Morgunblaðið - 20.04.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.04.2012, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012 Sendum frítt hvert á land sem er Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is ✝ Kristján KarlNorman fædd- ist 3. nóv. 1941, á Ísafirði. Hann varð bráðkvaddur þann 6. apríl 2012 á heim- ili sínu. Móðir hans var Þórey Sólveig Þórð- ardóttir og er hún látin. Kristján átti 3 bræður og 1 systur. Hann var settur í fóstur á öðru aldursári, til hjónanna Kristínar Jespersdóttur og Einis Þórðarsonar í Súg- andafirði þar sem hann ólst upp. Þau eru bæði látin. Fyrri kona hans var María Ingibjörg Guðjónsdóttir f. 30. des 1941, þau giftust 9. sept. 1962. Þau áttu saman tvo syni en slitu samvistum 1968. Seinni kona hans er Gréta Þórs, f. 23.8. 1936. Þau hófu bú- skap 1970 og giftust 28. mars 1993. Hún á einn son. Afa- og langafa- börn eru 9 talsins. Kristján fór að stunda sjóinn fljót- lega upp úr ferm- ingu, um tvítugt flyt- ur hann svo suður og vinnur ýmis störf. Upp úr því fer hann að vinna á Álafossi, þar sem hann svo lærði teppavefnað. Í kjölfarið ræður hann sig hjá Axminster og síðar Bertel- sen og vinnur þar við teppasölu og teppalagnir til margra ára. Laust fyrir 1990 söðlar hann um og fer að vinna sem verktaki hjá tryggingafélögum í sambandi við tjón og matsstörf. Út frá því setti hann upp eigin rekstur fyrir þrif og hreinsun á húsbúnaði og öðru tilfallandi. Hann starfaði við eigin rekstur fram til dauðadags. Kveðjuathöfn fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 20. apríl 2012, og hefst kl. 13. Elsku, kæri Kristján minn. Leiðir okkar saman síðustu 40 árin hafa verið ljúfar og litríkar. Allar okkar ferðir um landið, aust- ur um haf og vestur. Sumarbú- staðurinn í Borgarfirði, sælureit- urinn okkar, þar sem við undum okkur hverja stund sem gafst. Elsku vinurinn minn, þú fórst í þína síðustu ferð héðan heiman frá mér, eins og þú hafðir óskað að yrði. Ég kem seinna. Ljóssins engill lýsi þér og ljái frið í hjarta. Guð á himni gefi mér þú gangir veginn bjarta. (Höf. ókunnur.) Ást mín fylgi þér á framandi slóðum. Þín, Gréta. Elsku afi. Hún kom okkur að óvörum, en hún kom. Kveðjustundin. „Að lifa í hjörtum þeirra sem eftir verða er ekki að deyja,“ sagði skáldið. Og þær eru margar minn- ingarnar sem lifa áfram með okk- ur. Stundir í sumarbústaðnum og Hæðó, ferðalag til Danmerkur og ekki síst sögurnar þínar allar, sem þú elskaðir að segja. Ófáar teiknimyndirnar horfð- um við á sitjandi í afaholu, sem við áttum til að rífast um hvort fengi að liggja í, enda næst sjónvarpinu. Minningarnar tengjast allar ykkur ömmu báðum, enda höfum við aldrei séð ykkur öðruvísi en sem eitt. Enda hefur flest það, sem við áttum bara með þér, tengst ömmu. Eins og Þorláks- messuhefðin, þar sem við höfum flesta Þorláka farið saman þrjú að leita að jólagjöf fyrir ömmu. Þess- ir dagar voru um svo margt segj- andi um þig. Vildir nú ekki vera stússast í jólaundirbúning of snemma svo að kaupa gjöf á Þor- láksmessu var alveg nægur tími. Þó naust þú þess að fylgjast með ömmu setja upp jólalandið og byrja á gjafakaupunum svo snemma, að gjafirnir voru jafnvel gleymdar þegar loks kom að jól- um. Í þessum ferðum okkar var yfirleitt stoppað í ís eða góðum bita, jafnvel þó amma væri búin að segja að það biði okkar kaffi- tími eða matur þegar heim væri komið. Það dugðu engar fortölur því þú varst matmaður mikill og lést ekki svíkja frá þér góðan aukabita og hvað þá rjómaslettu. Gjafmildi þín skein í gegn í gjafaleitinni. Gjafirnar, sem keyptar voru, voru iðulega fleiri en ein og ekki af minni gerðinni. Bara það besta fyrir hana Grétu þína. Við systkinin þorðum helst ekki að líta á neitt, því þá vildir þú ólmur gefa okkur það, þrátt fyrir allt það sem leyndist bak við gjafapappír og átti að opnast dag- inn eftir. Ýmis félagasamtök fengu líka að njóta góðs af. Þau voru aldrei færri en eitt og iðulega fleiri, mál- efnin, sem þú styktir þennan dag. Fannst það svo sjálfsagt að þeir sem minna mættu sín fengju að njóta þess að þú værir aflögufær og þá sérstaklega á jólum. Við erum með þér í huganum, elsku afi, hvar sem þú ert, en hug- urinn leitar í Laufás. Húsið sem þið amma byggðuð og við reynd- um að hjálpa til við, af miklum vilja en kannski ekki jafnmiklum mætti. Við erum svo ótrúlega heppin að hafa fengið að eiga bón- usafann þig. Elsku amma, hann hafði löngum sagt að hann færi á undan og það kom á daginn að hann hafði rétt fyrir sér. Hugur okkar er með þér og við hlökkum til að eiga með þér margar ánægju- stundir. Gréta og Björn. Hafið, bláa hafið, hugann dregur. Hvað er bak við ystu sjónarrönd? Þangað liggur beinn og breiður vegur. Bíða mín þar æskudrauma lönd. Beggja skauta byr bauðst mér aldrei fyrr. Bruna þú nú, bátur minn. Svífðu seglum þöndum, svífðu burt frá ströndum. Fyrir stafni haf og himinninn. (Örn Arnarson.) Þetta ljóð kemur í hugann þeg- ar ég hugsa til þín, kæri vinur. Fyrstu kynnin á Voninni KE, glaðlyndur, úrræðagóður, kapp- samur og traustur sjómaður. Æ síðan hef ég verið öruggur í návist þinni. Síðar saman í teppalögnum og þá fékk ég að kynnast einstakri þjónustulund þinni, er fullnægði bæði viðskiptavinum og vinnuveit- endum. Þú hafðir einstakt lag á að láta viðskiptavini njóta þjónustu þinnar með snjöllum lausnum til að spara þeim bæði peninga og umstang, en um leið gættir þú hagsmuna vinnuveitenda með traustu skipulagi á efnisnotkun og tíma. Næst unnum við saman í garð- yrkju, þú að kynnast Grétu þinni og ég Mörtu minni. Þá voru dag- arnir sælir og lífsþorstinn mikill. Aftur á sjó á Guðbjörginni með Brjáni heitnum Ólasyni og fleiri góðum mönnum. Dásamlegur tími. Síðar aftur teppalagnir og vináttuböndin treystust. Nú var Marta á sama vinnustað hjá Frið- rik Bertelsen sem treysti ykkur best til allra verka. Þú sást um starfsemi Friðriks þegar hann var orðinn sjúkur maður og eins og endranær, allt eins og stafur á bók hjá þér. Um þetta leyti var Bakk- us kvaddur af okkur báðum, þú á undan með Grétu og ég fylgdi í kjölfarið. Þá var gott að njóta elskusemi þinnar og ykkar Grétu. Nú var komið að Sjóvá í tjóna- málum. Enn sama sagan, rík þjón- ustulund, ráðsnilld og þú sífellt að afla til þekkingar á efnum, tólum og tækjum til að þjóna öllum að- ilum sem best. Um það leyti flutt- uð þið í Hæðargarðinn og við Marta stuttu síðar. Þá var gott að vera til og gaman að vinna með ykkur við endurbætur á húsi og lóð. Þið byggðuð frábært fyrir- tæki í eigin húsnæði og nóg að gera. Sumarbústaður reis í landi Kötu í Munaðarnesi og þú naust þín með Grétu við byggingastúss og gróðursetningar. Þangað var gott að koma, mikið spáð og skipu- lagt sem endranær. Árin í Hæð- argarðinum voru dásamleg í dag- legum samskiptum og á léttu nótunum og alltaf nóg að gera. „Sæl, elskurnar mínar“ hljómaði upp stigann úr útidyrunum og oft komið færandi hendi. Þið réðust í stórvirki, keyptuð stærra húsnæði og þar var sett upp alhliða þjón- ustustöð fyrir tryggingafélög, glæsilegt mannvirki sem bar eig- endum sínum fagurt vitni. En svo kom kreppan og heilsa þín dapraðist. Þú hafðir ekki sama kraftinn og áður. Síðustu tvö árin voru erfið. Veikindin ágerðust og þrekið minnkaði, en hugurinn sí- vakandi til hinstu stundar. Loks gaf hjartað sig rétt eftir að þú fékkst fréttir af barnabarni núm- er tvö hjá ykkur Grétu. Svífðu nú seglum þöndum með himinskautum, elsku drengurinn minn. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni, Gréta mín og fjölskylda. Brandur og Marta. Kristján Normann vinur minn er fallinn frá. Ég kynntist Krist- jáni í lok árs 1999 þegar ég hóf störf hjá Sjóvá-Almennum trygg- ingum hf. sem yfirmaður tjóna- sviðs og störfuðum við náið saman í um fimm ár. Kristján starfaði að langmestu leyti við eignatjón á þessum árum en þó sem sjálf- stæður verktaki í fyrirtæki sínu Frumkönnun. Kristján var hluti af starfsmannahópi tjónasviðs á þessum árum en um leið var hann með það sjálfstæði sem hann vildi gagnvart tjónþolum. Kristján hafði aðsetur í tjónaskoðunarstöð Sjóvár-Almennra að Draghálsi. Sjálfur var ég með aðsetur að Kringlunni 5 en fór alltaf í heim- sókn í tjónaskoðunarstöðina einu sinni í viku. Við vorum fljótir að ná góðu sambandi og þarna tókum við Kristján okkar vikulega sam- tal sem ekki bara snerist um vinn- una heldur allt mögulegt, ekkert var okkur óviðkomandi. Það var alltaf gaman að tala við Kristján, hann hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum og lét þær vel í ljós. Ekki vorum við alltaf sammála en þá var líka gott að ræða málin í þaula og komast að sameiginlegri niðurstöðu. Kristján starfaði að mestu að málum er tengdust bruna- og vatnstjónum á eignum fólks. Að- koma að tjónum og uppgjör þeirra geta oft verið afar erfið en Krist- jáni tókst alltaf vel upp við að að- stoða fólk sem hafði orðið fyrir missi eða skemmdum á eigum sín- um. Kristján var mikill atorkumað- ur í vinnu og gekk oft mikið á þeg- ar stærri tjón urðu, það varð að vinna hratt til að bjarga búslóðum og persónulegum munum fólks. Kristján vann eins og þurfti en spurði engan hvað tímanum liði heldur gerði allt sem í hans valdi stóð til að bjarga því sem hægt var. Kristján þróaði með sér mikla hæfileika við að þrífa og lagfæra ýmsa muni og voru það ótrúlegir hlutir sem hann náði að þrífa og gera sem nýja. Mörgum óbætan- legum og persónulegum munum tókst honum að bjarga sem í fyrstu hefðu verið dæmdir ónýtir. Eftir að leiðir okkar Kristjáns skildu þá héldum við sambandi þó ekki væri það með reglulegum hætti. Kristján flutti síðar úr hús- næði Sjóvár með fyrirtæki sitt og starfaði sjálfstætt við tjónaþjón- ustu og þrif á eignum fólks og fyr- irtækja allt til dánardags. Ég votta fjölskyldu Kristjáns innilega samúð mína með þökk fyrir góða vináttu. Halldór G. Eyjólfsson. Vinur minn til áratuga, Krist- ján Karl Normann, er fallinn frá, í Kristján Karl Norman ✝ Þórdís Bjarna-dóttir fæddist á Húsavík 23.4. 1925. Hún lést á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 1.4. 2012. Foreldrar henn- ar voru Þórdís Ás- geirsdóttir frá Knarrarnesi f. 30.6. 1889 d. 23.4. 1965 Og Bjarni Benediktsson f. 29.9. 1877, d. 25.6. 1964. Eiginmaður Þórdísar var Gunnar Rúnar Ólafsson, ljós- myndari, f. 23.5. 1917, d. 29.1. 1965. Börn Þórdísar og Gunn- ars Rúnars eru: Ólafur g. Önnu Finnsdóttur, þeirra börn eru Gunn- hildur og Gunnar Rúnar, Ólafía Þór- dís var gift Stefáni Ólafssyni, þeirra börn eru Guðrún Olga og Ólafur Þór. Gunnar er giftur Ágústínu Guðmundsdóttur, þeirra börn eru Rúnar og Guð- mundur Ólafur. Útför Þórdísar fór fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu þann 12.4. 2012 að ósk hinnar látnu. Mig langar að minnast tengda- móður minnar, Þórdísar Bjarna- dóttur frá Húsavík. Fjörutíu ár eru að baki og af mörgu að taka sem ekki verða gerð skil í stuttri grein. Hvernig átti mér að detta í hug, lítilli stelpu, trítlandi um göt- ur Húsavíkur, mætandi stórhöfð- ingjanum Bjarna Ben, sem tók alltaf ofan fyrir okkur krökkun- um, að hann yrði tengdaafi minn? Og hvernig átti mig að gruna að Bryndís og Venni Bjarna, vina- fólk foreldra minna á Húsavík, ættu eftir að tengjast mér sterk- um fjölskylduböndum? Við Doddí hittumst fyrst á árshátíð Þingeyinga og urðum strax nokkuð sáttar hvor við aðra. Hún var afskaplega raungóð kona og yndisleg amma sem var í nánu sambandi við barnabörnin sín og kunni af þeim ótal sögur. Á yngri árum hafði hún yndi af ferðalögum bæði innan- og utan- lands. Doddí las mikið, bæði bæk- ur og dagblöðin, sem hún las í tætlur. Hún fylgdist vel með þjóð- málaumræðunni enda með útvarp í hverju herbergi og hafði sterkar skoðanir á hlutunum. Oftar en ekki sköpuðust eldheitar og skemmtilegar umræður þegar fjölskyldan kom saman. Þessi ástríða fyrir rökræðum kom mér spánskt fyrir sjónir í upphafi, en smám saman lærði ég að hafa gaman af. Svo var það fótboltinn sem átti hug hennar seinni árin. Eftir leiki Liverpool þurfti að ræða um frammistöðuna. Doddí hafði sterkar skoðanir á þjálfara og leikmönnum og hringdi þá gjarn- an í Ólaf son sinn til að greina hvað betur hefði mátt fara. Ekki er ástæða til að efast um að gengi liðsins væri annað og betra í dag ef ráðleggingar tengdamóður minnar hefðu komist lengra en í Hafnarfjörðinn. Það átti fyrir okkur tengda- mæðgunum að liggja að búa sam- an í 14 ár. Á þeim tíma rákum við gistiheimili á efri hæð hússins okkar og tók Doddí virkan þátt í því. Það voru góðir tímar. Í desember síðastliðnum veikt- ist Doddí af heilablóðfalli en hélt fullri andlegri heilsu. Nú er hún komin í drauma- landið sitt með sínu fólki sem farið er. Bestu kveðjur, kæra vinkona. Anna Finnsdóttir. Nú styttist í sumardaginn fyrsta en þann dag fyrir tæpum 87 árum fengu langafi og langamma á Húsavík hana ömmu Doddí í sumargjöf. Frá þeim degi var sumardagurinn fyrsti dagur- inn hennar ömmu. Það er sannarlega margs að minnast og margt að þakka þegar ég kveð ömmu mína enda eru þær ófáar minningarnar sem bera vitni um örlæti hennar og vænt- umþykju. Mér verður hugsað til æskujólanna en við fjölskyldan voru svo lánsöm að hafa ömmu með okkur á aðfangadag ár hvert. Rúsínan í pylsuendanum var svo að fá ömmu sem herbergisfélaga á jólanótt og fá að hafa hana alveg út af fyrir mig. Það var því lán í óláni eitt árið þegar amma greyið fótbrotnaði og flutti inn til mín í heilan mánuð. Fékk þar masgefin lítil stúlka þolinmóðan herbergisfélaga sem alltaf hafði tíma til að tala um hvað sem var þegar á þurfti að halda. Ekki stóð heldur á hvatn- ingunni sem amma sýndi mér í kringum tónlistar- og íþrótta- bröltið á mér sem barni og ung- lingi og þótti mér gott að vita af ömmu á meðal áhorfenda þegar mikið stóð til. Eftirminnilegar eru svo helg- arnar sem við Gunnar bróðir minn eyddum í Gnoðarvoginum Þórdís Bjarnadóttir Kveðja frá ISNIC Eftir því sem ég verð eldri geri ég mér æ betur grein fyrir því hversu mikilvægt það er að kynn- ast góðu fólki á lífsleiðinni og eign- ast það að vinum. Ég var svo heppinn að fá úthlutaða skrifstofu við hliðina á Tryggva Karli Eiríks- syni þegar ég hóf störf á Þjóð- hagsstofnun í janúar 1996, þá ný- kominn heim úr námi. Ég tók strax að mér að færa Tryggva kaffið, enda yngri maður og byrj- andi. Það starf átti ég eftir að fá ríkulega launað með vináttu Tryggvi Karl Eiríksson ✝ Tryggvi KarlEiríksson fæddist á Vot- umýri, Skeiða- hreppi, 10. október 1948. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 28. mars 2012. Útför Tryggva fór fram frá Foss- vogskirkju 10. apríl 2012. manns sem ég er af- ar þakklátur fyrir að hafa kynnst. Tryggvi var sveitastrákur og þar sem ég dvaldi öll mín bernskusumur í sveit sló svipaður taktur í okkur báð- um. Kannski var það þessi taug til sveitar- innar sem við áttum helst sameiginlega til að byrja með og báðir höfðum við gaman af því að tala um sveit- ina og rifja upp bernskuárin þar. Fyrir nýútskrifaðan hagfræð- ing sem þurfti á öllu sínu að halda var ómetanlegt að geta leitað í smiðju Tryggva Karls, en hann var viðskiptafræðingur af gamla skólanum, þegar það nám var lengra, umfangsmeira og strembnara en nú. Tryggvi var auk þess sérlega góður í reikningi og talnaglöggur með afbrigðum. Þegar internetbyltingin var kom- in vel af stað árið 2000 ákváðum við nokkrir félagar að stofna int- ernetfyrirtækið Modernus og Tryggvi var kosinn stjórnarfor- maður þrátt fyrir að vera aðeins fjórði stærsti hluthafinn því hann var maðurinn sem allir treystu best. Eftir sameininguna við Int- ernet á Íslandi hf. (ISNIC) í upp- hafi árs 2007 var Tryggvi kosinn stjórnarformaður ISNIC þrátt fyrir að nýr og stór hluthafi, Ís- landspóstur hf., hefði bæst í hóp- inn og hann sjálfur þar með kom- inn í hóp minnstu hluthafanna. Tryggvi gegndi starfi stjórnarfor- manns ISNIC til dauðadags og stjórnaði sem slíkur aðalfundi fé- lagsins þann 20. janúar sl. af mikl- um hetjuskap. Það er mikil gæfa fyrir hlutafélög að hafa stjórnar- formann sem prýddur er líkum mannkostum og Tryggvi. Í honum sameinuðust kærleikur og skyn- semi þannig að allir sem honum kynntust nutu sín sérlega vel í nærveru hans. Nú er hans sárt saknað. Fyrir hönd starfsfólks og stjórnar ISNIC þakka ég Tryggva Karli Eiríkssyni sam- fylgdina um leið og ég bið góðan Guð að blessa minningu hans. Ágústu Tómasdóttur, eiginkonu hans, og börnum þeirra sendum við hjónin okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Jens Pétur Jensen, framkvæmdastjóri Internet á Íslandi hf. – ISNIC.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.