SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Síða 22

SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Síða 22
22 18. mars 2012 Nú er málsmeðferð lokið fyrir Lands-dómi og málið hefur verið lagt í dóm.Gefið hefur verið til kynna að dóm-urinn ætli sér þann tíma, að ekki sé að vænta niðurstöðu hans fyrr en eftir páska og jafn- vel ekki fyrr en undir lok apríl. Umræðan sveik ekki Mikil umræða hefur verið á hliðarlínum sam- félagsins um Landsdóminn og hefur hún stundum tekið á sig sérkennilega mynd. Þess var sjálfsagt að vænta miðað við aðdraganda málsins. Jafnvel þeir, sem beittu sér hart í þinginu fyrir ákæru, höfðu augljóslega ranghugmyndir um hvað fælist í ákæru og málaferlunum sem slíkum. Einn þingmaður, sem hafði sig í frammi í þá átt, lýsti þeirri skoðun sinni í áramótaþætti að æskilegt væri að kosninga- barátta og landsdómsmál færi fram á sama tíma, því að það yrði svo vond staða fyrir Sjálfstæð- isflokkinn! Annar ákafamaður taldi að tiltekin vitni væru skelfingu lostin yfir tilhugsuninni um að mæta í vitnastúkuna og vegna þeirrar hræðslu legðust þau gegn málaferlunum á hendur Geir. Ekki síst vegna þessa mætti alls ekki falla frá ákær- unni. Þessi ákafamaður varð síðan að horfa upp á að leiðtoginn sem hann lítur upp til, Steingrímur J. Sigfússon, varð eina vitnið á staðnum, sem var beinlínis tekið í bakaríið í Þjóðmenningarhúsinu og skilið eftir sem undirmálsmaður og ómerkingur í vitnastúkunni. Svo voru þingmenn sem þóttust fordæma málaferlin gegn Geir, en komu samt í veg fyrir að frá þeim yrði fallið, vegna þess að í sal Þjóðmenningarhússins myndi fara fram sjálft „uppgjörið á hruninu“. Nú hefur heyrst í þeim sömu mönnum hneykslunarorð um að þar hafi ekkert uppgjör átt sér stað. Pöntunin hefði sem sagt ekki verið afgreidd. Þessir þingmenn, sem samþykkt höfðu tiltekna ákæruliði, héldu að rétt- arhöldin myndu samt sem áður snúast um eitt- hvað allt annað, en það sem þeir höfðu sjálfir ákveðið. Örlítið um ákæruliði Einn ákæruliðurinn snýst um það að fyrrverandi forsætisráðherra hafi ekki tryggt að umræða um bankahrunið, sem væri jú mikilvægt stjórnarmál- efni, færi formlega fram í ríkisstjórn, eins og 17. grein stjórnarskrárinnar mæli fyrir um að gert skuli með slík málefni. Nú er það svo að í mála- tilbúnaði ákæruvaldsins er að nokkru miðað við þau mörk sem þykja hafa orðið þegar bankastjórn SÍ hitti þrjá lykilráðherra ríkisstjórnarinnar og ráðuneytisstjórann í forsætisráðuneytinu til að gera þeim grein fyrir fundum, sem formaður bankastjórnarinnar og Sturla Pálsson, samstarfs- maður hans, höfðu átt í London í byrjun febrúar 2008 með bankamönnum og matsfyrirtækjum. Það er fjarri því að vera út í bláinn að ætla að nokkur tímamót hafi orðið þarna, þótt aðvör- unarorð hafi vissulega komið fram alloft áður frá SÍ um að hætta á bankaáfalli færi vaxandi. Ráðuneyt- isstjórinn í forsætisráðuneytinu lýsti fundinum fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis með þessum orð- um: „Á þessum fundi komu fram í máli Davíðs Oddssonar miklar áhyggjur af viðbrögðum og samtölum við banka í London. Og hann lýsti því yfir, sem hann taldi að hefði komið sjálfum sér og þeim seðlabankastjórum á óvart, þar kom fram af hans hálfu að viðmælendur í London hefðu verið mjög neikvæðir í garð íslensku bankanna, þeir hefðu talað um að þrengja að lánalínum og það væri ekki lengur sjálfsagt að framlengja einhver lán sem hefði annars verið eðlilegt að gera. Þetta var eiginlega mjög dramatísk lýsing af hans hálfu sem ég held að hafi komið mönnum svolítið í opna skjöldu. Og eiginlega alveg frá þeim tíma þá fer svona þetta einhvern veginn að verða svona, ekki kannski raunverulegra að því leyti að menn hafi búist við að bankarnir væru að fara, hins vegar að vandamálið væri meira en við töldum og vonuðum fram að þeim tíma.“ Þessi orð ráðuneytisstjórans staðfesta þau kaflaskil sem mönnum þóttu verða þarna. En annað atriði sem skiptir máli í þessu sam- bandi kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þar segir að á fundi þingflokks Samfylk- ingarinnar 11. febrúar 2008 „Hefði Ingibjörg (Sól- rún Gísladóttir) farið yfir minnispunkta sína frá fundi með stjórn Seðlabankans 7. febrúar 2008.“ Á þingflokksfundinum eiga auðvitað allir ráðherrar Samfylkingarinnar sæti, þar með taldir ráðherr- arnir Jóhanna Sigurðardóttir (sem sagðist fyrir Landsdómi ekkert hafa heyrt um vanda banka- kerfisins fyrr en formaður bankastjórnar kom á ríkisstjórnarfund um haustið), Össur Skarphéð- insson og Björgvin G. Sigurðsson. Allir þessir ráð- herrar ásamt hinum þremur, sem voru á fund- inum með bankastjórninni 7. febrúar, höfðu því öll efni og alla möguleika til þess að setja þessi al- varlegu álitaefni formlega á dagskrá ríkisstjórn- arinnar, teldu þeir að skort hefði á að það hefði verið gert. Forsætisráðherrann einn ræður ekki dagskrá ríkisstjórnarfunda. Og í þessu tilviki er það bankamálaráðherrann sérstaklega sem á að tryggja að umræða fari fram um málið á ráðherra- fundi hafi á það skort. En allir aðrir ráðherrar, sem fengið höfðu framangreinda vitneskju, áttu sama kost. Því er einkennilegt að horfa upp á að þing- menn Samfylkingarinnar, sumir hverjir, skuli standa að þess konar ákæruatriði gagnvart Geir H. Haarde eða taka þátt í loddaraleik til að koma í veg fyrir að frá ákærunni yrði fallið, þegar ljóst var orðið að ekki var lengur meirihluti á þinginu á bak við hana. Ákæruatriðið um færslu Icesave-útibús LÍ yfir í dótturfélag lýtur sama lögmáli. Vildi Alþingi fella refsiábyrgð á því máli á einhvern ráðherra fyrri stjórnar átti þingið ekki annan kost en að ákæra bankamálaráðherrann fyrir það atriði, en auk þess að gegna því embætti heyrði Fjármálaeftirlitið, sem eitt hafði allar lagaheimildir sem sneri að því máli, undir ráðherrann. Efast má um að slík ákæra hefði verið staðfest fyrir dómi, en gagnvart ráð- herra sem málið féll ekki undir er það þó sýnu fjarlægara. Ákæruvaldið kemst ekki fram hjá því að samkvæmt íslenskri stjórnskipun er rík- isstjórnin ekki fjölskipað stjórnvald. Sérhver ráð- herra hefur forræði og ábyrgð á sínum málaflokki. Þess vegna var dómsmálaráðherra Danmerkur en ekki forsætisráðherrann settur fyrir Landsdóm í Tamila-málinu sem frægt varð. Gölluð rannsóknarskýrsla Það er komið á daginn að það voru mistök að fá stjórnsýslufræðinga til að vera í forsvari fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis. Þeir týndu sér að mestu í leit að skýrslum, fundargerðum, og hvort menn hefðu setið við bréfaskriftir og fengið svör og svarað aftur og þar fram eftir götunum. En um leið misstu þeir sjónar á aðalatriðum málsins, enda aldrei komið nærri hlutum af því tagi sem þeir voru þó að rannsaka. Nú þegar vitnum fyrir Landsdómi gafst í fyrsta sinn færi á að fá endurrit af skýrslutökum yfir þeim sjálfum fyrir Rann- sóknarnefnd Alþingis gátu þau loks séð hve sér- kennilega og vilhallt hafði verið valið úr þeirri skýrslutöku inn í rannsóknarskýrsluna sjálfa. Bætist það við að gengið var á loforð um að and- mæli þeirra, sem sátu undir skringilegum áfell- isatriðum nefndarmanna, yrðu birt í skýrslunni sjálfri. Og einnig brugðust þessir stjórnsýslufræð- ingar fullkomlega í að gefa mönnum kost á and- mælarétti gagnvart fjölda annarra aðfinnslna, sem síðar birtust í skýrslunni og viðkomandi sáu þar fyrst. Höfðu þó a.m.k. sumir þeirra formlega kraf- ist þess að fá að njóta andmælaréttar síns í þeim Reykjavíkurbréf 16.03.12 Mál lagt í dóm

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.