Morgunblaðið - 03.01.2012, Side 11
Bætir líðan Jóhanna og Ívar njóta þess að eitt af mörgum hlaupum er búið.
eitthvað ef það æfir svona mikið,
það er nánast óhjákvæmilegt og
vissulega hef ég laskast. En þá er
bara að nota skynsemina og hægja á
sér, gera eitthvað annað ef maður er
meiddur og getur ekki hlaupið. Um-
fram allt ekki hætta að hreyfa sig.
Það er til dæmis tilvalið að synda.“
Hlaupið er líkamsrækt Jó-
hönnu og Ívars og þeirra lífsstíll.
„Fólk eins og við sem tekur þátt í
maraþonum þarf að hreyfa sig allt
árið um kring, lágmark þrisvar til
fjórum sinnum í viku og þar af einu
sinni í tvo tíma í senn. En ég hleyp
líka til að geta liðið vel og haldið
þyngdarstjórnun.“ Jóhanna segir að
félagslegi þátturinn sé einn af stóru
þáttunum í hlaupalífinu. „Mér finnst
frábært að vera í hlaupahópi. Þar
mæta allir til að gera sér gott og það
er alltaf gaman og hverjum og ein-
um frjálst hvort hann mætir eða
ekki. Í kringum hlaupahópa verður
oft til mjög góður félagsskapur og
það skiptir miklu máli. Við eigum
marga góða vini sem við höfum
tengst í gegnum hlaup.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012
Gamlárshlaup ÍR var þreytt í 36.
skipti á gamlársdag. Alls luku 758
manns hlaupinu og var elsta konan
48 ára en elsti karlmaðurinn 80 ára.
Hlaupið var ræst á Sæbrautinni fyrir
utan Hörpu klukkan 13 á gamlársdag
en til að tryggja öryggi hlauparanna
var hlaupaleiðin með öðru sniði að
þessu sinni. Liggur nýja hlaupaleiðin
um Sæbraut, Vatnagarða og Kletta-
garða.
Það er árleg hefð hjá mörgum að
taka þátt í Gamlárshlaupi ÍR og
kveðja þannig gamla árið með góðum
spretti. Sumir hlaupa í heldur óhefð-
bundnum klæðnaði og klæða sig í
ýmiskonar búninga. Í ár voru veitt
verðlaun fyrir bestu búningana svo
það reið á að vera frumlegur. En í
kringum þetta skapast skemmtileg
stemning í hlaupinu.
Gamlárshlaup ÍR
Besti tími kvenna Arndís Ýr Hafþórsdóttir (38:44), Helen Ólafsdóttir
(38:17), Íris Anna Skúladóttir (40:23).
Góð þátttaka
Morgunblaðið/Ernir
Kát Margir hlaupa í búningum.
Besti tími karla Þorbergur Ingi Jónsson (32:21), Kári Steinn Karlsson
(30:47) og Tómas Zoëga Geirsson (33:30).