Morgunblaðið - 24.02.2012, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012
Byggingaverktakar hafa sýnt tölu-
verðan áhuga á stórri byggingarlóð
á Hampiðjureitnum sem nýlega var
auglýst til sölu. Ásett verð er 530
milljónir. Eigandi lóðarinnar er Ís-
landsbanki.
Svonefndur Hampiðjureitur er
við Stakkholt 2-4. Það er rétt ofan
við Hlemm. Fasteignasalan Mikla-
borg er með lóðina til sölu. Þröstur
Þórhallsson, fasteignasali, telur
mikla möguleika felast í lóðinni og
staðsetningu hennar.
„Þetta er skemmtileg staðsetn-
ing í Reykjavík. Horn sem þarfnast
endurskipulagningar,“ sagði Þröst-
ur. Hann bendir á að lóðin sé í
stuttu göngufæri frá Borgartúni og
íbúðir þarna geti því orðið eft-
irsóttar af þeim sem þar vinna.
„Ég hef fengið nokkuð mörg
símtöl frá mönnum í bygging-
argeiranum sem sýna þessu
áhuga,“ sagði Þröstur. „Það er
ánægjulegt að sjá að bygging-
arverktakar eru einhverjir komnir
á skrið aftur. Það vantar nýjar
íbúðir.“
Þröstur nefndi nýbyggt fjölbýlis-
hús í Mánatúni, þar séu allar íbúðir
seldar, en þær eru 40-50 talsins.
Þetta sýni að það sé eftirspurn eft-
ir nýjum íbúðum á þessu svæði.
Tillaga að húsi á lóðinni gerir
ráð fyrir um 16.000 m2 nýbyggingu
ofanjarðar. Hún skiptist í 1.500-
2.000 m2 verslunar- og þjónustu-
húsnæði og 130-140 íbúðir. Gert
var ráð fyrir bílakjallara á tveimur
hæðum og að húsið yrði alls 26.300
m2 með bílakjallaranum.
gudni@mbl.is
Margir sýna áhuga
á Hampiðjureitnum
Morgunblaðið/Ómar
Hampiðjureitur Hugmyndin var að reisa rúmlega 26 þúsund m2 hús með 130-140 íbúðum auk verslana á lóðinni.
Stór byggingarlóð nálægt Hlemmi er til sölu Gert er
ráð fyrir íbúðum og verslunum í stórhýsi sem þar á að rísa
Geir Jón Þór-
isson lögreglu-
maður hefur
ákveðið að gefa
kost á sér sem
annar varafor-
maður Sjálfstæð-
isflokksins. Kosið
verður í emb-
ættið á flokks-
ráðsfundi sem
fram fer í Kópavogi 17. mars nk.
Í tilkynningu frá Geir Jóni segir
að þann tíma sem hann starfaði sem
yfirmaður í lögreglunni hafi hann
valið að halda sig fjarri öllu stjórn-
málastarfi. Nú þegar störfum á þeim
vettvangi sé að ljúka finni hann
mikla þörf og löngun til að vinna að
þeim stóru og brýnu verkefnum
samfélagsins sem liggi á sviði stjórn-
málanna.
„Ástæða þess að ég gef kost á mér
í þetta stóra verkefni er einlægur
áhugi minn og vilji til að láta gott af
mér leiða. Reynsla mín af fyrri störf-
um og djúp þörf til að koma þjóð-
þrifamálum í framkvæmd hvetur
mig einnig til að stíga þetta stóra
skref. Hvatning víða úr samfélaginu
er mér sömuleiðis kærkomin og fyr-
ir henni ber ég mikla virðingu.
Með framboði mínu til annars
varaformanns Sjálfstæðisflokksins
vil ég undirstrika vilja minn og
áhuga á því að efla og styrkja Sjálf-
stæðisflokkinn, flokk allra stétta, til
að ná þeim styrk sem þarf til að leiða
þjóðina út úr því erfiða ástandi sem
hún býr við í dag.“
Gefur kost á
sér í varafor-
mannskjöri
Geir Jón Þórisson
TIL
HAMINGJU
BIRNA!
Birna Lárusdóttir hlaut
Fjöruverðlaunin -
bókmenntaverðlaun
kvenna fyrir hina
stórglæsilegu bók
MANNVIST - Sýnisbók
íslenskra fornleifa, sem
hlotið hefur einstakar viðtökur. Starfsfólk
Prentmets óskar Birnu og Bókaútgáfunni
Opnu innilega til hamingju.
Mannvist er einnig tilnefnd til Fræðiritaverðlauna
Hagþenkis
Mannvist var valin ein af bókum árins 2011 bæði hjá
Morgunblaðinu og Fréttatímanum
„Skyldulesning landsmanna“
Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttatíminn
„Bækur sem þessi gera okkur læsari á
arfleifðina ...“
Einar Falur Ingólfsson, Mbl.
Við erum stolt af að hafa annast prentvinnslu þessa glæsilega verks
Ef Alþingi vísar máli gegn Geir H.
Haarde frá verða gögn sem safnað
hefur verið saman vegna málshöfð-
unarinnar send á Þjóðskjalasafnið
til varðveislu.
Stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd
Alþingis reiknar
með að afgreiða
tillögu um aft-
urköllun máls-
meðferðar í
næstu viku.
Á fundi nefnd-
arinnar í gær-
morgun var
fjallað um þá
spurningu hvað yrði um gögn máls-
ins ef því yrði vísað frá. „Ef málinu
verður vísað frá þá verður gögnum
málsins safnað saman og þau fara á
Þjóðskjalasafnið,“ sagði Valgerður
Bjarnadóttir, formaður nefnd-
arinnar. Hún sagði að í þessu máli
væri byggt á margvíslegum gögnum
sem sum hver væri hægt að komast
í, eins og t.d. Rannsóknarskýrslu
Alþingis. Eins væru gögn frá
Stjórnarráðinu opinber. Gögn sem
þetta mál varðaði yrðu hins vegar
ekki aðgengileg almenningi á einum
stað.
„Gögn sem saksóknari er búinn
að taka saman fara á Þjóðskjalasafn
og sama á t.d. við um sóknarræðu
sem saksóknari er hugsanlega bú-
inn að skrifa.“
Valgerður sagði að fram hefði
komið hjá Páli Þórhallssyni, lög-
fræðingi forsætisráðuneytisins, sem
kom fyrir nefndina í gærmorgun, að
almenna reglan væri að ekki væri
hægt að komast í sakamálagögn á
Þjóðskjalasafni nema með sérstöku
leyfi. Gögn um ríkisstjórnarfundi
eru gerð opinber eftir 30 ár. Ef
gögnin varða einkamálefni eru þau
lokuð í 80 ár.
Valgerður sagði að stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefnd myndi ljúka
umfjöllun um þetta mál í næstu
viku. Hún sagðist reikna með að
málið yrði sett á dagskrá Alþingis í
þeirri viku. Hún sagði ljóst að meiri-
hluti nefndarinnar væri á móti því
að draga kæruna gegn Geir til baka.
Þingmenn ekki vanhæfir
Valgerður sagði að nefndin hefði
fyrir þennan fund verið búin að af-
greiða spurninguna um hugsanlegt
vanhæfi þingmanna sem væru á
vitnalista í málinu. Hún sagði engan
vafa leika á að þessir þingmenn
væru hæfir til að taka þátt í at-
kvæðagreiðslu. „Þeir sem við höfum
spurt hafa svarað þessu á þann veg
að þingmenn séu hæfir, en þeir
verði að meta það sjálfir. Þar fyrir
utan geta verið einhverjir þingmenn
sem telja einstaka þingmenn van-
hæfa í þessu máli, en það er annað
mál.“
egol@mbl.is
Nefndin er á
lokaspretti
Afturköllun afgreidd í næstu viku
Valgerður
Bjarnadóttir