góðum
efnum í kroppinn og auðvelt að
henda fullt af hollustu í safapress-
una og gera góðan safa. Hann má
síðan geyma í flösku í ísskápnum og
fá sér glas við og við. Epli, sellerí,
gulrætur og engifer er t.d. mjög gott
í safa.
Sítrónu er líka gott að kreista út í
en þær eru fullar af andoxunarefnum
og C-vítamíni. Margir fá kvefpestir á
þessum tíma og þá reynist sítrónan
vel þar sem hún hreinsasr líka líkam-
ann vel. Rauðrófur eru líka skotheld-
ar í safann en þær eru fullar af járni,
magnesíum og C-vítamíni. Rauðrófan
hefur ýmsa heilsubætandi kosti og
er á lista yfir svokallaða ofurfæðu.
Frískandi safar
Hollur Safi úr rauðrófum og fleiru.
Rauðrófa, engifer og sítróna
til að hreinsa líkamskerfið