Morgunblaðið - 24.02.2012, Síða 10
Nánast er hægt að fullyrða að allir
þeir sem hafa kynnst skondna strákn-
um honum Einari Áskeli einhvern tím-
ann á ævinni halda við hann tryggð og
fá aldrei nóg af honum. Hann hefur
glatt margt barnið og ekki síður full-
orðna í gegnum tíðina. Sænski rithöf-
undurinn Gunilla Bergström hittir
lesendur sína sannarlega í
hjartastað með sög-
unum af strákn-
um sem býr einn
með pabba sín-
um og þarf að
takast á við ýmis
vandamál sem upp
koma í lífi barns.
Aðdáendur fagna því
væntanlega að nýlega
voru tvær af bókunum
endurútgefnar: Hvað
varð um Einar ærsla-
belg, sem segir frá kvíð-
anum vegna fyrsta skóla-
dagsins, og Einar Áskell
og Milla, en sú bók fjallar
um vináttuna og það að láta
aðra ekki segja sér að það sé
hallærislegt að leika við
stelpu.
Einar Áskell
er æðislegur
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Frumkvöðlar Stelpurnar kátar í bragði enda leggja þær upp úr því að hafa góðan vinnuanda í hópnum.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Fjórar ungar stúlkur íFjölbrautaskóla Garða-bæjar hafa vart undanað framleiða slaufur í
formi mottu, það er að segja
skeggs líkt og margir karlmenn
hafa skartað í Mottumars, átaki
Krabbameinsfélagsins. Þær Ása
Þórdís Ásgeirsdóttir, Irena Sveins-
dóttir, Hrafnhildur Heiða Sandholt
og Camilla Rut Arnarsdóttir eru
allar í svokölluðum frumkvöðla-
áfanga sem kenndur er á hönn-
unar- og markaðsbraut skólans.
Nám á þeirri braut hófst nú í
haust en í frumkvöðlaáfanganum
fá nemendur innsýn í að reka lítið
fyrirtæki frá stofnun fyrirtækisins
til uppgjörs á rekstrarárinu.
Góður andi mikilvægur
Nemendur stofna og skrá
fyrirtækið og velja sér fram-
leiðsluvöru eða þjónustu. Þeir sjá
síðan um allan daglegan rekstur
fyrirtækisins í 13 vikur. Lögð er
sérstök áhersla á að nemendur
geri sem mest sjálfir við skipulag
fyrirtækisins, hönnun vöru eða
þjónustu og sölu á henni.
„Þrjár okkar eru á hönnunar-
og markaðsbrautinni en ein tekur
áfangann sem valfag. Frumkvöðla-
fræðin snýst um að að finna hug-
mynd, annaðhvort að vöru til að
flytja inn eða hanna og framleiða
hér á Íslandi. Síðan eigum við að
selja hana og markaðssetja. Við
fáum reikning og kennitölu og
kennarinn er til halds og trausts
en annars verðum við að gera
þetta sjálfar frá grunni. Það er því
nóg að gera með fullum skóla og
vinnu. Í það minnsta tvær okkar
ætla sér að starfa við markaðsstörf
í framtíðinni og þetta er því góður
grunnur. Samvinnan hefur líka
gengið vel. Við þekktumst ekki all-
ar fyrir en erum nú orðnar góðar
vinkonur og höfum lagt upp úr því
að vera duglegar að halda uppi
góðum anda í vinnuumhverfinu,“
segir Camilla Rut.
Aðstoð við skeggvöxtinn
Sagan á bak við skeggslauf-
una er nokkuð skondin en hún
kviknaði í huga Ástu fyrir um
tveimur árum. Þá var Mottumars
að byrja og kærastinn hennar ætl-
aði að vera með og var í keppni við
vini sína. Svo óheppilega vildi hins
vegar til að það gekk ekki vel því
honum óx ekki mikið skegg. Ásta
ákvað þá að hjálpa til og bjó til
mottu úr pappír og leir. Þessa
hugmynd bar hún síðan upp í
hópnum og var henni vel tekið og
ákveðið að þróa hana áfram. Þær
stöllur ákváðu að gera slaufurnar
úr fínflaueli og fylla þær með
koddafóðri. Í slaufuna er síðan sett
Með skegg
um hálsinn
Fjórar ungar stúlkur hafa vart undan að framleiða
slaufur í formi mottu fyrir bæði kynin. Rennur ágóð-
inn til Mottumars, átaks Krabbameinsfélagsins.
Má bjóða þér að fá eitthvað heitt og svart inn í þig
spurði hávaxni breiðvaxni blökkumaðurinn hvítu smá-
vöxnu konuna og bauð henni svo, í kjölfar dómharðs
spurnarsvips að baki uppréttri löngutöng, kaffibolla.
Þetta dásemdar stakspaug (one liner) kemur fyrir í
hinu stórbrotna meistaraverki Event Horizon. Á þeirri
stund sem þetta á sér stað er áhöfn geimbjörgunar-
skips nýkomin úr kæligeymslu þar sem hægt var á lík-
amsstarfsemi þeirra í nokkrar vikur til að auðvelda
þeim langa för. Þegar klukkan slær níu á morgnana og
iHarpan er slegin á náttborðinu mínu og ég dragnast
fram úr líður mér eins og ég hafi verið sofandi í marga
mánuði og það eina sem geti vakið mig sé háttvirtur al-
heilagur kaffibolli.
Ég set könnuna í gang, slafra í mig Seríósið á meðan
ég horfi á biksvarta dropana seytla úr filterhólfinu í
móðu prýdda glerkönnuna sem fór undir hólfið á
akkúrat réttum tímapunkti og ilmurinn leikur um
nasagöngin og vekur mér von um að það sé til líf
eftir stríðið, stríðið við svefninn.
Að Seríósi loknu má oftar en ekki heyra sog-
hljóðið, dásemdarhljóðið sem líkist einna helst því
að tíu metra barn sé að klára úr þriggja lítra kókó-
mjólkurfernu með röri og við tekur biðin langa.
Orð fá ekki lýst angistinni sem fylgir því að
vita að allt vatnið sé búið en kaffið sé ekki
til.
Ég veit vel hvað ég setti mikið kaffi í
pokann og ég veit líka hvað ég setti
mikið vatn í könnuna. Þetta er
grönn lína sem maður þarf að
ganga eftir til að ná hinum full-
komna bolla, í goðanna blótum, ég
er búinn að tímasetja hversu löngu
eftir að kaffivélin fer í gang ég
þarf að setja könnuna undir til að
ná bollanum réttum – ég held að
ég sé kominn með allt of mikla
sérvisku í kringum morgun-
uppáhellinguna. Þessari sér-
visku samkvæmt er algjörlega
ómögulegt að taka könnuna und-
an áður en allt kaffið hefur lekið í gegnum kaffiduftið
sem er í pokanum, annars verður innihald bollans ekki
eins á bragðið og það á að vera. Stundin er runnin upp.
Síðasti dropinn hefur sagt skilið við stopparann og fall-
ið í svarthol könnunnar, gárurnar hefur
lægt á yfirborðinu og við tekur efinn.
Gerði ég ekki alveg örugglega allt rétt?
Þetta voru örugglega sex bollar af vatni
og sex örlítið kúfaðar skeiðar af kaffi?
Fór ekki kannan undir á réttum tíma?
Jú ég er alveg viss, þetta ætti að vera í
lagi. Ég helli í bollann. Gegnsæi passlegt,
áferð passleg, angan dásamleg. Þar næst
geng ég að ísskápnum, næ í fernuna, létt-
mjólk, helli þremur dössum (sem er næstum
því slatti) saman við kaffið á réttum
hraða, nógu hægt til að ekki skvettist
en samt nógu hratt til að mjólkin nái
niður á botn og aftur upp á yfirborð,
geng að sófanum og sest niður. Allt er
til reiðu, ég kveiki á sjónvarpinu til að
fylla loftið af hljóði, opna tölvuna og
skrái mig inn á snjáldurskinnu. Góð-
an daginn kaffi Þráinn. Fæ mér sopa
og finn kraftinn seytla um æðarnar.
Himneskt.
»Ég set könnuna í gang, slafra í migSeríósið á meðan ég horfi á biksvarta
dropana seytla úr filterhólfinu í móðu
prýdda glerkönnuna og ilmurinn leikur
um nasagöngin og vekur mér von um að
það sé til líf eftir stríðið, stríðið við svefn-
inn.
HeimurHjalta
Hjalti St. Kristjánsson
hjaltistef@mbl.is
Vinir Einar Áskell og Milla gera margt skemmtilegt saman, baka og fleira.
Listakonan Berglind Ágústsdóttir verður með hvatvíslega
opnun og tónleika á Kaffistofunni á Hverfisgötu 42b
annað kvöld og hefst klukkan 19. Sýning hennar kallast
„The party I fell in love“ og eru verk frá samnefndri sýn-
ingu sem var fyrir nokkru í t.v.o.d. í Berlín og HAUS-
amHANS í Hamborg. Sýningin fjallar um ást, þráhyggju,
drauma, ljós, kynlíf, drama, vináttu og tónlist. Berglind
vinnur aðallega með teikningar, tónlist, vídeó og ljós-
myndir og blandar hún gjarnan þessum miðlum saman. Á
sýningunni verður hægt að kaupa list, veitingar, teikn-
ingar, plaköt og geisladiska og þannig styrkja Berglindi til
fyrirhugaðs tónleikaferðalags um heiminn.
Endilega …
… sækið hvatvíslega opnun
Listakona Berglind Ágústsdóttir er á leið í ferðalag.