Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 12

Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Hugsanlegt er að fordæmisgildi ný- fallins gengislánadóms sé ekki mik- ið. Þetta kom fram í máli Sigurjóns Högnasonar lögfræðings á morg- unverðarfundi KPMG í gærmorg- un, þar sem hann og Alexander G. Edvarðsson hjá KPMG fóru yfir dóminn með hliðsjón af fordæm- isgildi hans. Sigurjón segir dóminn hafa for- dæmisgildi gagnvart sambærilegum málsatvikum og hafa verði í huga að erfitt sé að átta sig á hvenær málsatvik eru sambærileg. Hæsti- réttur hafi í niðurstöðu sinni litið heildstætt á nokkra þætti en erfitt sé að greina vægi hvers þáttar fyrir sig. Þannig sé spurning hvort Hæstiréttur sé að marka stefnu um að gefa neytendavernd meira vægi, þannig að óbein áhrif af dómnum verði meiri. Sigurjón vék einnig að mögu- legum skattalegum áhrifum dóms- ins. Tók hann þar til þess að mis- munur vaxtagreiðslna fyrir og eftir dóm gæti í raun myndað skattskyld fjárhagsleg gæði í skilningi tekju- skattslaga. Í því sambandi kom hann inn á bráðabirgðaákvæði í tekjuskattslögunum, sem kveður á um undanþágu frá skattskyldu vegna eftirgjafa skulda. Hann sagði það ákvæði eiga við þegar fólk ætti í greiðsluerfiðleikum og fengi af þeim sökum niðurfellingu. Í þessu tilviki hefði ekki verið um greiðslu- erfiðleika að ræða þar sem hjónin hefðu ávallt staðið í skilum. Sig- urjón tók að endingu fram að í þessu efni væri það skattyfirvalda að skera úr um skattskylduna. RSK metur áhrif dómsins „Almennt séð hefur ríkisskatt- stjóri gefið það út að ef um er að ræða breytingar á skilmálum og slík skilmálabreyting leiði til minni greiðslubyrði, þá myndar það ekki skattskyldar tekjur,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. Hjá embættinu sé unnið að því að greina umræddan dóm og meta hann. Fjármálaráðuneytinu verði síðan gerð grein fyrir því hvaða af- leiðingar hann hefur. Með almennri skilmálabreytingu sé þá átt við breytingu sem gildi fyrir alla sem taki sambærileg lán. „Sé skuld gefin eftir eða felld niður án þess að um skilmálabreyt- ingu sé að ræða myndar sú nið- urfelling tekjur, nema sérstaklega sé kveðið á um það í lögum að hún sé ekki undanþegin,“ segir Skúli Eggert. Merki um áherslu á neytendavernd  Hæstiréttur hugsanlega að marka stefnu um aukna neytendavernd í nýjum gengislánadómi  Hugsanlegt að fordæmisgildi gengislánadómsins sé ekki mikið  Spurning um skattskyldu mismunar Gengislán og skattar Áhugasamir komu til að hlusta á sérfræðinga KPMG ræða fordæmisgildi gengislánadóms. Raunvextir og reiknaði vextir Heimild: KPMG 160.000 140.000 120.000 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 Va xt ag re ið sl ur af lá ni á m án uð i( kr .) 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 Raunvextir Reiknaðir vextir m.v. vexti SÍ Reiknaðir vextir m.v. Ísl hst + erl. vxt. Alexander G. Eðvardsson, sviðs- stjóri skatta- og lögfræðisviðs KPMG fór meðal annars mynd- rænt yfir álitaefni gengis- lánadómsins. Í málinu var deilt um hvort greiða ætti mismun á LIBOR-vöxtum og seðla- bankavöxtum. Töldu fjórir af sjö dómurum Hæstaréttar að lán- takendurnir ættu ekki að greiða vaxtamuninn fyrir liðna tíð enda hefði fjármálafyrirtækið fyr- irgert rétti sínum til frekari greiðslu vaxta með útgáfu fulln- aðarkvittana fyrir greidda vexti. Grafið hér til hliðar sýnir dæmi um mun á raunverulega greiddum vöxtum og reiknuðum á 40 ára láni. Tekið er dæmi um 10 milljóna evra lán sem var tekið árið 2002. Sýndur er mismunur seðla- bankavaxta í hverjum mánuði og LIBOR-vaxta. Í fjólubláu lín- unni er miðað við að seðla- bankavextir séu reiknaðir ofan á höfuðstól. Bláa línan sýnir hins vegar raunverulega greidda LI- BOR-vexti. Brúna línan sýnir svo hvernig hefði farið ef skuldurum hefði verið leyft að nota lágu LIBOR- vextina á íslenskan höfuðstól. Bláa og brúna línan fylgjast að á meðan gengi krónunnar er stöðugt en svo skilur á milli þegar gengið fellur. Allar línurnar liggja saman frá þeim tíma er lög nr 151/ 2010, er kveða á um end- urreikning lána, tóku gildi. Raunvextir eða reiknaðir GENGISLÁNADÓMUR Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þingmenn í stjórnarandstöðu gagnrýna harð- lega hversu fá ríkisstjórnarmál sem varða at- vinnulífið hafa komið til kasta Alþingis. Stjórn- arliðar boða að tvö stórmál, frumvarpið um stjórnkerfi fiskveiða og rammaáætlunin um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða, verði lögð fyrir þingið innan nokkurra vikna. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, sem sæti á í atvinnuveganefnd Al- þingis, sagði við umræður á Alþingi sl. mið- vikudag að atvinnumálin væru algerlega í lausu lofti og engar tillögur komið fram. Beðið hefði verið eftir nýjum tillögum um breytingar á fiskveiðistjórnkerfinu í marga mánuði og rammaáætlunin væri enn ekki í augsýn. „Afleiðingin er sú, virðulegi forseti, að at- vinnuveganefnd þingsins er atvinnulaus,“ sagði Jón og bætti við að frestað hefði verið fundi í atvinnuveganefnd, sem halda átti í gær- morgun vegna þess að það lægju engin stór mál fyrir þingnefndinni. Áttu að koma fram í haust Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og varaformaður atvinnumálanefndar, segir ástandið ekki svo slæmt að þingnefndin sé at- vinnulaus eins og Jón komst að orði. Hún segir að það hafi verið undantekning að nefnd- arfundurinn sem halda átti í gær féll niður. „Þessi stærstu mál eru ókomin inn í nefndina en þarna eru mál sem við erum að fjalla um.“ Lilja Rafney telur að það sé spurning um einhverjar vikur þar til þessi stóru mál verða lögð fram á Alþingi og koma til kasta nefnd- arinnar. „Þessi tvö stóru mál eru væntanleg innan skamms. Menn er ekkert farið að lengja eitthvað óeðlilega eftir þeim, en við væntum þess að sjálfsögðu að þau verði fljótlega í mars komin inn á borð til okkar,“ segir hún. „Þá þurfum við ekkert að kvarta undan verk- efnaleysi, sem við höfum reyndar ekki verið að gera. Það hafa verið alveg næg verkefni fyrir þá sem vilja sinna þeim málum.“ Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokks, sem einnig á sæti í at- vinnumálanefnd Alþingis, tekur í sama streng og Jón Gunnarsson. Þingmenn bíði eftir fisk- veiðistjórnarfrumvarpinu, rammaáætluninni og fleiri stórum málum. Þessi stóru mál hafi öll átt að koma fram í haust og áttu að vera aðal- verkefni atvinnumálanefndar í vetur. „En þau hafa ekki látið á sér kræla ennþá. Við höfum því verið að skoða eitt og annað á borð við lax- eldi á Vestfjörðum, höfum lokið við einstök mál eins og skráargatið [hollustumerkið á mat- vörur] og til að hafa eitthvað fyrir stafni höfum við líka verið að skoða raforkumarkaðinn og skýrslu um jöfnun raforkukostnaðar en ekkert þessara mála eru stjórnarþingmál,“ segir hann. Forsætisráðherra hafi sagt á Alþingi í gær- morgun að það væri á döfinni að leggja rammaáætlunina fyrir þingið, „en við höfum bara heyrt það áður. Ég mun ekki trúa neinu um það fyrr en mælt verður fyrir þessum mál- um hér í þingsal“, segir Sigurður Ingi. Sjávarútvegsfrumvarpið og rammaáætlun verði afgreidd á vorþingi Við upphaf þingfundar í gær spurði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra hvort rammaáætlunin yrði lögð fram á næst- unni og þá þannig, eins og sagt hefði verið frá í fjölmiðlum, að stjórnarflokkarnir hygðust binda hendur allra stjórnarliða fyrirfram þannig að í engu yrði hróflað við málinu eftir að það kæmi inn á þing. Þá spurði hann hvort fiskveiðistjórnarfrumvarpið kæmi í febrúar eins og lofað var eða í mars eða hvort það myndi jafnvel dragast framyfir páska. Jóhanna sagði að nú væri verið að fara yfir umsagnir um rammaáætlunina og hún ætti að verða tilbúin á allra næstu dögum. Þá færi hún væntanlega sinn hefðbundna feril inn í rík- isstjórn, inn í þingflokka og síðan inn í þing og yrði vonandi samþykkt á vorþingi. Hið sama ætti við um fiskveiðistjórnarfrumvarpið, sem kæmist vonandi fljótt inn í þingið, þannig að hægt yrði að afgreiða það á þessu vorþingi. „Atvinnuveganefnd atvinnulaus“  Engin stór mál í atvinnuveganefnd Alþingis  Lilja Rafney segir fiskveiðifrumvarpið og ramma- áætlun koma fljótlega til kasta þingsins  Jón Gunnarsson segir atvinnumálin algerlega í lausu lofti Jón Gunnarsson Lilja Rafney Magnúsdóttir Morgunblaðið/Kristinn Á Alþingi Rólegheit í atvinnuvegnanefnd eru gagnrýnd, myndin er frá þingfundi í vikunni. Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.