SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Síða 16
16 18. mars 2012
Þótt Vladimír Pútín sé nýkrýndur sigurvegari íforsetakosninganna í Rússlandi og setjist bráttað nýju í forsetstól er ekki hægt að segja aðþar fari leiðtogi, sem tryggur í sessi muni
stjórna Rússlandi næstu sex ár og jafnvel tólf. Sú til-
finning vaknar mun frekar að hann sé að missa tökin. Í
raun er hann veikari en nokkru sinni og í vetur hefur
það versta hent hann sem komið getur fyrir hinn
sterka leiðtoga. Hann er orðinn hlægilegur.
Pútín hafður að háði og spotti
Það er spurning hvort það gerðist 20. nóvember,
tveimur vikum fyrir þingkosningarnar þegar Pútín fór í
ólympísku íþróttahöllina í Moskvu á viðureign í blönd-
uðum bardaga milli Rússa og Bandaríkjamanns. Í stuttu
máli barði Rússinn Bandaríkjamanninn til óbóta. Bar-
daginn var sýndur í beinni útsendingu og iðulega mátti
sjá svipbrigðalaust andlit Pútíns. Þegar viðureigninni
lauk fór Pútín inn í hringinn. Hann kallaði Bandaríkja-
manninn, sem var fótbrotinn og stokkbólginn í andliti,
„raunverulegan karlmann“ og bætti við að sigurveg-
arinn væri „raunveruleg, rússnesk hetja“. Á meðan
Pútín talaði gerðist það óvænta. Margir í hópnum fóru
að baula og blístra og óhljóðin heyrðust greinilega í
sjónvarpinu. Myndskeið með atvikinu var sett á vefinn
YouTube og breiddist út eins og eldur í sinu.
Eða var það þegar Pútín fór til Sennoj við Svartahafið
10. ágúst í fyrra gegnt Krímskaga þar sem Pótemkín
fursti setti upp skrautgafla til að Katrín mikla keis-
araynja héldi að hún væri að fara í gegnum blómleg
þorp fyrir rúmum tveimur öldum. Fór á ströndina í
kafarabúningi og dembdi sér í kaf. Þegar hann kom
aftur upp á yfirborðið var hann með tvo forláta vasa frá
6. öld eftir Krist í höndunum. Í stjórnartíðindunum
Rossiskaja gaseta var talað um „sögulegan fund“. Netið
fylltist um leið af athugasemdum. Rússar hæddust að
uppákomunni. Auðvitað hefðu þessi forngripir, lágu á
tveggja metra dýpi, farið fram hjá mörg hundruð forn-
leifafræðingum, sem fínkembt höfðu svæðið í tæp 80
ár. Síðan veltu menn fyrir sér hvort vasarnir, sem
glampaði á eins og væru þeir nýfægðir þrátt fyrir hafa
legið í sjó í 1.500 ár, hefðu verið keyptir í Ikea. Á end-
anum gekkst talsmaður Pútíns við því að vasarnir væru
engir forngripir án þess að mikið bæri á.
Árum saman hefur Pútín gengið í augun á þjóð sinni
með því að hnykla vöðvana fyrir framan hana. Tals-
menn hans hafa ekki dregið af og kallað hann „send-
ingu frá guði“ og lykilinn að „lausn allra vandamála á
plánetu okkar“.
Kröftug mótmæli komu öllum í opna skjöldu
Þegar Pútín tilkynnti í september að hann ætlaði að
hafa stólaskipti við Dmítrí Medvedev og verða forseti á
ný urðu óánægjuraddirnar háværari og ekki bætti úr
skák að hann sagði að þeir hefðu sammælst um þetta
„fyrir löngu“. Eftir stórfellt kosningamisferli í þing-
kosningunum var mælirinn síðan fullur. Hin öflugu
mótmæli virðast hins vegar hafa komið bæði stjórn og
stjórnarandstöðunni í opna skjöldu og var ljóst í kosn-
ingabaráttunni fyrir forsetakosningarnar 4. mars að
Pútín áttaði sig ekki alveg á því hvernig hann ætti að
hegða sér.
Júrí Tsjaíka dómsmálaráðherra lýsti yfir því að mót-
mælin ættu „rætur utan landamæra Rússlands“ og
sagði að á netinu væri kynt undir öfgatilfinningum.
um leið var byrjað að hreinsa til. Landstjórarnir í Vo-
logda, Arkangtelsk og Volgograd sögðu af sér auk
borgarstjóra Krasnojarsk, Uljanovsk og Pskov. Áfram
mætti telja. Þessar hreinsanir tóku til héraða og borga
þar sem fylgi Sameinaðs Rússlands, flokks Pútíns, var
20% undir landsmeðaltali. Vandinn lá ekki í því að
kjósendur voru óánægðir með hið pólitíska ástand
heldur hafði ekki tekist að knýja fram rétta niðurstöðu
á tilteknum stöðum.
Spilling hefur margfaldast í valdatíð Pútíns
Pútín hefði ef til vill verið nær að hreinsa út spillinguna
í landinu. Vítalí Nomokonov, lagaprófessor við háskól-
ann í Vladivostok, tekur sitt hérað sem dæmi í samtali
við Der Spiegel. Þar býr leikkonan Larissa Belobrova,
sem var með 27 milljónir evra (4,4 milljarða króna) í
tekjur 2010. Hún er einnig eiginkona landstjórans í
Vladivostok, Sergejs Darkins, sem hefur verið þar við
völd í skjóli Pútíns í ellefu ár. Pútín breytti á sínum
tíma leikreglunum þannig að landstjórar eru ekki leng-
ur kjörnir heldur velur hann þá beint. Það er mál
manna að yrði gengið til kosninga í Vladivostok væri
valdatíð Darkins úti.
Hafnarborgin Vladivostok er talin helsta vígi spill-
ingar í Rússlandi. Samkvæmt Der Spiegel lagði Darkin
gruninn að velmegun sinni er hann stofnaði fyrirtæki,
sem í rússneska innanríkisráðuneytinu kallast „vespu-
hreiður skipulagðar glæpastarfsemi“. Í þá tíð var nú-
verandi kona hans í tygjum við þekktan undirheima-
foringja í borginni, Ígor „karfa“ Karpov. Leyniskyttur
réðu Karpov af dögum á almannafæri og skömmu síðar
gerðist Belobrowa heitbundin landstjóranum.
„Það sem gerist hjá okkur er á afskræmdan máta
dæmigert fyrir allt Rússland,“ segir áðurnefndur
Nomokonov um ástandið í Vladivostok. „Hjá okkur eru
einkum stórviðskipti glæpsamleg, það svið, sem ein-
mitt ætti að vera óspilltast vegna nálægðarinnar við
pólitíkina.“
Af hverju á Pútín að hreinsa upp eigin óreiðu?
Nomokonov segir að enginn ágreiningur sé um það að
ráðamenn í Moskvu viti allt um það hvernig kaupin
gerist á eyrinni í Vladivostok, en engu að síður fái
Darkin að sitja áfram. Ástæðan sé sú að auðvelt sé að
beygja hann til hlýðni út af fortíð hans og hann tryggir
að háttsettir embættismenn fá eitthvað fyrir snúð sinn.
Talið er að á þeim tíma, sem Pútín hefur verið við
völd, hafi mútur í Rússlandi hækkað úr 33 milljörðum
dollara (4.215 milljörðum króna) í 400 milljarða dollara
(51.000 milljarða króna).
„Meira að segja Medvedev forseti hefur viðurkennt
að ekki hafi orðið neinar framfarir,“ segir Nomokonov.
„Hvers vegna er það þannig? Vegna þess að valdhafana
skortir pólitískan vilja.“
Pútín gaf í kosningabaráttunni til kynna að eftir
Er Pútín
að missa
tökin?
Vladimír Pútín er næsti forseti Rússlands.
Hann hefur verið við völd í landinu
frá því í upphafi aldarinnar. Honum
fylgdi stöðugleiki, en spilling hefur einnig
grasserað í Rússlandi og lýðræði aðeins
notað til skrauts. Þrátt fyrir sigurinn
á Pútín hins vegar á brattann að sækja.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Vladimír Pútín ávarpar stuðningsmenn
sína í fánahafi. Pútín var kjörinn forseti
þriðja sinni í kosningunum 4. mars.
’
Pútín er búinn að glata landi
sínu,“ segir Akúnín. „Ég óska
þess ekki að hann hljóti örlög
Moammars Gaddafis, en hann ætti að
láta stjórnartaumana í hendur eft-
irmanns síns. Sem sagnfræðingur
veit ég að einræðiskerfi hrynja þegar
gjáin á milli valdhafanna og und-
irsátanna verður of stór.“