Morgunblaðið - 24.02.2012, Side 6

Morgunblaðið - 24.02.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 „Það vantar alla kvóta. Það er engin spurning. Fiskveiðarnar ganga mjög vel á hvaða veiðarfæri sem er og margir eru langt komnir með sína kvóta í sumum tegundum. Það er að sjálfsögðu gott mál þegar menn veiða vel,“ segir Björn Jóns- son hjá kvótamiðlun Lands- sambands íslenskra útvegsmanna. Segja má að leigumarkaður afla- heimilda sé frosinn við þessar að- stæður. Engin útgerð er reiðubúin að leigja frá sér aflaheimildir þegar aflabrögðin eru svona góð og verðið á leigukvóta fer þ.a.l. upp úr öllu valdi. Á kvótamarkaðinum má sjá að leiguverð á þorski er nú komið í 330 krónur á kílóið og eftirspurn er eftir ýsu á 230 kr/kg svo dæmi séu nefnd. Björn segir að fréttir berist af feikilega góðum aflabrögðum, minni línubátar séu að koma með 10 tonn úr róðri og menn leggja þorskanetin á morgnana og draga þau upp strax eftir hádegið. Þar sem nær ómögu- legt hefur reynst að fá tegundir leigðar hafa menn reynt að útvega sér heimildir á skiptimarkaði. „Það er mest spurt eftir ýsu,“ segir Björn. „Ég tók stöðuna í jan- úar og bar hana saman við ástandið í fyrra. Þá sést til dæmis að tog- ararnir hafa stóraukið sína ýsuveiði miðað við veiðina í fyrra og hlut- fallslega langtum meira en aðrir. Aflamarksbátarnir eru á svipuðu róli og í fyrra en lítilsháttar aukning varð hjá krókatrillunum,“ segir hann. „Menn vantar ýsu en það er líka eftirspurn eftir karfa og ufsa svo dæmi séu nefnd.“ omfr@mbl.is Ekkert leigt af fiski  Aflabrögðin mjög góð og ekkert framboð á kvóta á leigu- markaði  Mikil eftirspurn eftir ýsu og leiguverð er hátt Morgunblaðið/Ómar Leiga Mest er spurt eftir ýsu, en nánast er frost í þeim viðskiptum. fiskurinn var fyrr á ferðinni þar en venjulega, ágætis fiskur. Þar var lengst ekkert æti í fiskinum, hverju sem það sætir, en hins veg- ar urðum við varir við makrílhrafl í Flóanum. Við lögðum líka utan við Þorlákshöfn og þar var bæði síld og loðna á ferðinni.“ Þeir á Kristbjörginni hafa yf- irleitt landað á tveggja-þriggja daga fresti. Þeir voru í Eyjum í gær, enda bræla á miðunum. Magnús reiknaði með að fara út í kvöld og leggja netin þá austan við Eyjar í þeirri von að fiskurinn sé kominn á hefðbundin mið Eyja- báta. Stýra veiðunum Arnfinnur Antonsson, hafnar- vörður í Grindavík, sagði vertíðina áþekka og í fyrra. Þar landa um 20 bátar, minni bátar í dagróðrum, ýmist með línu, net eða á dragnót. Stóru línubátarnir eru á útilegu og koma inn vikulega eða eftir því hvernig fiskast. Iðulega hafa þeir komið inn fyrr en áætlað var. „Besti tíminn hefur yfirleitt ver- ið frá miðjum febrúar fram að hrygningarstoppi um 10. apríl. Síðustu vikur hefur þetta yfirleitt verið ágætt hjá öllum, en menn þurfa að stýra veiðunum með tilliti til kvótastöðu og einstakra teg- unda. Á netunum hafa menn að- eins sparað sig og koma þá með þeim mun betra hráefni í vinnsl- una. Beitningabátarnir hafa oft fengið 13-14 tonn á línuna á dag, svo það er ekki hægt að kvarta. Landburður af fiski „Hér um slóðir er þetta ekki flókið, það er landburður af fiski og hér hefur fiskast vel í margar vikur,“ sagði Friðbjörn Ásbjörns- son í Ólafsvík í gær, en hann er aðstoðarframkvæmdastjóri Fisk- markaðar Íslands. „Það þykir ekki lengur frétt að menn fylli bátana á skömmum tíma. Það er helst fréttaefni ef illa fiskast og eins ef menn sjá háhyrning eða for- vitnilega fugla. Margir eru bara með 2-3 trossur og koma samt með yfir 10 tonn að landi. Veðrið hefur verið að lagast, fiskurinn er vel haldinn og ekki yfir neinu að kvarta nema of litlum kvóta. Það er ekki eftir neinu að bíða með að bæta hressilega í bæði þorsk- og ýsukvóta.“ Friðbjörn segir að verð á óslægðum þorski hafi verið um 300 krónur fyrir kílóið undanfarið. Morgunblaðið/RAX Löndun Í gær var hátt í 90 tonnum landað úr Fjölni SU 57 í Grindavík og rúmlega 100 tonnum úr Sighvati GK 57 í fyrradag. Þessir stóru línubátar, sem Vísir gerir út, eru á útilegu og landa yfirleitt vikulega. Helst fréttaefni ef illa fiskast  Þrælgóður afli og vertíðin á ekki að vera byrjuð  Ekki eftir neinu að bíða með að bæta hressilega við kvótann Morgunblaðið/Alfons Landburður Pétur skipstjóri og hans menn á Bárði SH hafa aflað vel í vetur. Víða á Snæfellsnesi verða menn að spara sig vegna erfiðrar kvótastöðu. BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Það hefur verið þrælgóður afli og vertíðin á ekki að vera byrjuð,“ sagði Vignir Júlíusson, hafn- arvörður á Höfn í Hornafirði, í gær. Hljóðið var sömuleiðis gott í þeim sem rætt var við í Vest- mannaeyjum, Grindavík og Ólafs- vík. Góður gangur í veiðum og eina áhyggjuefnið var kvótastaðan og „ekki eftir neinu að bíða með að bæta hressilega í“, sagði einn við- mælandinn í þessu bryggjuspjalli. Frá Höfn eru fjórir stórir bátar á netum, Þórir, Skinney, Hvanney og Sigurður Ólafsson. Þeir hafa mest verið á Hálsunum undan Suðursveitinni og gengið vel. Tvíréttað hjá þorskinum „Það hefur verið fínasta veiði í netin og þorskurinn vel haldinn,“ segir Vignir á Höfn. „Einhver sagði að hann hefði síld í forrétt og loðnu í aðalrétt. Bátarnir hafa iðulega komið með um og yfir 20 tonn eftir daginn í sjö trossur svo það er ekki yfir neinu að kvarta. Bátarnir voru áður fyrr oft á línu fram í miðjan mars að loðnan var gengin hjá, en upp úr því tóku menn garnið. Besti tíminn var svo gjarnan frá miðjum mars. Núna byrjaði törnin hins vegar um miðj- an janúar og þrátt fyrir leiðindatíð hefur gengið vel, held ég,“ segir Vignir. Hann segir að mikil ferð hafi verið á loðnunni á vesturleiðinni. Loðnuskipin Jóna Eðvalds og Ás- grímur Halldórsson eru gerð út frá Höfn og hafa séð bræðslu og vinnslu fyrir hráefni. Makríll í Faxaflóa Magnús Guðmundsson, skip- stjóri á Kristbjörgu VE 71, rúm- lega 200 tonna netabáti frá Vest- mannaeyjum, sagði margt hafa breyst í Eyjum á síðustu áratug- um. Nú eru aðeins þrír netabátar gerðir út þaðan, en oft á tíðum var höfnin full af línu- og netabátum á þessum árstíma. Magnús segir að nú séu margir Eyjabátanna á trolli. „Við byrjuðum á að leggja hérna við Eyjarnar í janúar, en þá var enginn fiskur kominn á slóðina svo við höfum lengst af verið í Faxaflóanum,“ segir Magnús. „Þetta hefur gengið ágætlega og Þorskkvótinn var aukinn um 10% í fyrrasumar og er 177 þús- und tonn á þessu fiskveiðiári og er það í samræmi við aflareglu í þorski, sem gilt hefur frá 2009. Á heimasíðu sjávarútvegs- ráðuneytis sagði m.a. í fyrrasum- ar: „Í ráðgjöf Hafrannsókna- stofnunarinnar kemur fram að þorskstofninn er nú talinn stærri en verið hefur undanfarna tvo áratugi. Þar munar mjög um aukningu í stórþorski sem er yfir 80 cm og fjölgun í hrygningar- stofni sem nú er talinn 362 þús- und tonn, en það er vel ofan við varúðar- og hættumörk. Þá er hrygningarstofninn vel yfir tvö- faldri lágmarksstærð árgang- anna 1992-1994. Að mati vís- indamanna Hafrannsókna- stofnunarinnar hefur orðið mikill viðsnúningur á þorskstofninum frá því sem var fyrir aðeins fjór- um árum þegar stærð stofnsins var í sögulegu lágmarki.“ Í samræmi við aflareglu VIÐSNÚNINGUR Í ÞORSKI Niðurstöður nýrra rannsókna á Drekasvæðinu staðfesta ummerki um olíu frá júratímabilinu á hafs- botni og staðfesta að virkt kol- vetniskerfi sé á Drekasvæðinu. Þessar niðurstöður eru sagðar hafa þýðingu fyrir yfirstandandi útboð sérleyfa á Drekasvæðinu, en nú er rétt rúmur mánuður til stefnu. Greint er frá þessum niður- stöðum á heimasíðu Orkustofn- unar og þar segir að olíuleitar- félögin TGS og Volcanic Basin Petroleum Research (VBPR) hafi safnað sýnum úr þúsund metra háum hamri á hafsbotni á Dreka- svæðinu í september sl. í samræmi við leitarleyfi sem Orkustofnun veitti. Meira en 200 kíló af grjóti og seti náðust á tólf sýnatökustöð- um. „Nýju sýnin gefa spennandi inn- sýn í olíujarðfræði Drekasvæð- isins. Setbergi frá ýmsum tímum miðlífsaldar (fyrir 250 til 65 millj- ón árum síðan) var safnað. Engin sýni eldri en 50 milljón ára höfðu verið tekin á svæðinu með borun eða öðrum aðferðum fyrir síðasta sumar og koma til viðbótar við niðurstöður úr rann- sókn norsku Olíustofnunarinnar en önnur jarðlög fundust í þessari rannsókn. Ummerki um olíu úr móðurbergi frá júratímabilinu (fyrir 200 til 150 milljón árum) fundust sem staðfestir að það sé virkt kolvetniskerfi á Drekasvæð- inu,“ segir á heimasíðunni. Ummerki um olíu staðfest á Dreka  Niðurstöður hafa áhrif á útboð sérleyfa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.