Morgunblaðið - 03.01.2012, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 03.01.2012, Qupperneq 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 Atvinnuauglýsingar Lögfræðingur Vantar lögfræðing í vinnu til þess að hjálpa mér. Góð kjör. Lúðvík Gizurarson, sími 551 7677. Raðauglýsingar Tilkynningar Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla, Ísafjarðarbæ Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar Ísafjarðarbær hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla í Ísafjarðarbæ. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 2. janúar 2012 til 14. febrúar 2012 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofum Ísafjarðarbæjar, Bæjar- og héraðsbókasafni Ísafjarðar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofn- un. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu www.nave.is: www.isafjordur.is Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmd- ina og leggja fram athugasemdir. Athuga- semdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 14. febrúar 2012 til Skipulags- stofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis- áhrifum, nr. 106/2000 m.s.b. Skipulagsstofnun. Félagslíf Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur Síðumúla 31, s. 588 6060 Miðlarnir, spámiðlarnir og huglæknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen talnaspekingur og spámiðill, Ragnhildur Filippusdóttir, Garðar Björg- vinsson, Michael-miðill, Símon Bacon, Guðríður Hannesdóttir kristalsheilari auk annarra, starfa hjá félaginu og bjóða félagsmönnum og öðrum upp á einkatíma. Upplýsingar um félagið, starf- semi þess, rannsóknir og útgáfur, einkatíma og tíma- pantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13-18, auk þess oft á kvöldin og um helgar. SRFR. Smáauglýsingar 569 1100 Gisting AKUREYRI Höfum til leigu ýmsar gerðir sumar- húsa við Akureyri og á Akureyri. Upplýsingar á www.orlofshus.is. Leó, sími 897 5300. Húsnæði íboði Lítið herbergi við Lokastíg Herbergið er með húsgögnum, parket á gólfum, aðgangur að eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi með sturtu. Einnig aðgangur að Inter- neti og tölvu. Langtímaleiga. Laust. 50.000. Tveir mánuðir fyrirfram sem er 100.000. osbotn@gmail.com Spánn Íbúð í Exsample í Barcelona. Vikuleiga í sumar. starplus.is - starplus.info á ensku. Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Námskeið Tónskóli Guðmundar - Frjáls og skemmtilegur- Geysifjölbreytt námsefni. Allir velkomnir. Klassík, popp og sönglög. Gömlu danslögin eða rokk og ról. Kennt er á píanó, gítar, harmonikku og þverflautu. Kennsla hefst mánudaginn 9. janúar. Innritun í síma 5678 150 og 822 0715 Netfang: ghaukur@internet.is Veffang: tonskolinn.is Tónskóli Guðmundar, Hagaseli 15, 109 Reykjavík. Til sölu Útsala - Útsala - Útsala Handslípaðar kristalsljósakrónur frá Tékklandi og Slóvakíu. Kristals- glös, vasar, handútskornar trévörur, Kristalsskartgripir. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald N.P. þjónusta. Annast bókhalds-, eftirlits- og gæslustörf. Hafið samband í síma 893 7733. Þjónusta ERFÐASKRÁR Meistaranemi í lögfræði tekur að sér samningu erfðaskráa, þannig að öllum lagaskilyrðum sé fullnægt. Aðstoða einnig við málarekstur í stjórnsýslunni og fyrir ýmsum úrskurðarnefndum. Hilmar Þorsteins- son, s. 696 8442, netf. hth56@hi.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar Nýr Mitsubishi Lancer Evolution X 300 hestafla fjórhjóladrifin súper- græja sem hefur rústað öllum helstu sportbílum heims. Listaverð um 10 milljónir. Þennan færð þú á 6.590 þús. Síðasti séns. www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið 12-18 virka daga. Bílaþjónusta Hjólbarðar Kebek vetrardekk Hönnuð og testuð í Kanada. 185/55 R 15 13.900 kr 185/65 R 15 12.900 kr. 195/65 R 15 12.900 kr. 205/55 R 16 14.900 kr 205/60 R 16 16.900 kr. 215/60 R 16 17.900 kr 215/65 R 16 17.990 kr. 205/50 R 17 17.900 kr. Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði Dalvegi 16 b, Kópavogi, s. 544 4333. Húsviðhald Tek að mér ýmis smærri verkefni Sími 847 8704, manninn@hotmail.com Tign sem hæsta ber Í minningargrein sem birtist 30. des. sl. um Önnu Stein- unni Sigurðardóttur eftir Ágústu H. Lyons Flosadóttur misritaðist hjá okkur orð í ljóði eftir Steingrím Thor- steinsson. Við birtum hér ljóðið og biðjum hlutaðeig- andi afsökunar. Trúðu á tvennt í heimi, tign sem hæsta ber: Guð í alheimsgeimi, Guð í sjálfum þér. LEIÐRÉTT Elsku Didda frænka, föður- systir mín, er farin á vit forferðr- anna síðust þeirra Kasthvamms- systkina. Það hafa verið mikil forréttinda að fá að alast upp undir handleiðslu þessara syst- kina. Föðurfjölskyldan mín er mjög óvenjuleg á margan hátt, tengsl á milli okkar eru óvenju- mikil. Stór-Kasthvammsfjöl- skyldan eins og ég kalla þetta stundum, þar voru systkinin 5 mjög náin og við afkomendur þeirra höfum notið þess í hví- vetna. Því við höfum verið svona í raun eins og stór systkinahópur með marga foreldra. Mér hefur Kristín Petrína Gunnarsdóttir ✝ Kristín PetrínaGunnarsdóttir fæddist í Kast- hvammi, Laxárdal, Suður-Þingeyj- arsýslu 4. júní 1922. Hún lést á Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi 15. des- ember 2011. Útför Kristínar Petrínu fór fram frá Garðakirkju í Garðabæ 22. desember 2011. alltaf fundist við nánari en hefðbund- ið er á milli systk- inabarna. Jafnframt hefur mér fundist ég nánari föður- systkinum mínum en algent er. Síðast en ekki síst er það nú búinn að vera ansi stór hópur sem hefur átt Diddu ömmu. Ég naut þess að koma í hlýjuna sem var í Ásgarðinum (þá á ég auðvitað ekki við að það hafi verið svo hlýtt inni hjá þeim) heldur var það viðmótið sem maður mætti, þessi væntum- þykja og hlýja sem ég fann svo sterkt fyrir. Það er reyndar varla hægt að tala bara um Diddu því Helgi hefur verið svo stór partur í þessu „dúói“ Didda og Helgi. Ég naut heimsóknanna í Ásgarðinn, naut alls þess sem boðið var upp á, bæði í andlegri og líkamlegri næringu. Auðvitað koma upp í hugann gómsætar veitingar búð- ingstertur, brúntertur og fleira góðgæti. Fjörlegar umræður um landsins gagn og nauðsynjar voru skemmtilegar og standa hátt í huga mér. Tengsl milli Diddu og pabba voru sterk og nýt ég þess að hugsa til þessara góðu stunda sem við öll áttum saman. Ásgarður 5 var eins og félags- heimili, gestakomur miklar og öllum tekið með opnum faðmi. Dugnaðurinn í þessari konu og Helga var með ólíkindum og elju- semin var og er okkur góð fyr- irmynd. Nú er enginn Ásgarður lengur, engin Didda, hvað gerum við þá. Nú verður það okkar hlut- verk „gamla fólksins“ sem enn stígum lífsdansinn að halda stór- Kasthvammsfjölskyldunni sam- an. Didda veitti mér eins og öllum öðrum mikla gleði og hlýju. Við sem nutum samverustundanna með henni þökkum henni af öllu hjarta fyrir góðar stundir sem munu varðveitast í hjörtum okk- ar um ókomna tíð. Sá saknar mik- ils sem mikið hefur átt og það á svo sannarlega við hér. Ég gleðst í gegnum tárin að hafa einhvers að sakna. Ég þakka þér innilega af öllu mínu hjarta, Didda, fyrir allt og þér líka, Helgi, fyrir þinn stóra þátt í því. Gunnar Jón Yngvason. Didda (Kristín) frá Kast- hvammi er látin. Langri vegferð er lokið. Ég er fæddur á sama bænum og Didda fæddist og ólst upp. Þegar ég var fimm ára byggðu foreldrar mínir nýbýlið Árhvamm í túni Kasthvamms. Því er hægt að segja að ég hafi þekkt Diddu frá því að ég man fyrst eftir mér. Didda flutti fyrst til Ólafsvíkur með unnusta sínum Helga Björnssyni. Hún fékk síðan berkla og dvaldi á Vífilsstöðum og voru þeir tímar erfiðir ungu hjónunum, en þar náði hún heilsu á ný. Þegar ég flutti suður til Reykjavíkur í nám haustið 1953 voru þau Didda og Helgi komin í Ásgarð í Garðahreppi, þar sem þau áttu heima lengstan hluta af ævi. Rétt eftir að ég kom suður hringdi Didda í mig og bauð mér að koma til þeirra hjóna. Ég var því mjög feginn, feiminn og óframfærinn sveitadrengur, þar sem ég þekkti varla nokkurn mann fyrir sunnan. Tveim árum seinna er ég lá í mislingum kom Didda til mín, til að fylgjast með hvort nógu vel væri hugsað um mig og sýnir þetta vel hvað henni var umhugsað um vini sína. Allar stórhátíðir jól og páska, þegar ég fór ekki norður, var ég hjá þeim að einhverju leyti, áður en ég stofnaði mitt eigin heimili. Mikil var gleði ungu hjónanna er þau byggðu sér eigið hús í Ás- garði 5 og fluttu þangað, þar sem þau bjuggu lengst af. Þau komu sér upp fallegum og vel hirtum garði og seinna gróðurhúsi, þar sem þau ræktuðu fagrar rósir. Bræður mínir sumir dvöldu hjá þeim, er þeir sóttu vinnu í Hafn- arfjörð og ekki var síður dekrað við þá en mig. Ég á ótal góðar minningar um heimsóknir til þeirra hjóna um tugi ára og höfð- um við Didda gaman af að tala um æskustöðvarnar okkar og fólkið fyrir norðan. Þegar Didda og Helgi fluttu í Boðahlein 16 sagði Gunnar frændi hennar að nú væri hún komin heim, því að þar sæi hún í hraunið eins og í Laxárdal. Fyrir allar þær mörgu stundir, hjartahlýju og góðgerðir sem ég þáði hjá Diddu og Helga vil ég sérstaklega þakka hér. Mig lang- ar að lokum að láta fylgja hér er- indi úr ljóði, sem Snorri Gunn- laugsson í Geitafelli flutti við kistu Þóru, móður Diddu. Hann segir þar. Í bláheiðu veldi vorsins með vorblómin kringum sig, örsmáar barnshendur bærast blessa og faðma þig. Svo fylgi þér eilíf æska áfram, hvert þroskastig. Við systkinin frá Árhvammi og makar þökkum fyrir ævilanga tryggð og vináttu og sendum Helga, Þóru, Öldu og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Diddu frá Kasthvammi. Hallgrímur Pétursson. Að skrifa minningagrein Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til birtingar á mánu- dag og þriðjudag. Fjöldi greina í blaðinu á útfara- rdag ræðst af stærð blaðsins hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt sem auðið er. Hámarkslengd minn- ingagreina er 3.000 tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum, þar sem þær eru öllum opnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.