SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Page 6
6 18. mars 2012
Frakkinn sem stóð fyrir vetrarmaraþoninu skipu-
leggur ýmiskonar hlaup að sögn Gabriels. „Honum
leist mjög vel á allar aðstæður, ætlar að halda
hlaup árlega á Íslandi og segist ætla að koma
með fleiri keppendur með sér á næsta ári,“ segir
Gabriel.
Sá franski býður fólk oft upp á vondar aðstæður
af ýmsu tagi. „Hann hefur oft haldið mót í sandi en
hér fengu hlaupararnir allar mögulegast að-
stæður; grjót, snjó, drullu og ískalt vatn. Það var
líka frekar kalt þannig að þetta var mikil þrek-
raun.“ Gabriel langaði að taka þátt í hlaupinu
sjálfur. „Ég er mikill göngumaður; starfa sem
gönguleiðsögumaður, geng um það bil 2.000 km á
sumrin og hef hlaupið maraþon en var ekki með
núna af því ég skipulagði hlaupið. En það er aldrei
að vita nema ég æfi mig fyrir hlaupið næsta sumar
og verði með. Það væri spennandi að fara eitt 120
kílómetra hlaup,“ segir hann.
Stefnir að því að hlaupið verði árviss viðburður
Skyggnið var oft af skornum skammti í hlaupinu.
Ljósmynd/Gabriel Patay Filipusson
Tólf útlendingar tóku í síðustu viku þátt í tveggjadaga, 112 km löngu hlaupi, frá Seljalandsfossi aðHjálparfossi í grennd við Búrfell. Þeir runnu 54km fyrri daginn og 58 þann seinni við mjög erf-
iðar aðstæður, sem var nákvæmlega það sem Frakki, sem
kom með hlauparana til landsins, sóttist eftir! Gabriel Fil-
ippusson Patay var fenginn til að skipuleggja hlaupið og
segir hann að þátttakendur hafi verið himinlifandi.
„Frakkinn hefur staðið fyrir svona langhlaupum í Bras-
ilíu, Jórdaníu og víðar, við erfiðar og óhefðbundnar að-
stæður, og vildi halda vetrarmaraþon. Þess vegna kom
hann til Íslands,“ segir Gabriel spurður um það hvernig
hlaupið kom til.
Gabriel starfar á ferðaskrifstofunni Fjallabaki, sem
skipuleggur ýmiskonar ferðir um íslenska náttúru og
Frakkinn, sem kom með hlauparana til landsins, Franck
Viandier, rekur einmitt ferðaskrifstofu í heimalandinu. Sú
heitir Tendao.
Daginn áður en keppnin hófst óku þeir Gabriel á stórum
jeppa þá leið sem hlaupin var og merktu. Fólk þurfti þá
ekki að velkjast í vafa um hvert skyldi hlaupa, heldur gat
haldið beint af augum til þess að ná sem bestum tíma.
Aðstæður voru mjög slæmar, en þó alveg frábærar, sem
fyrr segir... „Fólkið hljóp í snjó og á ís, víða í mikilli
drullu, fór yfir mýrlendi og hljóp yfir eina á,“ segir Gabr-
iel. Til að bæta gráu ofan á svart var veðrið heldur ekki
upp á marga fiska, en hlaupararnir voru ekki síður
ánægðir með það því til þess var leikurinn einmitt gerður
að áskorunin yrði sem mest.
Einn keppandinn týndist að vísu í tvær klukkustundir
seinni daginn. Týndi sporunum þegar hlaupið var yfir
hraun, en þar sem allir höfðu úr með gps-tæki meðferðis
var hægt að miða manninn út og sækja hann.
Ítalinn Ernesto Ciravegna varð fyrstur að fara vega-
lengdina, kom í mark eftir um fimm og hálfa klukkustund
á hlaupum, sem er ótrúlega góður tími við þessar að-
stæðar. Gabriel segir Ciravegna mjög þekktan hlaupara og
stjörnu í heimalandinu. „Hann er ótrúlegur; hann stoppar
aldrei meðan á hlaupinu stendur og var á um 15 km með-
alhraða allan tímann.“
Einn Argentínumaður tók þátt í þrekrauninni og aðrir
hlauparar voru franskir. Allir luku keppni en sá síðasti var
tíu og hálfa klukkustund að hlaupa kílómetrana 112.
Veðrið var sérstaklega vont fyrri daginn, snjókoma,
mjög kalt og fólkið hljóp í mótvindi allan daginn. Um tíma
var það með haglél í fangið. „En þetta gekk samt allt rosa-
lega vel; þetta eru ótrúlegir íþróttamenn. Vindurinn var
mun minni seinni daginn, sem var mikill léttir og fólkið
var gríðarlega hrifið þegar það hljóp í gegnum haga þar
sem voru kýr, kindur og hestar, þakin snjó. Reykur stóð
út úr dýrunum þegar þau önduðu í kuldanum, eins og
hlaupurunum sjálfum. Fjallahringurinn var mjög fallegur
og það var satt að segja ekki hægt að óska sér drama-
tískara landslags fyrir svona keppni,“ segir Gabriel.
Frábærar,
vondar
aðstæður
Hlupu 112 km í
snjó og kulda
Ljósmynd/Gabriel Patay Filipusson
Vikuspegill
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Vetrarmaraþon
Næfurholt
Seljalandsfoss
Dagur 2
Þjófafoss
Hek
lub
rau
t
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Dagur 1: xx km
Dagur 2: xx km
Vegalengd alls: 120 km
Hjálparfoss
Gunnarsholt
ÞríhyrningurHvolsvöllur
Dagur 1
: 54 km
: 58 km
12Alsælir! Þátttakendur voru í sjöunda himni með aðstæður þó
að „venjulega fólki“ þætti eflaust vart hundi út sigandi!
Ljósmynd/Gabriel Patay Filipusson
Frá Seljalandsfossi var hlaupið um flatlendi yfir í
Fljótshlíð og þaðan sunnanmegin við Þríhyrning
gegnum Vatnsdal og yfir Fiská, framhjá Keldum
og alla leið að Gunnarsholti. Síðari daginn var
farið upp Heklubraut, gamlan slóða í gegnum
sveitina að bænum Næfurholti, alla leið að Þjófa-
fossi sem er beint fyrir framan Búrfell, meðfram
Búrfellinu og yfir stífluna, niður meðfram Búrfelli
hinum megin og hlaupararnir linntu ekki látum
fyrr en komið var að Hjálparfossi.
Löng og strembin leið