Morgunblaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 4. F E B R Ú A R 2 0 1 2  Stofnað 1913  46. tölublað  100. árgangur  UNGAR STÚLKUR FRAMLEIÐA SKEGGSLAUFUR FOOD & FUN BLAÐAUKI UM MATARHÁTÍÐINA, KOKKANA OG ALLT GÓÐGÆTIÐMOTTUMARS 10 Ljósmynd/Hjalti Stefánsson Á vettvangi Rútan valt þrjá hringi.  Betur fór en á horfðist þegar far- þegarúta með starfsmönnum Alcoa á Reyðarfirði valt þrjá hringi út af veginum við Oddsskarðsgöng í gær- kvöldi. „Það var kolvitlaust veður … hún fór þrjár veltur að minnsta kosti,“ sagði Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn á Eskifirði. Átta voru í rútunni og voru þeir sendir á heilsugæsluna á Eskifirði til eftirlits. Einn var fluttur á sjúkra- húsið á Norðfirði til öryggis. Bjarni Freyr Guðmundsson, for- maður björgunarsveitarinnar Brim- brúnar á Eskifirði, var á staðnum: „Það var bálhvasst og glerhálka á veginum. Við vorum á tveimur jepp- um og þegar við höfðum staðnæmst fuku tveir fólksbílar á annan þeirra,“ sagði Bjarni Freyr. Rúta valt þrjá hringi í Oddsskarði Dragi úr álögum » Í tillögum sjálfstæðismanna er m.a. gert ráð fyrir að sér- stakt bensíngjald og almennt bensíngjald lækki um tugi kr. » Bent er á að ríkið taki til sín um 119,5 kr. af bensínlítra sem kostar 246,89 kr., eða tæplega helming af útsöluverði. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins leggur til að tímabundið verði dregið úr álögum á bensín og eldsneyti svo skilyrði skapist til að lækka lítra- verðið niður í u.þ.b. 200 krónur. Tillagan er lögð fram í tveimur breytingatillögum á lögum um elds- neytisverð og á lækkunin að gilda frá 1. apríl til 31. desember. Með tillög- unni fylgir greinargerð og segir þar í niðurlagi að lækkunin myndi auka ráðstöfunartekjur, örva hagvöxt og leiða til lækkunar vísitölu neyslu- verðs „sem aftur lækkar höfuðstól verðtryggðra lána heimila og fyrir- tækja og afborganir af þeim“. Er lækkunin jafnframt sögð mundu virka sem vítamínsprauta á ferðaþjónustuna og minnka flutn- ingskostnað og þar með vöruverð. Í greinargerðinni er áætlað að tekjur ríkisins af sölu á bensíni og díselolíu frá og með 1. apríl til 31. desember nk. verði samanlagt um 28.200 milljónir króna. Haldist notk- unin óbreytt munu skatttekjurnar aukast enda er olíuverðið á uppleið. Aðspurður um þróunina bendir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, á að tonnið af bensíni hafi hækk- að úr 1.000 Bandaríkjadölum í 1.100 dali síðustu viku. Díselolían hafi hækkað en þó ekki jafnmikið. „Við höfum séð snarpar hækkanir. Fyrir vikið hefur skapast hækkunar- þörf. Við gætum séð bensínlítrann hækka í allt að 260 kr. næstu daga.“ Bensínlítrinn kosti 200 kr.  Sjálfstæðismenn leggja til mikla lækkun á álögum á eldsneyti  Örvi hagkerfið  Forstjóri N1 segir þörf fyrir hækkanir  Bensínið stefni í 260 kr. næstu daga MLækki bensínlítrann »4 Morgunblaðið/Ómar Margir án vinnu Spáð er 6,4% at- vinnuleysi hér á landi í ár. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Útgjöld úr atvinnuleysistrygginga- sjóði hafa verið meiri að undanförnu en reiknað var með á síðasta ári og er því nú spáð að útgjöld vegna at- vinnuleysisbóta á þessu ári verði 19,2 milljarðar kr. eða einum millj- arði kr. meiri en fjárlög ársins kveða á um. Þessi áætlun er byggð á nýrri spá um að atvinnuleysi verði 6,4% á árinu 2012. Þetta eru þó mun lægri fjárhæðir en runnu úr atvinnuleysistrygginga- sjóði á seinasta ári, skv. upplýsing- um Sigurðar P. Sigmundssonar, for- stöðumanns rekstrarsviðs Vinnu- málastofnunar. Á árinu 2010 voru greiðslur úr atvinnuleysistrygginga- sjóði 23,5 milljarðar kr. sem fóru til greiðslu atvinnuleysisbóta og átaks- verkefna á borð við starfsþjálfun o.fl. Á seinasta ári námu heildarútgjöld vegna bóta og starfsþjálfunar 22,4 milljörðum og minnkuðu um 1.100 á milli ára. „Þetta fer lækkandi en kannski ekki eins mikið og menn voru að vonast til,“ segir Sigurður P. Sigmundsson. Milljarð fram úr fjárlögum?  Spá 19,2 milljörðum úr atvinnuleysistryggingasjóði í ár Kraftur hefur verið í loðnuvertíðinni síðustu vik- ur og veiðar og vinnsla verið á fullu. Hrognataka og frysting gætu hafist upp úr helgi. Loðnan hef- ur undanfarið fengist út af Þykkvabæ og Eyrar- bakka og er fremsta gangan komin langleiðina að Reykjanesi, en myndin er tekin út af Vík. Eft- ir er að veiða um þriðjung af 590 þúsund tonna heildarkvóta. Einnig hefur vel veiðst af bolfiski undanfarið og víða gengið verulega á kvóta. »6 Loðnuveiðar og -vinnsla á fullu Morgunblaðið/Jónas Erlendsson  „Mér finnst þetta vera alls- herjar hand- arbakavinna og í raun algjört klúður,“ segir Sigurður Líndal, prófessor við Há- skólann á Bif- röst, um þá ákvörðun Al- þingis að kalla stjórnlagaráð saman til fjögurra daga vinnu í næsta mánuði. Hann telur að tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskránni þarfnist rækilegr- ar skoðunar. „Eins og málin standa í bili, að það takist að leysa þetta á einum mánuði. Ég held það myndi jaðra við almættisverk,“ segir Sig- urður. »9 Handarbakavinna og algjört klúður Sigurður Líndal Fundi í atvinnuveganefnd Alþingis, sem halda átti í vikunni, var frestað vegna þess að engin stór mál lágu fyrir þingnefndinni. Jón Gunn- arsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, sagði við umræður á Al- þingi að atvinnumálin væru alger- lega í lausu lofti og engar tillögur hefðu komið fram. „Afleiðingin er sú, virðulegi forseti, að atvinnuvega- nefnd þingsins er atvinnulaus,“ sagði Jón. Sigurður Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að nefndin hafi verið að skoða eitt og annað. „Til að hafa eitthvað fyrir stafni höfum við líka verið að skoða raforkumarkaðinn og skýrslu um jöfnun raforkukostnaðar,“ segir hann. Stjórnarliðar boða að tvö stór- mál, frumvarpið um stjórnkerfi fisk- veiða og rammaáætlunin um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða, verði lögð fyrir þingið innan nokkurra vikna. »12 Nefndarfundi frestað vegna verkefnaleysis  „Atvinnuveganefnd er atvinnulaus“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.