Morgunblaðið - 24.02.2012, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 24.02.2012, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 55. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Umgekkst vændiskonur í ferðum 2. „Ég er komin með nóg“ 3. Kærir Snorra til lögreglu 4. Dráttur í beinni »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Menningarverkefnið Hlaðan á Vog- um á Vatnsleysuströnd stendur fyrir tónleikum í kvöld. Fram kemur sveitin Pascal Pinon eftir nokkurt hlé. Fyrir henni fara systurnar Ásthildur og Jó- fríður Ákadætur. Pascal Pinon kemur fram í Hlöðunni  Músíktilraunir 2012 fara fram í Austurbæ dagana 23.-26. mars og úrslitakvöldið er svo 31. mars – einnig í Aust- urbæ. Skráning hófst 20. febrúar og lýkur 5. mars. RÚV/Rás 2 hefur nú opnað vef á slóðinni www.ruv.is/musiktilraunir þar sem hægt er að nálgast ýmsan fróðleik um keppnina. RÚV opnar Músíktilraunavef  Barnakór Los Angeles og Ung- sinfóníusveit Bandaríkjanna munu frumflytja verk Daníels Bjarnason- ar, The isle is full of noises …, hinn 4. mars næstkom- andi í tónleikasal Walts Disneys. Verkið er byggt á Ofviðri Shake- speares og það er James Conlon sem stjórnar. Daníel frumflytur í Los Angeles Á laugardag Suðvestlæg átt, 5-10 m/s og skúrir eða él, en bjartviðri austanlands. Hiti kringum frostmark. Suðaustan 8-13 og rigning suðvestanlands um kvöldið og hlýnar. Á sunnudag Sunnanátt og víða vætusamt. Hiti 2 til 7 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Breytileg átt, víða 3-10 m/s og skúrir eða él. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig, en vægt frost í innsveitum fyrir norðan. VEÐUR Páll Axel Vilbergsson sá um að tryggja toppliði Grinda- víkur sigur gegn Haukum þegar liðin áttust við í Ice- land Express-deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Úrslitin réðust í tvífram- lengdum leik þar sem Páll skoraði fimm síðustu stigin í leiknum. Stjarnan bar sig- urorð af Snæfelli í Hólm- inum og Njarðvík lagði ÍR þar sem Travis Holmes skoraði 54 stig. »4 Páll Axel bjargaði Grindvíkingum „Ég er fyrst og fremst stoltur yfir að hafa farið með lið mitt í Laugardals- höllina í úrslitaleik Eimskipsbikarsins þrjú ár í röð þótt við höfum tapað tvö síðustu árin fyrir Fram í úrslitum. Margir þjálfarar og leikmenn komast aldrei á sínum ferli í úrslitaleik bik- arkeppninnar,“ segir Stefán Arn- arson, þjálfari Vals, sem mætir ÍBV í úrslitum Eimskipsbikarsins í hand- knattleik kvenna á morgun. »3 Stefán er fyrst og fremst stoltur „Ég var ekki búinn að afskrifa það að ég myndi spila landsleik að nýju,“ sagði Hjálmar Jónsson, sem leikur í dag sinn fyrsta A-landsleik í fjögur ár. Hjálmar sagði það alltaf jafngaman að vera í landsliðshópnum. „Ég er stoltur yfir því.“ Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir Japönum í vin- áttulandsleik í Osaka nokkru fyrir há- degi í dag. »2 Var búinn að afskrifa sæti í landsliðinu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Viðar Guðjónsson frettir@mbl.is „Við höfðum bara trú á þessu. Það er varla tilviljun að þetta hefur gengið í 40 ár,“ segir Ari Rafn Vilbergsson sem rekur Bón- og þvottastöðina á Grjóthálsi í Reykjavík ásamt föður sínum Vilberg Vilbergssyni. Upphaflega hófst rekstur stöðv- arinnar árið 1968 og var hún í Sól- túni til ársins 2006. Hún var þá sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Enn er notast við sömu aðferðir við þrif og upphaflegir eigendur við- höfðu fyrir 40 árum. Ari Rafn tók við rekstrinum ásamt vini sínum Andrési Jónssyni árið 2007. Þá hafði starfsemi Bón- og þvottastöðvarinnar legið niðri í um fimm mánuði. Til stóð að rífa húsið þar sem starfsemin hafði áður verið. Þær áætlanir gengu þó ekki eftir og í kjölfarið sáu þeir félagarnir tæki- færi til þess að hefja rekstur að nýju. ,,Ég hef alltaf haft áhuga á bíl- um. Um leið og ég kom inn í þetta hús í Sóltúni sá ég að þetta var gott tækifæri. Það var að vísu svolítil vinna að koma húsinu í starfhæft ástand að nýju. En það gekk vel,“ segir Ari Rafn, spurður um rekst- urinn, en hann er með meistara- gráðu frá tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Framkvæmdaglaðir feðgar Feðgarnir Ari Rafn og Vilberg ákváðu að færa út kvíarnar á síðasta ári og hófu að reisa nýtt hús fyrir starfsemina við Grjótháls. Það hús var tekið í gagnið síðla árs 2011. Að sögn Ara létu þeir erfitt efna- hagsástand ekki draga úr sér kjark og voru sannfærðir um að eftirspurn væri eftir þessari starfsemi. Í húsinu er jafnframt Aðalskoðun sem sér- hæfir sig í skoðun ökutækja. Ari segist ánægður með viðtökurnar þó að hann viðurkenni að erfitt tíðarfar hafi sett strik í reikninginn. Fáir hafi komið í kuldunum síðustu mánuði. Í febrúar hafi hins vegar annað verið upp á teningnum og viðskiptahóp- urinn stækkað ört. Rótgróin starfsemi Kjartan Sveinsson rak Bón- og þvottastöðina frá 1968 til 2006. Stöð- in var sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og stóð í Sóltúni þar til Ís- lenskir aðalverktakar hugðust rífa húsið og byggja þess í stað íbúðar- húsnæði. Þeim framkvæmdum var hins vegar frestað og stendur húsið þar enn. Upphaflega hét hún Bílaþvotta- stöðin Bliki og var búin sjálfvirkum burstum. Þeir þóttu ekki gefa nægi- lega góða raun. Þess í stað var not- ast við handþvott og hefur það verið gert síðan. Sama aðferð í fjörutíu ár  Bónfeðgar láta efnahagsástandið ekki aftra sér Morgunblaðið/Kristinn Bónað í 40 ár Bifreiðarnar hafa breyst, en aðferðin við að þvo og bóna bílana er enn sú sama. ,,Meðan bíllinn þeirra fer í gegn- um hreinsunareldinn horfa börnin spennt á þetta allt saman, og hafa aldrei kynnzt neinu furðu- legra. Fyrir þeim er þetta hreinn undraheimur og meðfram færi- bandinu eru næg áhorf- endastæði.“ Svona lýsir Kjartan Sveinsson, fyrrverandi eigandi, árdögum Bón- og þvottastöðvarinnar í við- tali við Morgunblaðið í nóvember árið 1969. Þvottastöðin naut hylli fleiri en yngstu kynslóðarinnar og jafnan gerði fólk sér ferð til þess að fylgjast með vélunum vinna. Í greininni heitir Kjartan því að vandað sé til verksins undir fyr- irsögninni: ,,Þvoum þeim jafnvel á bakvið eyrun.“ Stuttu síðar var hætt með hina áhorfendavænu vélknúnu bursta þar sem þeir þóttu fara illa með lakk bílanna. Handþvotturinn sem tók við þótti áhorfendum síður spennandi. Þvoum þeim jafnvel á bak við eyrun BÍLAR FARA Í GEGNUM „HREINSUNARELDINN“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.