Morgunblaðið - 20.04.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.04.2012, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012 Nethyl 3-3a ▪ 110 Reykjavík Sími 535 3600 ▪ hillur.is SKOÐIÐ ÚRVALIÐ Á HILLUR.IS 20 ára HILLUREKKAR Í BÍLSKÚRINN, GEYMSLUNA, HEIMILIÐ OG FYRIRTÆKIÐ ENGAR SKRÚFUR - SMELLT SAMAN KORTIÐ GILDIR TIL 31. maí 2012 MOGGAKLÚBBURINN – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR MENAM Á SELFOSSI 2 FYRIR 1 Á KOFARÉTTUM ALLAN APRÍLMÁNUÐ Veitingastaðurinn Menam á 15 ára afmæli í ár. Menam býður upp á tælenskan og alþjóðlegan mat- seðil með hátt í 100 réttum. Áhersla er lögð á ferskt hráefni, notalega þjónustu og aðlaðandi umhverfi. Pantanir í síma 482 4099 og tölvupósti: menam@menam.is ATH! Munið að framvísa Moggaklúbbskortinu. Verið velkomin! MOGGAKLÚBBUR Kofaréttur A Kjúklingaréttur Pa Nang Nautakjöt með hvítlauk og engifer Djúpsteiktar rækjur Fullt verð: 5.180 kr. Moggaklúbbsverð: 2.590 kr. ATH! Drykkir ekki innifaldir. Fleiri kofaréttir eru í boði. Skoðið matseðilinn á menam.is FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1122 Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn. Glatist kortið sendu þá póst á askrift@mbl.is. MENAM M A T S Ö L U S T A Ð U R / G I S T I H E I M I L I E Y R A V E G I 8 / 8 0 0 S E L F O S S I Dæmi um kofarétti Menams - hver réttur er fyrir tvo Sigurður A. Magn- ússon rithöfundur skrifaði grein í DV 21. febrúar árið 2000: „Geðbilunarástand“. Þar fjallaði hann um fjárglæfra Decode- forkólfanna. Verð hlutabréfa í Decode var komið í 65 dollara á hlut: „Fyrir til- verknað ötulla skutil- sveina markaðarins er engu líkara en landsmenn hafi gengið í björg og látið ærast af fá- víslegum gylliboðum um himinsælu skjótfengins gróða, sem eru ekki annað en hrævareldar.“ 12. apríl 2000: „Fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar hefur sett sér siðareglur sem lúta að hluta- bréfaeign og hlutabréfaviðskiptum fréttamanna. Páll Magnússon, fréttastjóri, segir að meginástæða setningar reglnanna sé sú að hlutabréfakaup séu orðin algengt sparnaðarform, hjá fréttamönnum sem öðrum. „Sú staðreynd þótti mér að kallaði á sérstakar reglur til þess að hafið væri yfir allan grun að menn á fréttastofunni væru ekki að segja fréttir um fé- lög eða þróun hlutabréfaverðs af einhverjum annarlegum hvötum. Þá á ég við fréttir sem einungis varða eigin hagsmuni viðkomandi fréttamanns,“ segir Páll og nefnir sem dæmi að fréttamenn séu í þeirri aðstöðu að geta talað verð bréfa á markaði upp eða niður.“ Í október 2000 lét Páll Magn- ússon skyndilega af störfum hjá Stöð 2 til að taka við starfi fram- kvæmdastjóra samskipta- og upp- lýsingasviðs deCODE genetics Inc: „Páll sagði að það hefði verið ákveðið strax að hann hætti sem fréttastjóri þó svo að hann ætti eftir að vinna þar í eina til tvær vikur. „Þetta er gert til að vernda trúverðugleika stöðvarinnar. Það er ekki við hæfi að menn gegni starfi fréttastjóra þegar viðkom- andi hefur ákveðið að taka sér annað starf fyrir hendur,“ sagði Páll. Hreggviður Jónsson, forstjóri Íslenska útvarpsfélagsins, sagði að þegar það lá fyrir að Páll hefði ákveðið að taka tilboði um nýtt starf hjá Íslenskri erfðagreiningu hefði verið tekin sameig- inleg ákvörðun um að hann hætti strax störfum hjá Íslenska útvarpsfélaginu. Páll hafi fengið tilboð sem hann hafi ekki getað hafnað og enginn get- að keppt við. Enginn þjónaði Ís- lenskri erfðagreiningu sem Stöð 2. Hún flutti röð sjón- varpsþátta og endurflutti. Þætti sem Kári Stefánsson og samstarfs- menn hans á Stöð 2 kölluðu „Hver lífsins þraut“. Í einum þáttanna níddist Kári á mesta velgjörða- manni sínum, Gunnari Guðmunds- syni prófessor í taugasjúkdómum. Fréttatilkynningum um heims- afrek í vísindum rigndi án afláts. Hlutabréfin í Decode hækkuðu í takt við skrumið. Tvö hundruð samstarfslæknar ÍE eru til fárra fiska metnir. Kári á þetta allt sjálfur. Meira að segja nýfengin gæði Háskóla Íslands, sem áður var „dauðans lélegur.“ Árið 2005 varð Páll útvarpsstjóri RÚV. Ólesin grein. Tvö Kastljós Greinin „Nýi sloppur keisarans“ varð fræg á einni nóttu er Kári Stefánsson leikstýrði fréttum sjón- varps 20. september 2005. Sögu- maður var að sjálfsögðu Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir. Landlæknir bar læknislist Kára miklu lofi. Ég var fordæmdur lygari. Hinn 19. október 2005 sendi Kári stjórn Læknafélags Íslands ýtarlegt bréf: „Efni: Krafa um aðgerðir vegna birtingar ærumeiðandi ummæla í grein í 9. tbl. 91. árg. Læknablaðs- ins 2005“. Félagið faldi bréfið og kallaði „kvörtun“. Læknafélag Ís- lands varð að sjálfsögðu við kröf- um Kára. Það rak farsælan rit- stjóra Læknablaðsins og kærði mig til siðanefndar 25. október vegna „kvörtunar“. Hvers? Kári þorði auðvitað ekki að kæra mig sjálfur. Næst fékk Kári Kastljós RÚV 2. nóvember 2005: „Grein Jóhanns Tómassonar læknis í Lækna- blaðinu um Kára Stefánssonar hef- ur valdið miklum titringi og hefur ritstjórn blaðsins ákveðið að segja af sér í kjölfar birtingarinnar. Kári hefur kært ritstjóra og ábyrgð- armann Læknablaðsins, Vilhjálm Rafnsson, til siðanefndar lækna, en Jóhanna Vilhjálmsdóttir ræddi við Kára í dag“: Jóhanna: Kári, þessi grein Jó- hanns Tómassonar sem birtist í Læknablaðinu í septembermánuði, í henni kom fram, svo vægt sé til orða tekið, hörð gagnrýni á þig. Nú hefur þessi grein leitt til þess að ritnefnd blaðsins er búin að segja af sér. Við skulum bara að- eins byrja á því. Hver voru þín fyrstu viðbrögð við þessari grein þegar þú last hana? Kári: Ég las ekki greinina í smáatriðum“! Kári fékk annað Kastljós (20. desember 2007). Þar kom þetta: „Kári Stefánsson: Nei, nei, nei, nei ég er bara að bregðast við því að ég er ásakaður um að hafa brotið lög landsins með því að vinna sem læknir án þess að hafa til þess leyfi. Þetta lendir á for- síðum dagblaða (ósatt, JT). Þetta lendir meðal annars sem fyrsta frétt hér í Sjónvarpi.“ Lygin lendir víða! Árið 2004 Kári niðurlægði Læknafélag Íslands sem oftar. Fulltrúar þess komu að tómum kofa hans á slaginu kl. 15:30 að nálgast fimmtán milljón króna betligjöf. Kári var í Ameríku. Hann á afmæli 6. apríl! Jónas.is bloggaði um óheiðarleika Kára: „Þess vegna þarf að eiga allt á bandi.“ Læknafélag Íslands sótti kæruna gegn mér í siðanefnd, pro bono, fyrir Kára. „Okkur bar að gera það“, sagði formaður Lækna- félags Íslands. Strengjabrúður hugleysingja Eftir Jóhann Tómasson » „Ofbeldi er aðeins hægt að leyna með lygi og lyginni er aðeins hægt að viðhalda með ofbeldi“ (Solzhenitsyn) Jóhann Tómasson Höfundur er læknir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.