Morgunblaðið - 03.01.2012, Side 18

Morgunblaðið - 03.01.2012, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 Við gerum Vínbúðina Dalvegi fallegri og betri Vínbúðin Dalvegi verður lokuð til 15. febrúar vegna endurbóta. Opnum aftur15. febrúar E N N E M M / S ÍA / N N 4 9 4 4 0 Með nýju rauntímakorti á vef Strætó bs. er nú hægt að fylgjast með ferðum strætisvagna í raun- tíma. Þannig geta strætófarþegar með hjálp nýjustu tækni séð hvar vagninn sem þeir ætla að taka sér far með er staddur á hverjum tíma. GPS-búnaður sem nú er um borð í öllum vögnum gerir farþegum kleift að fylgjast með ferðum vagn- anna á vefnum www.straeto.is. Staðsetning vagnanna er uppfærð á u.þ.b. tíu sekúndna fresti. Einnig er unnið að nýrri útgáfu Leiðarvísis á vef Strætó og munu rauntíma- upplýsingar einnig verða aðgengi- legar þar á næstu mánuðum. Sam- fara því er ráðgert að bjóða upp á viðbætur (apps) fyrir flestar gerðir snjallsíma og það gerir við- skiptavinum kleift að fylgjast með ferðum vagnanna í farsímanum. Morgunblaðið/Ómar Snjallt Bráðum verður hægt að fylgjast með ferðum strætisvagna í snjallsímum. Fylgst með ferðum Strætó á rauntíma Styrkur svifryks í Reykjavík var á mælistöð- inni við Grensásveg um 61 míkrógramm á rúmmetra á nýársnótt 2012. Árið 2011 mæld- ist hann 23 míkrógrömm á rúmmetra og 225 árið 2010. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra og 1. janúar 2012 því fyrsti svifryksdagur ársins, segir í frétt frá umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar. Fyrstu klukkustundina árið 2012 fór styrk- ur svifryks þó í rúmlega 1000 míkrógrömm á rúmmetra en flugeldar eru meginástæða þess að 1. janúar er oft svifryksdagur í Reykjavík. Árið 2010 fór styrkur svifryks 29 sinnum yfir heilsuverndarmörk en árið 2011 fór hann 17 sinnum yfir. Sú tala gæti reyndar lækkað í 15 skipti því verið er að skoða betur gögn frá tveimur svifryksdögum. Árið 2012 má ekki fara oftar en sjö sinnum yfir heilsuverndarmörk samkvæmt reglugerð um svifryk. Svifryk 17 sinnum yfir mörkum árið 2011 Uppsafnaður heildarfjöldi léna var í lok árs 2011 rétt um 36.000 og hef- ur rúmlega tvöfaldast á fimm árum. Nýskráð voru 7.903 lén, en 3.329 lén voru afskráð á árinu. Nettó- fjölgunin reyndist því 4.574 lén, sem þýðir um 14,5% aukningu léna á árinu 2011. Landshöfuðlénið .is verður 25 ára 18. nóvember nk. þótt fyrsta lénið, hi.is, hafi reyndar verið skráð 11. desember 1986. ISNIC lækkaði af þessu tilefni ár- gjald léna til að stuðla að um 18% fjölgun léna á árinu 2012. Stefnt að 18% fjölgun léna í ár Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina. Fimm þeirra voru stöðv- aðir á nýársdag. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 18-24 ára og tvær konur, 26 og 28 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökurétt- indi. Sex ökumenn voru teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna um helgina. Fimm þeirra voru stöðv- aðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Þetta voru allt karl- ar en þeir eru á aldrinum 18-28 ára. Þrír þeirra höfðu þegar ver- ið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Sjö óku ölvaðir STUTT Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Athöfnin fór fram á Bessastöðum á nýársdag. Hinir nýju orðuhafar eru þessir: Arnar Jónsson leikari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til ís- lenskrar leiklistar. Eymundur Magnússon bóndi, Vallanesi, riddarakross fyrir frum- kvæði á sviði búskaparhátta og matvælamenningar. Friðrik Ásmundsson fyrrverandi skipstjóri og skólastjóri, Vest- mannaeyjum, riddarakross fyrir framlag til öryggis sjómanna og menntunar skipstjórnarmanna. Guðbjörg Edda Eggertsdóttir framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til upp- byggingar atvinnulífs á heilbrigðis- sviði. Hafsteinn Guðmundsson fyrrver- andi forstöðumaður, Keflavík, ridd- arakross fyrir forystu á vettvangi íþróttastarfs á Suðurnesjum og á landsvísu. Halldór Guðmundsson rithöf- undur og verkefnisstjóri, Reykja- vík, riddarakross fyrir störf á vett- vangi íslenskra bókmennta . Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir skólastjóri, Reykjavík, ridd- arakross fyrir framlag til íslenskra heimilisfræða. Ragnhildur Gísladóttir tónlistar- maður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til ísl. tónlistar. Sigrún Aðalbjarnardóttir pró- fessor, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu uppeldisvísinda og menntunar. Stefán Hermannsson verkfræð- ingur, Reykjavík, riddarakross fyr- ir framlag til borgarþróunar. Vilborg Einarsdóttir fram- kvæmdastjóri, Reykjavík, ridd- arakross fyrir framlag til nýsköp- unar á sviði hugbúnaðar fyrir skóla. Morgunblaðið/Ómar Nýársdagur Hinir nýju orðuhafar ásamt forsetahjónunum, Dorrit Moussaieff og Ólafi Ragnari Grímssyni. Ellefu voru sæmdir fálkaorðunni Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Árið 2008 var tímamótaár að ýmsu leyti, m.a. vegna þess að þá fórst enginn íslenskur sjómaður við vinnu sína og má leiða að því sterkum lík- um að það hafi aldrei áður gerst í sögu landsins. Nú hefur sagan end- urtekið sig því á árinu 2011 fórst heldur enginn sjómaður í sjóslysi, annað árið frá því skipuleg skráning hófst. Skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna segir að stakkaskipti hafi orðið í öryggismálum sjómanna og að sjómenn hafi nú allt annað viðhorf til öryggismála en áður. Reyndar er ekki svo gott að eng- inn hafi farist á Íslandsmiðum árið 2011 því grænlenskur sjómaður drukknaði þegar hann tók út af grænlensku skipi sem var við veiðar út af Malarrifi á Snæfellsnesi í lok febrúar. Jafnhliða fækkun banaslysa hafa orðið færri slys á sjómönnum á síð- ustu árum en upplýsingar um fjölda vinnuslysa á sjó árið 2011 lágu ekki fyrir í gær. Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, segir engan vafa leika á því að sú menntun sem sjómenn hafi sótt sér hjá Slysa- varnaskólanum eigi þátt í að tekist hefur að fækka slysum. Aldrei hafa fleiri sjómenn sótt námskeið hjá skólanum en árið 2011 en þá komu 3.112 á námskeið en þeir voru um 2.300 í fyrra. Fjölgunin staf- ar af því að nú verða sjómenn á smá- bátum að sækja eins dags grunn- námskeið í öryggismálum og síðan hálfs dags endurmenntunarnám- skeið á fimm ára fresti. En betur má ef duga skal. „Ég á mér draum um ekkert slys á sjó,“ segir Hilmar. Nú leggi Slysavarnaskólinn áherslu á að áhafnir geri áhættumat fyrir skip sín, skrái óhöpp og hugi betur að forvörnum. Samkvæmt lög- um um öryggi og hollustu á vinnu- stöðum eigi að gera áhættumat um borð í öllum stærri skipum, eins og á öðrum stærri vinnustöðum, en það hafi oft farist fyrir. Skipting banaslysa árin 2002-2011 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 Sjóslys 2 2 3 2 2 3 1 1 1 Umferðarslys 29 23 23 19 31 15 12 17 8 12 Flugslys 1 Drukknanir 2 1 2 1 2 3 1 3 3 1 Heima- og frítímaslys 9 8 9 2 7 4 11 9 2 Vinnuslys 2 1 4 6 4 6 3 2 2 Önnur slys 2 3 1 Samtals: 42 36 38 28 50 29 30 25 26 19 Te gu nd sl ys a Heimild: Slysavarnafélagið Landsbjörg Allir íslenskir sjómenn voru hólpnir árið 2011  Aldrei fleiri á námskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna Morgunblaðið/RAX Verklegt Sjómenn á stærri bátum og skipum þurfa að sækja fimm daga ör- yggisnámskeið og síðan endurmenntunarnámskeið á fimm ára fresti. Hörmungar » Í samantekt rannsókn- arnefndar sjóslysa kemur fram að frá árinu 1971 urðu flest banaslysin á sjó árið 1973. Þá fórust 65 manns. » Árið 1972 fórust 56 í sjóslys- um, 40 fórust árið 1979 og 39 árið 1980. » 19 manns létust í banaslys- um á Ísland árið 2011. Þar af fórust 12 í umferðarslysum, fjórum fleiri en árið 2010.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.