Morgunblaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.02.2012, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 ✝ Kristjana Guð-rún Benedikts- dóttir, Kidda, fæddist í Gler- árþorpi 29. sept- ember 1951. Hún lést á gjörgæslu- deild Landspít- alans 16. febrúar 2012. Foreldrar henn- ar eru Sigrún Að- alsteinsdóttir, f. 29. júlí 1930, frá Vaðbrekku í Hrafnkelsdal, og Benedikt Kristjánsson, f. 7. apríl 1922, d. 30. september 1976, frá Sand- gerðisbót í Glerárþorpi. Syst- kini Kristjönu eru: Ragnhildur, f. 1954, Bára, f. 1958, Víðir, f. 1959, og Sigrún, f. 1964. Hinn 7. apríl 1972 giftist Kristjana Eðvarði Jónassyni frá Brúarlandi í Svalbarðs- hreppi í Þistilfirði, f. 15. maí 1953, d. 30. maí 2009, og bjuggu þau lengst af í Arn- arsíðu 2b á Akureyri. Eðvarð Árið 1954 flutti Kristjana með foreldrum sínum og systur í húsið Jötunfell í Glerárþorpi. Barnaskólanám stundaði hún í Glerárskóla og fór síðan í Gagnfræðaskólann á Akureyri. Ung fór hún út á vinnumark- aðinn og stundaði ýmis störf á Akureyri og einnig saltaði hún síld á Raufarhöfn og Seyð- isfirði. Þá starfaði hún um tíma í eldhúsinu á Hólum í Hjaltadal og kynntist þar Eðvarði, eig- inmanni sínum. Eftir að syn- irnir þrír fæddust var hún um árabil heimavinnandi húsmóðir en fór síðan aftur út á vinnu- markaðinn þegar þeir voru orðnir stálpaðir. Meðal annars starfaði hún um tíma hjá Út- gerðarfélagi Akureyringa og á Strýtu. Frá árinu 2001 til 2009 starfaði Kristjana í ýmsum störfum í Hamri, félagsheimili Íþróttafélagsins Þórs. Árið 2009 fluttist hún búferlum til Reykjavíkur og starfaði á höf- uðborgarsvæðinu til dauða- dags, fyrst hjá HB-Granda, síð- an á Hrafnistu í Hafnarfirði og loks hjá HK – Handknattleiks- félagi Kópavogs. Útför Kristjönu fer fram frá Glerárkirkju í dag, 24. febrúar 2012, kl. 13.30. var sonur hjónanna Önnu Guðrúnar Jóhann- esdóttur, f. 2. júní 1920, d. 21. maí 1995, frá Gunn- arsstöðum í Þist- ilfirði, og Jónasar Aðalsteinssonar, f. 2. mars 1920, d. 19. apríl 2008, frá Hvammi í sömu sveit. Synir Krist- jönu og Eðvarðs eru Jóhann Benedikt, f. 22. nóvember 1976, sjómaður, búsettur á Ak- ureyri. Eðvarð, f. 24. febrúar 1981, vallarstjóri, sambýliskona hans er Elín Helga Hann- esdóttir. Þau eru búsett á Ak- ureyri. Sævar, f. 28. apríl 1983, nemi, búsettur á Akureyri. Barnabörn Kristjönu og Eð- varðs eru Harpa María Bene- diktsdóttir, f. 26. nóvember 1995, og Andrea Ylfa Bene- diktsdóttir, f. 21. september 1999. Það er oft talað um að lífið sé ekki sanngjarnt og það sannast með þessu. Það er mjög ótrúlegt að við þurfum að kveðja þig í dag, elsku mamma okkar. Þú varst allt- af svo hörkudugleg kona, alltaf að gera eitthvað og hjálpa öllum í kringum þig, ósérhlífin. Að Guð skuli kalla á þig svona unga frá okkur táknar bara eitt, Guð þurfti á þinni aðstoð að halda uppi hjá sér. Þú varst alltaf svo góð manneskja, góð við alla í kringum þig og hafðir svo gaman af því að sjá alla brosa í kringum þig. En þó þú sért farin frá okkur, munt þú lifa áfram með- al okkar bæði í hjarta okkar og eins í öllum þeim fallegu og góðu minn- ingum sem við eigum með þér. Margar þeirra eru úr öllum þeim skemmtilegu ferðalögum sem við fjölskyldan fórum í og líka allt sem við gerðum þegar við vorum að vinna fyrir íþróttafélagið Þór, en þar áttum við margar góðar stund- ir saman í Hamri. Eftir að pabbi dó og þú fluttir suður yfir heiðar til Reykjavíkur hittumst við ekki á hverjum degi eins og við gerðum, en þess í stað töluðum við saman í síma nánast á hverjum degi. Það skipti engu máli hvað klukkan var, t.d. þegar síminn minn hringdi upp úr miðnætti stundum, þá vissi mað- ur að þú varst að hringja, þá oft ný- komin heim úr vinnunni og bara til að spyrja hvernig dagurinn hefði verið og segja mér sögur úr þinni vinnu. Ekki verður meira um svona símtöl hjá okkur og mun ég sakna þess mikið. En nú ert þú farin frá okkur og nú tekur við nýr tími hjá þér þar sem þú og pabbi eruð sam- an á ný, takið dansinn saman af flottri innlifun, haldið áfram að gera það sem ykkur pabba þótti skemmtilegast, en það var að ferðast, og nú munuð þið saman svífa yfir heiminn og skoða hann saman. Í dag fylgjum við þér til hinstu hvíldar í hinum fallega kirkjugarði í Lögmannshlíð við hliðina á honum pabba okkar og viljum við kveðja þig með þessum fallegu orðum: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guð blessi minningu þína, þín verður sárt saknað. Eðvarð og Elín. Ó, blessuð stund, er burtu þokan líður, sem blindar þessi dauðleg augu vor, en æðri dagur, dýrðarskær og blíður, með Drottins ljósi skín á öll vor spor. (Wexels – þýð. Matthías Jochumsson) Elsku Kidda, nú ert burtu far- in. Þú varst stóra systir okkar og þannig munum við ætíð minnast þín . Söknuðurinn er sár en í fyll- ingu tímans munum við samein- ast að nýju og þá mun verða glatt á hjalla eins og ætíð þegar við komum saman. Skarðið sem höggvið er í systkinahópinn er að sönnu stórt en innan tíðar mun sorgin umbreytast í ljúfar minn- ingar og sannarlega af nógu að taka þar sem þú átt í hlut, elsku systir. Hvíldu í friði, kæra vinkona og hafðu þökk fyrir allar samveru- og gleðistundir á lífsleiðinni. Guð blessi minningu þína. Ást- arkveðja frá systkinum. Ragnhildur, Bára, Víðir og Sigrún. Ættmennum mínum í Jötun- felli kynntist ég fyrst þegar ég kom til náms við Menntaskólann á Akureyri. Í Jötunfelli átti ég at- hvarf, eins og svo mörg frænd- systkin á undan mér og eftir, enda voru þar allir velkomnir. Oft hef- ur hugurinn reikað norður til að rifja upp glensið í Jötunfelli, en nú er staldrað við á erfiðari tímum. Þótt oft liðu síðar mörg ár á milli var samt alltaf ánægjulegt að hitta Kiddu, hvort sem var úti á götu eða á ættarmóti. Þegar Kidda fluttist suður end- urnýjuðust gömul kynni. Við Kópavogsbúarnir áttum því láni að fagna að eiga hér með henni ánægjuleg kvöld og daga sem minntu mest á gamla glensið í Jötunfelli. Það var okkur mikil hvatning að sjá hvernig Kidda hafði unnið sig úr sínum missi og erfiðleikum og að finna hennar já- kvæðu afstöðu til lífsins og tilver- unnar. Þannig viljum við minnast Kiddu. Við Kristín, synir okkar og tengdadóttir sendum Sídu frænku, sonum Kiddu og systk- inum samúðarkveðjur. Gunnar Stefánsson. Það er svo margs að minnast á stundum sem þessum og nær ógjörningur að ætla að setja það niður í fáum orðum. Stórbrotin kona sem var vinur okkar allra og óhætt að segja að hafi verið fynd- in og uppátækjasöm frænka sem hélt alla tíð svo góðu og hlýju sambandi við okkur. Þegar við vorum lítil börn var heimili henn- ar oft samkomustaður fyrir okkur og minnist maður ófárra stunda sem æskufjör og barnaleikur fyllti Arnarsíðuna. Það var til- hlökkunarefni fyrir þau sem fjær bjuggu þegar Kiddu og Edda var að vænta enda ávallt ávísun á mikið fjör. Nærvera hennar var ævintýraleg og auðgaði ímyndun- arafl okkar sem börn og ekki síð- ur þegar við urðum eldri. Hún hafði notalegt viðmót og var bak- land fyrir okkur öll þegar við ux- um úr grasi og hvert svo sem leið- ir okkar lágu var viðkomustaður hjá henni. Þetta breyttist ekkert þegar börnin okkar tóku að koma í heiminn og mátti heyra sama til- hlökkunartón í þeim þegar orðin voru sögð, „Kidda frænka“. Í dag minnumst við konu sem í hugum okkar var allt í senn, frænka, ævintýri og mjúkur faðmur að hvíla í. Ævintýrið endalaust ótrúlega dæmalaust. Veiða lax í læknum heima leiða mig um hulduheima. Ævintýri æsku minnar er að minnast frænku sinnar. Alla tíð og því alls þakkar þína tíma, hennar krakkar. Dulúð fylgir dögun hverri, dropa tár á hvarma þerri. Yndisleg og einstök kona. Alltaf var hún Kidda svona. Ingunn, Hrafndís, Hafrún, Húni, Anna Marín, Sigrún Katrín, Benedikt K., Krist- ófer, Ragnar, Benedikt V., Katrín María, Magnús, Atli, Aðalsteinn og Agnes. Það fyrsta sem flaug í gegnum hugann er við fréttum af andláti Kiddu var sú mikla hlýja og góð- mennska sem hún lét ætíð í ljós í okkar garð. Alltaf þegar eitthvert okkar hitti Kiddu þá spurði hún frétta af fjölskyldunni okkar og bað um kveðjur góðar. Kidda var mikill Þórsari og var félaginu mikill fengur í þessari kjarnakonu. Hún var markvörður í handboltaliði Þórs til margra ára og stóð sig afar vel á þeim vett- vangi. Anna Gréta spilaði lengi með Kiddu og Steini sá um þjálf- unina og á þessum árum mynd- aðist mikill og góður vinskapur. Kidda var ein af fáum sem ávallt notuðu bæði nöfnin hennar Önnu Grétu og það þótti Önnu vænt um alla tíð. Kidda starfaði svo lengi í félagsheimili Þórs, Hamri, og var það okkur alltaf jafn ánægjulegt að koma þangað í opna arma Kiddu, sama hvort um var að ræða íþróttaviðburði eða veislur. Hlýlegt viðmótið, hjálpsemin og dugnaðurinn voru Kiddu eðlislæg og ávallt var stutt í húmorinn og hláturinn hjá þessari góðu konu. Við fráfall Edda fyrir tæpum þremur árum fóru í hönd erfiðir tímar hjá Kiddu enda vináttan og einlægnin á milli þeirra hjóna mikil. Nú eru þessi indælu hjón sameinuð á ný og geta þá glaðst þegar þau rifja upp gamlar og góðar stundir. Elsku Sída, Bensi, Eddi, Sævar og aðrir ástvinir. Ykkar missir er mikill og okkar hugur er hjá ykkur. Við sendum ykkur innilega samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum í ykkar lífi. Anna Gréta, Aðalsteinn, Sigurpáll Árni, Geir Kristinn, Heiðar Þór og fjölskyldur. Elsku Kidda mín. Það er erfitt að aðlagast þessum nýju aðstæð- um, þú varst nefnilega svo stór hluti af lífinu mínu. Að fara í heimsókn í Arnarsíðuna var alltaf gaman og ávallt var maður vel- kominn. Það er skrítið að í heimi þar sem margir milljarðar manna búa finn ég fyrir miklum ein- manaleika við fráfall eins. Ég vildi þakka þér fyrir þær stundir sem við áttum saman. Þrátt fyrir að þú sért farin á brott verða minningarnar alltaf til staðar. Skilaðu kveðju til Edda frá mér, þið eruð sjálfsagt í faðmlagi hvort annars núna, þar sem þið eigið heima. Kær kveðja, Benedikt (Bensi Báru). Hún kynnti sig sem Kiddu, áberandi harðmælt, þegar hún fór að sækja fundi hjá okkur Kjarnakonum, í Von, fyrir fáein- um árum. Okkur fannst það ágætt þar sem stundum voru tvær nöfnur hennar líka á fund- unum. Kidda lagði gott eitt til Kjarnakvenna, seldi með okkur álfinn og tók virkan þátt í okkar starfi. Það var aðdáunarvert hvað hún Kidda var kraftmikil og rösk. Hún lét sig ekki muna um að skreppa norður, kannski helgi eftir helgi og stundum jafnvel skutlast á Egilstaði líka. Fyrir norðan voru enda ræturnar, móð- ir hennar og synirnir sem voru henni svo kærir, ömmustelpurn- ar tvær og stór frændgarður og vinir. Í haust brá Kidda svo undir sig betri fætinum einu sinni enn og heimsótti Austurlönd fjær. Framundan voru svo fleiri ferða- lög og áhugaverð viðfangsefni. Hún var engan veginn farin að gera ráð fyrir að setjast í helgan stein, nýkomin í draumavinnuna þar sem hún var á heimavelli inn- an um ungt íþróttafólk. Svo er hún bara, allt í einu, horfin á vit almættisins. Við sitjum eftir agn- dofa en þakklátar fyrir að leiðir Kiddu og okkar sköruðust um stund. Gengin er góð kona, sem við eigum eftir að sakna og minn- ast. Samúð okkar er hjá móður hennar, sonum, tengdadóttur og öðrum ástvinum. Blessuð sé minning Kristjönu Guðrúnar Benediktsdóttur. Kjarnakonur SÁÁ, Reykjavík. Sú harmafregn barst okkur á fimmtudagsmorgni fyrir rúmri viku að þú hefðir yfirgefið þetta jarðlíf. Kona á besta aldri. Það er víst aldrei spurt að því. Við mæðgur minnumst þín með hlýju og þakklæti fyrir þá góðvild sem þú sýndir okkur báðum. Þegar þú starfaðir í Hamri, fé- lagsheimili íþróttafélagsins Þórs, voru samskipti okkar mikil og góð. Aldrei bar skugga á. Það vill svo til að það eru ekki bara for- eldrar sem ala upp börn heldur þarf heilt þorp í verkið. Það þarf að hlúa að einstaklingum á öllum viðkomustöðum svo þeir verði að góðum borgurum. Við erum afar þakklátar fyrir þinn þátt í okkar lífi. Hvíl í friði, elsku Kidda. Kæru bræður Bensi, Eddi og Sævar, Sída og aðrir aðstandend- ur, megi Guð vera með ykkur og styrkja í sorginni. Hanna Dóra Markúsdóttir og Rakel Hönnudóttir. Kristjana Guðrún Benediktsdóttir  Fleiri minningargreinar um Kristjönu Guðrúnu Bene- diktsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ SvanhildurBára Alberts- dóttir fæddist í Reykjavík 2. ágúst 1927. Hún lést á Droplaugarstöðum 12. febrúar 2012. Foreldrar henn- ar voru Albert Sig- urðsson verkamað- ur, f. 8.5. 1882, d. 25.2. 1951 og Jón- ína Jónsdóttir verkakona og húsfreyja, f. 14.10. 1890, d. 25.2. 1972. Svanhildur Bára var yngst 5 systkina sem öll eru látin. Systkini Svanhildar voru; Jón Albertsson sjómaður, f. 20.2. 1916, d. 7.4. 1977. Unnur G.E. Albertsdóttir, f. 6.8. 1917, d. 10.2. 1976. Anna Alberts- dóttir, f. 16.5, 1920, d. 22.11. 1920. Magnea Alberts- dóttir, f. 1.3. 1924, d. 5.9. 2009. Barnsfaðir Svan- hildar Báru var Birgir Sigmundur Bogason, f. 16.11. 1935, d. 29.11. 1990. Sonur þeirra er Albert Birg- isson, f. 10.9. 1957. Útför Svanhildar Báru fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 24. febrúar 2012 og hefst athöfn- in kl. 15. Elsku Bára frænka, sorg mín og söknuður var mikill þegar ég frétti af andláti þínu. Með sorg- inni kom þakklæti yfir að þraut- um þínum skuli loksins vera lokið og þú komin til Guðs og allra þeirra sem þú elskaðir. Mig dreymdi Magneu systur þína nóttina sem þú lést og nú veit ég að hún var að koma að sækja þig. Eins sárt og það er að kveðja veit ég að við hittumst öll á ný. Frá því ég var barn vissi ég að þér þótti vænt um mig og var það gagnkvæmt. Eftir að faðir minn lést af slysförum þegar ég var barn, kom Bára til okkar mömmu og bjó hjá okkur í nokkur ár. Ég á góðar minningar um hana, þegar hún spilaði á gítarinn og söng fyr- ir mig, seinna börnin mín og svo barnabörn. Ég man hvað James klappaði af gleði. Bára frænka saumaði alltaf svo falleg dúkkuföt á dúkkuna mín að ég var mikið öf- unduð af vinkonum mínum. Æska hennar var erfið, fátækt og veikindi. Bára ólst upp í kreppunni þegar fólk átti ekki neitt. Hún var yngst 5 systkina og þegar hún var 3ja ára gömul veiktist hún alvarlega af lömun- arveiki. Ömmu Jóninu dreymdi draum þegar hún var ung kona. Hana dreymdi að hún ætti 5 fal- lega fugla en þá kom hundur og beit eitt barnið í fótinn. Hún réð þann draum svo að hún ætti eftir að eignast 5 börn og yrði eitt þeirra fatlað. Magnea systir Báru var alltaf hennar stoð og stytta í lífinu og bar hún systur sína oft á bakinu í leikjum þeirra systkina. Bára vann úti meðan hún gat en hún var mikill sjúklingur alla tíð. Ég man þegar ég var lítil stelpa og þær systurnar unnu báðar í sælgætisverksmiðjunni Freyju, þá kom ég oft að sníkja sælgæti. Bára frænka mín var falleg kona, bein í baki og alltaf vel til höfð, einnig á Droplaugastöðum þar sem hún var síðustu æviár sín. Amma, Bára og Magnea systir hennar bjuggu saman þar til amma Jónina lést. Eftir það héldu þær systur saman heimili í Álftamýri 30, en þá íbúð keyptu þær saman. Ég man enn hvað ég var spennt og glöð þegar þær keyptu sína fyrstu íbúð. Albert, sonur Báru hefur verið móður sinni mikill styrkur síðustu árin, sérstaklega eftir að Magnea lést. Ég man líka vel eftir því hve Bára var stolt þegar Albert fæddist, stór og myndarlegur strákur með ljósar krullur. Þegar ég heimsótti Báru á Droplaugastaði sá ég hvað hún ljómaði alltaf þegar hún sá Albert son sinn. Hafdís dóttir Magneu hefur líka verið dugleg að heimsækja frænku sína síð- ustu árin. Með Báru fer eldri kynslóðin í móðurfjölskyldunni minni. Ég kveð elskulega frænku mína Báru með sorg og söknuði og bið algóðan Guð að styrkja Albert. Elsku Alli, Haddý og fjölskylda, ég og mín börn og barnabörn sendum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Megi Guð vera með ykkur öllum. Þín líknarásjón lýsi í dimmum heimi. Þitt ljósið blessað gef í nótt þig dreymi. Í Jesú nafni vil ég væran sofa og vakna snemma þína dýrð að lofa. (Matthías Jochumsson) Jónina E. Waltersdóttir. Elsku Bára, loksins fékkstu hvíldina þína. Mig langaði til að þakka þér fyrir allan þann tíma sem við áttum saman. Þú hafðir alltaf tíma fyrir mig og máttir alltaf vera að því að spila við mig og alltaf gastu fundið tíma til að grípa í gítarinn og spila og syngja nokkur lög. Þú meira að segja reyndir að kenna mér á gítarinn góða en ég náði aldrei almenni- lega tökum á því. Einna minnis- stæðast er mér þegar ég var hjá þér og þú leyfðir mér alltaf að róta og skoða í skartgripaskrín- inu þínu. Þvílíkur fjársjóður sem maður fékk að komast í. Í dag leyfi ég dóttur minni stundum að róta og skoða svona og það sem henni finnst það gaman. Litla frænka þín sem alltaf gat kallað fram bros hjá þér. Henni fannst alltaf svo gaman að fara til Báru frænku, sjá fiskana og fá að leika með Tomma. Takk fyrir allt saman, elsku Bára mín, þín verður sárt saknað en nú ertu komin til ömmu og allra systkinanna. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þar til við hittumst aftur. Magnea (Magga litla) Svanhildur Bára Albertsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.