SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Qupperneq 31

SunnudagsMogginn - 18.03.2012, Qupperneq 31
18. mars 2012 31 Hátíðin stendur fyrir sam-keppni, bæði í myndlist ogbókmenntum og keppt er umverðlaun í mörgum flokkum. Á síðustu hátíð tóku um 400 manns þátt í bókmenntasamkeppninni og fengu um það bil 90 höfundar verðlaun. Flestir frá Frakklandi, en einnig frá öðrum Evr- ópulöndum, svo sem Ítalíu, Belgíu, Þýskalandi og Íslandi. Hátíðin stendur í tvo daga í október og er hún einkar skemmtileg, með glæsi- legum móttökum og sameiginlegum há- tíðarkvöldverði fyrra kvöldið og hádeg- isverði seinni daginn, þar sem höfundar lesa upp úr verkum sínum og myndlist- arsýning er uppi báða dagana og sýnir fjöldi myndlistarmanna og rithöfunda, verk sín þar. Listamennirnir eru líka með bása og ræða við gesti og selja verk sín og bækur, við þetta tækifæri. APPEL gefur einnig út bókina „Planéte des Arts“ í tengslum við hátíðina, en bækurnar inni- halda bæði myndir og ljóð frá hátíðinni. Í Biscarrosse eru næg tækifæri til gistinga, enda staðurinn mjög vinsæll dvalarstaður yfir sumarmánuðina, með dásamlegar strendur og allt sem Frakkland hefur upp á að bjóða. Listin er alheimstungumál Þarna gefst listamönnum tækifæri til að hitta kollega sína frá öðrum löndum og sjá hvað þeir eru að gera og tengjast vin- áttuböndum, með tilheyrandi heimboð- um á svæði annarra listamanna. Síðastliðið haust var myndlistarmað- urinn Dhithy Zamo heiðursgestur á hátíð- inni og settu myndir hans stóran svip á sýninguna. Dhithy er málari, högg- myndalistamaður, ljóðskáld og tónskáld og er hann frá bænum Vic-Fezensac í Gers, þar sem hann á vinnustofu og heim- ili. Dhithy Zamo hefur unnið náið með Jean Claude Blondin við myndskreytingu á leikriti hans, L’orme de l’innocence sem gefið var út nýverið í bókaformi. Undirrituð átti þess kost að heimsækja Dhithy Zamo nýlega og njóta gestrisni hans og fjölskyldu hans og var það sér- staklega ánægjulegt. Hann leggur áherslu á að listin sé alheimstungumál og að það sé nausynlegt að kynnast öðrum listamönn- um, til að styrkja list framtíðarinnar og segir að menning og frelsi séu einn og sami hluturinn. Hann vinnur myrkranna á milli að list sinni, er með fjölbreytt efnistök og að- ferðir við verkin og litadýrðin og marg- breytileiki verka hans er eftirtektarverður og eru margar mynda hans mjög stórar. Vefsíða hans er: www.dhithyzamo.com og er hægt að skoða myndir hans og hafa samband við hann í gegnum síðuna. Í október er milt veður í Biscarrosse og þar er samankominn fjöldi fólks sem nýt- ur menningar og listar saman. Heima- menn og gestir fagna og tala sama tungu- mál, tungumál listarinnar og tungumál aldagamallar matarmenningar og þar er lyft glösum og glaðst yfir samskiptum fólks á milli landa, vel unnu verki og upp- skerunni, sem er komin í hús. Næsta hátíð í Biscarrosse verður haldin hátíðleg 6.-7. október 2012 og er hún öll- um opin. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í keppninni, í bókmenntum eða myndlist, geta haft samband við stjórn- endur hátíðarinnar í gegnum aðsetur AP- PEL,720, avenue Latécoére 40600 Bisc- arrosse, France. Þegar listamenn tengjast, opnast flóðgáttir tækifæranna Í Frakklandi blómstrar fjölbreytt menningarlíf og í héraðinu Landes í Suðvestur-Frakklandi er bærinn Bisc- arrosse. Þar er haldin stór alþjóðleg menningarhátíð á hverju hausti og það er sérstaklega vandað til hennar og eru það samtökin APPEL undir stjórn Jean Claude Blondin, sem standa fyrir henni. Anna S. Björnsdóttir Ströndin í Biscarrosse á fallegum degi. Anna S. Björnsdóttir ljóðskáld á bás sínum á sýningunni. Dhithy Zamo ræðir við sýningargest. Einn af mörgum réttum í hátíðarkvöldverðinum. Ljóðskáldið Anna Karin Juliussen hlýtur verðlaun fyrir verk sín, úr hendi Jean Claude Blondin. Höfundur er ljóðskáld.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.