Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 4
8.700
Stofnkostnaður Vaðlaheiðarganga
án vsk. í milljónum króna.
36.000
Varlega áætlaðar skatttekjur af sölu
bensíns og dísels í ár í milljónum kr.
‹ Á VIÐ FERN GÖNG ›
»
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verð á lítra af bensíni og díselolíu
mun lækka í u.þ.b. 200 kr. ef tillögur
þingflokks Sjálfstæðisflokksins um
tímabundna lækkun á álögum á elds-
neyti ná fram að ganga. Tillögurnar
eru lagðar fram í frumvarpi til laga
um „ráðstafanir til að lækka elds-
neytisverð“ og eiga lögin að gilda frá
1. apríl til 31. desember á þessu ári.
Frumvarpið kveður annars vegar
á um tímabundnar breytingar á lög-
um um olíugjald og kílómetragjald
og hins vegar um breytingar á lögum
um vörugjald af ökutækjum, elds-
neyti o.fl. Útfærslan er útskýrð í
krónum talið í kortinu hér fyrir ofan
en tekið skal fram að ekki er boðið
upp á nákvæma sundurliðun á álög-
um á dísellítranum í frumvarpinu. Er
hér látið ógert að geta í eyðurnar
þegar díselolían er annars vegar. Má
þó taka fram að lækkunin sem sjálf-
stæðismenn leggja til hefur þau áhrif
að höfuðstóll álagningar lækkar þeg-
ar virðisaukaskattur er lagður á
bensín- og dísellítrann, líkt og fram
kemur á kortinu, og eykur það áhrif
tillögunnar.
Verðið hefur síðan hækkað
Þá skal tekið fram að verð á bens-
íni hefur hækkað síðan frumvarpið
var skrifað og var algengt verð á
bensínlítranum 250,2 krónur í gær en
255,8 krónur fyrir dísellítrann.
Að óbreyttu hefði lækkunin sem
sjálfstæðismenn leggja til þau áhrif
að verð á bensíni og díselolíu yrði ríf-
lega 200 krónur á lítrann en ekki um
200 kr. eins og nú er gengið út frá.
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að órói í Mið-Austurlöndum og
miklir kuldar í Evrópu í vetur hafi
leitt til mikillar óvissu um þróun elds-
neytisverðs í heiminum. Þessi óvissa
komi fram í hækkun olíuverðs á
heimsmarkaði og þar með innflutn-
ingsverði hér á landi.
Hlutur eldsneytis í neyslu heimila
sé nú á bilinu 7%-8%. Að teknu tilliti
til eldsneytisverðs muni ráðstöf-
unartekjur skerðast og einkaneysla
minnka. Það komi aftur niður á
neyslu annarra vörutegunda.
„Fyrrnefnd óvissa hefur þrýst
verði upp á við tímabundið og þegar
hún minnkar á ný mun verð lækka
aftur. Slík sveifla getur skaðað at-
vinnulífið og valdið varanlegum
skemmdum sem sitja eftir þegar
verð lækkar á ný,“ segir í greinar-
gerðinni. Með því að lækka álögur á
eldsneyti muni stjórnvöld örva hag-
vöxt, auka ráðstöfunartekjur og leiða
beint til lækkunar vísitölu neyslu-
verðs, sem aftur muni lækka höf-
uðstól verðtryggðra lána.
Tugir milljarða til ríkisins
Vikið er að þeirri spá í fjárlaga-
frumvarpi ársins 2012 að meðalverð
á bensíni verði 240 kr. á þessu ári og
244 kr. á díselolíu. Áætluð sala á
bensíni á tímabilinu sem lækkunin á
að ná til, frá 1. apríl til 31. desember,
sé 150 milljónir lítra. Olíufélögin spái
því að meðalverð á bensíni verði
hærra eða 248 krónur á tímabilinu.
Höfundar frumvarpsins telja að
hækkunin dragi úr eftirspurn eftir
bensíni og að hún fari því úr 150
milljónum lítra í spá fjárlagafrum-
varpsins niður í 147 milljónir lítra.
Minni eftirspurn er ekki talin vega
upp á móti hærra olíuverði og er
áætlað í greinargerðinni að tekjur
ríkisins af sölu á bensíni verði 17,5
milljarðar en ekki 17,3 ma. eins og
áætlað var frá 1. apríl til 31 des.
Svipað er upp á teningnum þegar
díselolía er annars vegar en spár
olíufélaganna kveða þar á um 260 kr.
meðalverð á díselolíu, borið saman
við þá áætlun fjárlagafrumvarpsins
að meðalverð verði 244 kr. Er jafn-
framt áætlað í greinargerðinni að sal-
an á díselolíu verði 86 milljónir lítra
og því fjórum milljónum lítra minni
en ætlað er í fjárlagafrumvarpinu.
Líkt og með bensínið er gengið út frá
því í fjárlagafrumvarpinu að minni
notkun vegi ekki upp á móti hærra
verði og þar með hærri skatttekjum
sem eru áætlaðar 10,7 milljarðar og
er það 200 milljónum kr. meira en í
frumvarpinu.
Hátt í 30 milljarðar í skatt
Séu skatttekjur af bensíni eins og
þær eru áætlaðar í greinargerðinni
(17.500 milljónir) og díselolíunni
(10.700 milljónir) lagðar saman er
heildartalan 28.200 milljónir króna
frá 1. apríl nk. til 31. des. nk.
Það jafngildir 3.133 milljónum
króna á mánuði eða 37.600 milljónum
króna á árinu öllu, séu sömu for-
sendur yfirfærðar á fyrstu þrjá mán-
uði ársins. Bensínverð hefur farið
stighækkandi á árinu og er hin um-
reiknaða heildartala því líklega of há.
Sé hún lækkuð niður í 36.000 millj-
ónir króna er meðaltalið komið niður
í 3.000 milljónir á mánuði eða 4,1
milljón kr. á tímann, allt árið.
Lækki bensínlítrann í 200 krónur
Sjálfstæðisflokkurinn leggur til tímabundna lækkun á álögum á eldsneyti síðustu níu mánuði árs-
ins Áætlar að ríkið fái 28.200 milljónir í skatttekjur af eldsneyti á sama tímabili þótt umferð minnki
Eldsneytiskostnaður fjölskyldubíls
2009
Kostnaður á ári m.v.
eldsneytisverð í febrúar
2012
Kostnaður á ári m.v.
eldsneytisverð í febrúar
289.000 kr.
494.000 kr.
Þar af skattar:
153.000 kr.
Þar af skattar:
239.000 kr.
Áhrif á ráðstöfunartekjur heimilis: -205.000 kr.
Skv. tölum frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda
Heimild: Sjálfstæðisflokkurinn
*Nýr skattur, lagður á um áramótin 2010/2011 **Lækkunin er til bráðabirgða, frá 1. apríl 2012 til 31. desember 2012 ***Lægsta uppgefið verð á vefsíðunni gsmbensin.is í gær
****Áætlaðir skattar miðað við útreikninga Sjálfstæðisflokksins
Bensínverð
= innkaupsverð + flutningar, tryggingar og álagning + almennt
bensíngjald + sérstakt bensíngjald + kolefnisgjald + VSK
Olíuverð
= innkaupsverð + flutningar, tryggingar og álagning + olíugjald
+ kolefnisgjald + VSK
246,89 kr.
~200 kr.**
255,8 kr.***
~200 kr.**
Alm.bensíngjald
24,46 kr.
(skv. tillögu: 4 kr.)
Sérst. bensíngjald
39,51 kr.
(skv. tillögu: 28,51 kr.)
Kolefnisgjald*
5 kr.
Virðisaukaskattur
50,17 kr.
Skattar alls: 119,5 kr. (48,42%)****
Kolefnisgjald*
5,75 kr.
Olíugjald
54,88 kr.
(skv. tillögu: 19,88 kr.)
Ti
lla
ga
sj
ál
fs
tæ
ði
sm
an
na
Ti
lla
ga
sj
ál
fs
tæ
ði
sm
an
na
Morgunblaðið/Kristinn
Á Miklubraut Þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja að lækkunin muni örva ferðaþjónustu innanlands í sumar.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir að undanförnu í ál-
veri Rio Tinto Alcan í Straumsvík en um er að ræða
fjárfestingarverkefni sem ætlað er að auka afköst ál-
versins, breyta framleiðsluferli þess og endurnýja verð-
mætan tækjabúnað. Kostnaður vegna þessa verkefnis er
umtalsverður, tæpir 60 milljarðar króna.
„Þetta eru í raun þrjú atriði; Að breyta aðveitustöð-
inni, hækka strauminn í núverandi kerskálum og breyta
framleiðslunni,“ segir Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto
Alcan á Íslandi, og bætir við að þannig megi auka fram-
leiðslugetu um 20%.
Segir hún einnig að í stað barra verði framleiddir svo-
kallaðir boltar, sívalar stangir, sem eru mun verðmætari
afurð. „Sá markaður er stækkandi í Evrópu. Þetta er
flóknari framleiðsla sem krefst meiri vélbúnaðar og sér-
hæfingar. Við höfum staðið okkur vel í afhendingu til
viðskiptavina og þeir vilja hafa okkur sem fyrsta kost.
Þess vegna er okkur treyst til þess að fara yfir í þessa
flóknu framleiðslu sem gefur meiri virðisauka,“ segir
Rannveig.
Framkvæmdirnar, sem hófust árið 2010, eru gerðar
samhliða reglulegri framleiðslu álversins og kveðst
Rannveig bjartsýn á að þeim ljúki á áætlun árið 2014.
„Auðvitað er vandasamt að gera þetta í verksmiðju sem
er í rekstri en við erum á því að við náum að ljúka þessu
á tilsettum tíma.“ khj@mbl.is
Framkvæmdir við álverið í
Straumsvík eru á áætlun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Breytingar Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í
Straumsvík frá árinu 2010 og mun þeim ljúka 2014.
Kostnaður vegna verkefn-
isins nemur um 60 milljörðumtelpurS onuK r
Staðurinn - Ræktin
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
HotYoga
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
Farið í gegnum röð af yogastöðum í heitum sal.
Teygjanleiki vöðvanna aukinn, mikill sviti og vellíðan.
6 vikna námskeið - Þriðjudaga kl 18:30 og föstudaga kl 16:30.
Kennari: Gyða Kristinsdóttir.
Verð kr. 14.900.
Velkomin í okkar hóp!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
NÝTT!
Gyða með HotYoga
Ný námskeið að hefjast
innritun í síma 581 3730