Morgunblaðið - 03.01.2012, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.01.2012, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður haldin hjá Neytendastofu, Borgartúni 21, dagana 16., 17. og 18. janúar 2012. Endurmenntunarnámskeið verður haldið 23. janúar 2012. Sérstök athygli er vakin á því að eftir næsta endurmenntunar- námskeið verður gert hlé á þeim til ársins 2016 vegna lengingar á gildistíma úr fimm árum í tíu á árinu 2006. Skráning á námskeiðin fer fram á heimasíðu Neytendastofu, www.neytendastofa.is, undir hlekknum „Skráning á námskeið “ (ekki þörf á innskráningu) eða undir Mælifræðisvið. Athygli er vakin á því að gerðar eru kröfur um íslensku-kunnáttu þar sem öll kennsla fer fram á íslensku - það gildir einnig um skriflegar spurningar á prófi og svör við þeim. Löggildingar vigtarmanna gilda í 10 ár frá útgáfu skírteina. Allar nánari upplýsingar, svo og aðstoð við skráningu þátttak- enda, eru á heimasíðu Neytendastofu og í síma 510 1100. Skráningu lýkur 9. janúar n.k. Borgartúni 21 · 105 Reykjavik · Sími 510 1100 · Bréfasími 510 1101 postur@neytendastofa.is · www.neytendastofa.is VIGTARMENN Vinsamlega geymið auglýsinguna 20 ára afmælisár Kínaklúbbs Unnar 2012 20 daga afmælisferð á ári Drekans með KÍNAKLÚBBI UNNAR 5. - 24. júní Farið verður til BEIJING, XIAN, GUILIN, YANGSHUO, SHANGHAI, SUZHOU og TONGLI. Siglt verður á LÍ FLJÓTINU og á KEISARASKURÐINUM og farið á KÍNAMÚRINN. Heildarverð á mann: Kr. 510 þúsund Kínastund Kínaklúbbur Unnar Njálsgötu 33, 101 Reykjavík sími/símbréf: 551 2596, farsími: 868 2726 Vefsíða: www.simnet.is/kinaklubbur Netfang: kinaklubbur@simnet.is Hópar og einstaklingar geta pantað „Kínastund“, á Njálsgötunni, með mynda- sýningu, sýningu á Tai-Chi og kínverskum listmunum, ásamt veitingum. Kínaklúbburinn sérhannar einnig ferðir fyrir hverja sem er Til Kína með konu sem kann sitt Kína Allt innifalið, þ.e. fullt prógramm samkvæmt ferðaskrá, gisting í tvíbýli á 4-5 stjörnu hótelum, (einb. + 95 þ.) fullt fæði með máltíðardrykkjum, skattar og gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar Guðjónsdóttur, en þetta verður 33. hópferðin sem hún skipuleggur og leiðir um Kína. Útsalan er hafin v/Laugalæk • sími 553 3755 Jæja, góðir Íslend- ingar, þá er komið að því sem við eldri borgarar þessa lands áttum síst von á, og þó. Maður á von á öllu frá þessari rík- isstjórn sem kallar sig velferðarstjórn. Að loka sjúkrastofn- unum og þjónustu við veikt og eldra fólk sem bíður eftir dauða sínum eða er haldið hrörn- unarsjúkdómum. Mikið getur þetta fólk lagst lágt að ráðast að þeim minnimáttar sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér og var- ist þessari ríkisstjórn. Hvað verð- ur næst hjá þér, Steingrímur? Viltu ekki bara gefa okkur sprautu þegar við náum lífeyr- isréttindum við 67 ára aldur eða verðum veik? Það myndi spara stórfé og þá væri einnig hægt að spara með því að taka bara fjölda- grafir, eins og Hitler gerði. Ekki má gleyma að þá væri möguleiki að yfirtaka alla lífeyrissjóði lands- ins og hægt væri að gleðjast yfir velferðinni sem ríkisstjórnin er alltaf að grobba sig af. Þjóðarskömm Það væri gaman ef ríkisstjórnin og þingmenn tækju til raunhæfra aðgerða eins og að hætta að greiða skuldir glæpamanna sem lifa enn í vellystingum og ekkert hefur verið gert við og ekkert verður gert við. Því sömu menn sátu í stjórnum banka, sparisjóða, lífeyrissjóða og annarra fyrirtækja sem fóru á hausinn og eru enn að þó búið sé að afskrifa milljarða. Það er almenningur sem greiðir þessar afskriftir svo halda megi þeim gangandi og sitja sem fast- ast á ofurlaunum í sömu störfum. Við erum enn látin greiða niður skuldir þeirra með afskriftum eins og ekkert sé sjálfsagðara. Auðvit- að á að fjarlægja þá sem ekki geta sýnt fram á að þeim sé treystandi til að reka fyrirtækin áfram. Þau ættu að vera farnir á hausinn vegna græðgi og offjárfestingar, en margir hverjir tóra enn í sæt- um sínum vegna afskrifta bank- anna sem á sama tíma láta almenningi blæða út. Þetta er allt á for- sendum bankanna og við vitum ekki einu sinni hverjir eiga þá. Kannski þú getir upp- lýst þjóðina um það, Steingrímur? Bankar sem við vitum ekki hverjir eiga og eru á fullu í eignaupptökum á eignum venjulegs fólks sem tók lán á forsendum þeirra sem lánin veittu og gengi þess tíma og lánin hafa hækkað um 100%. Heimili sundruð og fólk á ekki annarra kosta völ en að flytja úr landi. Hvar eru þing- mennirnir? Þaðan er einskis að vænta enda virðast þeir ekki vera í sambandi við þjóðina. Sparnaður Ef ráðherrar, þingmenn og aðr- ir opinberir starfsmenn sem ferðast á kostnað ríkisins fækkuðu ferðum sínum erlendis sparaðist stórfé. Þeir opinberu starfsmenn sem þurfa nauðsynlega að fara út fyrir landsteinana starfa sinna vegna ættu að sjá sóma sinn í að ferðast á almennu farrými en ekki á viðskiptafarrými. Þá væri sjálf- sagt í sparnaðarskyni að stokka upp í opinberum stofnunum og ýta þeim flokksgæðingum og turtil- dúfum út sem ekkert gera og hafa aldrei gert neitt af viti. Margir hverjir hafa verið ráðnir til sér- verkefna og hafa hvorki menntun né hæfni til starfsins en hafa flokksskírteinið í lagi. Flestir þingmanna ættu að leita sér að annarri vinnu, þeirra tími er liðinn enda eru þeir ekki merkisberar hins venjulega manns á Íslandi. Þingmenn sitja á Alþingi sem fulltrúar almennings en ekki fulltrúar einkahagsmuna fjár- glæframanna eða einstaka hags- munasamtaka. Of langt gengið Steingrímur, það er margt hægt að gera án þess að ráðast á þá sem eru veikastir að burðum í þjóðfélaginu, þá veiku sem bíða dauðans og þá sem eru aldraðir og þarfnast aðhlynningar í ellinni. Þú ert þegar búinn að taka af þeim launin og ert á góðri leið með að eyðileggja lífeyrissparnað þeirra sem eftir lifa. Hvernig væri að endurskoða eftirlaun ríkisstarfs- manna? Þar mætti spara mikið. Þá mætti leggja niður alls konar óþarfa launaðar nefndir sem verið er að setja á laggirnar. Hægt væri að vísa málum til umfjöllunar til háskólanna og þar með nýta þá til uppbyggingar í landinu, þar ætl- umst við til að sé einhverja skyn- semi að finna. Sameina ætti alla lífeyrissjóði landsmanna, fækka í yfirstjórn og greiða öllum lands- mönnum sömu eftirlaun sem aldr- ei mættu vera lægri en helmingur þingmannalauna með hlunnindum. Var ekki annars ætlunin að at- huga hvað átti sér stað í lífeyr- issjóðunum? Tími þessarar ríkisstjórnar, með velferðardrottninguna Jóhönnu og skattlagningarkónginn Steingrím í fararbroddi, er löngu liðinn, ef hann hefur nokkurn tímann kom- ið! Eftir Sigurð Ben. Jóhannsson » Tími þessarar ríkisstjórnar, með velferðardrottninguna Jóhönnu og skattlagn- ingarkónginn Steingrím í fararbroddi, er löngu liðinn. Sigurður Ben. Jóhannsson Höfundur er lífeyrisþegi. Velferðarstjórn? Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréfum til blaðsins. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein“, valinn úr felliglugganum. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti og greinar sem sendar eru á aðra miðla eru ekki birtar. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Móttaka aðsendra greina Jón Guðmar og Björn Hall- dórsson unnu jólamót Brids- félags Hafnarfjarðar Jólamót BH var spilað milli jóla og nýárs. Það mættu 66 pör til keppni og voru spiluð 44 spil. Lokastaða efstu para varð þessi: 60,4 Jón Guðmar Jónss. - Björn Halldórss. 58,7 Halldór Þorvaldss. - Magnús Sverriss. 57,5 Hrólfur Hjaltason - Oddur Hjaltason 57,4 Halldór Halldss. - Halldór Svanbergss. 57,2 Björn Eysteinss. - Guðm. Hermannss. 56,8 Friðþj. Einarss. - Guðbr. Sigurbergss. Reykjanesmót í sveitakeppni Reykjanesmót í sveitakeppni verður haldið helgina 14.-15. janúar í Hraunseli (Flatahauni í Hafnarfirði) Vinsamlegast skráið ykkur fyrir 12. janúar. Verð pr. sveit er 24.000 og Reykja- nes á 8 sveitir inn á Íslandsmót Skráning er hjá Lofti s/8970881, Erlu s/6593013, Garðari s/8932974. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.