Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 24

Morgunblaðið - 24.02.2012, Page 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2012 Þessa dagana sæk- ir sá grunur á mig með vaxandi þunga, að Valgerður Bjarna- dóttir ætli að svæfa þingsályktunartillögu Bjarna Benedikts- sonar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde í nefnd, annað hvort að eigin frumkvæði eða að fyrirmælum hús- bænda sinna. Stjórnarandstaðan á sína full- trúa í nefndinni. Hverjir eru þeir? Af hverju láta þeir ekki heyra í sér og krefjast þess, að málið verði af- greitt? Á að láta Valgerði komast upp með að draga afgreiðslu máls- ins með útúrsnúningum þar til meðferð málsins hefst fyrir Lands- dómi? Er makk á ferðinni milli stjórnar og stjórnarandstöðu? Tillaga Bjarna á að fá umfjöllun Alþingis, þó ekki væri til annars en þess, að pólitískur hráskinnsleikur Jóhönnu og Steingríms J. verði landsmönnum ennþá ljósari. Þá kemur í ljós, af hverju Jóhanna þorði ekki að samþykkja, að Geir yrði ákærður. Þá kemur e.t.v. í ljós, hvernig þingmenn Samfylk- ingar sömdu um atkvæðagreiðsl- una á þann hátt, að ráðherrar þeirra slyppu, en ráðherrar Sjálf- stæðisflokks yrðu einir ákærðir, en það ráða- brugg gekk að vísu ekki alveg upp, eins og í ljós kom. E.t.v. er best, að Landsdómur fái að yf- irheyra sem flesta stjórnmálamenn og fjárglæframenn, sem bera ábyrgð á hruninu. Þá á margt eftir að koma í ljós, og ólíklegt er, að það verði öllum samfylk- ingarmönnum til vegsauka hjá fólkinu í landinu, sem á að greiða atkvæði í næstu kosningum til Al- þingis. E.t.v. er best, að dómur gangi og Geir verði sýknaður, samsær- ismönnum Samfylkingar og Vinstri grænna til háðungar. Valgerður Bjarnadóttir og landsdómur Eftir Axel Kristjánsson Axel Kristjánsson » Tillaga Bjarna á að fá umfjöllun Alþing- is, þó ekki væri til ann- ars en þess, að pólitísk- ur hráskinnsleikur Jóhönnu og Steingríms J. verði landsmönnum ennþá ljósari. Höfundur er lögmaður. Sú aðför, sem nú stendur yfir, að mann- orði Gunnars Þ. And- ersen, forstjóra Fjár- málaeftirlitsins (FME), er ein sú ógeðfelldasta sem gerð hefur verið að íslenskum embættis- manni. Þegar þetta er skrifað er enn ekki fylli- lega ljóst hverjir standa að baki aðförinni en sé samhengi hlutanna skoðað má heita ljóst að þar hafa tölu- verð áhrif talsmenn aðila sem hafa verið eða eru til rannsóknar hjá FME. Að vísu er stjórnarformanni FME beitt fyrir vagninn en líklega einungis vegna þeirrar stöðu sem hann gegnir nú. Ásakanir á hendur Gunnari varða ekki hvernig hann hefur leitt starf- semi FME síðan hann tók við sem forstjóri árið 2009. Þó hafa þessa dag- ana birst fréttir af því að fyrrverandi efnhagsráðherra telji FME ekki hafa sinnt eftirliti gagnvart slitastjórn til- tekins fjármálamálafyrirtækis nægi- lega vel. Líklega er þar að hluta um að ræða sviðsetningu sem hentar ein- mitt við þær kringumstæður sem ríkja nú og gegna m.a. því hlutverki að draga úr trúverðugleika Gunnars. Meginásökunin gagnvart Gunnari er hins vegar að hann hafi fyrir ellefu árum veitt FME ófullnægjandi svar við fyrirspurn um félög í eigu Lands- banka Íslands og ekki getið um svo- nefnd aflandsfélög á eyjunni Guern- sey á Ermarsundi í svarinu. Þessari ásökun hefur Gunnar þegar svarað opinberlega með málefnalegum hætti og engin haldbær andsvör borist. Brottrekstur Gunnars verður því ekki rökstuddur á þess- um grundvelli sam- kvæmt íslenskum lög- um. Í þessu ljósi er framganga stjórnar FME, ekki síst stjórn- arformannsins, Að- alsteins Leifssonar, bæði óskynsamleg og óskiljanleg. Þrátt fyrir rökstudd svör Gunnars virðist stjórn FME og bak- hjarlar hennar stað- ráðnir að svipta hann embætti og láta sig litlu skipta hvort landslög verði brotin þótt vitaskuld verði reynt að færa ákvörðunina í réttan tæknilegan búning. Það kann að vera að þetta takist þótt um sé ræða mikið óhæfuverk. Það kann líka að vera að það takist með sjónhverf- ingum að beina huga almennings í aðrar áttir þegar verkið er unnið. Þó á aldrei að vanmeta almenning og við- brögð hans. Hinu ættu ráðamenn heldur ekki að gleyma að það eru fleiri sem fylgj- ast með því sem gerist hér á landi nú um stundir. Íslendingar töpuðu gíf- urlegu trausti meðal sinna helstu við- skipta- og bandalagsríkja þegar efna- hagshrunið varð hér 2008 og raunar var traustið farið töluvert áður. Þetta traust hafði verið byggt upp frá lýð- veldisstofnun en glataðist á 2-3 árum. Við eigum mikið undir því að byggja þetta traust upp á nýjan leik og það er fylgst með hvernig sú uppbygging fer fram. Samhliða er fylgst með því hvernig við högum uppgjöri hruns- mála. Aðförin að Gunnari Andersen er ekki til þess fallin að skapa traust. Þvert á móti er hún til þess fallin að rýra traust á íslenskum ráðamönn- um. Sú skoðun mun án efa verða viðr- uð að brottrekstur Gunnars úr for- stjórastól FME sýni svo ekki verði um villst að íslenskir ráðamenn leggi meiri áherslu á að gæta sérhagsmuna tiltekinna hópa og aðila innanlands en vinna að almannahagsmunum. Jafn- vel verður ályktað að óeðlileg tengsl séu enn milli ráðamanna og þeirra sem hafa verið til rannsóknar hjá FME og sérstökum saksóknara. Það er því fyllsta ástæða til við umfjöllun um mál Gunnars Andersen að leitast við að sjá hlutina í stærra samhengi. Almannahagsmunir eiga að ráða en ekki sérhagsmunir þótt þeirra sé gætt af mikilli einbeitni. Verði sú raunin að sérhagsmunirnir nái yf- irhöndinni mun uppbygging sam- félagsins tefjast með tilheyrandi áhrifum á lífskjör almennings. Af þessum ástæðum vil ég hvetja alla íslenska stjórnmálamenn, sem vilja hafa almannahagsmuni að leið- arljósi, að stöðva þegar í stað aðförina að Gunnari Þ. Andersen. Verði það ekki gert er það sönnun um máttleysi íslenskra stjórnmálamanna gagnvart sérhagsmunum, sem í því tilvíki sem hér um ræðir, ganga gegn hags- munum þjóðarinnar. Stöðvum aðförina Eftir Björn Líndal » Aðförin að Gunnari Andersen er ekki til þess fallin að skapa traust. Þvert á móti er hún til þess fallin að rýra traust á íslenskum ráðamönnum. Björn Líndal Höfundur er sjálfstætt starfandi lögmaður. Heimdallur, félag ungra sjálfstæð- ismanna í Reykjavík, var stofnað hinn 16. febrúar 1927 og fagn- ar því 85 ára afmæli sínu um þessar mund- ir. Félagið var þá fyrsta stjórnmálafélag ungs fólks hér á landi, og hefur frá upphafi verið stærsta félag sinnar tegundar á landinu. Heimdallur var stofnaður til þess að fylkja ungu fólki á bak við stefnu Íhaldsflokksins undir for- ystu Jóns Þorlákssonar, sem sam- einaðist Frjálslynda flokknum tveimur árum síðar í Sjálfstæð- isflokknum. Hlutverk Heimdallar frá upphafi hefur verið að berjast fyrir þjóð- legri og víðsýnni framfarastefnu í þjóðmálum með hagsmuni allra stétta fyrir augum, efla sjálfstæð- isstefnuna og glæða áhuga ungs fólks á stjórnmálum með lýðræði og einstaklingsfrelsis. Þá hefur Heimdallur gegnt mikilvægu hlut- verki sem samviska Sjálfstæð- isflokksins í gegnum tíðina, hvatt flokkinn og forystumenn hans til dáða og minnt þá á grunngildi flokksins. Enn er það hlutverk fé- lagsins og hefur starf Heimdallar verið gríðarlega mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá upphafi. Ungt fólk sem starfar í Heimdalli er ekki einungis að efla ungliðastarf Sjálfstæðisflokksins heldur er það að vinna til heilla sjálfu sér og allri íslensku þjóðinni. Starf félagsins hefur eflst mjög undanfarin ár og starfa nú hátt í 70 manns í stjórn og deildum félagsins og um 7.000 manns eru skráðir í Heimdall. Fé- lagið nær til sífellt fleira ungs fólks sem mikinn áhuga hef- ur að taka þátt í stjórnmálum og hefur heillast af sjálfstæð- isstefnunni ekki síst andspænis þeirri hrein- ræktuðu vinstri stefnu sem heltekur íslenskt þjóðfélag um þessar mundir. Hug- myndabarátta ungra hægrimanna hefur aldrei verið jafn mik- ilvæg og nú þegar við völd er versta vinstri- stjórn sögunnar. Þá er mikilvægt er að standa vörð um réttarkerfið og tryggja sjálfstæði dómstóla á þeim umróts- og uppgjörstímum sem nú ganga yfir í íslensku þjóð- félagi. Í þeim málum þarf Sjálf- stæðisflokkurinn áfram að sýna styrk og staðfestu. Hinn síungi Heimdallur hefur sinnt mikilvægu og vandasömu hlutverki um að vinna ungt fólk til fylgis við sjálfstæðisstefnuna og sannfæra ungt fólk um að hags- munum þess séu best borgið séu áhrif sjálfstæðisstefnunnar sem mest í þjóðfélaginu. Þeirri hugsjón þarf Heimdallur að vera trúr og halda þannig áfram að vinna traust ungs fólks á hugsjónum sínum. Flokkur sem ekki vinnur ungt fólk til fylgis við sig á sér enga framtíð. Hugmyndabaráttan sjaldan mikilvægari Eftir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir »Hinn síungi Heim- dallur hefur sinnt mikilvægu og vanda- sömu hlutverki um að vinna ungt fólk til fylgis við sjálfstæð- isstefnuna … Höfundur er formaður Heimdallar. KORTIÐ GILDIR TIL 31. maí 2012 MOGGAKLÚBBURINN – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR 2 FYRIR 1 Á TAPAS BARNUM AF FRÁBÆRU TAPAS AÐ HÆTTI HÚSSINS MOGGAKLÚBBUR Framvísið Moggaklúbbs- kortinu áður en pantað er. Tilboðið er í boði frá sunnudegi til miðvikudags og gildir frá 8. janúar til 28. mars 2012. ATH! Gildir ekki 14. febrúar 2012 eða með öðrum tilboðum. RESTAURANT- BAR Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1122 Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn. Glatist kortið sendu þá póst á askrift@mbl.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.