Morgunblaðið - 03.01.2012, Síða 40

Morgunblaðið - 03.01.2012, Síða 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 ✝ G. EyrúnGunnarsdóttir fæddist í Reykja- vík 11. janúar 1985. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 23. desember 2011. Hún var dóttir hjónanna Rann- veigar Rúnu Viggósdóttur hár- greiðslumeistara, f. í Reykjavík 1. júlí 1957, og Gunnars Þórð- arsonar framreiðslumeistara, f. í Reykjavík 17. september 1945. Foreldrar Rannveigar eru Viggó Þorsteinsson og Guðríður Eyrún Jónsdóttir. Foreldrar Gunnars voru Þórð- ur Geirsson og Unnur Guðný Albertsdóttir, bæði látin. Systir Eyrúnar er Unnur Guðný Gunnarsdóttir flugfreyja í sam- búð með Gísla Jóhannssyni flugstjóra. Eyrún var í sambúð með Árna Snæ Kristjánssyni bygg- ingartæknifræð- ingi, f. í Reykjavík 4. september 1984. Foreldrar hans eru Kristján A. Ólason og Þuríður R. Sig- urðardóttir. Árni á soninn Jóhann Grétar. Eyrún gekk í Seljaskóla og stundaði körfu- knattleik með ÍR. Eyrún lærði hárgreiðslu við Iðnskólann í Reykjavík og út- skrifaðist sem stúdent frá Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti 2006. Síðar lagði Eyrún stund á lögfræði við Háskólann í Reykjavík og sálfræði við Há- skóla Íslands. Eyrún starfaði frá unga aldri samhliða námi við Landsbanka Íslands á fyr- irtækjasviði og fræðslusviði bankans. Útför Eyrúnar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 3. jan- úar 2012, og hefst athöfnin kl. 15. Elsku Eyrún mín. Þetta hafa verið miklu meira en yndislegir tímar sem við átt- um saman. Það er erfitt að átta sig á því að þeim tíma sé lokið og að ég þurfi að halda áfram án þín, það virðist mér ógerlegt með öllu. Eins og Jóhann sagði: „Ég trúi ekki orðunum þegar ég segi þau, að Eyrún sé dáin.“ Ég held að það lýsi vel hvernig okkur öllum líður, það er erfitt að trúa því. Hvern hefði órað fyrir því að þetta færi svona, konan mín, sem hafði allt til brunns að bera. Orð fá ekki lýst fegurð þinni að utan sem innan, enda hugsaði ég reglulega með mér hvað ég væri lánsamur maður að fá að eyða ævinni með þér. Það er því sárt að hugsa til þess nú að við fáum ekki að eyða ævinni saman. Allir draumarnir sem við áttum saman eru nú minningin ein, en góðar minning- ar, minningar sem ég mun bera með mér um ókomna framtíð. Ég sakna þín svo mikið, ég sakna þess að hafa þig hjá mér, halda utan um þig og sjá bros þitt þegar þú hlærð. Ég er búinn að fara yfir þennan yndislega tíma sem við áttum sama með tárin í augunum. Fyrstu kvöldin sem ég læddist til þín eftir að mamma þín og pabbi höfðu verið í heim- sókn á Grettisgötunni. Stuttu seinna tilkynntir þú mér að þú hefðir farið í búðina með mömmu þinni og keypt handa mér tann- bursta, ég var sem sagt kominn til að vera. Næsta stóra skrefið var þegar Jóhann kom heim yfir okkar fyrstu jól og áramót sam- an. Þú tæmdir herbergið sem þú hafðir notað til geyma hluta af búslóðinni þinni því hann Jóhann yrði að eiga herbergi hjá okkur þegar hann kæmi, það kæmi ekki annað til greina. Þetta var auðvitað allt gert á þinn 110% hátt því það dugði ekkert minna fyrir okkar mann. Það var svo aðdáunarvert hvern- ig þú tókst Jóhanni sem þínum eigin frá fyrsta degi. Þið náðuð svo vel saman, hvernig hann bor- aði sig í hálsakot þitt á næturnar með tilheyrandi svefnleysi, hjúfruðum okkur öll saman uppi í sófa þegar það var kósý-kvöld og allt undir það síðasta þegar hann skreið upp í til þín í heimsóknum sínum á líknardeildina og kúrði hjá þér. Þær voru erfiðar seinustu vik- urnar, en mikið svakalega var gott að geta eytt þeim með þér, þó að það hafi verið í tveimur sjúkrarúmum sem sett voru saman í eitt. Þú barðist svo hetjulega og það vantaði ekki baráttuviljann í þig. Þú gerðir mig að betri manni, svo miklu betri manni. Okkur Jóhanni þótti svo vænt um þig, elsku Eyrún mín, minning þín mun lifa með okkur um ókomna framtíð. Þó að það verði ekki í bráð, þá hittumst við á ný. Hvíldu í friði, elsku Ey- rún mín. Árni Snær. Elsku, elsku, besta, fallega, duglega Eyrún, það er ekki hægt að lýsa því með orðum hvað við söknum þín mikið. Þú barðist svo hetjulega fyrir því að fá að lifa lengur, svo lífsglöð og jákvæð, að missa þig frá okkur skilur eftir sig stórt skarð. Það hlýtur eitt- hvað mikilvægt að bíða þín þar sem þú ert núna. Eyrún þessi gullfallega frænka alltaf svo hlýleg og ljúf. Maður minnist hennar alltaf brosandi og hlæjandi. Það er svo sárt að þurfa að kveðja þig svona snemma því maður veit hversu mikið þú hefðir lífgað upp á til- veru annarra og hafðir svo mikið til að lifa fyrir. Þú varst alltaf svo dugleg við það sem þú tókst þér fyrir hend- ur. Útskrifaðist úr Iðnskólanum í hárgreiðslu, kláraðir stúdentinn og varst í háskólanum þegar þú veiktist og fórst að berjast við þessi veikindi með ótrúlegri yf- irvegun og dugnaði og aldrei vantaði kærleika og umhyggju fyrir öðrum. Við eigum svo góðar minning- ar um þig. Þú munt alltaf lifa í hjörtum okkar, þín er sárt sakn- að. Hvíldu í friði, elsku Eyrún, maður veit að það er vel hugsað um þig þar sem þú ert, því að þú hugsaðir alltaf svo vel um alla aðra. Elsku Rannveig, Gunnar, Unnur, Gísli, Bríet, Árni og Jó- hann, megi Guð gefa öllum styrk á þessum erfiðu tímum. Hér þótt lífið endi, rís það upp í Drottins dýrðar hendi. Salome, Baldur, Davíð, Sigurður og Ólöf Guðrún. Elsku fallega Eyrún okkar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þú varst ein sú besta vinkona sem hugsast getur og það er svo sárt að þurfa að kveðja þig svona snemma. Við erum ríkar af því að hafa kynnst þér og þakklátar fyr- ir að hafa fengið að njóta nær- veru þinnar. Stundirnar sem við áttum saman einkenndust af gleði og þegar við minnumst þín munum við eftir stelpunni sem var svo fyndin og skemmtileg, já- kvæð og lífsglöð. Einstök er orð sem lýsir þér vel, þú snertir hjörtu svo margra. Þú ert hetjan okkar og minning þín mun lifa í hjörtum okkar um alla tíð. Þín verður sárt saknað og skarð þitt aldrei fyllt elsku vinkona okkar. Þriðjudagarnir eru og verða alltaf okkar. Elsku Árni, Jóhann, Gunnar, Rannveig, Unnur og Gísli. Þó þung séu oft sporin á lífsins leið, og ljósið svo skelfing lítið, skaltu eiga þér von, sem þinn vin í neyð, það virkar, en virðist skrýtið. Því vonin hún vinnur gegn myrkri og kvíða, og veitir þér styrk sinn, í stormi og byl, sjá ljósið mun stækka, og þess skammt er að bíða, að sólskinið sjáir, ég veit það er til. (SHL) Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi hlý orð ylja ykkur á köldu kvöldi og fullt tungl lýsa um dimma nótt. Kristín Hrund, Kristjana, Sara Rut, Sigrún Helga, Unnur Birna og Vigdís. Elsku Eyrún okkar. Það er sárt að þurfa að kveðja eins ynd- islega manneskju og þú varst með alla þessa útgeislun og hlýju. Þú komst inn í líf okkar með þín- um alkunna kærleika og birtu. Börnin urðu strax mjög hænd að þér enda gafstu þig að þeim í hvert sinn sem við hittumst, varst alltaf til í að bregða á leik og flétta fastar fléttur. Fráfall þitt, þetta ung, undirstrikar merkingu orð- taksins „þeir deyja ungir sem guðirnir elska“ í huga okkar. Þær eru fjölmargar góðu stundirnar sem við áttum saman við Meðalfellsvatnið og í Álftagróf sem munu lifa áfram með okkur í minningunni. Við munum aldrei gleyma því hvernig þú krafðist þess að bræðurnir kláruðu að setja saman barnarúmin á Strandveginum þrátt fyrir að komið væri vel fram yfir miðnætti og við freistuðum þess að slá verkinu á frest. Þar endurspegl- aðist ákveðni þín og styrkur sem við urðum síðar vitni að í baráttu þinni við veikindin. Það eru allar þessar góðu minningar sem við varðveitum vel og munu lifa áfram með okkur. Þú varst okkur áhrifarík fyr- irmynd í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur, tókst öllu með miklu jafnaðargeði og kvartaðir aldrei. Við skiljum við þig sem betri manneskjur eftir kynni okkar og minnumst þín með sama kærleika og hlýju og þú sýndir okkur. Hug- ur okkar er hjá fjölskyldu þinni á þessum erfiðu tímum, við munum hugsa vel um strákana þína tvo fyrir þig. Við kveðjum þig með þínum eigin lokaorðum: „Þar til næst.“ Óli Freyr, Ágústa og Soffía Rún. Elskuleg systurdóttir hún Ey- rún mín hefur kvatt okkur að sinni. Í kringum hana var ekkert nema sólskin frá því hún fæddist, því hún var svo einstök og alltaf svo blíð og góð. Ég man þegar hún kom með afa sínum hingað út til Svíþjóðar til þess að halda upp á stórafmæli hans. Hún átti líka afmæli í þeirri ferð og gleymi ég aldrei þegar við vöktum hana með pökkum og söng að morgni afmælisdags hennar hversu hún varð glöð. Augun hennar fallegu tindruðu af gleði og undrun og ekki síst þakk- læti, því það var sama hvað maður gerði fyrir hana Eyrúnu mína, hún sýndi alltaf svo mikið þakk- læti og ást. Hún var einstök hún Eyrún frænka mín. Ég minnist þess tíma er hún kom til okkar til Svíþjóðar þá 13 ára gömul ásamt Möggu frænku, til þess að passa Jónas Hólm son okkar hjóna og sjá um heimilið í heilt sumar. Hvað þær frænkur stóðu sig vel og gott var að fá tækifæri til þess að kynnast þess- ari ungu, fallegu og góðu systur- dóttur minni sem mér hefur alltaf þótt svo undurvænt um og þær frænkur sem voru alltaf eins og tvíburar. Ég man líka hvað henni þótti kaka, sem ég bakaði oft góð, svo- kölluð Silvíu-kaka – það væri hennar uppáhaldskaka, sagði hún svo oft við mig. Þess vegna hef ég ákveðið það að hér á mínu heimili á Villagatan verður alltaf bökuð Silvíu-kaka 11. janúar á afmælis- degi Eyrúnar. Ég kynntist Árna, unnusta Ey- rúnar og þvílíkur gæðapiltur sem hann er. Hann hefur staðið þétt við bak frænku minnar í veikind- um hennar og söknuður hans er því sár. Ég á eftir að sakna hennar frænku minnar sárt eins og fjöl- skyldan öll, ekki síst elskuleg Unnur systir hennar, foreldrar, afi, amma og frændgarðurinn all- ur. Ég veit að minningu hennar verður haldið á lofti á heimili okk- ar allra. „Hvað er það að deyja annað en að standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið?“ Elsku Árni, Rannveig, Gunnar, Unnur og fjölskyldan öll. Hugur- inn er stöðugt hjá ykkur og veit ég að Eyrún verður alltaf hjá okk- ur í anda. Guð blessi minningu hennar. Ógurlega sjúm. Guðrún frænka í Svíþjóð. Elsku besta vinkona mín. Hvernig á ég að fara að því að koma örfáum orðum niður á blað til þess að kveðja þig? Ég er svo langt frá því að skilja þetta allt saman. Af hverju þarf ég að kveðja þig svona alltof alltof snemma? Af hverju þurfa Árni og Jóhann, mamma þín og pabbi, þín eina systir, mágur, amma, afi, frænkur og frændur að kveðja þig þegar þú áttir að eiga allt lífið framundan? G. Eyrún Gunnarsdóttir ✝ Halldóra Stef-ánsdóttir fædd- ist á Sólheimum í Garði 14. desember 1947. Hún andaðist á D deild Heilbrigð- isstofnunar Suð- urnesja 17. desem- ber 2011. Foreldrar Hall- dóru voru Guðbjörg Jóhannsdóttir frá Skálum á Langa- nesi, f. 1908, d. 1983 og Stefán Sveinbjörnsson frá Eiði í Garði, f. 1909, d. 1956. Halldóra átti einn bróður Jónatan Jóhann Stef- ánsson. Halldóra giftist í október 1979 Hjálmari Kristinssyni, f. 1.1. 1933, d. 13.6. 2010. Þau eign- uðust tvo syni 1) Stefán Hjálm- arsson, f. 4.7. 1979, giftur Victo- ríu Nunez Cavazos, dóttir þeirra er Azúl Björt, 2) Guðbjörn Már Hjálmarsson, f. 26.9. 1982, d. 13.9. 1995. Dóra ólst upp í Garðinum þar sem hún gekk í Gerða- skóla og kláraði síð- ar gagnfræðapróf frá Flensborg í Hafnarfirði. Að gagnfræðaprófi loknu stundaði hún nám við Lýðháskóla í Danmörku í eitt ár. Á sínum yngri árum starf- aði Dóra við verslunarstörf í Reykjavík. Seinna vann hún sem símadama hjá Ökuleiðum í Kefla- vík og vann þar í nokkur ár. Síð- ustu tvo áratugina vann Dóra umönnunarstörf á Garðvangi, hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Útför Halldóru fór fram frá Útskálakirkju 23. desember 2011. Það var mikið áfall þegar læknirinn sagði mér frá hver staðan væri og hversu langt genginn sjúkdómurinn væri. Ég varð eiginlega bara dolfallinn og keyrði næstu daga í raun bara á sjálfsstjórn og gerði hvað ég gat til þess að þurfa ekki að meta ástandið eða takast á við það. Það var ekki fyrr en á síðustu dögum að ég gerði mér grein fyrir því að ég hefði misst móður mína. Ég er mjög þakklátur fyrir þessa fáu en góðu daga sem ég átti með þér á sjúkrahúsinu, en þín líðan og ástand á afmælisdaginn þinn gáfu mér falsvonir, því þú varst svo full af orku og þér leið svo vel, þótt ég vissi í hvað stefndi þá grunaði mig ekki hversu stutt væri í endalokin. Ég skil vel af hverju þú fórst svona leynt með þitt ástand jafnvel við mig, út af því langa og erfiða veikindaferli sem við fórum í gegnum eftir að pabbi veiktist. Krafturinn sem þú bjóst yfir til að takast á við vinnu og daglegar skyldur síðastliðnar vikur og mánuði var alveg ótrú- legur, og það gleður mig að vita af því að þú hafir stjórnað ferð- inni alveg til enda. Þessir und- anfarnir dagar hafa minnt mig mikið á það tímabil þegar þú last fyrir mig bókina Bróðir minn ljónshjarta, en nú eruð þið pabbi sameinuð á betri stað og munið takast á við ný ævintýri. Ég vil koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem hafa stutt mig og mína fjölskyldu á þessum erfiðu tímum, og fyrir þá góðu umönn- um sem móðir mín fékk á Heil- brigðisstofnum Suðurnesja. Stefán Hjálmarsson og fjölskylda. Mig setur hljóða, kveðjustund- in er runnin upp, Dóra fjöl- skylduvinkona er látin. Margs er að minnast og margs er að sakna. Góðar minningar streyma fram frá afmælisveislum, jólum og öðr- um tækifærissamkomum, allt ljúfar minningar sem við munum ylja okkur við. Einnig skemmti- leg ferðalög vestur á firði, á Kirkjubæjarklaustur eða í Þjórs- árdalinn með þeim Hjálmari og Dóru. Húsmæðraorlof okkar Dóru til jólaþorpsins Würzburg í Þýskalandi 2007. Þegar tveir bogmenn ferðast saman er það örugg ávísun á mikið fjör sem varð raunin. Við áttum dýrmætar stundir yfir góðum mat, búða- rápi, skoðunarferðum og á kvöld- göngu um jólaþorpið með heitt glögg í jólabolla. Kærleikurinn er fólginn í svo mörgu og helst finnum við fyrir honum í þessum litlu hversdags- legu atburðum daglegs lífs. Það að sýna kærleik sem skiptir máli þarf ekki alltaf að vera eitthvað stórt og hlutbundið. Það er svo margt annað sem er dýrmætara og gefur meira af sér og endist, minningar sem við munum geyma innra með okkur. Einmitt á þennan hátt sýndi Dóra okkur fjölskyldunni mikinn kærleik, svona þekktum við best til henn- ar og erum ævinlega þakklát fyr- ir. Það er rétt um eitt og hálft ár síðan Hjálmar lést og í minning- argrein sem Dóra skrifaði þá kemur fram að hún hafði velt því fyrir sér hvað myndi hún gera ef hans nyti ekki lengur við. Lífs- neisti hennar dofnaði verulega en sárþjáð og með mein í líkamanum hélt hún áfram vinnuskyldum sínum þar til alveg undir það síð- asta. Fjölskylda mín hefur orðið þeirrar gæfu njótandi að þekkja Dóru og Hjalla í tæpa tvo ára- tugi. Þau stóðu saman sem eitt í greiðasemi og stuðningi við okk- ur allan þennan tíma. Skilningur þeirra á hlutverki sínu og sá þroski að miðla af reynslu sinni sem foreldrar fatlaðs barns eru meðal helstu vitrænu dyggðanna, sem eru skilningur, þekking, viska og hyggindi. Þakkir og góð orð til þeirra verða sem hjóm eitt, í virðingarskyni drúpi ég höfði og fyllist lotningu og þakklæti fyrir að hafa átt þau að sem vini. Fjölskyldan mín vottar Stef- áni, Vicky og Azúl Björt, dýpstu samúð sem og öðrum aðstand- endum. Minning um Dóru lifir í hjarta okkar. Jónína Holm. Stjörnurnar, sem við sjáum sindra um himininn, eru gleðitár Guðs, sem hann felldi, er hann grét í fyrsta sinn. Honum fannst ekkert af öllu yndi sér veita né ró og allt vera hégómi og heimska á himni, jörð og sjó. Svo var það á niðdimmri nóttu, að niðri á jörð hann sá, hvar fagnandi hin fyrsta móðir frumburð sinn horfði á. Og þá fór Guð að gráta af gleði; nú fann hann það við ást hinnar ungu móður, að allt var fullkomnað. En gleðitár Guðs, sem hann felldi, er grét hann í fyrsta sinn, eru stjörnurnar, sem við sjáum sindra um himininn. (Davíð Stefánsson.) Kæra Dóra, takk fyrir okkur. Ari Páll og Una María. Hún læðist svo undur hægt og hljótt í húmi um miðja nótt. Nú sofa þó margir sætt og rótt, og svefninn á töframátt. En hér í skugganum hrynja tár á heljar og þrautastund. Hér vakir margur með sollin sár, og svefninn flýr hinar þreyttu brár, þá leggur hún líknarmund. Að þyrstum vörum hún vatnsdrykk ber og vermir sárkaldan fót. Og margt hún heyrir, og margt hún sér, á mörgu hún ræður bót. Hún lagar koddana, klappar þýtt og hvíslar um ró og frið. Og mörgum veitir það viðþol nýtt, það verður aldrei jafn feikna-strítt ef einhver leggur þér lið. Hún fórnar deginum fjölmörg ár, hún fórnar sérhverri stund, er himininn ljómar heiður og blár, og hlær í sólskini grund, til hvíldar leggst hún og lokar brá, svo lúin, svo skelfing þreytt. Og sólbjartur dagur svífur hjá, en svefns og hvíldar hún nýtur þá. Í grímu glóey er breytt. (M.J.) Ljóð þetta tileinkum við sam- starfskonu okkar til margra ára sem sannarlega vann sín verk í hljóði, vann meðan aðrir sváfu. Hún var hin sanna vökukona og hafi hún þökk fyrir sín störf og tryggð við stofnunina. Við vinnufélagar vottum ykkur Stefáni, Victoriu, Azúl og Jónat- ani okkar dýpstu samúð og megi góður guð styrkja ykkur í sorg- inni Hvíl í friði, elsku Dóra. F.h. vinnufélaga Garðvangi, Garði, Aðalheiður Valgeirsdóttir. Halldóra Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.