Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 9

Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 Salvör Nordal, sem var formaður stjórnlagaráðs, segist í bréfi til forsætisnefndar Alþingis ekki hafa tök á að sitja fyrirhugaðan fund ráðsins 8.- 11. mars. Salvör gagnrýnir í bréfinu hve skammur fyrirvarinn sé. Það sama gerði Örn Bárður Jónsson, fulltrúi í stjórnlagaráði, í samtali við mbl.is í gær. Sagðist hann ekki gera ráð fyrir að komast á fundinn í mars vegna ann- arra skyldustarfa og anna. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hyggst Pawel Bartoszek ekki taka þátt í fundinum. Hann er afar ósáttur við meðferð þingsins og óttast að lítið verði að marka þjóðaratkvæðið um málið í sumar. Alþingi samþykkti á miðvikudag þingsályktunartillögu um að boða stjórnlagaráð til fjögurra daga vinnu- fundar í byrjun mars. Þar á ráðið að fjalla um spurningar og tillögur stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis að mögulegum breytingum á frum- varpi um stjórnskipunarlög. Meirihluti stjórnskipunar- og eftir- litsnefndar Alþingis ætlar m.a. að senda stjórnlagaráði spurningar um stöðu forseta Íslands. Þá ræði stjórn- lagaráð einnig hvort ítarlega útfært kosningakerfi eigi að vera í stjórnar- skrá, hvort skoða þurfi betur þá þrösk- ulda sem eru gagnvart því að hægt sé að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu og hvort minni hluti þings eigi að geta beðið um þjóðaratkvæðagreiðslu. Í bréfi sínu til forsætisnefndar þingsins segir Salvör Nordal, að hún fagni því að Alþingi vilji gefa stjórnlag- aráði tækifæri til að bregðast við til- lögum þingnefndarinnar. „Ég geri þó alvarlegar athugasemd- ir við það hversu fyrirvarinn er skammur og hversu óskýrt hlutverk fundarins er, bæði um hvað hann eigi að fjalla og hverju hann eigi að skila. Vert er að geta þess að ekkert sam- starf var haft við stjórn stjórnlagaráðs við mótun þingtillögunnar,“ segir Sal- vör í bréfinu. Fundurinn nýttur til samræðu Hún segir að gert sé ráð fyrir að vinnufundur stjórnlagaráðs standi í fjóra daga sem sé afskaplega stuttur tími til að ræða flókin og vandasöm álitaefni stjórnskrárinnar. „Mitt mat er því það að fundinn eigi fyrst og fremst að nýta til samræðu milli stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd- ar við þá fulltrúa í stjórnlagaráði sem eiga heimangengt fremur en að kallað sé eftir breytingartillögum frá ráðinu með þessum stutta fyrirvara. Kjósi einhverjir innan stjórnlagaráðs að skila inn breytingartillögum til nefndarinnar að honum loknum geri þeir það í eigin nafni,“ segir Salvör Nordal. Óskýrt hlutverk fundarins  Stjórnlagaráð á m.a. að svara spurningum um stöðu forsetans í stjórnarskrá  Formaður stjórnlagaráðs hefur ekki tök á að sitja fyrirhugaðan fund Morgunblaðið/Ómar Vinnufundur Alþingi hefur boðað stjórnlagaráð til fjögurra daga fundar. Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is „Mér finnst þetta allt frekar óljóst,“ segir Björg Thorarensen, prófessor við Háskóla Íslands, þegar leitað er eftir skoðun hennar á því að Alþingi ákvað í fyrradag að vísa frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá aftur til þess til umfjöllunar. Í nefndaráliti meirihluta stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar var tekið fram að ráðið hefði, þegar það lauk störfum síðasta sumar, lýst sig reiðubúið til að koma aftur að mál- inu yrði þess óskað. Stjórnlagaráði er ætlað að koma saman í fjóra daga í byrjun mars og skila af sér í síð- asta lagi 12. mars. Lagt er upp með að hinn 29. mars sé búið að sam- þykkja þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Óhemjustuttur tími Í vikunni gagnrýndi Pawel Bart- oszek meðal annars að ekki væri skýrt hvernig vinna ætti úr niður- stöðum fyrirhugaðrar þjóðar- atkvæðagreiðslu. Sagði hann vinnu- brögð þingsins því til vansa. Björg segist taka undir áhyggjur Pawels af málsmeðferðinni. „Það er erfitt að átta sig á hvað stjórnlagaráð á að fjalla um og það hefur mjög stuttan tíma til þess,“ segir Björg. Óljóst hvað á að gera Spurð um vægi álits ráðsins segir hún það hafa vægi sem álit en ekk- ert lögformlegt ákvörðunarvald, enda sé ráðið álitsgjafi sem þingið valdi til að vinna verkefnið. Björg ítrekar hins vegar að það sé ekki ljóst hvað ráðið eigi að gera. „Hvað sem nefndin leggur fyrir ráðið hefur það ekki langan tíma til þess að vinna úr því og koma með einhvers konar tillögur.“ Þegar rætt er um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu segir Björg augljóst að það verði að vanda vel til þeirra spurninga sem lagðar verða fram. Það sé ekki síst nauðsynlegt til að túlkun á niðurstöðunni búi ekki til nýtt sjálfstætt ágreinings- mál sem dreifi athyglinni frá verk- efninu sjálfu. Ekki sé ljóst hvaða þýðingu hún eigi að hafa þegar ekki liggi enn fyrir hvað verður spurt um. Þjóðaratkvæðagreiðslan sé í öllu falli ráðgefandi en ekki lagalega bindandi. „Ef markmiðið er að reyna að fá fram einhverjar línur þá getur reynst erfitt að túlka þær,“ segir Björg. Þarfnast rækilegrar skoðunar „Mér finnst þetta vera allsherjar handarbakavinna og í raun algjört klúður,“ segir Sigurður Líndal, pró- fessor við Háskólann á Bifröst. Hann telur tillögur stjórnlag- aráðs um breytingar á stjórn- arskránni þarfnast rækilegrar skoð- unar. „Eins og málin standa í bili, að það takist að leysa þetta á einum mánuði. Ég held það myndi jaðra við almættisverk,“ segir Sigurður. Bæði stjórnlaganefndin og stjórn- lagaráðið hafi á sínum tíma kvartað yfir tímaleysi og af því dragi hann þá ályktun að ekki hafi tekist að móta tillögurnar. Miðað við það sem á undan sé gengið sjái hann ekki að hægt sé að koma frumvarpinu í skipulegt horf, þannig að hægt verði að taka afstöðu. Of stuttur tími „Þess vegna finnst mér þetta vera eitt allsherjar klúður og rangt farið að málinu frá byrjun,“ segir Sig- urður. Þær tillögur sem lagðar eru fram af stjórnlagaráði þarfnist mun meiri yfirlegu. Tekur hann kafla um forseta Íslands sem dæmi en bara það eitt að ákvarða stöðu og vald- svið forseta sé ærið verkefni. Tím- inn fram að þjóðaratkvæðagreiðsl- unni sé of stuttur. „Ég tel að það sé einfaldlega ekki tími til þess að leggja þetta fyrir þjóðina þannig að hún geti tekið vitræna afstöðu. Það er kjarni málsins. Tíminn er of stuttur og málið of vanbúið til að hægt sé að greiða atkvæði um það. Ég tel ekki að það sé hægt að leysa það á einum mánuði.“ Telja tímann of stuttan  Margt sé enn óljóst þegar komi að hlutverki stjórnlagaráðs við undirbúning endurskoðunar stjórnarskrár  Sigurður Líndal segir málið allsherjar klúður Björg Thorarensen Sigurður Líndal Kjólar Verð 15.900 kr. Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Ríta Tískuverslun Brúðkaupsblað Föstudaginn 16. mars kemur út hið árlega BrúðkaupsblaðMorgunblaðsins. –– Meira fyrir lesendur SÉ R B LA Ð NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 12. mars Brúðkaupsblaðið hefur verið eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins í gegnum árin og verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt. Látið þetta glæsilega Brúðkaupsblað ekki framhjá ykkur fara ... það verður stútfullt af spennandi efni. Sigríður Hvönn Karlsdóttir sigridurh@mbl.is Sími: 569-1134 Brú ðka up MEÐAL EFNIS: Fatnaður fyrir brúðhjónin. Förðun og hárgreiðsla fyrir brúðina. Veislumatur Brúðkaupsferðin. Undirbúningur fyrir brúðkaupið. Giftingahringir. Brúðargjafir Brúðarvöndurinn. Brúðarvalsinn. Brúðkaupsmyndir. Veislusalir. Veislustjórnun. Gjafalistar. Og margt fleira skemmtilegt og forvitnilegt efni. Útsölulok Enn meiri afsláttur Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. Hæðasmára 4 – Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind Símar 555 7355 og 553 7355 15% aukaafsláttur af útsöluvöru

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.