Morgunblaðið - 03.01.2012, Side 46

Morgunblaðið - 03.01.2012, Side 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 Íslandsfrumsýning á verkinu OnMisunderstanding var í Kass-anum í Þjóðleikhúsinu hinn 28.desember síðstliðinn. On Mis- understanding er dans-leikhúsverk þar sem þrír flytjendur bregða sér í mörg ólík hlutverk og setja fram hug- mynd um misskilning. Verkið er mjög aðgengilegt. Það er byggt upp á ákveðinni hugmyndafræði sem flytj- endur velta upp á skemmtilegan hátt með samtölum og sögum. Leikmynd og hreyfingar dansaranna eru not- aðar til dýpkunar á hugmyndinni og áhorfendur fá það á tilfinninguna að allt sem gerist á sviðinu hafi sér- stakan tilgang. Höfundur og leikstjóri verksins er danslistamaðurinn Margrét Bjarna- dóttir en hún var jafnframt einn af dönsurum verksins, auk Sögu Sigurð- ardóttur og Dani Brown. Myndlist- armaðurinn Elín Hansdóttir sá um leikmynd og búninga, en leikmyndin er einn meginþáttur verksins. Aftast á sviðinu stóð stór viðarinnsetning. Á hana var klemmt gult þykkt tjald. Fyrir aftan tjaldið stóðu speglar, mis- munandi að lögun. Hægra megin á sviðinu, framan við tjaldið, stóð nokk- uð stór viðarskúlptúr sem var svo tekinn í sundur og settur saman á ýmsan hátt. Speglarnir höfðu einnig stórt hlutverk í verkinu en þeir voru jafnframt notaðir á frumlegan hátt við gerð ólíkra karaktera og til dýpk- unar á hugmyndafræði umfjöllunar- efnisins. Verkið er leit að skilgreiningu á raunveruleikanum, en raunveruleik- inn er byggður á misskilningi. Þannig fjallar verkið um sjónarhorn og skynjun okkar á heiminn. Stundum er ekki allt sem sýnist, en þrátt fyrir það má einnig halda því fram að hvernig sem allt virðist vera sé það þó raunverulegt. Eins og kemur fram í verkinu er lífið er byggt á eilífum mis- skilningi sem á sér engan endi og því væri kannski ráð að hætta að hugsa, en það er líklega einnig stór misskiln- ingur eins og flestar aðrar hug- myndir. Einnig er tekist á við vangaveltur um þau skilaboð sem við sendum frá okkur meðvitað eða ómeðvitað og misskilning sem getur orðið út frá sjónrænni skynjun, mistúlkun orða og áhrifa hreyfiforms. Hreyfing get- ur gefið frá sér ákveðin skilaboð, hvort sem um er að ræða hreyfingu í dansverki eða skynjun okkar á heim- inum almennt. Sjónarhorn fólks er alltaf misjafnt og ekkert lögmál er al- gilt. Í verkinu eru speglar notaðir til þess að undirstrika þetta og það kom fyrir í sýningunni að aðeins helm- ingur salarins skellti upp úr og þann- ig gat staðsetning áhorfenda ráðið því hvernig áhorfendur túlkuðu það sem gerðist á sviðinu fyrir allra augum. Verkið var virkilega vel unnið og hugmyndin komst vel til skila. Það er ekki oft sem svo náið samstarf ólíkra listgreina heppnast eins vel og það gerði á þessari sýningu og því ber að hrósa séstaklega. Flytjendur verks- ins voru þó missterkir eftir því hvort um var að ræða leikræn tilþrif eða hreinan dans, en allar áttu þær ómet- anlegar senur. Kaflaskiptingar verks- ins voru góðar, en þó voru hnökrar á köflum þar sem tilfæringar leik- myndarinnar voru heldur fyrirhafn- arsamar. Lokakafli verksins var virkilega góður. Hann minnti á koddahjal þriggja vinkvenna þar sem öll sagan er ekki sögð og þannig held- ur sagan áfram eftir að áhorfendurnir gengu út. Með skondnum hætti fæst verkið við greinarmuninn á sýnd og reynd, ekkert er algilt eða óumdeilanlegt. Hugmyndir manna um raunveruleik- ann skipta ekki máli, raunveruleikinn er misskilningur. Eilífur óendanlegur misskilningur Misskilningur „Það er ekki oft sem svo náið samstarf ólíkra listgreina heppn- ast eins vel og það gerði á þessari sýningu og því ber að hrósa séstaklega.“ On Misundersterstanding bbbbn Höfundur og leikstjóri verksins: Mar- grét Bjarnadóttir. Dansarar: Margrét Bjarnadóttir, Saga Sigurðardóttir og Dani Brown. Leikmynd og búningar: Elín Hansdóttir. MARGRÉT ÁSKELSDÓTTIR DANS Á liðnu ári var fjölda verðmætra listaverka og listmuna stolið og hafa sumir fjölmiðlar talað um 2011 sem ár listaverkaþjófa. Hjá stofnuninni Art Loss Register, þar sem skráðir eru listmunir sem hverfa, kemur fram að á árinu 2011 hafi hvarf hátt í 12.000 gripa verið skráð í gagna- grunninn. Í samtali við danska dagblaðið Politiken, segir Karl-Heinz Kind sem starfar í þeirri deild alþjóða- lögreglunnar Interpol sem fjallar um listaverkaþjófnaði, að glæpir sem tengjast list og listmunum séu oft áberandi í löndum þar sem er ótryggt stjórnmálaástand. „Í tengslum við það sem kallað hefur verið arabíska vorið, og upp- reisnir í Egyptalandi og Líbíu, hafa verðmætir hlutir horfið,“ segir Kind. „Við leitum enn að yfir 200 gripum frá þjóðminjasafninu í Kaíró og í Líbíu var svokölluðum Benghazi- fjársjóði stolið úr bankahólfi í maí.“ Meðal gripanna sem hurfu í Kaíró var verðmæt stytta af Tutankhamon faraó en jafnvel er óttast að hluti Benghazi-fjársjóðsins hafi þegar verið bræddur og eyðilagður. Í sjóðnum voru 2.600 ára gamlar gull- myntir og styttur sem fundust í upp- greftri í hinni fornu borg Kyrene. Er Benghazi-fjársjóðurinn sagður verð- mætustu fornminjar sem þjófar hafa komið höndum yfir. Málverk vísaði á Hadzic Verðmætir gripir hverfa víða en Kind segir þá ekki alltaf fá sömu at- hygli fjölmiðla og þegar málverkum eftir heimsþekkta listamenn eins og Pablo Picasso er stolið. „Fjölmiðlum finnst alltaf áhuga- verðara að skrifa um Picassoverk sem kostar hundruð milljóna sem er stolið, en það gerðist líka nokrum sinnum á liðnu ári. En vandamálið er útbreiddara,“ segir Kind. Eitt dularfyllsta málverkahvarfið, eða réttara sagt málverkafundur ársins, leiddi til handtöku eftirlýsts stríðsglæpamanns, Gorans Hadzics, í Serbíu í fyrrasumar. Þegar serb- neska lögreglað rannsakaði hús vin- ar hins eftirlýsta stríðsglæpamanns, fannst meðal annars stækkuð ljós- mynd af málverkinu „Portrett af manni“ eftir ítalska listmálarann Amedeo Modigliani. Fundur ljós- myndarinnar og rannsóknin sem fylgdi leiddi lögregluna að fylgsni í nærliggjandi skógi og þá fundust bæði stríðsglæpamaðurinn og um- rætt málverk, sem talið er að hann hafi reynt að selja til að ná sér í lausafé. Verkið var talið hafa verið í eigu serbnesks safnara og metið á þrjá og hálfan milljarð króna. Hadzic hafði verið á flótta í sextán ár þegar hann náðist en málverkið kom upp um hann. Dæmdur fyrir fölsun Glæpir tengdir listaverkum eru ekki bara þjófnaðir, því fölsun er líka glæpur. Í október var Wolfgang Beltracchi dæmdur í sex ára fangelsi í Köln í Þýskalandi, fyrir að vera heilinn á bak við alþjóðlegt svikanet. Beltracchi og félagar hans komu að minnsta kosti 53 fölsuðum mál- verkum í verð, en þau voru eignuð listamönnum á borð við Max Ernst, Campendonk og André Derain. Fleiri lista- verkum stolið  Fjöldi verðmætra gripa og listaverka hvarf á liðnu ári Verðmætt Þetta málverk Modigli- anis leiddi til handtöku Hadzics. Myndlistarmennirnir Kristinn G. Jóhannsson og Guðmundur Ármann Sigurjónsson sýna um þessar mund- ir verk sín í Listasal Mosfellsbæjar. Þeir hafa báðir verið mikilvirkir á sviði málverksins árum saman, með aðsetur á Akureyri. „Við sýndum stundum þrír saman, við Kristinn og Óli G. heitinn,“ segir Guðmundur Ármann, spurður um verkin á sýningunni. „Við vorum all- ir þrír að fást við einhverskonar abstraksjón af náttúruupplifun. Kristinn hefur verið að vinna út frá brekkunum, eins og hann segir, líka brekkum í merkingunni fjöll. Það eru Ólafsfjarðarbrekkurnar og síðar brekkurnar hér í innbænum á Akureyri. Hann hélt sýningar sem hétu Haustbrekkur, Sumarbrekkur og Vetrarbrekkur, en nú sækir hann í brekkurnar við Patreksfjörð. Kristinn kenndi fyrst á Patreks- firði,“ segir Guðmundur. Sjálfur sýnir Guðmundur Ármann málverk og vatnslitaverk. „Ég sýni stóra mynd sem heitir Sumarnótt og hún sprettur af mynd sem upp- haflega var máluð á Arnarvatns- heiði. Hún sýnir Arnarvatn litla og í baksýn er Eiríksjökull í miðnæt- urbirtu. En nú er sú sýn orðin ab- strakt í þessu stóra verki en það má greina teikningu af fjalli undir þess- um lagskiptu strokum mínum. Og í forgrunni er vatn, sem er litflötur. Svo sýni ég stórar vatns- litamyndir, unnar með svipuðum hætti. Ég geri oft fígúratífar vatns- litamyndir úti í náttúrunni en ein- falda þær síðan í þrjá meginfleti.“ Náttúran býður upp á endalausa úr- vinnslu. „Ég hef fengist við þessar strokur mínar í ein fimmtán ár. Þá hafði ég allur verið í boðskap og fé- lagslegu raunsæi og áttaði mig á því að ekki mátti gleyma fagurfræðinni. Fyrst hreyfðu margir listamen sig frá náttúrunni í abstraktið, en það er eins og ég sé að færa mig frá ab- strakti yfir í náttúruna,“ segir Guð- mundur Ármann. efi@mbl.is „Ekki mátti gleyma fagurfræðinni“  Kristinn G. og Guðmundur Ármann sýna í Mosfellsbæ Brekkumyndir Kristinn G. Gegnsæi Guðmundur Ármann „Með pensli og paletthníf II“ nefnist sýning myndlistarmann- anna Kristins G. Jóhannssonar og Guðmundar Ármanns Sig- urjónssonar sem opnuð var fyrir jól í Listasal Mosfellsbæjar sem er við bókasafn bæjarins. Sýn- ingin stendur til 14. janúar. Lista- mennirnir hafa haldið fjölda einka- og samsýninga og sýna nú málverk og vatnslitamyndir. Með pensli ... SAMSÝNING LISTAMANNA Efnt hefur verið til samkeppni um opnunaratriði Vetrarhátíðar í Reykjavík en hún verður að þessu sinni dagana níunda til tólfta febr- úar næstkomandi. Sóst er eftir úti- verki sem höfðar til almennings og inniheldur upplifun, gagnvirkni og gleði. Á það að vera á fjölförnum en óvæntum stað í borginni. Verð- launaféð er hálf milljón króna. Í tilkynningu segir að sóst sé eftir opnunarverki með tengingu við rafmagn. Það þarf að geta staðið í mánuð hið minnsta og þarf að huga að því við efnisvalið. Nærvera verksins má vera fyrirferðarmikil og snerta skynfæri borgarbúa á mismunandi vegu. Ekki er verra að það feli í sér einhvers konar gagn- virkni eða skynjun. Samkeppnin er opin öllum mynd- listarmönnum, hönnuðum, arki- tektum, tónlistarmönnum, ljós- mönnum, rafmagnsverkfræðingum eða öðrum sem vinna með rafmagn og list í einhverju formi. Hvatt er til samstarfs milli ólíkra hugsuða og listgreina. Samkeppni um opnunaratriði Morgunblaðið/Kristinn Frá Vetrarhátíð Leitað er að úti- listaverki sem höfðar til fólks.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.