Morgunblaðið - 03.01.2012, Page 38

Morgunblaðið - 03.01.2012, Page 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 ✝ JóhannaTryggvadóttir fæddist 29. janúar 1925. Hún lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Kópa- vogi 28. desember 2011. Hún var dóttir hjónanna Tryggva Ófeigssonar út- gerðarmanns og Herdísar Ásgeirs- dóttur. Systkini: Páll Ásgeir, Rannveig, Herdís og Anna. Árið 1948 giftist Jóhanna Jónasi Bjarnasyni kven- sjúkdómalækni og seinna yf- irlækni á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Börn Jóhönnu og Jónasar eru: 1) Bjarni, heim- ilislæknir, f. 21.5. 1949, kvæntur Önnu S.Guðmunds- dóttur, lífeindafræðingi. Börn þeirra eru a) Jóhanna Bryn- dís, gift Finni Magnússyni, börn: Anna Bryndís og Magn- ús; b) Ólöf Kristjana, sambýlis- maður Freyr Karlsson; c) Bjarney Anna, sambýlismaður Guðmundur Pétur Ólafsson; 2) Tryggvi Jónasson, kírópraktor f. 22.3. 1951, kvæntur Kristínu fyrrv.eiginmaður Brynjar Þórsson,viðskiptafræðingur, börn þeirra eru a) Jónas Þór, sambýliskona Harpa Sif Har- aldsdóttir, b) Elísabet c) Katr- ín; 6) Jóhanna leikkona, f. 3.8. 1964, fyrrv. eiginmaður Illugi Eysteinsson, myndlistarmaður og arkitekt; 7) tvíburi hennar Jóhanna (Jonna) lést stuttu eftir fæðingu; 8) Ásgeir innan- hússarkitekt, f. 2.4. 1971 kvæntur Stanislava Toneva Jónasson markaðsfræðingi, dóttir þeirra er Joana Maria. Jóhanna er af mörgum talin frumkvöðull á Íslandi varð- andi heilsurækt og holla lífs- hætti. Hún var einn af stofn- endum Heilsuræktarinnar í Glæsibæ um 1970 og var leið- beinandi þar í líkamsrækt og jóga. Hún varð fyrsta konan á Íslandi til að ná svörtu belti (1. dan) í júdó og á efri árum var hún gerð að heiðursfélaga í Glímufélaginu Ármanni. Jó- hanna var um árabil umboðs- maður á Íslandi fyrir portú- galska stórfyrirtækið EFACEC, sem framleiddi spennubreyta og fleiri vörur til raforkuframleiðslu. Þá stofnaði hún og rak ferða- skrifstofuna Evrópuferðir, sem sérhæfði sig í ferðum til Portúgal. Útför Jóhönnu Tryggva- dóttur var gerð frá Víðistaða- kirkju 2. janúar 2012. Hraundal, skrif- stofustjóra, börn þeirra eru: a) Jó- hanna, gift Alberti Jóhannessyni, börn: Guðrún Pál- ína og Kristín Ósk, b) Óskar Hraundal, sam- býliskona Sólveig Jónsdóttir, börn Jón Gabríel og Mikael Hrafn, c) Tryggvi Kristmar, unnusta Sif Haukdal Kjartansdóttir; 3) Helga Jónasdóttir, fjár- málastjóri, f. 17.2. 1955, gift Snæbirni Geir Viggóssyni skipstjórnarmanni, börn þeirra eru a) Bjarni, eig- inmaður Frímann Sigurðsson, b) Steinar, sambýliskona Bríet Einarsdóttir, c) Jónas, kvænt- ur Heather Sosbee, sonur þeirra er Noah Þráinn; 4) Jón- as framkvæmdastjóri, f. 28.10. 1956, kvæntur Eiríksínu Kr. Ásgrímsdóttir, bókmennta- fræðingi, börn þeirra eru a) Guðbjörg Oddný, sambýlis- maður Gísli Gíslason, b) Helga Dagný; 5) Herdís hjúkr- unarfræðingur, f. 8.11. 1958, Elskuleg móðir mín er búin að fá hvíldina. Hún sofnaði svefnin- um langa að kvöldi 28. desember. Það var einhver tign og ró yfir henni síðustu stundirnar og var ómetanlegt fyrir okkur systkinin að geta verið hjá henni meðan hún tók þessi síðustu skref lífs síns. Mamma var stórbrotin kona. Hún var fyrst og fremst móðir barnanna sinna og eiginkona síns heittelskaða eiginmanns. Á upp- vaxtarárum okkar systkinanna var hún mikil húsmóðir og þau pabbi voru samtaka um að gæta þess í hvívetna að við fengjum heilbrigt og kærleiksríkt uppeldi. Þau lögðu metnað sinn í að und- irbúa okkur af kostgæfni undir lífið. Við vorum m.a. send í tungu- málanám erlendis og var ég fyrst send aðeins ellefu ára gömul í enskan heimavistarskóla yfir sumartíma. Eftir að ég fullorðn- aðist hef ég oft hugsað til baka til þessa tíma sem hafði jákvæð áhrif á mig til framtíðar. Hún mótaði ungan huga minn til menntunar og heilbrigðs lífernis með hvatningu sinni sem ég er ævinlega þakklát fyrir. Mamma hafði mörg áhugamál. Auk þess að vera húsmóðir á stóru heimili iðkaði hún jóga og júdó, stundaði innflutning á vörum til raforkuframleiðslu frá Portúgal, stofnaði og rak ferða- skrifstofu og stofnaði og rak heilsurækt ásamt öðrum kjarna- konum. Mamma hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum og var á stundum stjórnsöm. Hún hikaði ekki við að hringja í háttsetta embættismenn til að fá sitt fram ef henni fannst hún beitt órétt- læti. Hún kom sér oft í vandræði með ákveðni sinni en tókst með einhverri seiglu að halda áfram þótt á móti blési. Á seinni árum dró verulega úr ákefðinni, en hún hélt áfram að fá hugmyndir að nýjum viðskiptatækifærum sem náðu ekki alltaf að verða að veru- leika. Ég dáðist oft að umburð- arlyndi pabba á þessu tímabili atorku og framkvæmda enda hann mjög upptekinn sem yfir- læknir á St. Jósefsspítala í Hafn- arfirði. Eftir að pabbi dó fyrir rétt rúmlega þrettán árum var eins og neisti slokknaði hjá mömmu. Hún dró sig mikið í hlé og lifði í minn- ingum um pabba á heimili þeirra á Kirkjuveginum. Hún hafði æv- inlega mynd af honum á náttborð- inu sínu og talaði um það á hverj- um degi hve mikið hún saknaði hans. Með aðstoð okkar systkin- anna og síðar heimahjúkrun og Lilju aðstoðarkonu sinni tókst henni að dvelja á heimili sínu lengur en ella. Fyrir rúmu ári var svo komið að hún gat ekki lengur verið heima og flutti á Hrafnistu við Boðaþing í Kópavogi þar sem hún fékk alúðlega umönnun fram til síðasta dags. Vil ég koma á framfæri þakklæti mínu til þeirra sem gerðu henni lífið auðveldara síðustu ár ævinnar. Mamma og pabbi voru glæsi- legt par og mikið ástríki var á milli þeirra og voru þau óspör á kærleik til okkar barnanna. Ég er þakklát og stolt af því að hafa ver- ið dóttir þeirra Jónasar og Jó- hönnu. Ég trúi því að pabbi hafi tekið á móti henni með faðminn útbreiddan og hún sé loksins komin til hans hans eftir þrettán ára aðskilnað og söknuð. Hvíl í friði elsku mamma mín. Helga. Þegar ég hitti tengdamóður mína, Jóhönnu Tryggvadóttur, fyrir rúmum þrjátíu árum fór ekki fram hjá mér að ég hitti konu sem fór ótroðnar slóðir í fram- komu, klæðaburði og öllu fasi. Strax á fyrstu mínútum var mér ljóst að hún hafði þróað hjá sér mannþekkjarapróf sem byggðist á því að spæla fólk og sjá hvernig það brygðist við. Ég ákvað að hlæja að spælingunni og síðan hafa samskipti okkar verið góð enda nauðsynlegt þar sem við höfum búið í miklu sambýli við sömu götu í 27 ár. Ef ég ætti að lýsa henni með einu orði notaði ég orðið ólíkindatól þar sem hún var oftast algjörlega óútreiknanleg. Mér fannst hún líkari persónu í skáldsögu en raunverulegri manneskju því slík voru stundum uppátæki hennar. Hún var kona mikilla andstæðna sem best er hægt að útskýra með því að hún var með svarta beltið í júdó og lagði stund á jóga. Skapferli hennar var þannig að í huganum var hún ýmist í júdó eða jóga og leyndi aldrei hvort var ríkjandi. Hún var frumkvöðull og fram- kvæmdi yfirleitt það sem henni datt í hug og skipti þá ekki máli hvort leiðin var greið eða ekki. Hún var fyrsti stórhuga heilsu- frömuðurinn því hún var einn af stofnendum og aðaldriffjöðrin á bak við Heilsuræktina í Glæsibæ. Hún kenndi þar jóga og leikfimi, ég hef rekist á fólk sem stundaði Heilsuræktina og það hefur hrós- að henni sem góðum kennara og glæsilegri konu. Hún hugðist flytja Heilsuræktina og byggja á nýjum stað og þá dugði ekki ann- að en að fá Alvar Aalto í verkið. Hún fór því til Finnlands og átti stefnumót við arkitektinn. Hann teiknaði fyrir hana stórglæsilega byggingu sem rísa átti í Laugar- dalnum. Úr því varð ekki því stór- huga hugmyndir hennar og fjár- hagur áttu ekki saman. Hún sneri sér þá að gjörólíkum viðskiptum við Portúgal þar sem hún annað- ist umboðssölu á rafspennum fyr- ir dreifistöðvar. Hún var hörð í þessum viðskiptum þótt hún hefði takmarkað vit á þessu. Hún lá í símanum, fyrstu árin telexaði hún skeyti, en eftir að hún eignaðist faxtæki varð algjör bylting hjá henni á skrifstofunni. Hún hand- skrifaði bréf og sendi um allar trissur og þurfti hvorki ritvél né tölvu til að selja rafspenna með góðum árangri. Hún var líka frábær ljósmynd- ari og tók ómetanlegar myndir af börnunum sínum þar sem upp- stillingarnar eða pósurnar voru oft þannig að engu var líkara en þarna væru heimsfrægar popp- stjörnur á ferðinni. Hún var úrræðagóð, hjálpsöm og hvetjandi og átti auðvelt með að setja sig í spor þeirra sem röt- uðu í vandræði. Þegar ég dvaldi eitt sumar með dætrum mínum í litlu sjávarþorpi í Norður-Portú- gal kom vinkona mín í heimsókn með fjölfatlaðan son sinn. Þegar litli drengurinn veiktist hringdi ég í tengdamömmu. Hún hringdi til Portúgals og reddaði okkur einkabílstjóra, lækni og öðrum praktískum atriðum. Þetta gerði hún um miðja nótt á Íslandi með takmarkaða kunnáttu í portú- gölsku. Hún fór svona á fullt í öll verk. Tengdamóðir mín gaf mér margt, hún sýndi mér væntum- þykju, gaf mér tíma, hrós, gætti dætra minna, hún hló með mér og hún hló að mér. Fyrir allt þetta er ég þakklát. Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir. Elsku amma. Nú þegar við getum ekki lengur skapað nýjar minningar minnist ég hinna gömlu. Ég mun aldrei gleyma því hversu skemmtilegt það var að koma í heimsókn til þín á Kirkju- veginum. Við Katrín fengum endalaust af ís sem þú áttir alltaf nóg af og ég man hversu heillaðar við vorum af risastóra sjónvarp- inu þínu og nuddstólnum sem við gátum klukkutímum saman setið í og horft á Cartoon Network. Það var alltaf gott að vera á Kirkjuveginum, í heimsókn hjá ömmu. Þegar ég frétti að við ættum að fara saman í ferðalag til Madeira gat ég ekki annað en velt því fyrir mér hvernig sú ferð myndi fara fram. Hún fór þó langt fram úr væntingum mínum. Ég gleymi því seint þegar við vorum komnar í lúxusíbúðina okkar, og þú sast úti á svölum í sérsniðna sundboln- um þínum með Gucci-gleraugun að lesa Hello. Og gleðin í augum þínum þegar þú fórst í sund í inni- lauginni, sjaldan hef ég fengið að kynnast jafninnilegri gleði hjá þér amma mín. Að sjálfsögðu fengum við nóg af ís alltaf, og svo mikið að súkkulaðiísbirgðirnar kláruðust á hótelinu. Við fórum saman í aðra slíka ferð árið eftir og ég mun aldrei gleyma þessum samverustundum með þér amma mín. Ég fékk að kynnast þér á öðru stigi en ég hafði þekkt þig áður, við hlógum að bröndurum hvor hjá annarri og nutum lífsins. Þú vildir öðrum alltaf vel og þú sást alltaf um þína. Nú kveð ég þig, en get þó huggað mig við þessar góðu minningar okkar saman í gegnum ævi mína. Þín dótturdóttir, Elísabet Brynjarsdóttir. Hún amma Jóhanna kenndi okkur systrunum faðirvorið. Við eigum svo margar minningar um okkar yndislegu ömmu að það er erfitt fyrir okkur að velja. Alveg frá því við munum eftir okkur höfum við haft hana ömmu mjög nálægt okkur, fyrst var bara ein hæð á milli okkar og svo bara Kirkjuvegurinn. Því kölluðum við hana ýmist ömmu Jóhönnu eða ömmu hinum megin. Hún var alla tíð stór hluti af okkar daglega lífi. Hún var fyrsti vinnuveitandinn því hún borgaði okkur fyrir að viðra hundinn og fyrir garðyrkju- störf. Hún amma hinum megin var engin venjuleg amma. Hún hafði alltaf eitthvað fyrir stafni og blandaði okkur oft í sín mál og það tókum við alvarlega. Hún kenndi okkur snemma að faxa fyrir sig skjöl og raða bókhaldinu. Hún sendi okkur líka oft í bank- ann fyrir sig með plögg undirrit- uð af henni þar sem hún skrifaði: Sonardóttir mín, nafnið okkar, má taka út peninga og svo allar nauðsynlegar upplýsingar. Gjald- kerarnir hringdu svo í hana og af- hentu okkur síðan umbeðna fjár- hæð í umslagi. Amma hafði nefnilega svo margt annað merki- legra að gera en að standa í röð í bankanum. Við fórum oft með ömmu og afa í sund í Suðurbæjarlauginni og þá fræddi hún okkur um mik- ilvægi þess að rækta sál og lík- ama á meðan við skulfum úr kulda í útiklefanum, hún fór alltaf í útiklefann því það er víst hollt. Við tókum mikið mark á henni því hún stundaði jóga og júdó. Þegar við vorum litlar þá ýmist bauðst hún til að kenna okkur júdóbrögð eða jógaöndun og framboðið réðst af því hvað hrjáði okkur hverju sinni. Amma var heimskona og fylgdist grannt með tískunni. Fataskáparnir hennar voru heill ævintýraheimur þar sem allir máttu fá lánuð föt og leika sér í þeim. Amma var svolítil Lína langsokkur í sér, hún var óþekk og henni var alveg sama hvað öðr- um fannst. Eitt árið fékk hún dellu fyrir því að baka pönnukök- ur með okkur og spurði alltaf: Hvað eigum við nú að hafa mörg egg? Ef við sögðum átta egg, þá voru átta egg í deiginu og við hrærðum öll eggin saman við á meðan amma hló. Hún dýrkaði Elvis Presley og henni fannst gaman að stilla hann í botn og dansa við okkur. Svo gaf hún okkur ís á eftir og sagði: Er ekki alltaf nóg pláss í ísmaganum og við sögðum auðvitað já og fengum meira. Amma passaði upp á það að eiga alltaf til nægan ís í frystinum. Eitt sinn í barna- afmælinu okkar áttu allir að koma í grímubúningum og amma var eini fullorðni gesturinn sem var í búning. Hún var hrókur alls fagnaðar í júdóbúningnum þegar hún sýndi nokkur júdóbrögð. Ást ömmu og afa var mikil og það voru forréttindi að búa í svo miklu návígi við þau. Amma stóð alltaf í dyrunum og horfði á eftir okkur labba heim. Eftir því sem árin liðu og amma átti erfiðara með gang þá snerist þetta við og við horfðum á eftir henni eða fylgdum henni heim. Amma var oft ströng en líka umhyggjusöm. Við höfum alltaf verið stoltar af því að eiga hana fyrir ömmu. Okkur þykir svo vænt um þig elsku amma og Kirkjuvegurinn verður ekki eins án þín. Við sökn- um þín og munum alltaf muna eft- ir þér og afa. Þínar sonardætur, Guðbjörg Oddný og Helga Dagný Jónasdætur. Amma mín Jóhanna og nafna er látin. Við þessi tímamót hrann- ast upp alls konar minningar sem ég á um hana og afa Jónas af Kirkjuveginum. Þó að ég hafi í gegnum tíðina ekki verið dagleg- ur gestur á Kirkjuveginum var gott að koma þangað. Við amma gátum oft átt gott spjall um heima og geima, þótt henni hafi að vísu alltaf fundist skemmtileg- ast að ræða aðstæður þjóðfélags- ins á hverjum tíma og ráðamenn þess. Hún hafði alltaf sterkar skoðanir á hlutunum og fannst gaman að finna að maður hafði líka sterkar skoðanir. Við vorum ekki alltaf sammála um alla hluti, en það gerði umræðurnar alltaf líflegri. Þegar ég var yngri fannst mér næstum því óþægilegt hversu margir tengdu nafn mitt við ömmu, alls konar fólk kom upp að mér og spurði um ömmu, hvernig hún hefði það, hvað hún væri að gera núna og fleira í þeim dúr. Þetta gátu verið allt frá kennurum mínum til ókunnugs fólks sem spurði, en ansi margir virtust kannast við nafnið og svip- inn sem ég bar. Þegar ég eltist fór ég að bera mikla virðingu fyrir nafninu sem ég á og segist í dag stolt heita Jóhanna Tryggvadótt- ir, barnabarn þeirrar einu sönnu. Sem barn man ég eftir ömmu kennandi okkur júdó á efri hæð Kirkjuvegarins, henni fannst að konur þyrftu að geta varið sig eins og karlar og júdóið var að hennar mati alveg tilvalið til þess. Mörg svona minningakorn koma upp í hugann þegar hugsað er til baka. Amma var á sínum yngri árum stórglæsileg kona og þótti okkur frænkunum fátt skemmti- legra en að fá að fara með henni í fataskápana og skoða kjólasafnið og máta þá helst alla. Eins er minningin um ömmu alltaf tengd ís. Þegar ég kom með bræðrum mínum á Kirkjuveginn vorum við varla búin að heilsa þegar hún spurði hvort við værum búin að kíkja í frystinn. Þegar ég fór að koma með Guðrúnu Pálínu dóttur mína á Kirkjuveginn gat amma alltaf unnið hana á sitt band með því að benda henni í átt að frystin- um. Amma Jóhanna studdi við bak- ið á mér í því sem ég tók mér fyrir hendur. Hún fylgist vel með námi mínu við KHÍ og var einn helsti stuðningsaðili minn þegar ég hóf fyrir örfáum árum nám við guð- fræðideild HÍ, og hún gat með engu móti skilið þegar ég tók þá ákvörðun að hvíla námið. Þegar við Albert fluttumst vestur til Tálknafjarðar fylgdist hún áhugasöm með. Henni þótti alveg tilvalið að við settumst þar að, þar sem hún vissi að Helga, Geir og þeirra fólk höfðu unað sér þar vel alla tíð. Minning mín um ömmu Jó- hönnu er alltaf tengd órjúfanleg- um böndum við minningar um afa Jónas. Þegar hann dó fór mikill hluti af henni með honum, en hún hélt alla tíð sinni reisn og lét í raun ekkert buga sig, þótt lífið án hans hafi oft verið erfitt. Ég veit að þegar hún kvaddi okkur í gær- kvöldi þá beið afi hennar og að þar hafi orðið fagnaðarfundir þegar þau hittust loks eftir að hafa verið aðskilin þennan tíma. Og þótt maður kveðji með sökn- uði þá er gott að vita af þeim sam- an aftur. Guð varðveiti þig amma mín. Jóhanna Tryggvadóttir. Amma mín, Jóhanna Tryggva- dóttir, er látin. Ég held að ekki nokkur maður andmæli þegar ég segi og skrifa að hún hafi verið einstök. Hún var hreint ekki eins og aðrar ömmur og fór alla tíð sínar eigin leiðir í lífinu. Það get- ur verið erfitt að feta í sífellu ótroðnar slóðir en öðruvísi þekkti ég ekki ömmu mína. Ég er næstyngst af mínum systkinum og áttunda barnabarn- ið pabba megin. Amma hafði því hlotið ágætis þjálfun í ömmuhlut- verkinu þegar ég kom til sögunn- ar en rétt eins og geta mátti sér til fór amma Jóhanna sínar eigin leiðir í þessu hlutverki rétt eins og á öðrum sviðum. Hún prjónaði ekki sokka og steikti ekki kleinur. Þess í stað sagði hún sögur og miðlaði af reynslu sinni. Reynslan var mikil og hafði hún frá mörgu að segja enda átti amma afar við- burðaríka ævi og alltaf var af nógu að taka þegar litið var yfir farinn veg. Stundum gapti ég af undrun og það kom fyrir að ég klóraði mér í hausnum. Sögurnar sem hún hafði að segja. Fráfall afa Jónasar markaði djúp spor í tilvist ömmu og sætti hún sig aldrei almennilega við til- veruna án hans. Ást þeirra var mikil og það kom alltaf alveg sér- stakur svipur á ömmu og augun leiftruðu þegar hún rifjaði upp gamla tíma. Með aðdáun fylgdist ég með ömmu minni lýsa öllu því sem á daga hennar og afa dreif og hvernig þau stýrðu saman í gegn- um lífsins ólgusjó. Síðastliðin ár hafa samveru- stundirnar verið margar og góðar og hefur töluverður hluti þeirra verið yfir enska boltanum sem við horfðum reglulega saman á, fyrst á Kirkjuveginum og síðar uppi í Boðaþingi, stundum bara við tvær en oft í félagi við bróður minn og pabba. Það vakti iðulega kátínu í vinahópi mínum þegar ég sagðist myndu horfa á leik dags- ins með ömmu minni. Amma mín var mikil kona og ekki óumdeild. Ég hef alla tíð ver- ið stolt af því að vera barnabarn ömmu minnar og mun halda því áfram um ókomna tíð. Elsku amma, ég bið að heilsa afa og Jonnu, þið hafið eflaust margt að ræða. Bjarney Anna. Látin er elskuleg föðuramma mín, Jóhanna Tryggvadóttir. Ég kallaði hana oft ömmu Jó, fyrir henni var ég Hanna Dís. Ég er elsta barnabarn hennar og skírð í höfuðið á henni. Á milli okkar var Jóhanna Tryggvadóttir Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.