Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 2

Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Útför Jóns Þórarinssonar tónskálds var gerð frá Dómkirkjunni í Reykja- vík í gær að viðstöddu fjölmenni. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir jarðsöng og organisti var Kári Þormar. Við útför- ina voru flutt lög eftir Jón og lög sem hann hafði útsett. Líkmenn voru Magnús Þór Magnússon, Sigurður Nordal, Sveinn Einarsson, Helgi Hall- grímsson, Karólína Eiríksdóttir, Árni Harðarson, Jakob Frímann Magn- ússon og Egill Eðvarðsson. Útför Jóns Þórarinssonar Morgunblaðið/Sigurgeir S. Í ljósi reynslu Fjármálaeftirlitsins af þeirri leið sem var valin við yfirtökuna á SPRON í mars 2009 var önnur leið valin við yfirtökuna á Byr sparisjóði og Sparisjóðnum í Keflavík í apríl 2010. Kemur þetta fram í skriflegu svari frá Sigurði G. Valgeirssyni, upplýsinga- fulltrúa Fjármálaeftirlitsins (FME). Spurt er hvort það hafi verið mistök af hálfu FME að setja skuldir við Frjálsa fjárfestingabankann og SPRON í fé- lagið Dróma. Ókosturinn við aðferðina sem var notuð við yfirtökuna á SPRON er að rof varð á viðskiptasambandi viðskiptavina SPRON. Svarið frá Fjár- málaeftirlitinu hljóðar svo: „Það var 21. mars 2009 sem FME ákvað á grundvelli heimilda sinna skv. neyðarlögunum að yfirtaka vald stjórnar og hluthafafundar í SPRON og skipa honum skilanefnd. Þá ákvað FME að flytja hæfar innstæður SPRON til Arion banka, eftir að hafa haft samráð við skilanefndina, kröfuhafa, Seðlabanka Íslands og fjár- málaráðuneytið, til að tryggja innstæðueigendum aðgang að innstæðum sínum. Þá ákvað FME að SPRON skyldi stofna sérstakt hlutafélag, sem fékk nafnið Drómi ehf., að fullu í sinni eigu sem myndi yfirtaka allar eignir SPRON, þar með talin veðréttindi og ábyrgðir. Drómi tók einnig yf- ir skuldbindingar SPRON gagnvart Arion vegna flutnings á innstæðum og skyldi gefa út skuldabréf til Arion sem samsvaraði yfirteknum innstæðukröfum með veði í öllum eignum félagsins ásamt hlutafjáreign SPRON í Dróma, hið svokallaða SPRON-skuldabréf. Með framangreindri leið var komist hjá framkvæmd á verðmati á yfirteknum eignum sambærilegu því sem þá stóð yfir í mars 2009 vegna yfirtekinna eigna viðskipta- bankanna. Einnig mun hafa verið horft til þess að ríkis- sjóður sparaði sér umtalsverða fjármuni í eiginfjár- framlagi miðað við t.d. að nota sömu aðferð við ráðstöfun á innlánum og eignum og beitt var varðandi stóru bankana þrjá. Ókosturinn við framangeinda aðferð var hins vegar sá að rof varð á viðskiptasambandi viðskiptavina SPRON. Í ljósi reynslunnar af þessari leið var önnur leið valin við yf- irtökuna á Byr sparisjóði og Sparisjóðnum í Keflavík í apríl 2010.“ ingveldur@mbl.is Reynslan af Dróma  Leiðin sem FME notaði við yfirtöku SPRON gaf ekki góða raun  Rof varð á viðskiptasambandi viðskiptavina SPRON Sigurður G. Valgeirsson Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Inflúensan er enn í sókn hér á landi og hafa komur á heilsugæslu- stöðvar og á Læknavaktina verið með meira móti undanfarnar vik- ur. Fæst inflúensutilfelli rata inn á spítalana sem þó hafa séð mikið annríki undanfarið, bæði vegna umgangspesta og vegna annarra heilsufarsvandamála landsmanna. Á Læknavaktinni í Kópavogi, sem opin er um helgar og á kvöld- in virka daga, hefur síðastliðnar vikur þurft að kalla út viðbót- armannskap til að anna öllum þeim sjúklingum sem sótt hafa þjón- ustuna. Viðmiðið er hálf klukku- stund, sé biðtíminn orðinn lengri er fleiri læknum bætt á vaktina. Mikil fjölgun á fjórum vikum „Það hafa verið að koma til okk- ar yfir 200 manns á einum degi en það eru tölur sem við sjáum mjög sjaldan,“ segir Gunnar Örn Jó- hannsson, framkvæmdastjóri Læknavaktarinnar. Hann segir inflúensuna vissulega spila þarna inn í, tilfellum hafi fjölgað mikið síðastliðnar vikur en greind tilfelli hennar hjá Læknavaktinni voru 12 þriðju viku ársins og 104 vikuna 12.-18. febrúar. Samúel J. Samúelsson, yfirlækn- ir heilsugæslunnar í Mjódd, segir aðsókn á stöðina hafa verið stífa undanfarinn mánuð. Starfsfólk sé ekki nógu margt til að anna eftir- spurninni, bið sé eftir tímum og alltaf fullt á svokallaðri síðdegis- vakt frá kl. 16-18. „Það sem kemur inn til okkar á heilsugæslustöðina eru ekki bráða- pestir og slíkt, það fer nánast allt á Læknavaktina og á síðdegisvakt- ina,“ segir Samúel. „Það sem við sjáum eru kvefpestir, eitt og eitt inflúensutilfelli og fylgikvillar inflúensuveikinda; eyrnabólgur, eitt og eitt lungnabólgutilfelli, kinnholubólgur og slíkt,“ segir hann. Fylgjast náið með Hiti, höfuðverkur, beinverkir og önnur vanlíðan eru fylgifiskar hinnar leiðigjörnu inflúensu en ein- kenni hennar geta þó verið mun verri. Nokkrir dvöldu í einangrun á Landspítalanum síðustu helgi vegna flensunnar en að sögn El- ísabetar Benedikz, yfirlæknis á bráðadeild Landspítalans, hefur hennar ekki orðið mikið vart á spítalanum. „Við höfum ekki séð mikið af flensunni nema kannski á barna- deildinni. Það eru ekki nema verstu tilfellin sem koma hingað og ef flensan er mild koma til- tölulega fáir,“ segir hún. Þótt nokkrir hafi verið lagðir inn á spít- alann vegna hennar í vetur megi kenna mikinn mun frá því þegar t.d. svínaflensan geisaði 2009-2010. Vel er fylgst með inflúensunni og fær Landlæknisembættið raf- rænar og sjálfvirkar tilkynningar frá heilsugæslunni um greind til- felli hennar. Guðrún Sigmunds- dóttir, yfirlæknir á sóttvarnasviði embættisins, segir að flensan sé enn að sækja í sig veðrið. „Ég get ekki séð að toppinum hafi verið náð en það ætti að sjást í næstu viku hvort við séum að ná hámarki,“ segir hún. Inflúensan sækir enn í sig veðrið  104 tilfelli greind á Læknavaktinni í síðustu viku  Meira en 200 heimsóknir á dag  Bið eftir tímum og alltaf fullt á síðdegisvakt heilsugæslunnar í Mjódd  Fá tilfelli inn á borð spítalanna Morgunblaðið/Ómar Flensa Bólusett við inflúensu. Mikill erill hefur verið á Sjúkra- húsinu á Akureyri undanfarna daga en Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga og framkvæmdastjóri handlækn- ingasviðs, segir þó ekki bara flensunni um að kenna. „Það hefur orðið mikil aukn- ing, sérstaklega í bráðaþjónust- unni, og það voru t.d. mjög margir lagðir inn um síðustu helgi, bæði með hjartavandamál og önnur vandamál,“ segir hann. Nánast öll rúm á spítalanum hafi verið full og fleiri viljað kom- ast að en gátu með góðu móti. Mikið annríki á Akureyri VEIKINDI Komdu þér í gang! l 2ja vikna námskeið 5x í viku í tækjasal með persónulegri leiðsögn og aðhaldi l Tilvalið að mæta með vinkonunum – hámark 6 í hóp l Leiðbeiningar um mataræði l Mæling og vigtun í byrjun og enda námskeiðs Verð aðeins kr. 10.000. Barnagæsla - Leikland JSB Velkomin í okkar hóp! telpurS onuK r Staðurinn - Ræktin Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Stutt og strangt Skráning alltaf í gangi í síma 581 3730! Frjáls aðgangur að opna kerfinu og tækjasal S&S stutt ogstrangt E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Íslenski pilturinn sem beið bana í bíl- slysi í Tansaníu síðastliðinn laugar- dag hét Gunnar Örn Gunnarsson. Hann var 19 ára gamall. Samkvæmt upplýsingum frá fjöl- skyldu Gunnars voru tildrög slyssins þau að tvær stórar jeppabifreiðir, önnur full af farþegum, skullu saman á sveitavegi skammt frá bænum Kikatiki, í nágrenni við Kilimanjaro- þjóðgarðinn. Í fyrstu var talið að danskur félagi Gunnars Arnar væri einn alvarlega slasaður, en hann kast- aðist út úr bílnum og varð undir hon- um. Í kjölfarið kviknaði í eldsneyti sem lak úr bifreiðunum og tókst Gunnari Erni, með hjálp annars vinar síns, að draga félaga sinn undan flak- inu og slökkva eldinn. Meðan beðið var eftir hjálp með þyrlu hneig Gunnar Örn skyndilega niður og missti skömmu síðar meðvit- und. Þegar læknar loks komu á slys- staðinn var ljóst að hann var með al- varleg höfuðmeiðsl og miklar innvortis blæðingar sem ógjörningur reyndist að stöðva. Hann lést áður en komið var á sjúkrahús. Gunnar Örn, sem bjó með fjölskyldu sinni í Hels- ingborg í Svíþjóð, var á heimleið með tveimur dönskum vinum sínum eftir að þeir höfðu gert atlögu að tindi Kili- manjaro. Tveimur þeirra var snúið við vegna veikinda skammt frá tind- inum en Gunnar Örn komst einn alla leið. Hann var enda vel á sig kominn; vel kunnur í hópi hjólabretta- og snjó- brettaiðkenda fyrir framúrskarandi hæfni og Íslandsmeistari í hnefaleik- um í sínum flokki þegar hann lést. Lést eftir árekst- ur jeppabifreiða Gunnar Örn Gunnarsson  Náðu að draga félaga sinn undan bílflaki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.