Morgunblaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Talið er að Vesturveldin og mörg ríki Arababandalagsins muni á fundi sín- um í Túnis í dag krefjast þess að stjórnvöld í Sýrlandi leyfi að veitt verði mannúðarstoð, að sögn ónefnds stjórnarerindreka. Sýr- lenski herinn hefur nú í nær þrjár vikur haldið uppi stanslausum sprengjuárásum á borgina Homs sem er eitt aðalvígi andstöðunnar við Bashar al-Assad forseta. Ástandið í borginni er sagt skelfilegt. Sjónarvottar lýstu í gær „gríðar- legum sprengingum“ í Homs. Al- þjóðanefnd Rauða krossins hvatti í vikunni til þess að gert yrði tveggja stunda vopnahlé einu sinni á dag til þess að ráðrúm gæfist til flytja óbreyttum borgurum á átakasvæð- um lyf og aðrar nauðsynjar. Óhug hefur vakið að hermenn stjórnvalda virðast nú reyna að hræða erlenda fréttamenn frá því að segja frá ástandinu. Tveir þeirra, bandaríski fréttamaðurinn Marie Colvin og franski ljósmyndarinn Remi Olchik, létu lífið á miðvikudag þegar flugskeytum var skotið á bráðabirgðamiðstöð fyrir fjölmiðla í Homs. Einnig féll sýrlenski frétta- maðurinn Rami al-Sayed og nokkrir erlendir fréttamenn særðust. Í myndbandi sem Colvin gerði fyrir BBC á þriðjudag lýsti hún árásunum á borgina. „Ég horfði á barn deyja í dag. Þetta var alveg hryllilegt. Sprengju- kúlum og flugskeytum rignir látlaust yfir hverfi þar sem óbreyttir borg- arar búa,“ sagði hún. Uppreisnarmaður í Homs, Hadi Abdullah, sagði að allt benti til að miðstöðin hefði af ásettu ráði verið gerð að skotmarki: alls hefðu 11 flug- skeyti lent á henni. Farsímasam- skipti milli andófshópa í borginni hefðu stöðvast vegna þess að fjar- skiptamastur hefði verið sprengt. Leyfi mannúðaraðstoð  Ríkjahópurinn Vinir Sýrlands ræðir kröfur á hendur stjórn Assads forseta Þúsundir hafa fallið » Talið er að meira en 7.600 manns hafi fallið í átökunum í Sýrlandi sem staðið hafa í 11 mánuði. » Ríkin sem hittast á morgun í Túnis kalla sig Vini Sýrlands. » Rússar og Kínverjar beittu fyrir skömmu neitunarvaldi í öryggisráði SÞ til að fella til- lögu þar sem grimmdarverk Assads voru fordæmd. Lögreglan í Moskvu sagði að um 130 þúsund manns hefðu tekið þátt í kosningafundi til stuðnings Vla- dímír Pútín, forsætisráðherra og þar áður forseta Rússlands, í gær. Hann býður sig á ný fram í forseta- kosningum 4. mars og benda kann- anir til þess að hann sigri þegar í fyrri umferð, fái hreinan meiri- hluta atkvæða. Fundurinn var haldinn undir slagorðinu Verjum þjóðina og var Pútín mjög á þjóðernissinnuðum nótum í ræðu sinni. Hét hann m.a. að meina erlendum aðilum að skipta sér af innri málum landsins. Pútín er fyrrverandi njósnari og hefur haldið mjög á lofti afrekum leyniþjónustu Sovétríkjanna gömlu. Að sögn Jyllandsposten sagði hann nýlega að sovéskir njósnarar hefðu smyglað heim geysilegu magni gagna um fyrstu kjarnorkusprengj- una frá Bandaríkjunum. Erlendir vísindamenn hefðu vísvitandi af- hent þeim þessi gögn til að tryggja að Bandaríkin hefðu ekki einkarétt á sprengjunni. kjon@mbl.is Reuters Pútín í miklum ham Kát Kona úr röðum stuðningsmanna Pútíns dansar við styttu sovétleiðtogans Leníns í gær eftir kosningafundinn. Starfsmenn evrópsku kjarneðlis- fræðistofnunarinnar, CERN, fundu í fyrra vísbendingar um að kenning eðlisfræðingsins Alberts Einsteins um að ekki væri til meiri hraði en hraði ljóssins væri röng. Fiseindir, óhlaðnar kjarneindir með lítinn sem engan massa, virtust ná ívið meiri hraða. Nú segja þeir hugsan- legt að tæknilegur galli hafi leitt þá á villigötur. „Eðlisfræðingarnir hafa farið yfir þessa hluti, halda áfram að fara yfir þá og munu gera það enn á ný,“ sagði fjölmiðla- fulltrúi CERN sem er með aðal- stöðvar í Sviss. kjon@mbl.is Ljóshraðakenning Einsteins heldur líklega gildi sínu SVISS J.K. Rowling, höfundur barna- bókanna vinsælu um Harry Pott- er, hefur nú undirritað samn- ing við bóka- forlag um að skrifa sína fyrstu skáldsögu fyrir fullorðna. Fyrri bækur Rowling, sem er bresk og var óþekkt áður en Harry Potter kom til sögunnar, hafa selst í tug- milljónum eintaka um allan heim. kjon@mbl.is Rowling skrifar bók fyrir fullorðna J.K. Rowling BRETLAND Enn er leitað að líkum sjö manna sem saknað er eftir að skemmti- ferðaskipið Costa Concordia sökk undan ströndum ítölsku eyjunnar Giglio í janúar. Lík fimm ára stúlku fannst í fyrradag, faðir hennar fórst í slysinu. Sjö manns er enn saknað en 25 fórust með vissu er skipið strandaði. Um borð í Costa Concordia voru um 4.200 farþegar. Nú þykir sannað að skipstjórinn hafi verið ódrukkinn. kjon@mbl.is Sjö enn ófundnir í skipsflakinu ÍTALÍA Sjónvarpskappræður forsetaefna repúblikana í Arizona á miðvikudag báru þess glögg merki að Rick San- torum væri farinn að ógna mjög Mitt Romney sem talinn er líklegastur til að verða forsetaefni flokksins. Kosið verður í Arizona og Michigan nk. þriðjudag og er Santorum efstur í Arizona en í Michigan eru þeir jafn- ir, hann og Romney. Ný könnun á landsvísu sýnir á hinn bóginn að Santorum myndi tapa stórt fyrir Barack Obama for- seta en Romney og Obama yrðu nær jafnir ef kosið yrði núna. Romney reyndi ákaft að sýna fram á að Santorum, sem er fyrrver- andi fulltrúadeildarþingmaður, hefði ekki verið jafn stefnufastur íhalds- maður og hann lætur í veðri vaka. Santorum hefði m.a. stutt fjárveit- ingar til umdeildra ríkisfram- kvæmda. Púað var á Santorum þeg- ar hann sagðist hafa greitt atkvæði með dýru menntunarátaki jafnvel þótt það hefði verið „andstætt grundvallaratriðum sem ég trúi á“. kjon@mbl.is Sótt að Santorum í sjónvarpskappræðum  Romney með svip- að fylgi og Obama í nýrri könnun Reuters Slagur Þrír forsetaframbjóðendur, frá v. Ron Paul, Santorum og Romney. Rick Santorum er afkomandi ítalskra innflytjenda og kaþólskur. Hann höfðar sterkt til þeirra sem eru andvígir hjónabandi samkyn- hneigðra og fóstureyðingum. En aðrir benda á að haldi hann fast við þessi sjónarmið geti honum reynst afar erfitt að ná eyrum margra miðjumanna. Á hinn bóg- inn hefur Romney legið undir ámæli fyrir að skipta oft um skoð- un í umdeildum málum, allt eftir því hvernig vindar blása. Fólk viti því ekki hvar það hafi hann. Er Romney tækifærissinni? STEFNUFESTA OG SVEIGJANLEIKI Kristján Jónsson kjon@mbl.is Umskiptin í arabalöndunum hafa fengið mörg ríki til að endurskoða stefnu sína gagnvart þeim, ekki síst ríki sem hafa átt ábatasöm samskipti við einræðisherra sem ýmist eru fallnir eða á fallanda fæti. Svíar hafa lengi verið miklir vopnaútflytjendur, Bofors-fallbyssur og fullkomnar her- þotur frá Saab-verksmiðjunum hafa lengi verið eftirsóttar í herjum margra landa. Hátæknibúnaðurinn í þotunum er að vísu að mestu bandarískur að uppruna. En Svíþjóð er sjöunda stærsta vopnasöluríki heims þótt þar búi aðeins rúmar níu milljónir manna. Miðað við höfðatölu voru Sví- ar númer eitt árið 2010 og Norð- menn númer fimm, að sögn blaðsins Dagens Nyheter. Sænska þingið krafðist þess í fyrra að settar yrðu strangar reglur, einvörðungu seld vopn til lýðræðislanda. En lítið hefur orðið úr framkvæmdum. „Útflutningur á stríðstólum mun halda áfram þangað til þessi lög hafa verið sett,“ segir Anna Ek, formaður Sænsku friðarsamtakanna. Í kalda stríðinu voru sænskir stjórnmála- menn ákafir friðarboðendur um all- an heim. En menn settu kíkinn fyrir blinda augað þegar kannað var ástand lýðræðis og mannréttinda í löndum sem keyptu sænsk vopn. Svíar deila um vopnasölu  Þingið bannar sölu til einræðisríkja Dýr framleiðsla » Útilokað var fyrir Svía að halda uppi háþróaðri vopna- framleiðslu fyrir innanlands- markaðinn einan. » Þess vegna var stöðugt leit- að markaða erlendis. Dýr vopn Gripen-þotur frá Saab- verksmiðjunum í Svíþjóð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.