SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Page 16

SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Page 16
16 18. mars 2012 Þótt Vladimír Pútín sé nýkrýndur sigurvegari íforsetakosninganna í Rússlandi og setjist bráttað nýju í forsetstól er ekki hægt að segja aðþar fari leiðtogi, sem tryggur í sessi muni stjórna Rússlandi næstu sex ár og jafnvel tólf. Sú til- finning vaknar mun frekar að hann sé að missa tökin. Í raun er hann veikari en nokkru sinni og í vetur hefur það versta hent hann sem komið getur fyrir hinn sterka leiðtoga. Hann er orðinn hlægilegur. Pútín hafður að háði og spotti Það er spurning hvort það gerðist 20. nóvember, tveimur vikum fyrir þingkosningarnar þegar Pútín fór í ólympísku íþróttahöllina í Moskvu á viðureign í blönd- uðum bardaga milli Rússa og Bandaríkjamanns. Í stuttu máli barði Rússinn Bandaríkjamanninn til óbóta. Bar- daginn var sýndur í beinni útsendingu og iðulega mátti sjá svipbrigðalaust andlit Pútíns. Þegar viðureigninni lauk fór Pútín inn í hringinn. Hann kallaði Bandaríkja- manninn, sem var fótbrotinn og stokkbólginn í andliti, „raunverulegan karlmann“ og bætti við að sigurveg- arinn væri „raunveruleg, rússnesk hetja“. Á meðan Pútín talaði gerðist það óvænta. Margir í hópnum fóru að baula og blístra og óhljóðin heyrðust greinilega í sjónvarpinu. Myndskeið með atvikinu var sett á vefinn YouTube og breiddist út eins og eldur í sinu. Eða var það þegar Pútín fór til Sennoj við Svartahafið 10. ágúst í fyrra gegnt Krímskaga þar sem Pótemkín fursti setti upp skrautgafla til að Katrín mikla keis- araynja héldi að hún væri að fara í gegnum blómleg þorp fyrir rúmum tveimur öldum. Fór á ströndina í kafarabúningi og dembdi sér í kaf. Þegar hann kom aftur upp á yfirborðið var hann með tvo forláta vasa frá 6. öld eftir Krist í höndunum. Í stjórnartíðindunum Rossiskaja gaseta var talað um „sögulegan fund“. Netið fylltist um leið af athugasemdum. Rússar hæddust að uppákomunni. Auðvitað hefðu þessi forngripir, lágu á tveggja metra dýpi, farið fram hjá mörg hundruð forn- leifafræðingum, sem fínkembt höfðu svæðið í tæp 80 ár. Síðan veltu menn fyrir sér hvort vasarnir, sem glampaði á eins og væru þeir nýfægðir þrátt fyrir hafa legið í sjó í 1.500 ár, hefðu verið keyptir í Ikea. Á end- anum gekkst talsmaður Pútíns við því að vasarnir væru engir forngripir án þess að mikið bæri á. Árum saman hefur Pútín gengið í augun á þjóð sinni með því að hnykla vöðvana fyrir framan hana. Tals- menn hans hafa ekki dregið af og kallað hann „send- ingu frá guði“ og lykilinn að „lausn allra vandamála á plánetu okkar“. Kröftug mótmæli komu öllum í opna skjöldu Þegar Pútín tilkynnti í september að hann ætlaði að hafa stólaskipti við Dmítrí Medvedev og verða forseti á ný urðu óánægjuraddirnar háværari og ekki bætti úr skák að hann sagði að þeir hefðu sammælst um þetta „fyrir löngu“. Eftir stórfellt kosningamisferli í þing- kosningunum var mælirinn síðan fullur. Hin öflugu mótmæli virðast hins vegar hafa komið bæði stjórn og stjórnarandstöðunni í opna skjöldu og var ljóst í kosn- ingabaráttunni fyrir forsetakosningarnar 4. mars að Pútín áttaði sig ekki alveg á því hvernig hann ætti að hegða sér. Júrí Tsjaíka dómsmálaráðherra lýsti yfir því að mót- mælin ættu „rætur utan landamæra Rússlands“ og sagði að á netinu væri kynt undir öfgatilfinningum. um leið var byrjað að hreinsa til. Landstjórarnir í Vo- logda, Arkangtelsk og Volgograd sögðu af sér auk borgarstjóra Krasnojarsk, Uljanovsk og Pskov. Áfram mætti telja. Þessar hreinsanir tóku til héraða og borga þar sem fylgi Sameinaðs Rússlands, flokks Pútíns, var 20% undir landsmeðaltali. Vandinn lá ekki í því að kjósendur voru óánægðir með hið pólitíska ástand heldur hafði ekki tekist að knýja fram rétta niðurstöðu á tilteknum stöðum. Spilling hefur margfaldast í valdatíð Pútíns Pútín hefði ef til vill verið nær að hreinsa út spillinguna í landinu. Vítalí Nomokonov, lagaprófessor við háskól- ann í Vladivostok, tekur sitt hérað sem dæmi í samtali við Der Spiegel. Þar býr leikkonan Larissa Belobrova, sem var með 27 milljónir evra (4,4 milljarða króna) í tekjur 2010. Hún er einnig eiginkona landstjórans í Vladivostok, Sergejs Darkins, sem hefur verið þar við völd í skjóli Pútíns í ellefu ár. Pútín breytti á sínum tíma leikreglunum þannig að landstjórar eru ekki leng- ur kjörnir heldur velur hann þá beint. Það er mál manna að yrði gengið til kosninga í Vladivostok væri valdatíð Darkins úti. Hafnarborgin Vladivostok er talin helsta vígi spill- ingar í Rússlandi. Samkvæmt Der Spiegel lagði Darkin gruninn að velmegun sinni er hann stofnaði fyrirtæki, sem í rússneska innanríkisráðuneytinu kallast „vespu- hreiður skipulagðar glæpastarfsemi“. Í þá tíð var nú- verandi kona hans í tygjum við þekktan undirheima- foringja í borginni, Ígor „karfa“ Karpov. Leyniskyttur réðu Karpov af dögum á almannafæri og skömmu síðar gerðist Belobrowa heitbundin landstjóranum. „Það sem gerist hjá okkur er á afskræmdan máta dæmigert fyrir allt Rússland,“ segir áðurnefndur Nomokonov um ástandið í Vladivostok. „Hjá okkur eru einkum stórviðskipti glæpsamleg, það svið, sem ein- mitt ætti að vera óspilltast vegna nálægðarinnar við pólitíkina.“ Af hverju á Pútín að hreinsa upp eigin óreiðu? Nomokonov segir að enginn ágreiningur sé um það að ráðamenn í Moskvu viti allt um það hvernig kaupin gerist á eyrinni í Vladivostok, en engu að síður fái Darkin að sitja áfram. Ástæðan sé sú að auðvelt sé að beygja hann til hlýðni út af fortíð hans og hann tryggir að háttsettir embættismenn fá eitthvað fyrir snúð sinn. Talið er að á þeim tíma, sem Pútín hefur verið við völd, hafi mútur í Rússlandi hækkað úr 33 milljörðum dollara (4.215 milljörðum króna) í 400 milljarða dollara (51.000 milljarða króna). „Meira að segja Medvedev forseti hefur viðurkennt að ekki hafi orðið neinar framfarir,“ segir Nomokonov. „Hvers vegna er það þannig? Vegna þess að valdhafana skortir pólitískan vilja.“ Pútín gaf í kosningabaráttunni til kynna að eftir Er Pútín að missa tökin? Vladimír Pútín er næsti forseti Rússlands. Hann hefur verið við völd í landinu frá því í upphafi aldarinnar. Honum fylgdi stöðugleiki, en spilling hefur einnig grasserað í Rússlandi og lýðræði aðeins notað til skrauts. Þrátt fyrir sigurinn á Pútín hins vegar á brattann að sækja. Karl Blöndal kbl@mbl.is Vladimír Pútín ávarpar stuðningsmenn sína í fánahafi. Pútín var kjörinn forseti þriðja sinni í kosningunum 4. mars. ’ Pútín er búinn að glata landi sínu,“ segir Akúnín. „Ég óska þess ekki að hann hljóti örlög Moammars Gaddafis, en hann ætti að láta stjórnartaumana í hendur eft- irmanns síns. Sem sagnfræðingur veit ég að einræðiskerfi hrynja þegar gjáin á milli valdhafanna og und- irsátanna verður of stór.“

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.