Morgunblaðið - 03.01.2012, Síða 32

Morgunblaðið - 03.01.2012, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 ✝ Einar Olgeirs-son, Sóltúni 11, fæddist í Reykjavík 2. desember 1934. Hann lést á sjúkra- húsinu í Volda, Nor- egi, 21. desember 2011. Einar var sonur hjónanna Hólm- fríðar Sigurð- ardóttur húsmóður frá Flatey á Breiða- firði, f. 1904, d. 1999 og Olgeirs Sigurðssonar, húsasmíðameist- ara frá Suðurhóli, Nesjahreppi, A-Skaft., f. 1900, d. 1958. Einar var næstyngstur fimm bræðra. Hinir eru Jón Sigurður, f. 1927, d. 1928, Jón Sigurður, f. 1929, d. 1987, Rafnkell, f. 1931 og Gunn- ar, f. 1949. Eftirlifandi kona Ein- ars er Emilía Sigurjónsdóttir frá Steinaflötum, Siglufirði, þau gift- ust 17. nóvember 1957. For- eldrar Emilíu eru Rannveig Guð- rún Sveinsdóttir frá Steinaflötum. Siglufirði, f. 1913, d. 1938, og Sigurjón Pálsson úr Reykjavík, f. 1912, d. 1977. Börn dóttur, f. 1951. Börn þeirra eru Guðbjörg Sif, Einar og Agnar. Langafabörnin eru tuttugu og þrjú. Einar útskrifaðist sem framreiðslumaður árið 1953 frá Iðnskólanum í Reykjavík. Hann starfaði sem framreiðslumaður í Ráðherrabústaðnum, Sjálfstæð- ishúsinu, Þórscafé, Breiðfirð- ingabúð, Hótel Borg og m/s Gull- fossi á yngri árum. Síðar varð hann yfirframreiðslumaður á m/s Gullfossi og í Veitingahúsinu Klúbbnum. Hann starfaði sem aðstoðarhótelstjóri á Hótel Sögu til margra ára þangað til hann fluttist til Húsavíkur og starfaði sem hótelstjóri á Hótel Húsavík frá 1975-1980. Frá árinu 1981 starfaði Einar sem hótelstjóri á Flugleiðahótelunum þangað til hann settist í helgan stein árið 1999. Einar gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum um ævina fyrir sín fagfélög og hlaut fjölda við- urkenninga á sínum starfsferli. Hann var heiðursfélagi SVG frá 1993. Einar var brautryðjandi í íslenskum ferðamálum og á stór- an þátt í þróun ferðaþjónustu í landinu. Útför Einars fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 3. janúar 2012, og hefst athöfnin kl. 13. Einars og Emilíu eru: 1) Septína Selma f. 1969, gift Arne Lothe, f. 1966. Barn þeirra er Isak, fyrir á Septína börnin Olgeir, Per Einar og Emilíu Ruth. 2) Rannveig Eir, f. 1965, gift Hilmari Þór Krist- inssyni, f. 1966. Börn þeirra eru Selma Eir og Dagur Þór. 3) Ósk- ar, f. 1960, giftur Nina Skjong, f. 1965. Börn Óskars eru Anna Lov- isa, Maria Therese, Linda, Eli Kristin og Valdimar. 4) Sveinn Geir, f. 1957, giftur Guðlaugu Björnsdóttur, f. 1958. Börn þeirra eru Arnar Þór og Steinar Már. Af fyrra hjónabandi á Einar þrjú börn, 5) Kristinn Maríus, f. 1955. Börn Kristins eru Sara Rós, Magga Lena og Davíð. 6) Hólmfríður Guðrún, f. 1954, gift Sævari Hafsteinssyni, f. 1951. Börn þeirra eru Margrét Jónína, Gísli Rúnar og Hafsteinn. 7) Ol- geir, f. 1952, giftur Unni Skúla- Í dag verður til jarðar borinn ástkær faðir okkar Einar Ol- geirsson. Það er margt sem kemur upp í huga okkar nú þegar við rifj- um upp allar þær minningar sem við erum svo óendanlega þakklát fyrir að eiga í hjarta okkar. Á langri starfsævi pabba tók hann öllum störfum og verk- efnum af mikilli ánægju og ástríðu, allt sem hann tók sér fyrir hendur var unnið af lífi og sál. Það eru varla til þau störf sem unnin eru á hótelum sem pabbi hefur ekki sinnt. Við systkinin nutum þeirra forrétt- inda að fá að prófa mörg þess- ara starfa á þeim hótelum sem pabbi starfaði á og um leið að læra af honum. Á heimilinu var stöðugt brýnt fyrir okkur mik- ilvægi þess að kunna að vinna með báðum höndum og sífellt verið að brýna fyrir okkur að ekkert starf væri ómerkilegt nema illa unnið starf. Það var aldrei lognmolla í kringum pabba enda var hann hrókur alls fagnaðar og mikill húmor- isti. Áhugamál pabba voru ekki mörg enda gafst lítill tími til þess framan af sökum vinnu sem var hans aðaláhugamál. Hann elskaði þó að fara með mömmu, sínum besta vini, í sumarbústaðinn á Laugarvatni. Naut hann þess að vera þar hvort sem sól var á lofti eða stjörnubjartar nætur og fann- hvít jörð. Hann var handlaginn maður og naut þess að sinna viðhaldi á bústaðnum sem ber þess sterklega merki. Það var aðdáunarvert hversu miklir félagar mamma og pabbi voru. Þau voru sjálfum sér svo nóg og nutu þess að vera sam- an, þau gátu ekki án hvort ann- ars verið. Tónlist var pabba í blóð borin en ósjaldan sátum við systkinin og hlustuðum á pabba spila fal- legar melódíur á píanó eða hljómborð, alltaf eftir eyranu. Pabbi fékk ekki tækifæri til að læra á hljóðfæri en sá til þess að við fengjum það. Hann gat dundað sér við hljóðfærið og á skammri stundu urðu til lög. Það var síðan jafn aðdáunarvert að fylgjast með pabba búa til texta við lögin en hann átti auð- velt með að koma hugrenning- um sínum á blað. Í ræðu og riti útbjó hann texta í bundnu máli sem kveðju til fjölskyldu og vina. Pabbi var fljótur að taka ákvarðanir og var ekki að slóra við hlutina. Það var oftar en ekki sem pabbi hringdi í mömmu og lét hana vita með nokkurra klukkustunda fyrir- vara að nú væru þau að skjótast til útlanda. Þá var eins gott fyr- ir mömmu að hafa hraðar hend- ur til vera tilbúin í ferðalagið og stökkva á vit ævintýranna. Hann lifði lífinu lifandi og hafði gaman af því að vera til. Pabbi hætti aldrei að koma með hugmyndir og var mjög framsýnn maður. Hann horfði alltaf til framtíðar og barðist fyrir þeim hugmyndum sem hann fékk og hafði trú á. Hann var brautryðjandi í íslenskum ferðamálum og á stóran þátt í þróun ferðaþjónustu hér á landi. Við erum óendanlega þakklát fyrir allt sem pabbi gerði fyrir okkur og kenndi okkur. Við biðjum góðan guð að gefa mömmu styrk á þessum erfiðu tímum. Pabba verður sárt saknað af okkur öllum, börnunum hans, afabörnum og langafabörnum. Við getum seint þakkað fyrir allt það sem hann var okkur. Takk fyrir allt, elsku pabbi. Hvíl í friði. Septína Selma, Rannveig Eir, Óskar og Sveinn Geir. Það var ungur maður með hnút í maganum sem stóð fyrir framan útidyrnar á Þinghóls- braut 16 og bjó sig undir að hitta foreldra kærustunnar í fyrsta sinn. Þegar dyrnar opn- uðust stóðu fyrir framan mig hár og þrekinn maður og kona öllu lágvaxnari. Ótti minn reyndist ástæðulaus því þótt vissulega væri maðurinn ábúð- armikill og óárennilegur var mér frá fyrstu stundu tekið með miklum virktum og alla tíð síðan hafa þau hjón sýnt mér einstaka vináttu og hlýhug sem ég verð ævinlega þakklátur fyrir. Ég varð fljótlega daglegur gestur á Þinghólsbrautinni og mörg kvöldin sátum við Einar saman, hann með pípuna í brúna legubekknum og ég í sóf- anum. Við ræddum um landsins gagn og nauðsynjar eða hann sagði mér skemmtilegar sögur frá fyrri árum. Það var gott að eiga samræður við Einar og hann hafði lag á því að láta mér líða eins og jafningja þótt ungur væri. Eftir að aðstæður breyttust og ég hætti að venja komur mínar á heimili Einars og Millu, héldum við Einar sambandi meðan hann var hótelstjóri Flugleiðahótelanna og ég vann fyrir hótelin sem arkitekt. Það var ekki síður gaman að umgangast Einar á þessum vettvangi. Hann var ákveðinn og góður stjórnandi, framtaks- samur og fullur af hugmyndum. Hann naut þess að vinna með ungu fólki og þeir eru margir sem notið hafa leiðsagnar Ein- ars fyrstu árin í starfi. Við Ein- ar lögðum á ráðin um ýmsar breytingar á hótelunum en það sem við höfðum hvað mestan áhuga á að framkvæma var að breyta jarðhæð Hótel Loftleiða. Sú breyting varð loks að veru- leika nú í sumar og það var gaman að Einar var til staðar til að sjá þessi áform okkar verða að veruleika. Einar var glaðlyndur maður. það var alltaf gaman að hitta hann og ég held að ég hafi ekki fyrirhitt nokkurn mann með jafn smitandi bros. Hann brosti með öllu andlitinu og það var stríðnisglampi í augunum. Þannig mun ég minnast hans Einars, skælbrosandi eftir að hafa sagt verulega góða sögu. Elsku Milla, megir þú og börnin ykkar finna styrk til að takast á við erfiða tíma. Björgvin Snæbjörnsson. Í dag kveð ég elskulegan tengdaföður minn og góðan vin Einar Olgeirsson. Leiðir okkar Einars liggja aftur um aldarfjórðung þegar ég hitti Einar fyrst á Þinghóls- brautinni í Kópavoginum. Það er sagt að við getum ekki til- greint á hvaða andartaki vinátta verður til en hvað Einar varðar var það við fyrstu kynni. Ástríða Einars fólst í vinnu hans og var hún ávallt til um- ræðu, hvað betur mætti fara og hvernig hlutirnir ættu að vera til að þeir gætu gengið upp. Tengdafaðir minn kunni vel að meta lystisemdir lífsins og gerði allt það sem honum þótti gott. Einar hafði unun af tækj- um sem gengu fyrir rafmagni eða eldsneyti. Ávallt þegar Ein- ar fékk nýtt tæki undirgekkst það þolpróf að hætti Einars sem fólst í því að allar stillingar og takkar tækisins voru prófaðir samtímis. Eftir slíkt þolpróf gekk yfirleitt erfiðlega að koma tækinu í fyrra horf, stundum sást rjúka úr hlutnum en þá kom iðulega spurningin frá Ein- ari: „Er þetta bölvað drasl?“ Þess á ég eftir að sakna. Reglulega gerðum við okkur ferðir á Laugarvatn til að reyna að endurstilla það sem úrskeiðis hafði farið. Því fleiri sem sjón- varpsrásirnar voru því ánægðari var Einar en hann elskaði að ná góðum sjóvarpsrásum alls stað- ar frá í heiminum, sér í lagi ef góðir tónlistaþættir náðust, en þá var allt sett í botn. Ástríða Einars þegar bifreiðar áttu í hlut lýsti sér oft þannig að hann fór í bíltúr og kom síðan heim klukkutíma síðar á nýjum bíl. Á sama tíma og það voru miklar sorgarfréttir þegar fregnir af andláti Einars bárust þá verð ég að vera þakklátur yf- ir að hafa fengið að njóta nær- veru, vináttu og umhyggju hans. Við þessa skilnaðarstund í okkar lífi er dagur samfunda í himnasal. Ég bið góðan guð að gefa Millu styrk á þessum erf- iðu tímum. Hvíl í friði. Hilmar Þór Kristinsson. Í dag verður elsku afi okkar jarðaður og langar okkur til að minnast hans með fáum orðum. Við munum aldrei gleyma hvað afi var góður við alla, bæði menn og dýr. Hann var alltaf uppi í sumarbústað að gefa fugl- unum og hundunum. Fuglarnir fengu Ritz-kex og hundarnir skinku. Nú eiga hundarnir á Laugarvatni og Mario litli eftir að sakna afa því afi gaf þeim alltaf í hvert sinn sem þeir komu til hans. Það er alltaf svo gott að gista hjá afa og ömmu. Þegar við gistum hjá þeim kúrum við í holunni hjá þeim sem er alltaf svo þægileg. Afi leyfði okkur alltaf allt, og amma þjónaði okkur alltaf enda- laust. Amma og afi eru svo góð að það er ekki hægt að ímynda sér það. Við fórum mjög oft í sum- arbústaðinn á Laugarvatni. Við fórum alltaf í pottinn á meðan amma bakaði pönnukökur og afi hlustaði á útvarpið og horfði á sjónvarpið. Við fórum líka saman til Min- neapolis, það var skemmtilegt. Það eru góðar minningar sem við eigum. En nú er afi kominn upp til himna sem er svo skrýtið því að Einar Olgeirsson ✝ Jóhann Hauks-son fæddist á Oddeyrargötu 6 á Akureyri 7. júní 1929. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlíð 18. desember 2011. Foreldrar Jó- hanns voru hjónin Haukur Sigurðs- son, f. 20.10. 1899 á Akureyri, d. 30.8. 1968 og Jóhanna Jónsdóttir, f. 11.11. 1900 á Læknesstöðum á Langanesi, d. 14.10. 1985. Systkini Jóhanns voru Jón Matthías Hauksson, f. 1923, d. 2002, Sigrún Hauksdóttir, f. 1927, Ásta Hauksdóttir, f. 1931 og Guðmundur Hauksson, f. 1934, d. 1996. Árið 1953 kvæntist Jóhann eftirlifandi eig- inkonu sinni Sig- ríði Hermanns, f. 17. júlí 1926 og eignuðust þau fimm börn: Friðrik, f. 1950, Sólveigu Margréti, f. 1954, Hauk, f. 1955, d. 2009, Ástu, f. 1956 og Guðrúnu Birnu, f. 1962. Jóhann bjó á Akureyri alla sína tíð, og stundaði sjóinn lengst af. Útför Jóhanns fór fram frá Akureyrarkirkju 2. janúar 2012. Í dag verður elskulegur tengdafaðir minn, Jóhann Hauksson, til moldar borinn og langar mig að minnast hans ör- fáum orðum. Jóhann var fæddur á Akureyri og þar bjó hann alla tíð. Hugur hans hneigðist snemma til sjómennsku og hann var ekki hár í loftinu þegar hann byrjaði að róa til fiskjar með föður sínum. Sjómennskan varð svo hans lífsstarf og átti hug hans allan. Reri hann ýmist á stórum eða litlum bátum og sótti bæði um skamman veg og langan. Eyjafjörðurinn var þó lengstum hans athafnasvæði og ekki hvað síst eftir að hann eignaðist Hauk, trilluna sem hann lét smíða fyrir sig árið 1973. Það var mikill gleðidagur í hans lífi þegar báturinn var settur á flot og stoltur skipstjóri sem sigldi honum um Eyjafjörð- inn. Þeir voru heldur ekki margir dagarnir sem hann var í landi eftir að birta tók á vorin og fram á haust. Alla daga var dregin björg í bú, ýmist fiskur eða fugl og ekki var hann ánægður nema allar frystikistur í fjölskyldunni væru helst fullar af fiski. Þeir voru líka ófáir sem nutu gjafmildi hans þegar kom að því að fá í soðið og oft á tíð- um var aflinn notaður sem gjaldmiðill fyrir ýmsar vörur og þjónustu eins og algengt var hér áður fyrr. Kom þar greiði á móti greiða og var ekkert verið að flækja hlutina með öðruvísi bókhaldi. Yfir vetrartímann þegar ekki hentaði að stunda sjóinn á litlum báti vann Jóhann hjá Ak- ureyrarhöfn, þannig að starfs- vettvangurinn var alltaf tengdur sjónum og eiginlega skildi hann aldrei að menn gætu haft önnur hugðarefni en sjómennskuna. Ég hitti Jóhann fyrst þegar við Friðrik sonur hans vorum í til- hugalífinu. Ég, ung stúlka bú- andi í Vestmannaeyjum, fór norður í heimsókn og var boðið að dvelja á heimilinu þessa daga sem heimsóknin varði. Ég man að ég var hálffeimin fyrst við þennan alvörugefna mann, því hvorki var hann margmáll né sló um sig með neinum gestalát- um. En feimnin var fljót að fara af mér og í öll þau ár sem við bjuggum í Eyjum og fórum norður í heimsókn fagnaði hann mér með sama hlýja viðmótinu. Sama var að segja eftir að börn- in okkar komu í heiminn, þeim var líka tekið opnum örmum hjá afa og ömmu og eftir að þau komust aðeins á legg var mikið sport að fá að fara á sjó með Jóa afa á bátnum hans eða dunda með honum niðri í skúr í kringum afla og veiðarfæri. Þar var hann á heimavelli og naut sín best. Þó að Jóhann væri lokaður maður og bærist ekki mikið á sló stórt hjarta undir hrjúfu yf- irborðinu. Hann var vinamargur og tryggur vinum sínum og hafði gaman af að gleðjast í góðra vina hópi. Síðustu tvö æviárin dvaldi Jóhann á dval- arheimilinu Hlíð þar sem vel var um hann hugsað. Samt má segja að þegar hann gat ekki lengur farið á sjóinn og stússast í kringum fisk og veiðarfæri hafi hann ekki séð mikinn til- gang í jarðvistinni. Eyjafjörð- urinn og sjómennskan voru fyr- ir honum sem lífið sjálft. Um leið og ég kveð Jóhann með söknuði þakka ég honum samfylgdina og allt það sem hann gerði fyrir mig og mína fjölskyldu. Minning hans mun lifa með okkur um ókomin ár. Eygló Björnsdóttir. Jæja, afi minn, þá er stríðinu lokið og þú búinn að fá hinn hinsta frið. Stundirnar okkar voru kannski ekki ýkja margar vegna landfræðilegrar fjarlægð- ar okkar þar sem ég bjó í Eyj- um en þið amma á Akureyri, en eftirminnilegar voru þær. Sem strákur vissi maður fátt skemmtilegra en að fá að fara norður í land að heimsækja Jóa afa og Sirrý ömmu. Þá var helsta tilhlökkunarefnið að fara á sjó á Hauki EA 17 með afa. Oft hafði litli rauðhærði dreng- urinn (ég) á orði þegar hafgol- unni létti síðdegis og Pollurinn var orðinn spegilsléttur að nú væri sko tími til að fara á sjó á trillunni. Var það gjarnan sagt með orðunum: „Nú er slétt, afi!“, og varð það seinna að hálf- gerðu orðatiltæki innan fjöl- skyldunnar. Misjafnt var hvernig til tókst að sannfæra þig um að rjúka á sjó jafnvel eftir erfiðan vinnu- dag en stundum tókst það og það voru sko ekki leiðinlegar stundir og oft leyfðir þú mér að taka í stýrið á trillunni þinni sem var ein þín dýrmætasta eign og þá upplifði maður sig sko sem alvöru skipstjóra enda þótt maður væri bara lítill gutti. Eitt sumarið þegar ég dvaldi hjá ykkur ömmu ákvað ég að nú skyldi ég sko ná mér í peninga og samdi við eiganda fiskbúð- arinnar um sölu á rauðsprettu sem átti að gefa mér fínan pen- ing í aðra hönd. Líklega var ég þarna níu ára gamall. Ég sagð- ist hafa aðgang að trillu og hélt nú að ég gæti sko græjað þetta eins og að drekka vatn. Þó var sá hængur á að ég átti eftir að semja við þig um lán á trillunni ásamt veiðarfærum, í mínum huga var það algjört aukaatriði. Eftir á ákvað ég svo að semja við þig um þessi mál en eins og gefur að skilja varstu ekki alveg tilbúinn að lána mér einum trill- una ásamt öllu sem til þurfti, enda strákguttinn ekki nema níu ára gamall. Þú ákvaðst að kenna mér smálexíu og sam- þykktir að taka þátt í þessu með mér og næstu helgi ræstirðu mig fyrir klukkan fimm að morgni og dróst mig með í slippinn. Þar var ég látinn græja veiðarfærin um borð og svo var haldið út á fjörð með netin sem voru lögð samkvæmt þinni leiðsögn. Þetta gekk nú ágætlega en síðdegis var svo farið af stað aftur og netin dreg- in. Þú ákvaðst að koma sem minnst nálægt þessu og leyfðir mér að draga þau úr sjó. Það var sko ekki auðvelt, taumurinn var níðþungur og ekkert spil til að létta manni vinnuna. Þegar í land var komið, reyndar með ágætisafla, var ég gjörsamlega örmagna, seldi fiskbúðinni aflann og tjáði fisksalanum að þetta yrði eini skammturinn sem frá mér kæmi. Þar með lauk rauðsprettuútgerð Björns Friðrikssonar snarlega. Ég veit að þú hafðir lúmskt gaman af þessum æfingum mín- um þótt þú hefðir ekki mörg orð um það og ákvaðst að leyfa mér að finna hversu mikil vinna ligg- ur að baki svona veiðum. Þú hafðir alla tíð þykkan skráp og barst tilfinningar þínar ekki á torg en innra með þér sló hjarta úr gulli. Ég mun minnast þín alla tíð, afi, hafðu þökk fyrir allt. Ég horfi inn í augun þín, afadrengurinn og aftur finnur óminn sinn, innsti strengurinn. Æska þín og árin mín eina ganga brú Ein og sama eilífðin okkur tengir nú. (Sigfús Halldórsson.) Björn Friðriksson. Það var kalt vor þegar við hittumst fyrst á bryggjunni við ÚA. Þú, Nonni og Balli voruð á trillunum Fjarkanum og Hauk, að ná í síld eða loðnu úti við Svalbarðsströnd. Ég hafði verið á bryggjunni að sníkja far á Jóhann Hauksson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.